Fréttir
Spurður út í fjármagnið Aðalsteinn Á. Baldursson vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið á fundi norrænna verkalýðsleiðtoga í matvælaiðnaði á dögunum, en þegar hann hafði lokið máli sínu var lítið spurt út í skýrslu hans, heldur höfðu norrænir verkalýðsleiðtogar mestan áhuga á því hvaðan íslenskir fjárfestar fengju fjármagnið. Innlent 13.10.2005 19:33
Sprenging í bakpoka Götum í nánd við Warren Street neðanjarðarlestarstöðina í London hefur verið lokað og lögregla segir fólki að yfirgefa svæðið. Sömu sögu er að segja í nánd við Oval-stöðina og þar hafa byggingar í grennd einnig verið rýmdar. Sjónarvottur greinir frá því að sprenging hafi orðið í bakpoka hjá manni í einum neðanjarðarlestarvagninum en hún er sögð hafa orðið minniháttar. Erlent 13.10.2005 19:33
Óvíst hversu mörgum verði synjað Menntamálaráðuneytið hefur engar upplýsingar um hversu margir komast ekki í nám í haust. Allir nýnemar sem sótt hafa um skólavist í framhaldsskóla eru komnir inn, segir Þórir Ólafsson, séfræðingur hjá menntamálaráðuneytinu. Hann segir þó menntamálaráðuneytið ekki hafa tölur um það hversu margir fengu neitun um skólavist í haust. Innlent 13.10.2005 19:33
Vara við geymslu olíu Almenningur er varaður við þeirri hættu sem af því getur skapast að geyma birgðir af dísilolíu í og við íbúðarhús í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra, Brunamálastofnun og Umhverfisstofnun. Innlent 13.10.2005 19:33
Blair ávarpar bresku þjóðina Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, mun ávarpa bresku þjóðina klukkan fimmtán mínútur yfir tvö að íslenskum tíma vegna atburðanna í London í dag, að sögn Sky-fréttastöðvarinnar. Staðfest hefur verið að fjórar sprengjuárásir, eða tilraun til árása, hafi verið gerðar víðs vegar um borgina um hádegisbilið, nokkru minni en þær gerðar voru fyrir tveimur vikum. Erlent 13.10.2005 19:33
Barist um hvern einasta starfsmann Rétt tæpur helmingur af öllu starfsfólki helstu og stærstu verktaka á Íslandi eru af erlendu bergi brotnir samkvæmt lauslegri úttekt Fréttablaðsins. Innlent 13.10.2005 19:33
Þýskalandsforseti fellst á þingrof Horst Köhler, forseti Þýskalands, sagði í sjónvarpsávarpi í gærkvöld að hann hefði ákveðið að fallast á að þing skuli rofið eftir að ríkisstjórn Gerhards Schröders tapaði vísvitandi atkvæðagreiðslu um vantraust. Þar með er orðið ljóst að þingkosningum verður flýtt og þær haldnar 18. september næstkomandi. Erlent 13.10.2005 19:33
Úttekt gerð á Íbúðalánasjóði Félagsmálanefnd Alþingis hefur falið Ríkisendurskoðun að gera stjórnsýsluúttekt á Íbúðalánasjóði. Lánasýslu ríkisins og félagsmálaráðuneytið greinir á um hvort lánasamningar bankanna og Íbúðalánasjóðs séu ríkistryggðir. Innlent 13.10.2005 19:33
Fimm féllu í sjálfsmorðsárás Fimm írakskir hermenn féllu í sjálfsmorðsárás suður af Bagdad í morgun. Maður ók bíl upp að eftirlitssveit hermannanna og sprengdi sig í loft upp. Árásin var gerð á svæði sem kallað hefur verið „þríhyrningur dauðans“ undanfarið. Ellefu særðust í árásinni, þeirra á meðal lítið barn. Erlent 13.10.2005 19:33
