Fréttir

Fréttamynd

Afgerandi sigur

Luis Inacio Lula da Silva var endurkjörinn forseti Brasilíu með miklum meirihluta atkvæða um liðna helgi. Búið er að telja nærri því öll atkvæði og hlaut Da Silva um 61% atkvæða. Þetta var síðari umferð kosninganna þar sem valið stóð á milli sitjandi forseta og Geraldo Alckmin, fyrrverandi ríkisstjóra í Sao Paulo.

Erlent
Fréttamynd

Hráolíuverð lækkaði

Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði um rúman bandaríkjadal á helstu fjármálamörkuðum í dag á meðan fjárfestar bíða þess að OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, láta verða af því að draga úr olíuframleiðslu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Alvarleg kreppa yfirvofandi ef ekkert að gert

Loftslagsbreytingar gætu valdið miklum samdrætti í alþjóðlegu efnahagslífi og kostnaður vegna þess orðið jafnvirði tæplega fimm hundruð biljóna íslenskra króna verði ekkert að gert. Þetta kemur fram í skýrslu bresks hagfræðings sem unnin er fyrir bresk stjórnvöld og birt í dag.

Erlent
Fréttamynd

Tony Blair ræður Al Gore í vinnu

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur ráðið Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna sem ráðgjafa ríkisstjórnar sinnar í umhverfismálum.

Erlent
Fréttamynd

Kjósendur í Serbíu samþykkja nýja stjórnarskrá

Dagblöð í Serbíu flytja fregnir af því í dag að kjósendur hafi samþykkt nýja stjórnarskrá sem kveður á um að Kosovo sé órjúfanlegur hluti Serbíu. Íbúar í Kosovo fengu þó ekki að taka þátt í kosningunni.

Erlent
Fréttamynd

Spá óbreyttum stýrivöxtum

Seðlabankinn ákveður stýrivexti á fimmtudag samhliða útgáfu Peningamála. Greiningardeild Glitnis reiknað með að bankinn haldi vöxtum sínum óbreyttum en útilokar ekki 25 punkta hækkun. Stýrivextir Seðlabankans standa í 14 prósentum í dag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kæra útgáfu framkvæmdaleyfis á Stóra-Skarðsmýrarfjalli

Landvernd hefur, ásamt Eldhestum og Birni Pálssyni, kært útgáfu sveitarfélagsins Ölfuss á framkvæmdaleyfi á Stóra-Skarðsmýrarfjalli. Vilja þessir aðilar að leyfið verði ógilt þar sem útgáfan samræmist ekki ákvæðum skipulags- og byggingarlaga.

Innlent
Fréttamynd

Mecom þarf að reka eittþúsund starfsmenn

Breska fjölmiðlasamsteypan Mecom, sem keppti við Dagsbrún um kaup á norska fjölmiðlarisanum Orkla Media, þarf að reka minnst eittþúsund starfsmenn til þess að dæmið gangi upp, að sögn norska blaðsins Aftenposten.

Erlent
Fréttamynd

Avion Group selur eignir fyrir 34 milljarða

Avion Group hefur samþykkt tilboð frá hópi fjárfesta upp á 450 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði 30,6 milljarða íslenskra króna, í XL Leisure Group, leiguflugs- og ferðaþjónustuhluta Avion, auk 51 prósents hluta í Avion Aircraft Trading fyrir 51 milljónir dala eða 3,5 milljarða krónur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fannst látinn vestan Nesjavallavirkjunar

Rúmlega fertugur karlmaður virðist hafa orðið úti í Dyrdal vestan við Nesjavallavirkjun á fimmtudag en björgunarsveitarmenn fundu líkið af honum um miðnætti í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Hagar töpuðu 121 milljón

Verslunarfyrirtækið Hagar, móðurfélag fjölda verslana, m.a. Hagkaupa, Bónuss, 10-11, tapaði 121 milljón króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er engu að síður betri afkoma en á sama tíma í fyrra en þá tapaði félagið 708 milljónum króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Framsókn stillir upp í Reykjavíkurkjördæmi norður

Framsóknarmenn í Reykjavíkurkjördæmi norður ákváðu í gær á fundi sínum að stilla upp á lista sinn fyrir komandi Alþingiskosningar. Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur lýst því yfir að hann vilji leiða listann.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt met á Indlandi

Indverska hlutabréfavísitalan Sensex sló met enn á ný í dag þegar gengi vísitölunnar rauf 13.000 stiga múrinn. Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð, eða um 0,77 prósent, en gengi bréfa í fjármála- og tæknifyrirtækjum hækkaði mest.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Lokaumferð forsetakosninga í Kongó var haldin í gær

Lokaumferð forsetakosninga í Kongó var haldin í gær. Mikil spenna var í loftinu vegna hugsanlegra átaka milli stuðningsmanna frambjóðendanna, Joseph Kabila og Jean-Pierre Bemba, en kosningarnar marka endalok fjögurra ára ferlis sem á að leiða til lýðræðislegrar stjórnar.

Erlent
Fréttamynd

Unnur Birna greinir frá árás inn á heimili sitt

Í tímaritinu Ísafold, sem kemur út í fyrsta sinn á morgun, greinir fegurðardrottningin Unnur Birna frá árás sem hún og fyrrverandi unnusti hennar urðu fyrir á heimili hennar. Fleiri tímarit frá útgáfufélaginu Fögrudyrum eru væntanleg í lok vetrar

Innlent
Fréttamynd

Skattayfirvöld kunni að hafa áhuga

Ritstjóri Ekstra-blaðsins danska telur að skattayfirvöld á Íslandi og í Danmörku kunni að hafa áhuga á upplýsingum sem blaðið hefur undir höndum um íslenska kaupsýslumenn. Í fyrstu grein blaðsins um íslensku útrásina eru birtar upplýsingar um hvernig íslensk fyrirtæki eiga að hafa komist hjá því að greiða skatta.

Innlent