Fréttir
Stígamót minna öryggismál á útihátíðum Stígamót vilja minna skipuleggjendur útihátíða sumarsins að huga að öryggismálum í tíma. Í fréttatilkynningu frá Stígamótum kemur fram að ellefu stúlkur hafai leitað samtakanna vegna nauðganna á útihátíðum en allar hjálparbeiðnirnar bárust löngu eftir að útihátíðunum lauk. Innlent 8.6.2006 22:35
J og B meirihluti í Dalvíkurbyggð Nýr meirihluti er kominn fram í Dalvíkurbyggð. J-listi óháðra og B-listi Framsóknarmanna hafa myndað meirihluta í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar. Svanfríður Jónasdóttir verður bæjarstjóri fyrri hluta kjörtímabilsins en auglýst verður eftir bæjarstjóra fyrir seinna tímabilið í samræmi við stefnuskrá Framsóknarflokksins. Ráðið verður í starfið samkvæmt tilnefningu B-listans. Innlent 8.6.2006 22:28
LSH var ekki heimilt að víkja Tómasi Zoega úr starfi yfirlæknis Ákvörðun Landspítala-Háskólasjúkrahúss að svipta Tómas Zoega yfirlæknisstöðu sinni var ólögmæt. Þetta var úrskurður hæstaréttar í dag. Tómas var yfirlæknir á geðsviði hjá Landspítalanum frá 1991. Eftir að spítalarnir voru sameinaðir ákvað stjórn spítalans árið 2001 að yfirlæknum yrði ekki leyft að reka eigin stofur samhliða vinnu á LSH. Tómasi var gert að hætta rekstri stofu sinnar og þegar hann gerði það ekki var honum tilkynnt árið 2005 að hann myndi ekki gegna áfram yfirlæknastöðunni. Innlent 8.6.2006 21:06
Nokkuð um hraðakstur í Langadal 15 ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi síðdegis í dag. Allir voru þeir stöðvaðir í Langadal. Sá sem ók hraðast mældist á 126 km hraða eða 36 kílómetra hraða yfir leyfilegum hámarkshraða. Innlent 8.6.2006 22:23
Níu verk keppa í dansleikhús samkeppninni í ár 25 tíma dansleikhús samkeppni stendur nú yfir í Borgarleikhúsinu. Samkeppnin er nú haldin í fjórða sinn. Það eru Leikfélag Reykjavíkur og Íslenski dansflokkurinn sem standa að samkeppninni og SPRON er einnhelsti styrktaraðili keppninnar. Innlent 8.6.2006 21:53
Unnið verði að endurreisn þorskstofnsins Þingflokkur Vinstri - grænna hvetur stjórnvöld til að vinna markvisst að endurreisn þorskstofnsins og annarra mikilvægra nytjastofna í hafinu kringum Ísland. Flokkurinn tekur líka undir það sem fram kemur í nýrri skýrslu Hafrannsóknastofnunar þar sem segir meðal annars að nýting fiskistofnananna þurfi að lúta lögmálum sjálfbærrar þróunar. Innlent 8.6.2006 19:02
Landvernd kærir Ölfus vegna malarnáms í Ingólfsfjalli Stjórn Landverndar hefur tekið ákvörðun um að leggja fram kæru vegna framkvæmdaleyfis sem sveitarfélagið Ölfus veitti Fossvélum til malarnáms í Þórustaðanámu sem er í brún Ingólfsfjalls. Innlent 8.6.2006 18:49
Má teljast heppinn að ekki fór verr Brúarsmiður má teljast heppinn að ekki fór verr þegar átta tonn af steypustyrktarjárni féllu á hann á mótum Suðurlands- og Vesturlandsvegar á tíunda tímanum í morgun. Innlent 8.6.2006 18:29
Akstur undir áhrifum og kynferðisleg áreitni í Héraðsdómi í dag Héraðsdómur dæmdi karl fyrir akstur undir áhrifum lyfja og konu fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Maður var sýknaður af ákæru um að hafa haft í frammi kynferðislega tilburði við unga stúlku. Innlent 8.6.2006 17:53
Bolvíkingar fiska vel Þrír aflahæstu smábátar landsins frá áramótum og til vertíðarloka ellefta maí, eru allir frá Bolungarvík. Á tímabilinu réru þeir um það bil hundrað róðra hver, fengu allir vel á sjötta hundrað tonn, eða samanlagt rúmlega sextán hundruð tonn, sem er rúmlega tólf tonn upp á hvern dag hjá bátunum í heild. Innlent 8.6.2006 17:29
