Fréttir
Skriðdrekar Ísraela halda inn í Gaza Ísraelar sendu skriðdreka yfir landamærin inn á Gaza ströndina nú síðdegis. Loftárásir á stöðvar Palestínumanna héldu áfram í dag eftir árásir á raforkuver og brýr í nótt. Óttast er að blóðbað kunni að vera í uppsiglingu. Erlent 28.6.2006 18:57
Einn enn á gjörgæslu vegna klórgasmengunar Einn er enn á gjörgæslu eftir klórgasmengun í sundlauginni á Eskifirði í gær. Bæjarstjóri Fjarðabyggðar segir réttarstöðu bæjarfélagsins verða kannaða ítarlega. Innlent 28.6.2006 18:13
Segir úrskurð ekki í samræmi við fyrri úrskurð samkeppnisyfirvalda Forstjóri Dagsbrúnar undrast úrskurð Samkeppniseftirlitsins, sem hefur úrskurðað að samruni félagsins við afþreyingarfyrirtækið Senu sé ólöglegur. Hann segir úrskurðinn ekki í samræmi við fyrri úrskurð samkeppnisyfirvalda. Úrskurðinum verður áfrýjað til áfýjunarnefndar samkeppnismála. Innlent 28.6.2006 17:20
Sund kaupir hlut Grettis í TM Sund hefur keypt 31 prósents hlut Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) í Fjárfestingafélaginu Gretti. Grettir er meðal stærstu hluthafa í Straumi-Burðarási en á einnig hluti í Avion Group, Icelandic Group og Landsbankanum. Viðskipti innlent 28.6.2006 16:34
Lítill munur á verði gjaldeyris milli banka Gjaldeyrir er dýrastur í Landsbankanum í Leifsstöð, þar sem gengið er einu prósenti hærra en í öðrum útibúum bankans. Í könnun Neytendasamtakanna á verði á gjaldeyri, kemur fram að almennt er lítill munur milli viðskiptabankanna og Forex. Aðeins er um 2,5 prósentustiga munur á hæsta og lægsta verði á gjaldeyri að jafnaði. Ef peningar eru teknir úr hraðbanka erlendis með debetkorti, leggst tveggja prósenta þóknun á útektina en 2,5 prósent ef tekið er út með kreditkorti. Engin aukaþóknun leggst hins vegar þegar greitt er með kreditkorti í verslunum í útlöndum. Innlent 28.6.2006 15:10
Ríkið sýknað af bótakröfu Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið af skaðabótakröfu konu á þrítugsaldri. Konan varð fyrir líkamstjóni á heimili sínu árið 2002. Fyrrum sambýlismaður hennar braust inn í íbúð hennar og svo inn í svefnherbergi hennar. Í átökum milli þeirra skall hún í gólfið og brotnaði bátsbein í hönd hennar. Tjón hennar hefur verið metið til 20% örorku. Maðurinn var þó ekki dæmdur fyrir líkamsárás og því taldi dómurinn ríkið ekki bótaskylt. Innlent 28.6.2006 16:18
300.000 króna sekt fyrir endurtekin umferðarlagabrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag mann um fertugt í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umferðarlagabrot, þjófnað og rof á skilorði. Maðurinn var í nóvember árið 2004 dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir þjófnað og var dómurinn skilorðsbundinn í þrjú ár. Brotin fólust í margendurteknum umferðarlagabrotum þar sem hann keyrði undir áhrifum slævandi lyfja þannig að hann var ófær um að stjórna bifreiðinni. Þrjú þessara atvika áttu sér stað á sex dögum í september á síðasta ári. Innlent 28.6.2006 15:48
Tvöföldun Reykjanesbrautarinnar hefur skilað sér Enginn hefur látist í umferðarslysi á Reykjanesbraut frá því hluti hennar var tvöföldaður og minna er um hraðakstur. Ökumenn haga sér öðruvísi í umferðinni á Reykjanesbrautinni eftir að hún var tvöfölduð fyrir tæpum tveimur árum síðan. Þetta segir Jóhannes Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Keflavík. Innlent 28.6.2006 15:41
