Fréttir

Fréttamynd

Taka þátt í stjórnarskrárráðstefnu

Fjórtán félagasamtök hafa skráð sig til formlegrar þátttöku í ráðstefnu stjórnarskrárnefndar um endurskoðun stjórnarskrárinnar 11. júní næstkomandi, en frestur til skráningar rann út á sunnudaginn.

Innlent
Fréttamynd

Gerðu 240 kíló af heróíni upptæk

Afganska lögreglan gerði rúmlega 240 kíló af heróíni upptæk og eyðilagði nokkrar tilraunastofur þar sem eiturlyf vour búin til í áhlaupi á nokkra staði í Nangahar-héraði í austurhluta landsins. Þá lögðu fíkniefnalögreglumenn einnig hald á töluvert af efnum til eiturlyfjagerðar.

Erlent
Fréttamynd

Sprenging í námu í Síberíu

Tveggja námumanna er saknað eftir metangassprengingu í kolanámu í Síberíu í Rússlandi í morgun. Ellefu námuverkamenn voru nærri staðnum þar sem sprengingin varð en níu þeirra tókst að komast út og voru fjórir þeirra slasaðir. Alls voru 132 í kolanámunni og voru allir kallaðir út í kjölfar atvikins. Námuslys eru tíð í Rússlandi en að minnsta kosti 66 náumverkamenn létust í tveimur slysum í Síberíu fyrr á árinu.

Erlent
Fréttamynd

Hvetja Gunnar til afsagnar

Frambjóðendur og stuðningsmenn Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi segja Gunnar Örlygsson hafa fyrirgert því trausti sem þeir báru til hans, með því að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Frambjóðendur og stuðningsmenn Frjálsynda flokksins hvetja Gunnar til til að sýna af sér þann drengskap að segja sig frá þingmennsku.

Innlent
Fréttamynd

Urðu við óskum Castro

Eftir áeggjan Kúbverja hafa Bandaríkjamenn handtekið kúbverskan mann sem grunaður er um að hafa framið hryðjuverk fyrir tæpum þrjátíu árum síðan.

Erlent
Fréttamynd

Fjórtán tilboð í Símann

Fjórtán tilboð bárust í hlut ríkisins í Landssíma Íslands. 37 fjárfestar standa að baki tilboðunum, bæði innlendir og erlendir. Framkvæmdanefnd um einkavæðingu mun á næstu dögum ásamt ráðgjafafyrirtækinu Morgan Stanley fara yfir tilboðin. Við mat á þeim verður meðal annars horft til verðs, fjárhagslegs styrks, reynslu af rekstri, fjármögnum og framtíðarsýnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fyrsta flug til San Francisco

Beint flug frá Keflavík til San Francisco hefst í dag og verða farnar fjórar ferðir í viku fram í október. Langdræg breiðþota verður notuð í þetta flug. Meðal farþega í dag verða forsætisráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík en þau taka þátt í sérstakri hátíðardagskrá í San Francisco.

Innlent
Fréttamynd

Húsvíkingar vongóðir um álver

Húsvíkingar eru bjartsýnir á að fá álver á svæðið eftir að hafa fundað með mönnum frá Alcoa. "Við höfum alltaf trúað því að það verði á endanum ákveðið að reisa álver hér á Húsavík, þar sem allar aðstæður hér eru fyrir hendi. Í þokkabót virðist vera að skapast um þetta sátt á Norðurlandi öllu,," segir Reinard Reynisson bæjarstjóri.

Innlent
Fréttamynd

Talibanaráðherra í framboð

Fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn talibana í Afganistan hefur ákveðið að bjóða sig fram til þings í kosningum sem fram fara í september. Wakil Ahmed Muttawakil gegndi embætti utanríkisráðherra Afganistans þegar talibanar fóru með völdin en var handtekinn þegar Bandaríkjamenn réðust inn í landið síðla árs 2001 í kjölfar árásanna 11. september.

Erlent
Fréttamynd

Banaslysum barna fækkar

Dauðsföllum barna í umferðarslysum hefur fækkað stórlega á síðustu árum að sögn Sigurðar Helgasonar, verkefnisstjóra hjá Umferðarstofu.

