Fréttir
Minni viðskiptahalli en búist var við Viðskiptahallinn í Bandaríkunum jókst um 2,5 prósent í apríl og var vöruskiptajöfnuður óhagstæður um 63,4 milljarða Bandaríkadali. Þetta er minni halli en fjármálasérfræðingar spáðu fyrir um en þeir óttuðust að vöruskipti yrðu óhagstæð um 65 milljarða dali. Viðskipti erlent 9.6.2006 14:21
Spenna vex vegna morðsins á Samhadana Spenna hefur aukist fyrir botni Miðjarðarhafs í dag í kjölfar þess að Ísraelsher réð yfirmann öryggismála hjá palestínsku heimastjórninni af dögum í Rafah á Gasaströndini í gærkvöld. Erlent 9.6.2006 13:52
272 milljóna króna tap af rekstri Byggðastofnunar Tvö hundruð sjötíu og tveggja milljóna króna tap varð af rekstri Byggðastofnunar á síðasta ári og minnkaði um rúmar hundrað milljónir frá árinu 2004. Þetta kemur fram í nýrri árssýrslu stofnunarinnar. Innlent 9.6.2006 13:49
OR kaupir fjórar vatnsveitur af Borgarfjarðarsveit Orkuveita Reykjavíkur hefur samið við Borgarfjarðarsveit um kaup á fjórum vatnsveitum. Fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu að um sé ræða veitur á Hvanneyri, í Bæjarsveit, á Kleppjárnsreykjum og í Reykholti. Innlent 9.6.2006 12:48
Þarf að hreinsa andrúmsloftið í kringum orkusamninga Það þarf að hreinsa andrúmsloftið í kringum fjárfestingar við Kárahnjúkavirkjun og því er mikilvægt að aflétta trúnaði af orkusölusamningi við Alcoa. Þetta segir Helgi Hjörvar, þingmaður og stjórnarmaður í Landsvirkjun, sem ætlar að leggja fram tillögu þar að lútandi á næsta stjórnarfundi Landsvirkjunar. Innlent 9.6.2006 12:37
Bóluefni líklega skráð hér á landi um áramót Nýtt bóluefni gegn leghálskrabbameini verður að öllum líkindum skráð hér á landi um næstu áramót. Bóluefnið getur haft mikla þýðingu fyrir konur framtíðarinnar. Innlent 9.6.2006 12:29
Kaup Baugs á House of Fraiser að óbreyttu í höfn Kaup Baugs á bresku verslanakeðjunni House of Fraser eru að öllu óbreyttu í höfn, eftir að stjórn verslanakeðjunnar samþykkti í morgun yfirtökutilboð Baugs upp á 50 milljarða króna. Innlent 9.6.2006 12:12
Sátt felur ekki í sér afsögn Guðna Sátt sem formaður og varaformaður Framsóknarflokksins gerðu í gærkvöld felur ekki í sér að Guðni Ágústsson segi af sér æðstu embættum í flokknum. Flokksþing verður í þriðju viku ágústmánaðar. Innlent 9.6.2006 12:09
House of Fraser sagt samþykkja tilboð Baugs Stjórn House of Fraser hefur staðfest að hún eigi í viðræðum við Baug Group um yfirtöku á félaginu. Viðræður hafa farið fram um að Baugur bjóði 148 pens í hvern hlut en gangi tilboðið eftir er verðmæti House of Fraser um 48 milljarðar króna. Viðskipti innlent 9.6.2006 12:04
Vilja vitnisburð um samskipti dómsstjóra og saksóknara Verjendur tveggja sakborninga í Baugsmálinu krefjast þess að settur saksóknari í málinu og dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur beri vitni um samskipti sín áður en ákæra var gefin út að nýju. Þeir telja samskiptin óeðlileg og brjóta í bága við lög. Innlent 9.6.2006 12:04
Vilja settan ríkissaksóknara í vitnastúku Fyrirtaka hófst í Baugsmálinu í morgun en þar verður meðal annars tekin afstaða til þeirrar kröfu verjenda í málinu um að Sigurður Magnús Tómasson, settur ríkissaksóknari, og Helgi I. Jónsson, dómsstjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur, verði leiddir í vitnastúku í tengslum við skipan dómara í málinu. Innlent 9.6.2006 10:28