Rice öskuill út í Súdana Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er öskuill og krefst þess að stjórnvöld í Súdan biðjist afsökunar. Ástæðan er sú að súdanskir embættismenn tóku harkalega á bandarískum blaðamönnum og embættismönnum á fundi í Khartoum í gær. Erlent 13.10.2005 19:33
Ekkert mannfall í árásunum Hryðjuverkamönnum tókst að gera árásir á þrjár lestir og strætisvagn í Lundúnum í dag, réttum hálfum mánuði eftir að fimmtíu og sex voru drepnir í árásum í borginni. Ekkert mannfall varð hins vegar í dag en atburðirnir sýna að hvorki öryggisgæsla né eftirlit getur með öllu komið í veg fyrir hryðjuverk. Erlent 13.10.2005 19:33
Ráða hverjum hleypt inn í landið "Við fylgjumst með þegar svona atvik eiga sér stað og berist kvartanir tökum við þær alltaf alvarlega," segir Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Innlent 13.10.2005 19:33
Vísbendingar um hermikrákuárásir Fjórar hryðjuverkaárásir eða tilraunir til árása voru gerðar í Lundúnum um hádegisbilið í dag og fyrir nokkrum mínútum girtu lögreglumenn University College sjúkrahúsið af. Ýmislegt bendir til þess að hermikrákur hafi verið á ferð. Erlent 13.10.2005 19:33
Ríkið getur sparað 200 milljónir Ríkið getur sparað sem nemur 150-200 milljónum króna á ári í fjarskiptakostnað, að mati Ríkiskaupa, með nýjum rammasamningi við Og Vodafone um talsíma- og internetþjónustu fyrir ríkisstofnanir. Innlent 13.10.2005 19:33
Ganga þvert á markmið Félagsmálanefnd Alþingis fundar nú vegna umdeildra samninga Íbúðalánasjóðs við banka og sparisjóði. Pétur Blöndal, einn nefndarmanna, sagði þegar hann brá sér af fundi að samningarnir gangi þvert á markmið Íbúðalánasjóðs. Innlent 13.10.2005 19:33
Sjö verið handteknir í Pakistan Lögreglan í Pakistan hefur handtekið sjö menn sem taldir eru tengjast hryðjuverkunum á London á einn eða annan hátt. Einn mannanna, sem handtekinn var í gær, er talinn hafa rætt við einn árásarmannanna aðeins fáeinum klukkutímum fyrir árásirnar. Erlent 13.10.2005 19:33
Feðgar létust í sprengingu Tveir eru látnir eftir að sprengja sprakk í húsi í Óðinsvéum í Danmörku. Svo virðist sem maður hafi stytt sér aldur og banað syni sínum um leið. Erlent 13.10.2005 19:33
Þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald Þrír piltar af þeim fimm sem lögreglan í Reykjavík handtók á mánudag, grunaða um ýmis afbrot, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 26. júlí. Hinum tveimur var sleppt eftir ítarlegar yfirheyrslur. Innlent 13.10.2005 19:33
22 sækja um stöðu útvarpsstjóra Umsóknarfrestur um embætti útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins rann út í dag. Menntamálaráðuneytinu hafa borist tuttugu og tvær umsóknir um embættið en ekki er útilokað að fleiri umsóknir eigi eftir að berast í pósti. Á meðal þeirra sem sækja um eru Elín Hirst, Runólfur Ágústsson, Páll Magnússon, Sigrún Stefánsdóttir og Sigurjón Kjartansson. Innlent 13.10.2005 19:33
Eldur í bát á Ísafirði Eldur kom upp í sportbáti úr plasti á geymslusvæði við höfnina á Ísafirði á fjórða tímanum í dag. Slökkviliðið var fljótt á staðinn en mikill eldur logaði í bátnum. Innlent 13.10.2005 19:33