Sjö mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur telpum Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur telpum. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa ítrekað nuddað kynfæri tveggja stúlkna, um 6 ára og 8 ára, innan klæða þeirra. Brotin áttu sér stað á heimilum telpnanna og í bíl mannsins. Maðurinn játaði brot sín. Sálfræðingur sem haft hefur stúlkurnar í meðferð bar fyrir dómi að sú yngri væri að mestu búin að jafna sig eftir brotin en sú eldri þyrfti frekari meðferðar við. Stúlkunum voru dæmdar bætur, þeirri eldri 250 þúsund krónur og þeirri yngri 150 þúsund auk þess sem ákærða var gert að greiða sakarkostnað, um hálfa milljón. Innlent 28.6.2006 15:26
Mecom kaupir Orkla Media Breska fjárfestingarfélagið Mecom Group hefur keypt útgáfufélagið Orkla Media, sem gefur út fjölda dagblaða og tímarita, m.a á Norðurlöndum og í Póllandi. Á meðal dagblaðanna er danska dagblaðið Berlingske Tidende, sem greinir frá kaupunum í dag. Viðskipti erlent 28.6.2006 15:24
Pútín hefnir fyrir morð rússneskra sendifulltrúa Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, hefur skipað öryggislögreglu landsins að hafa upp á morðingjum fjögurra Rússa sem rænt var í Írak. Forsetinn hefur, að sögn rússnesku fréttastofunnar Interfax, skipað lögreglumönnunum að myrða þá. Rússunum, sem voru sendifulltrúar í Bagdad, var rænt fyrir mánuði síðan og í þessari viku birti hópur, tengdur al-Qaeda hryðjuverkasamtökunum, myndbandsupptöku á vefnum sem sýnir morð þriggja þeirra. Rússar hafa staðfest að mennirnir fjórir hafi allir verið myrtir. Erlent 28.6.2006 15:05
ESB hraðar viðræðum við Króatíu Evrópusambandið ákvað í dag að hraða aðildarviðræðum við Króatíu en ekki Tyrkland. Ítarlegar viðræður um samkeppnismál fara nú fram við fulltrúa beggja ríkja en aðeins verður rætt um tollamál við Króata þar sem Evrópuráðið hefur ekki lokið við að bera tollalög Tyrkja saman við lög Sambandsins. Það sem torveldar málið einnig er að stjórnvöld í Ankara hafa ekki viljað leyfa siglingar eða flug frá Kýpur til Tyrklands. Erlent 28.6.2006 14:09
Mikil uppbygging á Hvanneyri Aðsókn í nám við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri stóreykst. Á næsta skólaári verða nemendur um 300 og er ljóst að Nemendagarðar skólans munu yfirfyllast. Stjórn Nemendagarðanna hefur því ákveðið að fara út í framkvæmdir og stefnt er að rúmlega tvöföldun leigurýma á næstu tveimur árum. Fjárfestingarkostnaður vegna nýs húsnæðis á staðnum verður á annan milljarð króna næstu 2-3 ár. Innlent 28.6.2006 13:53
Afhentu staðgenglum ráðherra áskorun Háskólamenntaðir starfsmenn hjá Svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra afhentu í morgun staðgenglum fjármála- og félagsmálaráðherra áskorun um að tryggja nægilegt fjármagn svo hægt sé að ganga til samninga við gerð stofnanasamninga milli BHM og svæðiskrifstofanna. Innlent 28.6.2006 13:54
Jackson flytur til Evrópu Michael Jackson hefur ákveðið að yfirgefa Bahrain og flytja til Evrópu. Söngvarinn ætlar með þessu að koma ferli sínum aftur á skrið. Talskona söngvarans segir að vegna verkefna sem hann hefur tekið að sér sé þægilegra fyrir hann að búa í Evrópu. Jackson mun þó áfram dvelja mikið í Bahrain. Lífið 28.6.2006 13:30
