Fréttir

Fréttamynd

Fleiri vilja skrá sig í sumarhús

Skipulagsnefnd sveitarfélaga í uppsveitum Árnessýslu hefur lagt til að ekki verði veitt leyfi til lögheimilis í frístundarbyggð nema að umsækjandi færi fram sannanir fyrir fastri búsetu sinni og skuli það gert með lögregluskýrslu þar sem umsækjandi færir einnig rök fyrir því að hann vilji búa í frístundarbyggð.

Innlent
Fréttamynd

Nýjar kartöflur eftirsóttar

Fyrsta uppskera ársins af nýjum íslenskum kartöflum úr Þykkvabænum sem komu í verslanir á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun kláruðust úr hillum verslana á nokkrum klukkustundum.

Innlent
Fréttamynd

Elsta panda í heimi dáin

Elsta panda í heimi er dáin, 36 ára að aldri en það jafngildir 108 mannsárum. Pandan hefur búið undanfarin tuttugu ár í dýragarði í suðurhluta Kína eða frá árinu 1985. Pandabirnir eru orðnir afar fáir, en aðeins er talið að 1600 pandabirnir séu eftir í öllum heiminum, en þar af eru 120 þeirra í dýragörðum víðs vegar um heiminn.

Erlent
Fréttamynd

Sprengiefni fannst í bíl í Luton

Sprengiefni fannst í bíl við lestarstöð í Luton, sem er um 50 kílómetra norður af London, í gær. Lögreglan greindi frá því að hún hefði lokað lestarstöðinni á meðan sprengjusérfræðingar skoðuðu málið en þeir sprengdu þrjár sprengjur í bílnum undir eftirliti en fundur þessi er talinn mjög hjálplegur rannsókninni.

Erlent
Fréttamynd

Víðtæk samstaða um heilsársveg

Norðlendingar hafa horfið frá umdeildum áformum um hálendisveg yfir Stórasand en ætla þess í stað að taka höndum saman við Sunnlendinga um gerð heilsársvegar yfir Kjöl. Veggjöld eiga að standa undir kostnaði við framkvæmdina og líst samgönguráðherra vel á hugmyndina.

Innlent
Fréttamynd

Sprengdi sektarskala lögreglunnar

Ökumaður, sem var stöðvaður á nýju Hringbrautinni í Reykjavík í gærkvöldi eftir að lögregla hafði mælt hann á hundrað sextíu og fjögurra kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar, sprengdi sektarskala lögreglunnar.

Innlent
Fréttamynd

Tveir pakistanskir Bretar grunaðir

Tveir mannanna sem grunaðir eru um að hafa framið hryðjuverkaárásirnar á London á fimmtudag voru 19 og 22 ára Bretar, búsettir í Leeds en af pakistönskum uppruna.  Mennirnir eru sagðir hafa verið vinir og aldrei verið grunaðir um tengsl við hryðjuverkasamtök. Þeir voru sagðir mjög indælir og virðist sem öllum hafi líkað vel við þá.

Erlent
Fréttamynd

202 kærðir fyrir hraðakstur

Samkvæmt fréttavef lögreglunnar voru 202 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í síðustu viku. Nú stendur yfir sérstakt umferðareftirlit á vegum ríkislögreglustjóra sem hófst 28. júní síðastliðinn.

Innlent
Fréttamynd

Halldór fundar í Japan

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra átti í dag fund með japönskum þingmönnum í Tókýó þar sem hann hélt erindi um efnahagsmál á Íslandi. Á fundinum ítrekaði forsætisráðherra að lokið yrði við gerð loftferðarsamnings milli ríkjanna og einnig undirstrikaði hann ósk íslenskra stjórnvalda um að gerður yrði tvísköttunarsamningur milli ríkjanna.

Innlent
Fréttamynd

Á 164 kílómetra hraða

Ökumaður á yfir höfði sér sviptingu ökuréttinda eftir að bifreið hans mældist á 164 kílómetra hraða á Reykjanesbraut við Bústaðaveg á ellefta tímanum í fyrrakvöld. Hámarkshraði þar er 70 kílómetrar á klukkustund og keyrði ökumaðurinn því meira en níutíu kílómetrum á klukkustund of hratt.

