Fréttir
Árásirnar eiga að skelfa fólk Tony Blair sagðist eftir sprengingarnar í gær vonast til að lífið í Lundúnum kæmist fljótlega í samt lag á ný. Lögregla handtók mann í námunda við Downing-stræti 10, rétt fyrir blaðamannafund Blair. Erlent 13.10.2005 19:33
Fjöldi minka allt að sjötíu þúsund Fjöldi minka á Íslandi gæti verið hvar sem er á bilinu 7.000 til 70.000. Kostnaður við minkaveiðar hefur aukist jafnt og þétt síðustu ár án þess að nokkur vitneskja liggi fyrir um árangur af veiðunum. Vonast er til að rannsóknum á stofnstærð ljúki á næstu þremur árum. Innlent 13.10.2005 19:33
Sjö verið handteknir í Pakistan Lögreglan í Pakistan hefur handtekið sjö menn sem taldir eru tengjast hryðjuverkunum á London á einn eða annan hátt. Einn mannanna, sem handtekinn var í gær, er talinn hafa rætt við einn árásarmannanna aðeins fáeinum klukkutímum fyrir árásirnar. Erlent 13.10.2005 19:33
Feðgar létust í sprengingu Tveir eru látnir eftir að sprengja sprakk í húsi í Óðinsvéum í Danmörku. Svo virðist sem maður hafi stytt sér aldur og banað syni sínum um leið. Erlent 13.10.2005 19:33
Þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald Þrír piltar af þeim fimm sem lögreglan í Reykjavík handtók á mánudag, grunaða um ýmis afbrot, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 26. júlí. Hinum tveimur var sleppt eftir ítarlegar yfirheyrslur. Innlent 13.10.2005 19:33
22 sækja um stöðu útvarpsstjóra Umsóknarfrestur um embætti útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins rann út í dag. Menntamálaráðuneytinu hafa borist tuttugu og tvær umsóknir um embættið en ekki er útilokað að fleiri umsóknir eigi eftir að berast í pósti. Á meðal þeirra sem sækja um eru Elín Hirst, Runólfur Ágústsson, Páll Magnússon, Sigrún Stefánsdóttir og Sigurjón Kjartansson. Innlent 13.10.2005 19:33
Eldur í bát á Ísafirði Eldur kom upp í sportbáti úr plasti á geymslusvæði við höfnina á Ísafirði á fjórða tímanum í dag. Slökkviliðið var fljótt á staðinn en mikill eldur logaði í bátnum. Innlent 13.10.2005 19:33
Lestarstöðvar í Lundúnum rýmdar Neðanjarðarlestarstöð í Lundúnum var rýmd rétt í þessu og má sjá reyk leggja frá lest, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu í borginni. SKY greinir nú frá því að röð atvika hafi átt sér stað í borginni á síðustu mínútum en ekki er ljóst hvað gerðist. Erlent 13.10.2005 19:33
Yfirvofandi í töluverðan tíma Allri vinnslu í fiskvinnslufyrirtækinu Suðurnesjum var hætt í dag og öllum fjörutíu og fimm starfsmönnum fyrirtækisins sagt upp. Stefánía Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir lokunina hafa verið yfirvofandi í töluverðan tíma. Reynt hafi verið að bjarga fyrirtækinu en það ekki gengið eftir. Innlent 13.10.2005 19:33
Tilraun til sjálfsmorðsárása? Naglasprengja var sprengd við eða í neðanjarðarlest við Warren Street lestarstöðina í London, samkvæmt óstaðfestum fregnum. Nú hafa borist fregnir af einhvers konar atvikum í almenningssamgöngum í borginni og segja fréttamenn Sky-fréttastöðvarinnar að ýmislegt bendi til þess að reynt hafi verið að gera fjórar sjálfsmorðsárásir. Ferðir þriggja leiða neðanjarðarlesta hafa verið stöðvaðar. Erlent 13.10.2005 19:33
Aðeins til að hræða Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði á blaðamannafundi sem hann hélt í dag að árásirnar hefðu verið gerðar til að hræða fólk. Hann sagði mikilvægt að Lundúnarbúar héldu ró sinni. Erlent 13.10.2005 19:33
Fasteignavísitalan upp um 38,5% Vísitala fasteignaverðs íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 38,5 prósent síðasta árið samkvæmt tölum sem Fasteignamat ríkisins birti í dag. Í maí síðastliðnum var vísitalan 271,4 stig og hækkaði um 3,8 prósent frá mánuðinum á undan. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:33
Kollvarpar framtíðarsýninni Í opnu bréfi yfirdýralæknis til landbúnaðarráðherra segir að ákvörðun ráðherra um að staðsetja Landbúaðarstofnun á Selfossi kollvarpi framtíðarsýn embættisins. Embættið hafi stefnt að því að sameina þá starfsmenn sem gegna lykilhlutverki í stjórnsýslu og þjónustu á einum stað á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 13.10.2005 19:33
Stjórnmálasamband við Djíbútí Fastafulltrúar Íslands og Djíbútí hjá Sameinuðu þjóðunum, sendiherrarnir Hjálmar W. Hannesson og Robel Olhaye, undirrituðu yfirlýsingu um stofnun stjórnmálasambands ríkjanna í New York í gær. Innlent 13.10.2005 19:33