Styður samruna evrópskra kauphalla Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri Evrópu, er fylgjandi samruna kauphalla í Evrópu og styðjur tilraun þýsku kauphallarinnar, Deutsche Börse, til að sameinast samevrópska hlutabréfamarkaðnum Euronext. Í byrjun mánaðarins var greint frá því að búið væri að samþykkja samruna kauphallarinnar í New York í Bandaríkjunum (NYSE) og Euronext. Viðskipti erlent 9.6.2006 11:08
Taka undir hugmyndir um Lyfjastofnun ríkisins Neytendendasamtökin taka undir hugmyndir landlæknis um að nauðsynlegt geti reynst að stofna á nýjan leik Lyfjaverslun ríkisins til að ná niður lyfjaverði hér á landi. Á heimasíðu samtakanna kemur fram að það sé óþolandi að íslensk lyfsölufyrirtæki geti ekki boðið neytendum upp á sambærilegt verð á lyfjum og í nágrannalöndunum og að íslensk stjórnvöld verði þess vegna að grípa til aðgerða. Innlent 9.6.2006 09:55
Hafnar kröfu um bætur frá ríkinu vegna árásar á Litla-Hrauni Hæstiréttur hafnaði í gær kröfu Þórhalls Ölvers Gunnlaugssonar, oftast kenndum við Vatnsberann, um bætur frá íslenska ríkinu vegna árásar sem hann varð fyrir á Litla-Hrauni fyrir þremur árum. Innlent 9.6.2006 09:33
Gripnir með stolna fartölvu Tveir grunsamlegir menn vopru gripnir glóðvolglir með fartölvu í fórum sínum í vesturborginni undir morgun og taldi lögreglan sig vera búna að finna þjófa, sem skömmmu áður höfðu brotist inn i fasteignasölu í miðborginni og stolið þaðan fartölvu. Mennirnir reyndust hinsvegar blá saklausir af því, en þó ekki saklausir eftir allt, því tölvan reyndist vera úr íbúð í vesturborginni, þar sem þeir höfðu brotist inn og stolið henni. Innlent 9.6.2006 08:09
Segir fullum sáttum náð í deilu innan Framsóknar Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir í samtali við NFS að þeir Halldór Ásgrímsson, formaður flokksins, hafi náð fullum sáttum á fundi þeirra í gærkvöld; handtakið sem sjá má á forsíðu Morgunblaðsins hafi verið traust. Innlent 9.6.2006 09:48
Rússar framselja eftirlýstan stríðsglæpamann Rússar hafa framselt Bosníu-Serbann Dragan Zelenovic til bosnískra yfirvalda, en hann hefur verið eftirlýstur vegna glæpa í stríðinu á Balkanskaga á tíunda áratug síðustu aldar. Þetta hefur Interfax-fréttastofan eftir ónafngreindum heimildarmönnum í Moskvu. Erlent 9.6.2006 08:28
Fundu stolinn bíl við fíkniefnaleit Glænýr pick up bíll fanst falinn inni í bílskúr þegar lögreglan í Keflavík var að gera húsleit í Garðinum í nótt vegna gruns um fíkniefnamisferli. Þegar lögreglumenn höfðu fundið kannabis á ýmsum vinnslustigum og nokkrar kannabisplöntur á heimili hins gurnaða, datt þeim í hug að líta inn í bílskurinn, þar sem bíllinn fanst. Innlent 9.6.2006 08:05
Leyfa notkun bóluefnis gegn leghálskrabbameini Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur í fyrsta sinn gefið leyfi fyrir því að nota bólefnið Gardasil gegn leghálskrabbameini. Bóluefnið, sem konur á aldrinum níu til tuttugu og sex ára geta notað, kemur í veg fyrir ákveðna veirusýkingu tengda kynmökum sem talin er leiða til leghálskrabbameins. Erlent 9.6.2006 07:56