Innlent
Fréttamynd

Geimskoti frestað

Hætt hefur verið við að skjóta geimferjunni Discovery á loft frá Flórída en áhöfnin var komin um borð og tilbúin að leggja í hann þegar ákvörðunin var tekin nú fyrr í kvöld. Mikil spenna var við Canaveral-höfða, en þúsundir ferðamanna voru þar saman komnir til að fylgjast með atburðinum.

Erlent
Fréttamynd

Ríkið sýknað í héraðsdómi

Ríkið var í gær sýknað af kröfum manns sem taldi sig hafa orðið fyrir ólögmætri gjaldtöku, en skattstjórinn í Reykjavík lagði á hann iðnaðarmálagjald á árunum 2001 til 2004.

Innlent
Fréttamynd

Lestarlys í Pakistan

Að minnsta kosti 150 manns eru látnir eftir árekstur þriggja farþegalesta í suðurhluta Pakistan í morgun. Þá eru yfir 800 hundruð manns slasaðir. Slysið átti sér stað með þeim hætti að verið var að laga eina lestina þegar næturlest kom á fullri ferð og lenti á henni.

Erlent
Fréttamynd

Bretar undrandi og reiðir

Talið er að mennirnir hafi starfað undir stjórn utanaðkomandi aðila og er óttast að annar hópur tilræðismanna, undir stjórn sömu aðila, sé að undirbúa fleiri árásir á bæði Bretland og víðar. Einn maður var handtekinn í aðgerðum lögreglunnar í Yorkshire í gærmorgun en hann mun vera skyldur einum af meintum tilræðisumönnum.

Erlent
Fréttamynd

Höfðaborg er morðhöfuðborg

Eftir að lyfjagagnagrunnur Landlæknisembættisins var tekinn í gagnið hefur tekist að sjá út að einhverju leyti hverjir eru stórneytendur á ávanabindandi, ávísunarskyld lyf og gera læknum viðvart.

Innlent
Fréttamynd

Heita að herða á hryðjuverkavörnum

Dóms- og innanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna 25 samþykktu í gær að herða á baráttunni gegn hryðjuverkaógninni. Á bráðafundi sem kallaður var saman í kjölfar sprengjutilræðanna í Lundúnum ákváðu ráðherrarnir að hrinda aðgerðaáætlun ESB um hryðjuverkavarnir í framkvæmd fyrir árslok.

Erlent
Fréttamynd

Gæsluvarðhald staðfest

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir síbrotamanni sem farið hafði fram á að gæsluvarðhald þða er hann var dæmdur í til 15. júlí yrði fellt niður eða stytt.

Innlent
Fréttamynd

Olíuborpallur mikið skemmdur

Olíuborpallur, í eigu BP, er mikið skemmdur eftir að fellibylurinn Dennis reið þar yfir á mánudag. Pallurinn er um 240 kílómetra suðvestur af New Orleans í Bandaríkjunum en búið var að koma öllum í land áður en atvikið átti sér stað.

Erlent
Fréttamynd

Ekki of fáar málverkasýningar

"Ég er ósammála því að of fáar málverkasýningar séu haldnar hér í listasafninu," segir Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur. Einar Hákonarson listmálari gagnrýndi listasafnið í Fréttablaðinu í gær og sagði að þar væri ekki nægileg áhersla lögð á málverkasýningar.

Innlent
Fréttamynd

Óska eftir skattskýrslum öryrkja

Greiðslustofa lífeyrissjóðanna hefur krafist þess að þrettán hundruð öryrkjar skili skattframtölum síðustu þriggja ára áður en þeir fengu dæmda örorku. Í sumum tilfellum er um allt að tuttugu ára gömul gögn að ræða. Verði gögnunum ekki skilað fyrir fimmtánda júlí, falla greiðslur til þeirra frá lífeyrissjóðunum niður fyrsta október.

Innlent
Fréttamynd

Kríuvarp nánast horfið sumstaðar

Fádæma lélegt kríuvarp hefur verið við vestanvert landið, í Breiðafirði, á Snæfellsnesi og Reykjanesi og á Norðurlandi. Fuglinn verpir seint eða ekki og sumstaðar er kríuvarp nánast horfið.

