Hálft af hvoru lamb í Bárðardal „Við vorum mjög hissa og áttum eiginlega ekki til orð, við höfum aldrei fengið svona lamb í okkar 50 ára búskapartíð, þetta er alveg magnað og mjög sérstakt,“ segir Bergljót Þorsteinsdóttir á bænum Halldórsstöðum í Bárðardal. Lamb, sem var að koma í heiminn á bænum, er svart öðrum megin og hvítt hinum megin. Nánast jöfn skipting alla leið. Innlent 13. maí 2022 14:21
Skoða að stækka jarðgufuvirkjun á Þeistareykjum um 45 megavött Landsvirkjun skoðar nú þann möguleika að stækka Þeistareykjavirkjun í Þingeyjarsýslum um 45 megavött. Það þýddi meiri boranir á svæðinu eftir jarðgufu. Viðskipti innlent 30. apríl 2022 22:44
Stærri skjálfti í Bárðarbungu vegna kvikusöfnunar Skjálfti 4,1 að stærð varð í Bárðarbunguöskjunni klukkan 7:02 í morgun. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Náttúruvársérfræðingur segir skjálftann í morgun, og fyrri skjálftar á svæðinu á síðustu mánuðum, skýrast af kvikusöfnun. Engin merki eru um gosóróa. Innlent 25. mars 2022 11:42
Munu kjósa milli fjögurra nafna á sameinuðu sveitarfélagi Íbúar Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit munu kjósa milli fjögurra tillagna að nafni á sameiginlegu sveitarfélagi í rafrænni skoðanakönnun í næsta mánuði. Valið stendur milli nafnanna Goðaþings, Laxársveitar, Suðurþings og Þingeyjarsveitar. Innlent 24. mars 2022 14:29
Örnefnanefnd mælir með þremur nöfnum á sameinuðu sveitarfélagi Örnefnanefnd telur að þrjár af þeim tillögum sem bárust nefndinni til umsagnar um nafn á sameinuðu sveitarfélagi Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar, falla best að nafngiftahefð í landinu. Það eru nöfnin Suðurþing, Laxárþing og Goðaþing. Innlent 16. mars 2022 10:54
Ekki gert ráð fyrir sveitarstjóra í nýju sveitarfélagi Ekki er gert ráð fyrir að sveitarstjóri verði ráðinn þegar sameining Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar tekur gildi. Þrír sviðsstjórar og einn kjörinn fulltrúi munu þess í stað mynda framkvæmdastjórn sveitarfélagsins, sem verður víðfeðmasta sveitarfélag landsins. Innlent 15. mars 2022 14:11
Þessi nöfn koma til greina á sameinuðu sveitarfélagi Undirbúningsstjórn sameinaðs sveitarfélags Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar hefur sent örnefnanefnd átta tillögur að nafni á sameinuðu sveitarfélagi til umsagnar. Innlent 11. febrúar 2022 09:54
Nafn piltsins sem lést á Laugum Ungi maðurinn sem lést af slysförum við Framhaldsskólann á Laugum hét Kristinn Aron Curtis Arnbjörnsson. Innlent 9. febrúar 2022 20:59
Syrgja góðan vin og félaga Starfsfólk og nemendur Framhaldsskólans á Laugum í Þingeyjarsveit syrgja góðan vin og félaga sem lést af slysförum við skólann í gær. Innlent 3. febrúar 2022 20:01
Voru að renna sér í snjónum þegar slysið varð Ungi maðurinn sem lést í slysi við Framhaldsskólann á Laugum í gær var að renna sér í snjó í brekku við skólann með félögum sínum, með þeim afleiðingum að hann varð fyrir bíl. Þónokkrir urðu vitni að slysinu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á Húsavík. Innlent 3. febrúar 2022 10:13
Nemendur og starfsfólk harmi slegið Allt skólastarf fellur niður í Framhaldsskólanum á Laugum á morgun eftir banaslys sem varð við skólann í dag. Starfsfólki og nemendum er mjög brugðið vegna slyssins og verður boðið upp á áfallahjálp á morgun. Innlent 2. febrúar 2022 23:01
Lést í bílslysi við Framhaldsskólann á Laugum Nítján ára karlmaður lést í bílslysinu sem varð við Framhaldsskólann á Laugum fyrr í dag. Innlent 2. febrúar 2022 17:48
Alvarlegt bílslys við Framhaldsskólann á Laugum Alvarlegt bílslys varð við Framhaldsskólann á Laugum fyrr í dag. Lögreglan á Húsavík staðfesti að bílslys hafi orðið við skólann í samtali við fréttastofu. Innlent 2. febrúar 2022 15:48
Ríkissjóður nálægt því að taka yfir megnið af Vaðlaheiðargöngum Fjárhagsleg endurskipulagning Vaðlaheiðarganga er langt á veg komin samkvæmt heimildum Innherja en með því að skuldbreyta lánum sem hafa sligað rekstur ganganna frá því að opnað var fyrir umferð eignast ríkissjóður yfirgnæfandi eignarhlut. Innherji 27. janúar 2022 08:03