Farþegi sem réðst á leigubílstjóra dæmdur í fimm ára fangelsi Hæstiréttur dæmdi í dag Guðbjart J. Sigurðsson í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, auk greiðslu skaðabóta upp á tæplega 700.000 krónur. Hann er dæmdur fyrir að veita leigubílstjóra stórhættulegan áverka á hálsi með eggvopni. Innlent 8.6.2006 17:24
Spá minni eftirspurn eftir áli Verð á áli og öðrum málumum hefur lækkað síðustu mánuði en álverð hefur lækkað um 11 prósent frá 11. maí síðastliðnum. Verð á málmum hefur farið ört hækkandi á síðastliðnum fimm árum, m.a. vegna mikillar eftirspurnar frá stórum hagkerfum á borð við Kína og Indland. Búist er við minni eftirspurn eftir málmum á næstunni vegna hárra vaxta víða um heim. Viðskipti innlent 8.6.2006 17:03
Hundruð nýrra botndýrategunda hafa fundist við landið Fjörutíu prósent af þeim botndýrum sem fundist hafa við Ísland í svokölluðu BIOICE-botndýraverkefni hafa ekki fundist áður hér við land. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu Hafrannsóknarstofnunarinnar sem unnið hefur að verkefninu ásamt nokkrum aðilum. Innlent 8.6.2006 15:28
Danir hækka stýrivexti Seðlabanki Danmerkur hefur fylgt fordæmi evrópska seðlabankans og hækkað stýrivexti um 0,25 prósentur. Stýrivextir í Danmörku standa nú í 3 prósentum. Seðlabanki Evrópu hækkaði stýrivexti fyrr í dag um fjórðung úr prósenti og standa þeir nú í 2,75 prósentum. Viðskipti erlent 8.6.2006 15:36
Ný sveitarstjórn mun velja nafn á sameinað sveitarfélag í Borgarfirði Ný sveitarstjórn í sameinuðu sveitarfélagi í Borgarfirði mun taka ákvörðun um nafn á sveitarfélagið eftir að kosning á sameiginilegum fundi fráfarandi sveitarstjórna féll á jöfnu. Frá þessu er greint á vef Skessuhorns. Innlent 8.6.2006 15:20
Læknanemar mæta til vinnu á morgun Samningar hafa náðst í kjaradeilu læknanema og yfirstjórnar Landspítalans. Á fundi fulltrúa spítalans og fulltrúa læknanema sem lauk fyrir stundu lagði spítalinn fram tilboð sem fulltrúar nema samþykktu, eftir að hafa borið tilboðið undir samnemendur sína. Innlent 8.6.2006 15:27
Ný sveitarstjórn þarf að ákveða nafn Ný sveitarstjórn í sameinuðu sveitarfélagi í Borgarfirði mun taka ákvörðun um nafn á sveitarfélagið eftir að kosning á sameiginilegum fundi fráfarandi sveitarstjórna féll á jöfnu. Innlent 8.6.2006 15:24
Varað við hefndarárásum í Írak vegna dauða al-Zarqawi Khalid Khawaja, fyrrum aðstoðarmaður Osama bin Laden, varar við hefndaraðgerðum eftirmanna al-Zarqawis. Hann segir Zarqawi hafa dáið píslarvættisdauða og heilagt stríð í Írak, jihad, muni halda áfram. Erlent 8.6.2006 14:36
Litlar líkur á harðri lendingu í íslensku efnahagslífi Í vefriti fjármálaráðuneytisins í dag eru ræddar líkur á harðri lendingu efnahagslífsins. Hörð lending er skilgreind sem djúp niðursveifla sem einkennist af ört vaxandi atvinnuleysi og vanskilum heimila og fyrirtækja. Forsvarsmenn fjármálaráðuneytisins telja litlar líkur á harðri lendingu. Innlent 8.6.2006 14:48
Stýrivaxtahækkun á evrusvæðinu Seðlabanki Evrópu hækkaði stýrivexti á evrusvæðinu um 0,25 prósent í dag og standa þeir nú í 2,75 prósentum. Almennt var búist við stýrivaxtahækkuninni en nokkrir bjuggust hins vegar við 0,5 prósenta hækkun. Viðskipti erlent 8.6.2006 13:59
