Fréttir

Fréttamynd

Flugmiði til Flórída á 12.000 kr.

Flugfélagið Sterling, sem er í meirihlutaeigu Íslendinga, ætlar að hefja flugferðir frá Kaupmannahöfn vestur um haf, eða til Miami og Orlando á Flórída, fyrir aðeins 1.100 danskar krónur aðra leið. Það samsvarar um tólf þúsund íslenskum krónum.

Innlent
Fréttamynd

GT verktakar sýknaðir

Héraðsdómur Austurlands sýknaði í gær GT verktaka ehf. af ákæru fyrir brot gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga og lög um útlendinga. Var það niðurstaða dómsins að Lettar sem fyrirtækið réð til að sinna störfum við fólksflutninga á Kárahnjúkasvæðinu hefðu ekki þurft atvinnuleyfi hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Saddam á nærbuxunum

Mynd af Saddam Hussein á nærbuxunum birtist á forsíðu breska æsifréttablaðsins <em>Sun</em> í morgun. Í blaðinu segir að menn innan bandaríska hersins hafi afhent blaðinu myndirnar í þeim tilgangi að draga kjarkinn úr uppreisnarmönnum í Írak. Í blaðinu eru einnig myndir af Saddam að handþvo þvott.

Erlent
Fréttamynd

Gunnar hvattur til að segja af sér

Frambjóðendur og stuðningsmenn Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi Gunnars Arnar Örlygssonar, hvetja hann til að segja af sér þingmennsku. Þetta kemur fram í ályktun frambjóðenda og stuðningsmanna flokksins fyrir síðustu kosningar í kjördæminu. Þar er harmað að Gunnar hafi snúið baki við félögum sínum og gengið í Sjálfstæðisflokkinn en með þeirri gjörð hafi hann fyrirgert því trausti sem til hans hafi verið borið.

Innlent
Fréttamynd

Samið um víðtækt samstarf háskóla

Runólfur Ágústsson, rektor háskólans að Bifröst, og Fang Ming Lun, starfandi rektor háskólans í Shanghai, undirrituðu nú fyrir hádegi samning um víðtækt samstarf háskólanna tveggja. Sjö nemendur að Bifröst eru við nám við Háskólann í Shanghai.

Innlent
Fréttamynd

Smáey frá veiðum í viku

Smáey VE sem strandaði í nótt skammt frá Heimaey verður frá veiðum í viku vegna skemmda. Betur fór þó en á horfðist.

Innlent
Fréttamynd

Fuglaflensuveira sé að breytast

Tíðni fuglaflensutilfella í Víetnam á þessu ári bendir til að veiran sé að breytast þannig hún geti smitast á milli manna. Við það eykst hætta á alheimsfaraldri sem getur kostað milljónir manna lífið.

Erlent
Fréttamynd

Neitað um ættleiðingu vegna offitu

Kona, sem dómsmálaráðuneytið neitaði um að ættleiða barn vegna offitu, hefur höfðað mál gegn íslenska ríkinu. Málið, sem var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Fjölskylduhundur stökk í hver

"Þetta var hræðileg lífsreynsla," segir Berglind Ágústsdóttir en hundur hennar stökk ofan í hver og drapst á Flúðum í síðustu viku. Þegar eiginmaður Berglindar náði svo tíkinni úr hvernum hlaut hann annars stigs bruna á fæti.

Innlent
Fréttamynd

Hugsanlega ákærður fyrir manndráp

Lögreglumaður sem skaut Víetnama til bana í Larvik í Noregi í gær gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir manndráp af gáleysi. Víetnaminn, sem var liðlega þrítugur, var vopnaður hnífi og kjötöxi og var samkvæmt vitnum ógnandi og neitaði að láta vopnin af hendi. Þegar hann síðan gekk í átt að lögreglumönnunum var hann skotinn og sagði lögreglumaðurinn sem skaut hann að það hefði verið gert í nauðvörn.