Veiruskita herjar á kýr Veiruskita í kúm hefur geisað á Eyjafjarðarsvæðinu að undanförnu og virðist nú vera farin að stinga sér niður í Þingeyjarsýslum og á Héraði. Biðlað er til bænda að huga að sóttvörnum til að forðast að fá smitið inn á kúabú. Innlent 20. desember 2021 14:01
Byrja með „umfangsminni hugmyndir“ um hálendisþjóðgarð „Ef maður er hættur að komast áfram, getur verið ágætt að stíga aðeins aftur á bak.“ Þetta sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, um mögulegan hálendisþjóðgarð í ljósi þess að Sjálfstæðisflokkurinn væri að taka yfir umhverfisráðuneytið. Innlent 28. nóvember 2021 14:37
Endurskipulagning á fjárhag Vaðlaheiðarganga dregst á langinn Meira en einu og hálfu ári eftir að viðræður hófust um fjárhagslega endurskipulagningu Vaðlaheiðarganga er málið enn í vinnslu. Ríkissjóður hefur frestað innheimtuaðgerðum vegna gjaldfallinna lánssamninga fram yfir áramót. Innherji 23. nóvember 2021 15:21
Þjóðveginum lokað fyrir norðan vegna alvarlegs umferðarslyss Tilkynnt var um tvö umferðarslys á sama tíma í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi eystra skömmu fyrir klukkan eitt í dag. Þrír voru fluttir á sjúkrahús vegna alvarlegs slyss á Moldhaugnahálsi. Innlent 8. nóvember 2021 13:53
Ráðinn sem lögfræðingur sameinaðs sveitarfélags Tryggvi Þórhallsson lögmaður hefur verið ráðinn sem lögfræðingur hjá Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit. Sveitarfélögin sameinast formlega í lok maí á næsta ári. Viðskipti innlent 26. október 2021 13:28
Óvissustigi aflétt í Útkinn Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra að fella niður óvissustig í Útkinn í Þingeyjarsveit. Innlent 11. október 2021 14:22
Hættustigi aflétt í Útkinn Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjóra hefur ákveðið að aflétta hættustigi sem verið hefur í gildi í Útkinn í Þingeyjarsveit vegna skriðuhættu. Innlent 8. október 2021 14:31
Fjölgar í einangrun en fækkar í sóttkví á Akureyri 116 manns eru í einangrun á Akureyri vegna Covid-19. Þeir sem eru í sóttkví fækkar hins vegar verulega á milli daga. Langflestir af þeim eru í sóttkví í bænum eru nemendur eða starfsfólk grunnskóla. Innlent 8. október 2021 11:37
Aurskriðurnar í Útkinn: „Það er 3-0 fyrir náttúruna alls staðar“ „Það er 3-0 fyrir náttúruna alls staðar hérna,“ segir Bragi Kárason, bóndi á Nípá í Útkinn í Þingeyjarsveit, sem staddur var uppi í fjalli til að kanna aðstæður á rafstöð bæjarins þegar fréttastofa náði tali af honum. Innlent 6. október 2021 22:29
Aflétta rýmingu í Útkinn Almannavarnir hafa aflétt rýmingu í Útkinn í Þingeyjarsveit og er íbúum þar nú heimilt að snúa heim til sín. Svæðið var rýmt um helgina vegna skriðuhættu. Enn er hættustig í gildi á svæðinu. Innlent 5. október 2021 19:30
Skriðuhætta fer minnkandi en áfram er óvissustig Verulega hefur dregið úr skriðuhættu í Kinn í Þingeyjarsveit auk þess sem að ástandið hefur lagast í Útkinn. Rýmingu hefur verið aflétt í Kinn en beðið verður með að aflétta rýmingu í Útkinn. Innlent 5. október 2021 15:02
„Þetta eru miklar hamfarir“ Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur birt ratsjármyndir þar sem sjá má samanburð á svæðinu í Kinn og Útkinn fyrir og eftir miklar skriður sem féllu þar um helgina. Innlent 5. október 2021 12:17
Rýmingar enn í gildi í Þingeyjarsveit Ákveðið var að rýmingar bæja í Útkinn í Þingeyjarsveit yrðu áfram í gildi eftir fund almannavarna, lögreglunnar á Norðurlandi eystra og veðurfræðninga nú síðdegis. Enn rignir töluvert á svæðinu en skriður féllu þar í gærkvöldi og nótt. Innlent 4. október 2021 18:17
Fleiri skriður féllu í nótt Fleiri aurskriður féllu í Þingeyjarsveit í gærkvöldi og nótt. Skriður féllu að bænum Björgum en engir bæir hafa orðið fyrir skriðunum. Almannavarnir funduðu um næstu skref í hádeginu. Innlent 4. október 2021 12:58
Rýmingu ekki aflétt Tekin hefur verið ákvörðun um að rýmingu verði ekki aflétt í Kinn og Útkinn en þetta kemur fram í Facebook færslu lögreglunnar á Norðurlandi Eystra. Skriður féllu í Útkinn í nótt og er hættustig enn í gildi á svæðinu. Innlent 4. október 2021 11:57
Tvær skriður féllu í Útkinn í nótt Tvær skriður féllu í nótt sunnan við bæinn Geirbjarnarstaði í Útkinn sem fóru yfir veginn. Innlent 4. október 2021 10:45