Litlar breytingar á fylgi stjórnmálaflokkanna Mjög litlar breytingar hafa orðið á fylgi stjórnmálaflokka í landinu milli mánaða samkvæmt nýjum Þjóðarpúsli Gallups. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 40 prósent, Samfylkingarinnar 29 prósent og Vinstri - grænna 17 prósent. Tíundi hver maður kysi Framsóknarflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú og Frjálslyndir njóta stuðnings fjögurra prósenta landsmanna. Innlent 8.6.2006 13:57
Olíuverð lækkaði í dag Olíuverð fór niður fyrir 70 Bandaríkjadali á tunnu í dag í kjölfar fregna um dauða Abus Musab al-Zarqawis, æðsta manns hryðjuverkasamtakanna al-Qaida í Írak. Þá munu fregnir þess efnis að skæruliðar í Nígeríu muni gefa erlendum gíslum sínum frelsi hafa ýtt verðinu niður. Olíuverðið hefur ekki verið lægra í hálfan mánuð. Viðskipti erlent 8.6.2006 13:30
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Stjórn Englandsbanka ákvað á fundi sínum í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum. Stýrivextir í Bretlandi standa í 4,5 prósentum og hafa þeir haldist óbreyttir undanfarna 10 mánuði. Viðskipti erlent 8.6.2006 13:21
Slasaðist minna en í fyrstu var talið Maðurinn, sem varð undir járnbita við byggingu mislægra gatnamóta á mótum Suðurlands- og Vesturlandsvega í morgun, meiddist minna en óttast var. Það tók björgunarmenn um hálfa klukkustund að losa manninn, sem var svo fluttur í sjúkrabíl á Landsspítalann í Fossvogi, þar sem gert var að sárum hans og hann gekkst undir rannsóknir. Innlent 8.6.2006 13:05
Bruni í húsnæði í Súðarvogi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að verksmiðjuhúsnæði við Súðarvog laust fyrir hádegi vegna elds sem þar hafði komið upp. Að sögn slökkviliðs voru menn að vinnu inni í húsnæðinu við slípun nærri loftræstistokki og svo virðist sem neisti hafi hlaupið í óhreinindi í loftræstistokknum með þeim afleiðingum að eldurinn kviknaði. Innlent 8.6.2006 12:58
Alvarlegt bílslys á mótum Eyrarbakkavegar og Þorlákshafnarvegar Tvær konur slösuðust mjög alvarlega þegar jeppi þeirra lenti í hörðum árkestri við stóran hópferðabíl á mótum Eyrarbakkavegar og Þorlákshafnarvegar um klukkan ellefu í morgun. Allt lögreglulið og sjúkrabílar frá Selfossi voru send á vetvang og tækjabíll frá Slökkviliðinu í Hveragerði til að klippa flakið utan af konunum. Innlent 8.6.2006 12:56
Þurfa líklega að brenna matvæli frá herstöð Líkur eru á að varnarliðinu verði gert að brenna tugi tonna af fyrsta flokks matvælum, sem nú eru í stórmörkuðum og frystigeymslum á Keflavíkurflugvelli, í stað þess að fá að gefa þau íslenskum sjálfseignarstofnunum sem vinna að líknarmálum. Innlent 8.6.2006 12:32
Þora ekki út á kvöldin eftir árásir Skemmtiferð útskriftarnema frá Verzlunarskóla Íslands til Búlgaríu hefur tekið heldur óskemmtilega stefnu því að minnsta kosti þrír þeirra hafa orðið fyrir árásum og þá hafa nokkrir verið rændir. Kveður svo rammt að þessu að hluti hópsins þorir ekki lengur út á lífið af ótta við árásir og nokkrir hafa þegar haldið heim, fyrr en áætlað var. Innlent 8.6.2006 12:11
Ekki farið út í ævintýrafjárfestingar í OR Verðandi borgarstjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, segir að ekki verði farið út í neinar ævintýrafjárfestingar í Orkuveitunni. Eitt fyrsta verk nýs borgarstjórnarmeirihluta verði að fara rækilega ofan í áform um kaup hennar á grunnneti Símans. Innlent 8.6.2006 12:15
Leiðtogar Eystrasaltsráðsins funda Leiðtogar Eystrasaltsráðsins funda í dag í Reykjavík. Með því lýkur eins árs formennsku Íslands í ráðinu. Í ráðinu sitja löndin níu sem liggja að Eystrasaltinu auk Noregs og Íslands. Erlent 8.6.2006 10:59