Erlent
Fréttamynd

Ræddust við aftur eftir mánaða hlé

Bandarísk og norðurkóresk yfirvöld ræddust við á föstudaginn og þar hvöttu Bandaríkjamenn Norður-Kóreumenn til að hefja aftur viðræður við fimm ríki, þar á meðal Bandaríkin, um kjarnorkuvopnaáætlun sína. Frá þessu greindi einn talsmanna Hvíta hússins í dag. Viðræðurnar voru óformlegar og fóru fram í New York en slíkar viðræður hafa ekki farið fram síðan í desember.

Erlent
Fréttamynd

Launamunur í Kennaraháskólanum

Samkvæmt nýrri skýrslu Félagsvísindastofnunnar Háskóla Íslands um samanburð á launum karla og kvenna sem kenna við Kennaraháskóla Íslands þá hallar þar óvenju lítið á konur. Meðallaun karla eru rétt um 407 þúsund krónur á mánuði á meðan laun kvenna eru að meðaltali 349 þúsund krónur á mánuði eða 86% af launum karlanna. Þessi munur skýrist af einhverju leiti af því að karlar eru fleiri í prófessors- og dósentastöðum.

Innlent
Fréttamynd

Embættismaður skotinn til bana

Háttsettur embættismaður í olíumálráðuneyti Íraks var skotinn til bana í Bagdad í morgun. Atburðurinn átti sér stað þegar maðurinn var að ganga út af heimili sínu og á leið í vinnuna. Engin samtök hafa lýst verknaðinum á hendur sér en unnið er að rannsókn málsins.

Erlent
Fréttamynd

Segja margnota bleiur ekki betri

400 þúsund tonn eru notuð af einnota bleium á ári hverju. Rannsókn breskra umhverfissamtaka hefur þó leitt í ljós að það er ekki endilega umhverfisvænna að nota margnota bleiur. Orkan sem fer í að þvo þær og þurrka auk þvottaefnisins sem fer út í náttúruna gerir það að verkum að samtökin telja það hafa álíka slæm áhrif á umhverfið og einnota bleiurnar.

Erlent
Fréttamynd

Segja þúsund manns hafa farist

Mannréttindasamtök telja að úsbeskir stjórnarhermenn hafi drepið allt að eitt þúsund óbreytta borgara í átökum um helgina. Herinn handtók í gær leiðtoga herskárra múslima sem í fyrradag lýsti yfir íslamskri byltingu í bænum Korasuv.

Erlent
Fréttamynd

Rúmlega 11 þúsund kusu formann

Frestur til að kjósa formann Samfylkingarinnar og skila atkvæðinu rann út nú klukkan sex. Alls bárust rúmlega 11 þúsund atkvæði en úrslit verða birt á hádegi á laugardaginn.

Innlent
Fréttamynd

Mótmælir tilefnislausum uppsögnum

Trúnaðarráð verkalýðsfélaga starfsmanna í álveri Alcan í Straumsvík sendi nú áðan frá sér ályktun þar sem það mótmælir harðlega tilefnislausum uppsögnum fimm starfsmanna. Sérstaklega er gagnrýnt að starfsmönnunum var vísað fyrirvaralaust af vinnustað. Þar segir að engar ástæður hafi verið gefnar fyrir uppsögnunum þótt eftir þeim hafi verið leitað.

Innlent
Fréttamynd

Stórslysi forðað fyrir tveim árum

Litlu munaði að stórslys yrði þegar tvær erlendar flugvélar stefndu hvor á aðra í sömu flughæð vestur af landinu, en íslenskur flugumferðarstjóri kom til bjargar. Atvikið átti sér stað 1. ágúst árið 2003. Vélarnar voru fjögurra hreyfla þota frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways og Piper-einkaflugvél.

Innlent
Fréttamynd

Viðskiptastríð í uppsiglingu?