Innlent
Fréttamynd

Sögð of þung til að ættleiða barn

Kona hefur höfðað mál á hendur íslenska ríkinu vegna þess að dómsmálaráðuneytið synjaði henni um að ættleiða barn frá Kína. Synjunin byggði meðal annars á því að konan væri of þung. Í stefnunni er ráðuneytið sakað um geðþóttaákvarðanir og fordóma. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Blair heitir þjóðaratkvæði

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lýsti því yfir í gær að breskir kjósendur myndu fá tækifæri til að greiða atkvæði um staðfestingu stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins, óháð því hver dómur franskra kjósenda verður um málið.

Erlent
Fréttamynd

Borgi 66 milljarða í skaðabætur

Morgan Stanley verður að greiða fjárfestinum Ron Perelman andvirði 66 milljarða króna í skaðabætur. Þetta er niðurstaða dómstóls í Flórída sem komst að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið hefði beitt svikum og hjálpað Sunbeam að hafa fé af fjárfestum í viðskiptum árið 1998.

Erlent
Fréttamynd

Vill rannsókn á atburðum í Andijan

Yfirmaður mannréttindamála Sameinuðu þjóðanna krefst rannsóknar á dauða hundruða Úsbeka sem hermenn skutu til dauða í uppþotum í borginni Andijan um helgina. Úsbeksk yfirvöld sögðu 169 hafa látið lífið en mótmælendur segja fórnarlömbin hafa verið að minnsta kosti fimm hundruð. Fulltrúum erlendra ríkja hefur verið hleypt inn í borgina aftur en þeim er ekki leyfilegt að tala við almenning.

Erlent
Fréttamynd

Al-Kaídaliðar ákærðir

Spænskur dómari hefur ákært 13 múslima fyrir að tengjast hryðjuverkasamtökunum al-Kaída en auk þess er sumum þeirra gefið að sök að eiga aðild að sprengjutilræðunum í Madrid í mars í fyrra sem kostuðu 191 mannslíf.

Erlent
Fréttamynd

Þrettán fórust með herflugvél

Þrettán fórust þegar herflugvél hrapaði til jarðar skömmu eftir flugtak í suðurhluta Sambíu í dag. Vélin hafði flogið með mat og aðrar nauðþurftir til bæjarins Mongu, þar sem mikli þurrkar hafa verið, en stuttu eftir að hún hafði tekið á loft frá flugvelli bæjarins missti hún hæð og hrapaði til jarðar. Ekki er ljóst á þessari stundu hvað olli slysinu.

Erlent
Fréttamynd

Fótbrotnaði í göngu á Esjunni

Tvær björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöldi til að aðstoða sjúkraflutningamenn við að bjarga konu úr hlíðum Esju. Konan hafði verið á göngu í fjallinu og fótbrotnað. Sveitirnar voru kallaðar út klukkan rúmlega tíu og fóru tíu menn á staðinn. Búið var að koma konunni niður og í sjúkrabíl liðlega hálftíma síðar og var hún flutt á slysadeild.

Innlent
Fréttamynd

Matur hefur lækkað um þriðjung

Vöruverð hefur lækkað umtalsvert hjá Krónunni, Bónus og í Fjarðarkaupum síðan um áramótin en mun minna hjá öðrum verslunum samkvæmt þriðju verðkönnun Alþýðusambands Íslands sem birt var í gær. Er þetta þriðja könnun samtakanna á þessu ári og vekur athygli að vöruverð hefur hvergi hækkað síðan síðasta könnun var gerð um miðjan mars.

Innlent
Fréttamynd

Leggja stærstu hitaveitu í heimi

Fulltúar fyrirtækjanna Enex hf., Orkuveitu Reykjavíkur og Íslandsbanka hf. skrifuðu í morgun undir samkomulag um að leggja stærstu jarðvarmahitaveitu í heimi í nýtt hverfi sem á að rísa í borginni Xianyang í Kína. Gert er ráð fyrir að hitaveitan nái í fyrstu til 100 til 150 þúsund íbúa en síðan þegar hverfið hefur verið stækkað verða íbúarnir um 400 þúsund.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Húsavík sé eðlilegur fyrsti kostur

Iðnaðarráðherra segir eðlilegt að horft sé fyrst til Húsavíkur við staðarval álvers á Norðurlandi vegna mikillar orku sem finnst í Þingeyjarsýslu. Hún segir ástæðu til að ræða hvort svigrúm sé bæði til byggingar nýs álvers á Suðurnesjum og stækkunar í Straumsvík. Vinstri - grænir vilja að stóriðjuviðræður verði stöðvaðar fram yfir næstu þingkosningar.

