Fréttir

Steingrímur væntir góðs samstarfs
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, óskar Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til hamingju með mjög afgerandi sigur í formannskjöri í gær. Hann fagnar því sérstaklega að nýr formaður vilji stilla saman strengi stjórnarandstöðunnar og fella núverandi ríkisstjórn. Steingrímur væntir góðs samstarfs og er bjartsýnn á árangursríkt samstarf.

S.þ. fordæma meintar pyntingar
Sameinuðu þjóðirnar fordæmdu í morgun meintar pyntingar bandarískra hermanna á afgönskum stríðsföngum í herstöð skammt frá Kabúl árið 2002. Samtökin krefjast þess að málið verði rannsakað.

Stærsta skip landsins í höfn
"Ég býst að geta skilað einhverjum afla í land," segir Þórður Magnússon, skipstjóri Engeyjarinnar, stærsta skips íslenska flotans. Engey RE 1 lagði að bryggju við Norðurgarð í Reykjavíkurhöfn í gær. Skipið, sem er í eigu HB Granda, er engin smásmíð; 105 metra langt, 20 metra breitt og 7.800 brúttótonn að þyngd.
Í hart við skattinn
Bandalag háskólamanna lagði fram stjórnsýslukæru í síðustu viku vegna ákvörðunar skattstórans í Reykjavík í máli eins geislafræðings Landspítalans. Ákvörðunin hefur þau áhrif að skattur er tekinn af ökustyrk mannsins þar sem hann ekur meira en tvö þúsund kílómetra á ári á eigin bifreið til að komast á og af vinnustað í útköllum.

Skipt um alla forystusveitina
Forysta Samfylkingarinnar er gerbreytt og nýtt fólk í trúnaðarstöðum flokksins metur stöðuna á næstunni eftir sögulegan landsfund. Málefnavinnu, sem kynnt var á landsfundinum, verður haldið áfram næstu mánuði og misseri.</font /></b />

Ólga á landsfundi vegna smölunar
Ólga var á landsfundi Samfylkingarinnar vegna mikillar kappsemi ungliðanna við að smala í varaformannskjöri flokksins. Fullyrt var að rútur hefðu komið á fundinn með börn og unglinga sem komu í þeim tilgangi einum að kjósa Ágúst Ólaf Ágústsson í kosningunni en hann sigraði með yfirburðum.

Útlit fyrir afhroð Schröders
Allt útlit er fyrir að flokkur Gerhards Schröders, kanslara Þýskalands, Jafnaðarmannaflokkurinn, bíði afhroð og tapi í kosningum sem fram fara í dag í þýska sambandsríkinu Nordrhein-Westfalen en flokkurinn hefur verið þar við völd í tæpa fjóra áratugi.

Frostnætur tíðar í maí
Það sem af er þessum maímánuði hafa frostnætur verið alltíðar. Lætur nærri að í innsveitum hafi mælst frost aðra hverja nótt í mánuðinum samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Í Reykjavík hefur næturfrost einnig verið oftar en venja er til eða átta sinnum líkt og á Akureyri.

Schröder boðar kosningar í haust
Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, sagðist í gær vilja að kosningum til Sambandsþingsins yrði flýtt um heilt ár, til komandi hausts, í kjölfar mikils ósigurs jafnaðarmannaflokks hans í héraðsþingkosningum í Nordrhein-Westfalen. Kristilegir demókratar unnu þar afgerandi sigur.

Rúmenskir gíslar lausir í Írak
Þrír rúmenskir fréttamenn og írask-bandarískur túlkur þeirra voru í gær látnir lausir úr gíslingu sem íraskir uppreisnarmenn hnepptu þá í fyrir tveimur mánuðum. Frá þessu greindu talsmenn Rúmeníuforseta.

Ísland var í sextánda sæti
Gríska söngkonan Helena bar sigur úr býtum í Evrópusöngvakeppninni á laugardagskvöldið. Íslendingar héldu sig við sextánda sætið enda er nánast komin hefð fyrir því.
Samið við austfirsk fyrirtæki
Verktakafyrirtækið Bechtel, sem byggir álver Alcoa–Fjarðaáls við Reyðarfjörð, hefur gert tvenna samninga um flutning á starfsfólki til og frá vinnu. Samningarnir voru gerðir að undangengnu lokuðu útboði í vor.

Bráðaaðgerðir gegn fuglaflensu
Kínversk stjórnvöld hafa fyrirskipað bráðaaðgerðir til að hindra útbreiðslu fuglaflensu, í kjölfar þess að í ljós kom að farfuglar sem fundust dauðir í vesturhluta landsins fyrr í þessum mánuði hefðu verið sýktir af veirunni.
Sprenging í tveimur kvikmyndahúsum
Að minnsta kosti sextán særðust þegar tvær sprengjur sprungu nánast á sama tíma í tveimur kvikmyndahúsum á Indlandi í dag. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort einhver sé lífshættulega særður. Í dag er nákvæmlega ár síðan ný ríkisstjórn tók við völdum á Indlandi og ekki er talið ólíklegt að ódæðið tengist því.