Líkur á mesta viðskiptastríði sögunnar jukust í dag þegar upplýst var að Airbus-verksmiðjurnar hefðu beðið Evrópusambandið um lán til þess að hanna nýja farþegaþotu. Bandaríkjamenn eru æfir.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Fáar konur í stjórnum innan ASÍ

Konur skipa aðeins níu af 66 stjórnarsætum í þeim landssamböndum sem aðild eiga að Alþýðusambandi Íslands. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar nema í stjórnmála- og viðskiptafræði við Háskóla Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Stuðningsfjölskylda tilnefnd strax

Lilja Sæmundsdóttir, einhleyp kona sem dómsmálaráðuneytið bannaði að ættleiða barn, kvaðst fyrir dómi í gær hafa tilnefnt stuðningsfjölskyldu við sig og barn sitt í því tilfelli að eitthvað kæmi upp á. Þetta hafi hún gert strax í upphafi umsóknarferlisins, líkt og einhleypu fólki sé skylt að gera.

Innlent
Fréttamynd

Dómur styttur vegna ónógra sannana

Hæstiréttur stytti í dag fangelsisdóm yfir Rúnari Ben Maitsland og tvíburabróður hans, Davíð Ben Maitsland, vegna ónógra sönnunargagna. Þeim er gefið að sök að hafa smyglað til landsins um 30 kílóum af hassi, sem aldrei var lagt hald á. Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari vildi sýkna þá bræður.

Innlent
Fréttamynd

Nefnd áminnir fjárfesta í Símanum

Fjárfestar sem bjóða í Símann voru í gær áminntir bréflega um að virða trúnaðarsamning. Brot á honum geti "leitt til þess að hugsanlegir fjárfestar verði útilokaðir frá þátttöku í söluferlinu". </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

27% þreyttu öll samræmd próf

Aðeins 27 prósent tíundu bekkinga þreyttu öll sex samræmdu prófin en rúm 40 prósent þreyttu fimm próf. Aðeins tæp tvö prósent tóku ekkert samræmt próf. Yfir 90 prósent nemenda þreyttu próf í íslensku, ensku og stærðfræði en mun færri ákváðu að takast á við náttúrufræði, samfélagsgreinar og dönsku. Um þrjú hundruð nemar í níunda bekk tóku að minnsta kosti eitt samræmt próf.

Erlent
Fréttamynd

Biður nágrannana um hjálp

Ibrahim al-Jaafari, forsætisráðherra Íraks, skoraði á ríkisstjórnir nágrannalandanna að herða landamæragæslu svo að hryðjuverkamönnum tækist ekki að komast inn í landið. Í það minnsta þrettán manns féllu í árásum í Írak í gær.

Erlent
Fréttamynd

Eurovision draumurinn úti

Íslendingar komust ekki áfram í undankeppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Undanúrslitin  fóru fram í Kænugarði í Úkraínu í kvöld og komst Selma Björnsdóttir vel frá flutningi sínum. Allt kom fyrir ekki, evrópskum sjónvarpsáhorfendum þótti önnur lög betri og veittu Selmu og félögum því ekki brautargengi.

Innlent
Fréttamynd

Viðvörunarkerfi á Súmötru 2007

Yfirvöld í Indónesíu vonast til að viðvörunarkerfi sem myndi vara við yfirvofandi flóðbylgjum á Súmötru innan fimm mínútna frá jarðskjálfta á hafsbotni verði komið í gagnið í lok næsta árs og kerfi fyrir allt landið ætti að vera orðið virkt eftir fimm ár. Allt að 160 þúsund manns létust í Aceh-héraði á norðanverðri Súmötru í flóðbylgjunni á annan í jólum.

Erlent
Fréttamynd

Ákærður fyrir Omagh-tilræði

Saksóknari á Norður-Írlandi hefur birt Sean Hoey sem talinn er vera félagi í hinum svonefnda Sanna írska lýðveldisher 61 ákæru fyrir margvísleg afbrot, þar á meðal sprengjutilræði í bænum Omagh árið 1998 sem kostaði 29 mannslíf.

Erlent
Fréttamynd

Reyni að svæla fjölmiðla burt

Lögfræðingar rússneska auðjöfursins Míkhaíls Khodorkovskís segja að dómararnir séu að reyna að svæla af sér fjölmiðla með því að draga dómsuppkvaðninguna á langinn.

Erlent