Bretum að kenna segja múslímar Hryðjuverkaárásirnar á Lundúnir eru bresku stjórninni og almenningi í Bretlandi að kenna. Þetta segja forsvarsmenn róttækra múslíma á Bretlandi. Erlent 13.10.2005 19:33
Tilboð upp á rúmar 700 milljónir Viðræður eru hafnar milli Reykjavíkurborgar og Íslenska gámafélagsins um kaup þess síðarnefnda á Vélamiðstöð Reykjavíkur en gámafélagið var hæstbjóðandi í nýafstöðu útboði. Innlent 13.10.2005 19:33
Súnníar hættir í nefndinni Súnníar hafa dregið sig úr stjórnarskrárnefnd Íraks eftir að Mijbil Issa félagi þeirra var myrtur í fyrradag. Þá var gerð sjálfsmorðsárás í Bagdad sem tíu manns dóu í. Erlent 13.10.2005 19:33
50 ára trúarstríð framundan Hryðjuverk um alla veröld er eins og kjarnorkusprengja sem hrint hefur verið af stað, segir faðir eins þeirra sem frömdu hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september árið 2001. Um leið fullyrti hann að frekari árásir myndu fylgja í kjölfarið og sagði árásirnar á Lundúnir, New York og Madrid aðeins vera upphafið að hálfrar aldar löngu trúarstríði. Erlent 13.10.2005 19:33
Páll hyggst sækja um hjá RÚV Páll Magnússon, fráfarandi frétta- og sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, hyggst verða í hópi umsækjenda um stöðu útvarpsstjóra hjá Ríkisútvarpinu. Hann segir brotthvarf sitt frá 365 ljósvakamiðlum samt því ótengt. Innlent 13.10.2005 19:33
Sigmundur Ernir nýr fréttastjóri Páll Magnússon hefur sagt lausum störfum sínum sem frétta- og sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Sigmundur Ernir Rúnarsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, tekur við fréttastjórastöðunni. Innlent 13.10.2005 19:33
Sigmundur Ernir í stað Páls Páll Magnússon segist ósammála grundvallarstefnu fjölmiðlafyrirtækisins 365 og hefur látið af störfum hjá félaginu. Hann ætlar að sækja um stöðu útvarpsstjóra í dag. Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur verið ráðinn fréttastjóri Stöðvar 2. Innlent 13.10.2005 19:33
Öllum verði tryggð skólavist Stjórn Heimdallar hefur skorað á fjármála- og menntamálaráðherra að tryggja öllu ungu fólki á Íslandi skólavist. Heimdallur vísar til þess að á hátíðarstundum sé talað um unga fólkið sem framtíðarauð þjóðarinnar og að talað sé um þekkingarþjóðfélag. Innlent 13.10.2005 19:33
Flóðin á Indlandi taka sinn toll Í það minnsta 239 manns hafa drukknað í flóðum á Indlandi síðustu dægrin. Rigningartíminn stendur nú sem hæst í landinu. Erlent 13.10.2005 19:33
Óperan fagnar hugmynd Gunnars Stjórn Íslensku óperunnar fagnar hugmynd Gunnars I. Birgissonar, bæjarstjóra og alþingismanns, um byggingu sérhannaðs óperuhúss fyrir Íslensku óperuna á Borgarholtinu í Kópavogi. Innlent 13.10.2005 19:33
Ógnað í yfirheyrslum "Ég var óörugg um mína stöðu enda fékk ég aldrei upplýsingar um hvað gerðist næst," segir Arna Ösp Magnúsardóttir, tvítugur Palestínufari. Arna er komin til Lundúna eftir handtöku ísraelskra yfirvalda á flugvellinum í Tel Aviv í Ísrael á mánudag. Innlent 13.10.2005 19:33
120 rafiðnarmenn til landsins Eitt hundrað og tuttugu rafiðnaðarmenn frá Slóveníu og Króatíu eru væntanlegir til landsins til að reisa nýja línu frá Sultartanga inn í Hvalfjörð vegna stækkunar Norðuráls. Þetta eru rafiðnaðarmenn sem sjá um að reisa möstrin og strekkja út línurnar og járniðnaðarmenn sem sjá um samsetningar á möstrunum. Innlent 13.10.2005 19:33
Heimdallur vill alla í skóla Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sendi í gær frá sér ályktun þar sem félagið skoraði á samflokksmenn sína, Geir H. Haarde fjármálaráðherra og Þorgerði Katríni Gunnarsdóttir menntamálaráðherra að tryggja það að allt ungt fólk á Íslandi fengi skólavist. Innlent 13.10.2005 19:33
Ósátt við starfsmatið Félagar í Starfsmannafélagi Kópavogs felldu kjarasamning við bæinn með 55 prósentum atkvæða í kosningu þar sem 160 af 766 félagsmönnum greiddu atkvæði. Innlent 13.10.2005 19:33
Fá tæpar 300 krónur á tímann Verkalýðsfélag Akraness leggur í dag fram kæru á hendur Sputnikbátum vegna starfa fimm Pólverja sem formaður félagsins segir að fái tæpar 300 krónur í laun á tímann. Ágreiningur er um hvort mennirnir stundi hefðbundna launavinnu eða starfi samkvæmt samningi um þjónustuviðskipti. Innlent 13.10.2005 19:33
Jón forstjóri Landbúnaðarstofnunar Landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að skipa Jón Gíslason í starf forstjóra Landbúnaðarstofnunar til fimm ára, frá og með 1. ágúst næstkomandi. Jón starfaði sem forstöðumaður Hollustuverndar ríkisins í sjö ár. Frá árinu 2000 hefur hann starfað hjá eftirlitsstofnun EFTA í Brussel. Innlent 13.10.2005 19:33