Tekinn fyrir handrukkun vegna fasteignaviðskipta Eins konar handrukkari var handtekinn á Akureyri í nótt eftir að fórnarlamb hans kallaði á lögreglu þegar rukkarinn var farinn af vettvangi. Það sem er óvenjulegt við þennan sjálfskipaða innheimtumann er að hann tengist ekki fíkniefnaheiminum heldur tengist málið fasteignaviðskiptum. Innlent 9.6.2006 07:53
Bjargað úr sundlaug í Reykjanesi Maður slasaðist í sundlauginni í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp í nótt og lá meðvitundarlaus á laugarbotninum og farinn að blána þegar félagar hans fundu hann. Innlent 9.6.2006 07:47
Íbúar við Merapi snúa aftur Íbúar í þorpum nærri indónesíska eldfjallinu Merapi, sem flýðu heimili sín í gær vegna aukinnar virkni í fjallinu, sneru aftur til síns heima í dag þrátt fyrr að virknin væri enn mikil. Erlent 9.6.2006 07:44
Urðu bensínlausir á sportbáti vestur af Engey Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Reykjavík var kallað út laust fyrir miðnætti til að aðstoða tvo menn á bensínlausum sportbáti vestur af Engey. Bátinn rak stjórnlaust og kölluðu bátsverjar eftir hjálp. Innlent 9.6.2006 07:42
Yfirmaður öryggismála drepinn á Gasaströndinni Yfirmaður öryggismála hjá palestínsku heimastjórninni var drepinn í gærkvöld í loftárás Ísraela á þjálfunarbúðir uppreisnarmanna í Rafa á suðurhluta Gasastrandarinnar. Maðurinn, Jamal Abu Samhadana, var ofarlega á lista Ísraela yfir eftirlýsta menn og grunaður um aðild að árás á bandaríska hersveit á Gasaströndinni árið 2003. Erlent 9.6.2006 07:38
Aðsúgur gerður að lögreglu á Akureyri Aðsúgur var gerður að lögreglumönnum i miðbæ Akureyrar í nótt, þegar þeir ætluðu að handtaka skemmdarvarg og urðu þeir að beita pipargasi, eða meis, til að verja sig. Innlent 9.6.2006 07:36
Sættir hjá Guðna og Hallóri Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, og Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðhera og varaformaður flokksins, náðu fullum sáttum á heimili Halldórs í gærkvöldi, að því er Morgunblaðið greinir frá. Innlent 9.6.2006 07:26
Ríkisstjórnin vill stuðla að kjarasátt við launþega Viðræður eiga sér stað milli ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins um það hvernig ríkisstjórnin geti stuðlað að sátt í kjaramálum. Stefnt er að því að nýtt samkomulag taki gildi um næstu mánaðamót. Innlent 9.6.2006 00:46
Efla á kennslu í fornleifafræði Sveitarfélagið Skagafjörður og Hólaskóli ákváðu í dag að leggja til stöðu við skólann fyrir fornleifafræðing til að halda áfram Hólarannsókninni og efla kennslu í fornleifafræði. Innlent 8.6.2006 23:13
Bóluefni gegn leghálskrabbameini á markað Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa heimilað notkun fyrsta bóluefnisins gegn algengustu tegundum leghálskrabbameins. Bóluefnið gæti bjargað lífi milljóna kvenna um allan heim. Fjöldi íslenskra kvenna hefur tekið þátt í rannsóknum á bóluefninu. Erlent 8.6.2006 22:51
Gæsluvarðhald yfir grunuðum fíkniefnainnflytjendum Hæstiréttur veitti í gær lögreglunni í Reykjavík gæsluvarðhald yfir þremur mönnum fram til 14. júlí. Mennirnir voru viðriðnir innflutning á fíkniefnum og tveir þeirra játuðu að nokkru leyti á sig brotin. Um var að ræða rúmlega 15 kíló af bæði amfetamíni og 10 kíló af hassi sem fundust í bifreið sem hafði verið flutt til landsins frá Hollandi. Héraðsdómur hafði synjað gæsluvarðhaldi yfir einum mannanna en yfir hinum tveimur var gæsluvarðhaldsúrskurðurinn staðfestur. Innlent 8.6.2006 22:33