Ragnar vill að Björn víki sæti við meðferð beiðninnar Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður ætlar að krefjast þess að Björn Bjarnason víki sæti sem dómsmálaráðherra við meðferð óskar Ragnars um aðgang að gögnum um hleranir á tímum kalda stríðsins. Innlent 28.6.2006 13:14
Sýknaður af að hafa ráðist á stúlku Karlmaður var sýknaður af ákæru um líkamsárás fyrir héraðsdómi Reykjaness í morgun. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa ráðist á stúlku í bíl sínum, snúa upp á hönd hennar, skella henni í malbik og kýla hana í magann. Maðurinn var vinur móður stúlkunnar. Stúlkan ber að hann hafi ráðist á hana og þvingað hana inn í bíl sinn. Maðurinn ber hins vegar að hann hafi farið til að ræða við stúlkuna þar sem móðir hennar hafi lýst áhyggjum sínum af henni við manninn um morguninn. Hann hafi ekki þvingað stúlkuna inn í bíl sinn en hún hafi ekki viljað tala við hann og hafið að skaða sjálfa sig og síðar hann. Framburður ákærða þótti sannfærandi og sjálfum sér samkvæmur en framburður stúlkunnar óljós á köflum. Dómi fannst því ákæruvaldinu ekki hafa tekist að sanna sekt mannsins. Innlent 28.6.2006 13:07
Ferjulægi í Bakkafjöru til að bæta samgöngur við Vestmannaeyjar Ferjulægi í Bakkafjöru verður tekið í notkun árið 2010 ef tillögur Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra ná fram að ganga. Siglingatími milli lands og eyja verður þá aðeins um hálftími. Sturla kynnti tillögur sínar á ríkisstjórnarfundi í gær. Innlent 28.6.2006 12:21
Deilur um aðgerðir gegn mávum Meirihluti umhverfisráðs Reykjavíkurborgar ætlar að koma á aðgerðum til að fækka sílamávum í borginni. Fulltrúar minnihlutans segja fyrirhugaðar aðgerðir örvæntingarfulla tilraun til að láta eftir sér taka við stjórnarskiptin. Gísli Marteinn Baldursson formaður umhverfisráðs Reykjavíkur segir kvartanir vegna varfugla hafa verið það margar úr öllum borgarhlutum að það væri ábyrgðaleysi að bregast ekki skjótt við. Innlent 28.6.2006 12:16
Fjölbreytt eignarhald í fjölmiðlum Stjórnarformaður útgáfufélags Morgunblaðsins eignaðist hlut í útgáfufélagi Fréttablaðsins, í Matador íslenska viðskiptalífsins í gær. Í sama snúningi eignaðist FL Group, sem á í útgáfufélagi Fréttablaðsins, hlut í útgáfufélagi Morgunblaðsins. Innlent 28.6.2006 12:13
Öryggisreglum í sundlauginni ábótavant Líðan þeirra sem urðu fyrir eitrun í klórgasslysinu í sundlauginni á Eskifirði í gær er eftir atvikum. Vinnueftirlitið segir öryggisreglum í sundlauginni hafa verið ábótavant. Innlent 28.6.2006 12:13
Ísraelsher réðist inn á Gaza Ísraelsher réðist inn í suðurhluta Gaza-svæðisins í gærkvöldi til að reyna að frelsa ísraelskan hermann sem hefur verið í gíslingu herskárra Palestínumanna frá því á sunnudag. Abbas, forseti Palestínu, segir innrásina stríðsglæp. Erlent 28.6.2006 12:03
Eddie látinn Hundurinn Moose sem lék Eddie í gamanþáttunum um Frasier er látinn. Moose kom fram í fyrsta þætti Frasier og alla tíð síðan, alls kom hann fram í 192 þáttum. Persóna Eddies í þáttunum var gríðarlega vinsæl og á tímabili fékk Moose fleiri aðdáendabréf en samleikarar hans. Mathilde Halberg, þjálfari Moose, segir hann hafa haft gríðarlega persónutöfra og að hans verði sárt saknað. John Mahoney sem leikur Marty Crane, föður Frasiers og eiganda Eddie, lýsti hundinum eitt sinn sem sönnum fagmanni. Harðduglegum leikara sem eyddi miklum tíma í að læra brögðin sín. Moose dó úr elli, rúmlega sextán ára. Erlent 28.6.2006 11:37