Lestarstöðvar í Lundúnum rýmdar Neðanjarðarlestarstöð í Lundúnum var rýmd rétt í þessu og má sjá reyk leggja frá lest, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu í borginni. SKY greinir nú frá því að röð atvika hafi átt sér stað í borginni á síðustu mínútum en ekki er ljóst hvað gerðist. Erlent 13.10.2005 19:33
Yfirvofandi í töluverðan tíma Allri vinnslu í fiskvinnslufyrirtækinu Suðurnesjum var hætt í dag og öllum fjörutíu og fimm starfsmönnum fyrirtækisins sagt upp. Stefánía Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir lokunina hafa verið yfirvofandi í töluverðan tíma. Reynt hafi verið að bjarga fyrirtækinu en það ekki gengið eftir. Innlent 13.10.2005 19:33
Tilraun til sjálfsmorðsárása? Naglasprengja var sprengd við eða í neðanjarðarlest við Warren Street lestarstöðina í London, samkvæmt óstaðfestum fregnum. Nú hafa borist fregnir af einhvers konar atvikum í almenningssamgöngum í borginni og segja fréttamenn Sky-fréttastöðvarinnar að ýmislegt bendi til þess að reynt hafi verið að gera fjórar sjálfsmorðsárásir. Ferðir þriggja leiða neðanjarðarlesta hafa verið stöðvaðar. Erlent 13.10.2005 19:33
Aðeins til að hræða Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði á blaðamannafundi sem hann hélt í dag að árásirnar hefðu verið gerðar til að hræða fólk. Hann sagði mikilvægt að Lundúnarbúar héldu ró sinni. Erlent 13.10.2005 19:33
2600 íbúðarhús eyðilögð í Kína Hvirfilbylurinn Haitang hefur eyðilagt 2600 íbúðarhús í austurhluta Kína undanfarna daga. Meira en 300 þúsund manns hafast nú við í neyðarskýlum á svæðinu og gefnar hafa verið út viðvaranir um aurskriður og flóð í dag og á morgun. Erlent 13.10.2005 19:33
Engar fréttir af mannskaða Naglasprengja er sögð hafa sprungið á Warren Street lestarstöðinni í London. Þá greinir Sky frá því að sprenging hafa orðið í stætisvagni í Hackney og að skothríð hafi heyrst. Engar fréttir hafa borist af látnum eða slösuðum. Erlent 13.10.2005 19:33
Tryggingabætur öryrkja skerðast Öryrkjar sem hafa lagt fyrir viðbótarlífeyrissparnað missa hluta af tryggingabótum sínum óski þeir eftir að fá hann útborgaðan. Þegar skatturinn hefur einnig tekið sinn toll er ávinningurinn af sparnaðinum nær enginn. Öryrki sem fréttastofan ræddi við segir þetta ekkert annað en þjófnað. Innlent 13.10.2005 19:33
Pólverjunum meinað að tjá sig Pólsku verkamennirnir fimm sem starfa fyrir fyrirtækið Sputnikbátar á Akranesi hefur verið bannað af leigumiðluninni í Póllandi að tjá sig um launamál sín að sögn Vilhjálms Birgissonar formanns Verkalýðsfélags Akraness. Innlent 13.10.2005 19:33
Sprengingar skelfa Lundúnabúa Sprengingar urðu í jarðlestum og strætisvagni í Lundúnum um hádegisbil í gær, en þær voru mun minni en þær sem bönuðu 56 manns fyrir hálfum mánuði. Aðeins einn maður særðist í sprengingunum í gær, að því er fregnir hermdu. Lögreglan sagði mikið af sönnunargögnum hafa fundist sem líkleg væru til að vísa henni á þá sem að tilræðunum stóðu. Erlent 13.10.2005 19:33
Geta ekki séð um öryggi landsins Írakskar öryggissveitir eru engan vegin í stakk búnar til að sjá sjálfar um öryggi landsins. Þetta kemur fram í nýrri leyniskýrslu frá Pentagon sem dagblaðið <em>New York Times</em> greinir frá í dag. Erlent 13.10.2005 19:33