Innlent
Fréttamynd

Atvinnuréttindi útlendinga aukin

Vinnuhópur á vegum Félagsmálaráðuneytisins og Dómsmálaráðuneytisins er að vinna hugmyndir að lagabreytingu, sem miða að því að afnema takmarkanir á atvinnuréttindum útlendinga frá nýju Evrópusambandsríkjunum.

Innlent
Fréttamynd

Hrefnukjötið rokselst

Hrefnukjötið rýkur út eins og heitar lummur og eftirspurnin fer ört vaxandi," segir Sólmundur Oddsson innkaupastjóri Kaupáss sem rekur Nóatúnsverslanirnar. "Um síðustu helgi fóru 350 kíló," bætir Sólmundur við en hann er ekki í nokkrum vafa um að markaður sé fyrir því hrefnukjöti sem fellur til við veiðarnar sem nú eru hafnar.

Innlent
Fréttamynd

Stuðningsfundur í Garðasókn

Stuðningsmenn og velunnarar séra Hans Markúsar Hafsteinssonar sóknarprests í Garðaprestakalli halda stuðningsfund í kvöld í Hofsstaðaskóla í Garðabæ. Sveinn Andri Sveinsson lögmaður mun mæta á fundinn og svara spurningum sem varða deilurnar í Garðasókn sem staðið hafa lengi yfir.

Innlent
Fréttamynd

Gæsluvarðhald fellt úr gildi

Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhald yfir 27 ára gömlum erlendum manni. Maðurinn hafði áður verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í héraðsdómi vegna gruns um að hafa framið kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum fæddum árið 1994.

Innlent
Fréttamynd

Spáð straumi til Eyja

Að sögn þeirra sem fylgjast með þróuninni fyrir verslunarmannahelgina virðast Eyjar ætla að verða vinsælastar þetta árið. Hjá flugfélagi Íslands hefur þegar verið tekin ákvörðun um fjölmörg aukaflug til Eyja, enda eftirspurnin þegar orðin þó nokkur, þó að júlímánuður sé enn ekki hálfnaður.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfsmorðsárás í Bagdad

Að minnsta kosti 25 börn og einn amerískur hermaður féllu í sjálfsmorðssprengjuárás sem gerð var í Bagdad, höfuðborg Íraks í morgun. Þá er talið að 25 manns til viðbótar hafi særst í árásinni. Sprengingin átti sér stað nálægt herstöð Bandaríkjamanna en hermennirnir voru að gefa börnunum sælgæti þegar atvikið átti sér stað.

Erlent
Fréttamynd

Atvinnuleysi í lágmarki

Atvinnuleysi á landinu var 2,1 prósent í júní og dróst saman um 0,1 prósent frá fyrri mánuði og hefur atvinnuleysi ekki mælst jafn lágt síðan í desember 2001 en þá mældist það 1,9 prósent. Að því er fram kemur í hálf fimm fréttum KB banka jókst atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu um 01, prósent en minnkaði á sama tíma á landsbyggðinni um 0,2 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Fyrstu kartöflurnar í búðir í dag

Fyrstu nýju íslensku kartöflurnar koma í búðir á höfuðborgarsvæðinu í dag eftir að kartöflubændur í Þykkvabæ hófu að taka upp eldsnemma í morgun. Upptaka hófst sama dag í fyrra. Kartöflubændur ætla nú í fyrsta sinn að bjóða daglega upp á nýuppteknar kartöflur, eða eins lengi og uppskerutíminn stendur, og verða þær í sérmerktum umbúðum.

Innlent
Fréttamynd

Mótmæltu aðför að Hans Markúsi

Um tvö hundruð sóknarbörn mættu á fund í gærkvöld til stuðnings séra Hans Markúsi Árnasyni, sóknarpresti í Garðasókn að sögn Sveins Andra Sveinssonar, lögmanns hans. Fundurinn stóð í tæpa tvo tíma og var á honum samþykkt samhljóða ályktun til stuðnings sóknarprestinum.

Innlent