Paroubek víkur úr forsætisráðherraembættinu Jiri Paroubek, forsætisráðherra Tékklands og leiðtogi vinstrimanna þar í landi, tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að víkja úr embætti í næstu viku. Þar með getur Vaclav Klaus, forseti, útnefnt Mirek Topolanke, leiðtoga hægrimanna, í embætti forsætisráðherra. Flokkur Topolanke vann sigur í þingkosningum í byrjun mánaðarins. Bandalag þriggja hægri flokka hefur þó ekki hreinan meirihluta heldur hundrað þingsæti af tvö hundruð og þarf því að treysta á stuðnings minnst eins þingmanns úr öðrum flokki. Erlent 28.6.2006 11:35
Samruni Dagsbrúnar og Senu ólögmætur Samkeppniseftirlitið tilkynnti Dagsbrún í gærkvöld að samruni þess fyrirtækis og Senu væri ólögmætur og yrði ógiltur. Virðist helst vísað til markaðsráðandi stöðu Dagsbrúnar á áskriftarsjónvarpsmarkaði. Stjórn Dagsbrúnar ætlar ekki að una þessum úrskurði og mun, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar nú laust fyrir hádegi, skjóta málinu til Áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Sena var áður afþreyingarsvið Skífunnar og rekur meðal annars verslanir með tónlistarefni og tölvuleiki ásamt kvikmyndahúsum. Dagsbrún rekur meðal annars sjónvarpsstöðina NFS. Innlent 28.6.2006 11:59
Bilaður bátur í togi Bátur bilaði suðvestur af Stafnnesi í morgun. Bátur svipaður að stærð var rétt hjá en til að flýta fyrir þar sem farið var að kula náðist í stærri bát sem nú er kominn með þann bilaða í tog á leið til Sandgerðis. Þeir eru líklega rétt ókomnir. Innlent 28.6.2006 11:56
Tamíl-tígrar réðust á tvö skip Skæruliðar Tamíl-tígra réðust í morgun á tvö skip stjórnarhersins á Sri Lanka. Kveikt var í öðru þeirra. Um sjö hundruð manns hafa fallið í átökum í landinu frá áramótum en vopnahléssamkomulag er enn í gildi. Óttast er að átök síðustu vikna eigi eftir að valda borgarastyrjöld enn á ný. Erlent 28.6.2006 11:24
Lík beggja stúlknanna fundin Belgíska lögreglan hefur staðfest að lík beggja stúlknanna sem rænt var fyrr í mánuðinum hafi fundist. Stúlkurnar voru stjúpsystur, 7 og 10 ára, en þær hurfu frá borginni Liege 10. júní síðastliðinn. Karlmaður, sem grunaður er um að hafa átt þátt í hvarfi stúlknanna, gaf sig fram við lögreglu fyrir hálfum mánuði. Sá hefur tvívegis verið dæmdur fyrir að misnota börn. Lögregla fann stúlkurnar án upplýsinga frá manninum en hann heldur fram sakleysi sínu. Erlent 28.6.2006 11:18
HM eykur væntingar Þjóðverja Svo virðist sem heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu (HM), sem nú fer fram í Þýskalandi, hafi aukið væntingar þýskra neytenda umtalsvert. Þetta eru niðurstöður alþjóðlega markaðsrannsóknafyrirtækisins Gfk. Væntingavísitalan, sem gildir fyrir júlí, hækkaði um 7,8 punkta og hefur hækkun milli mánaða ekki verið meiri í fimm ár. Viðskipti erlent 28.6.2006 11:33
Starfsmenn svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra ósáttir við kjör sín Háskólamenntaðir starfsmenn hjá svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra íhuga nú uppsagnir þar sem ekkert hefur þokast í kjaraviðræðum þeirra við ríkið. Þeir vilja sambærileg kjör og fólk í sambærilegum störfum hjá borginni og afhentu yfirvöldum áskorun vegna deilunnar nú klukkan níu. Innlent 28.6.2006 11:09