Sterk staða nýkjörins formanns
"Kjörið var afgerandi. Í kjarna Samfylkingarinnar stóð þetta áreiðanlega tæpar. Umboð hennar er hins vegar mjög skýrt og það þýðir að valdastaða hennar gagnvart öðrum forystumönnum Samfylkingarinnar er sterk," segir Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðiprófessor um kjör Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem formanns Samfylkingar.
Hermannaveiki á norsku sjúkrahúsi
Staðfest var í gær að banamein þriggja aldraðra sjúklinga á sjúkrahúsi í Fredrikstad í Noregi hefði verið hermannaveiki.

Þingkosningum flýtt í Þýskalandi
Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, hefur flýtt almennum þingkosningunum í landinu um eitt ár og boðað þær strax í haust eftir að flokkur hans, þýski Jafnaðarmannaflokkurinn, galt afhroð í kosningum í sambandsríkinu Nordrhein-Westfalen í dag.

Júlíus Vífill stefnir líka hátt
Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður segir kominn tíma á kynslóðaskipti í hugmyndum sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Hann ætlar að bjóða sig fram í prófkjöri flokksins í borginni og segist sækjast eftir sæti ofarlega á lista. Gísli er ekki einn um að daðra við forystuhlutverk í borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna því Júlíus Vífiill Ingvarsson segist vera að kanna bakland sitt í flokknum.

Sterkasta vígi þýskra krata fallið
Kristilegir demókratar unnu í gær langþráðan sigur í héraðsþingkosningum í Nordrhein-Westfalen, sem með um 18 milljónir íbúa er langfjölmennast þýsku sambandslandanna 16. Þeir stefna á að taka einnig við stjórnartaumunum í Berlín í haust.

Ný forystusveit í Samfylkingunni
Nánast algerlega ný forystusveit tekur nú við stjórnartaumunum í Samfylkingunni eftir úrslit kosninga á landsfundi flokksins í gær. Auk nýs formanns, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, og nýs varaformanns, Ágústs Ólafs Ágústssonar, var Ari Skúlason kjörinn gjaldkeri.

Trampólín nýjasta æðið
Trampólín eru nýjasta æði Íslendinga og hafa þau selst í hundraðatali upp á síðkastið. Í gær seldust 60 slík tæki þegar ný verslun Húsasmiðjunnar var opnuð í Grafarvogi. En samfara auknu hoppi hefur komum á slysadeildina fjölgað.

Talsvert slasaður eftir bílveltu
Ökumaður flutningabíls, sem valt skammt frá Þverá í Þjórsárdal snemma í morgun, slasaðist talsvert. Maðurinn gekk á sokkaleistunum um tveggja og hálfs kílómetra leið að bænum Fossnesi til að láta vita af sér.

Björgun æfð á Pollinum
Um 600 manns voru á Akureyri á laugardag og föstudag í tengslum við fimmta landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þinginu lauk síðdegis á laugardag en fyrr um daginn var björgunaræfing á Akureyrarpolli með þátttöku fimm stórra björgunarskipa, varðskipsins Týs, þyrlu Landhelgisgæslunnar og fjölda smærri björgunarbáta.

Rúmensku gíslunum sleppt
Rúmensku blaðamönnunum þremur, sem verið hafa í haldi mannræningja í Írak í nærri tvo mánuði, var sleppt í dag. Fjórði gíslinn, sem starfað hefur sem túlkur Rúmenanna, fékk einnig frelsi.

Ný framkvæmdastjórn kjörin
Ný framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar var kjörin síðdegis á landsfundinum sem fram fer í Egilshöll. Þau sem náðu kjöri eru Sigríður Jóhannesdóttir, Sigrún Grendal, Tryggvi Felixson, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, Karl V. Matthíasson og Ingileif Ástvaldsdóttir.
Heppinn að lifa af
Ökumaður velti bifreið sinni á Borgarhálsi í Hrútafirði í fyrrinótt. Hann var sendur talsvert lemstraður með sjúkrabíl á Heilsugæslustöðina á Hvammstanga.
Gekk beinbrotinn að næsta bæ
Ökumaður sýndi fádæma hreysti eftir að sandflutningabíl sem hann ók hvolfdi á Þjórsárdalsvegi í bítið á sunnudagsmorgun. Bíllinn lenti út af veginum og tættist nánast í sundur. Maðurinn komst út úr sundurtættu flakinu og gekk eftir hjálp tæpa þrjá kílómetra á næsta bæ.

Kominn tími á kynslóðaskipti
Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður segir kominn tíma á kynslóðaskipti í hugmyndum sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Hann ætlar að bjóða sig fram í prófkjöri flokksins í borginni og segist sækjast eftir sæti ofarlega á lista. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Víða ölvaðir ökumenn
Margir keyrðu fullir um helgina að sögn lögreglu víða um land. Tólf ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt.

Nýir tímar í sjávarútvegi
Íslendingar eru í auknum mæli að nýta sér reynslu úr sjávarútvegi til að tryggja sér sæti í efnahagshraðlestinni í Kína. Eva Bergþóra Guðbergsdóttir er í fylgdarliði forsetans í austurvegi.