Innlent
Fréttamynd

Fögnuðu próflokum uppi í sveit

Víða mátti sjá rútur fullar af unglingum á leið upp í sveit til að fagna því að samræmdum prófum lauk í dag. Skólayfirvöld, foreldrar og lögregla gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að tíundu bekkingar sameinist í drykkju að prófum loknum.

Innlent
Fréttamynd

Ísland beini kröftum að Taívan

Einar K. Guðfinnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir skrúðmælgi þá sem Kínverjar hella yfir forseta Íslands um mannréttindamál óskaplega hræsnisfullt tal. Hann vill að Íslendingar beini kröftum sínum og athygli í auknum mæli að Taívan.

Innlent
Fréttamynd

Kúbverskur útlagi handtekinn

Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa handtekið kúbverska útlagann Luis Posada Carriles sem sakaður er um að hafa skipulagt sprengjuárás á flugvél fyrir þremur áratugum, sem varð tæplega áttatíu manns að bana. Ríkisstjórn Fidels Castros hefur undanfarið gagnrýnt stjórnvöld í Bandaríkjunum fyrir tvískinnung í baráttunni gegn hryðjuverkum og krafist framsals Carriles til Kúbu.

Erlent
Fréttamynd

Hyggjast fjölga íbúum í Sandgerði

Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar setti í dag af stað átak til að fjölga íbúum í bænum. Íbúar í Sandgerðisbæ eru nú rúmlega 1.400 og er markmiðið með átakinu að þeim fjölgi í að minnsta kosti tvö þúsund fyrir lok næsta kjörtímabils.

Innlent
Fréttamynd

Rannsóknar krafist á skothríð

Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, talsmenn fleiri alþjóðastofnana og ráðamenn ýmissa ríkja heims kölluðu eftir því í gær að óháðum aðilum yrði falið að rannsaka ásakanir um að hermenn í Úsbekistan hefðu skotið til bana hundruð mótmælenda í óeirðum þar í lok síðustu viku.

Erlent
Fréttamynd

Freysteinn fær hvatningarverðlaun

Dr. Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur á Norræna eldfjallasetrinu við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, fékk í morgun hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs. Freysteinn er vel þekktur á alþjóðlegum vettvangi fyrir rannsóknir sínar á jarðskorpuhreyfingum og eldfjallavöktun.

Innlent
Fréttamynd

Handsprengja hafi verið virk

Bandaríska alríkislögreglan, FBI, greindi frá því í dag að handsprengja, sem kastað hefði verið í átt að George Bush Bandaríkjaforseta við hátíðahöld í Tíblisi í Georgíu í síðustu viku, hefði verið virk en ekki sprungið vegna bilunar. Handsprengjunni var varpað í átt að forsetanum þegar hann hélt ræðu á Frelsistorginu í Tíblisi og lenti hún um 30 metra frá honum.

Erlent
Fréttamynd

Þeir tekjuminnstu græða ekkert

Skerðingarhlutfall námslána lækkar en frítekjumark er lagt niður samkvæmt nýjum úthlutunarreglum sem stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur samþykkt. Grunnframfærsla námsmanna hækkar jafnframt úr 79.500 krónum í 82.500 krónur.

Innlent
Fréttamynd

Heimsóknir í fyrirtæki

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur lagt mikið uppúr stuðningi við íslensk fyrirtæki í Kínaferð sinni, eins og í mörgum fyrri ferðum. Hann fagnaði í dag undirritun 15 milljóna dollara samnings um viðhald á 11 Boeing 747 flugvélum Atlanta og Avion Group.

Erlent
Fréttamynd

Ítalskur hjálparstarfsmaður á lífi

Ítalskur hjálparstarfsmaður, sem rænt var í Kabúl í Afganistan á mánudaginn var, er á lífi. Frá þessu greindu afgönsk yfirvöld í dag. Mannræningjarnir höfðu samband við yfirvöld í gær og fékk hin 32 ára Clementina Cantoni, sem er í Afganistan á vegum alþjóðlegu hjálparsamtakanna CARE, að greina frá því í símann að ekkert amaði að henni.

Erlent