K-Fed heimtar fullt forræði Kevin Federline, fráfarandi eiginmaður poppstjörnunnar Britney Spears, hefur farið fram á fullt forræði yfir sonum þeirra tveim og ber við að Britney sé ekki fær um að annast þá. Lífið 20. nóvember 2006 12:15
Bæði nakin í nýju tónlistarmyndbandi Peter André og Katie Price, eða Jordan, hafa nú gefið út myndband við lag sitt. Parið er eitt af vinsælustu pörum í Bretlandi enda skrautlegir karakterar. Lagið Lagið A Whole New World með skötuhjúunum er frumraun þeirra saman á tónlistarsviðinu en André gaf út nokkrar smáskífur á árum áður. Tónlist 20. nóvember 2006 12:00
Eivör með dívunum Eivør Pálsdóttir hefur bæst í hópinn með þeim Sissel Kyrkjebø og Petulu Clark sem syngja á jólatónleikunum Frostroses: European Divas í Laugardalshöll 5. desember. Miðasala á tónleikana er hafin en hún fer fram á vefsíðu Frost, www.frostid.is, midi.is, verslunum Skífunnar og verslunum BT á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Tónlist 20. nóvember 2006 11:00
Boxæði í Keflavík Guðjón Vilhelm boxþjálfari var einn af þeim frumkvöðlum sem komu boxíþróttinni á kortið hér á landi fyrir nokkrum árum og vann mikið starf í Keflavík við uppgang íþróttarinnar þar. Hann tók sér frí frá þjálfun í tvö ár en er nú mættur til starfa á ný hjá BAG í Keflavík. Lífið 20. nóvember 2006 10:00
Árni syngur lög Ása í Bæ Út er komin platan Gaman að vera til. Á henni syngja Árni Johnsen og félagar 29 lög frá Ása í Bæ, auk þriggja gestalaga. Tónlist 20. nóvember 2006 09:30
Aftur í Höllinni Sálin hans Jóns míns og Gospelkór Reykjavíkur munu halda aðra tónleika í Laugardalshöll þann 30. desember næstkomandi vegna gífurlegrar eftirspurnar. Tónlist 20. nóvember 2006 09:00
Þetta verður kvöldið hans Péturs “Hvaaaa, neineineineineinei... ég verð ekki fullur. Geri allt svona sóber,” segir Pétur Jóhann Sigfússon. Hann mun standa í eldlínunni í kvöld ásamt Ragnhildi Steinunni þegar þau verða kynnar í því sem hlýtur að teljast einn hápunkta samkvæmislífsins í henni Reykjavík. Bíó og sjónvarp 19. nóvember 2006 14:00
Biðja vegfarendur að mála ást Þeir Davíð Óskar Ólafsson, Hreinn Beck og Árni Filippusson vinna nú að verkefni sem þeir kalla Painting Love, ásamt Dananum Bjarke von Koning. „Við förum til tólf borga, stillum upp trönum og striga og biðjum vegfarendur um að mála ást," útskýrði Davíð. Menning 19. nóvember 2006 13:30
Joanna í Undralandi Það er erfitt að lýsa nýjasta hljóðævintýri Joannu Newsom með orðum. Einhvern tímann frá því að hún gaf út síðustu plötu fyrir tveimur árum síðan hefur hún elt hvítu kaninuna ofan í holuna á trénu sem leiddi Lísu til undralands og komið sér vel fyrir þar. Tónlist 19. nóvember 2006 13:00
Magnaðir Molar Það ríkti mikil eftirvænting í Laugardalshöllinni á föstudagskvöldið. Höllin var vel full og útlendingar áberandi í salnum. Sennilega hafa aldrei fleiri komið til landsins gagngert til þess að fara á tónleika. Tónlist 19. nóvember 2006 12:00
Syngja lög eftir konur Platan Sögur af konum er komin út. Þar syngja þær Selma og Hansa tólf ný lög eftir íslenskar konur. Selmu og Hönsu langaði til að gera tónlistarkonum á Íslandi hátt undir höfði á þessari plötu og völdu því eingöngu lög og texta eftir konur. Tónlist 19. nóvember 2006 11:00
Söng með Pearl Jam Bono, söngvari U2, og rokksveitin Pearl Jam komu óvænt fram saman á tónleikum í Ástralíu sem báru yfirskriftina „Make Poverty History“. Sungu þeir félagar Bono og Eddie Vedder lag Neil Young, Rockin in the Free World. Tónlist 19. nóvember 2006 10:00
Bölvun eða blessun Braga Aðalpersónan í nýjustu skáldsögu Braga Ólafssonar er ljóðskáldið Sturla Jón Jónsson, rithöfundur með snert af sjálfseyðingarhvöt sem ferðast til Litháen á ljóðahátíð. Skáldsagan Sendiherrann fjallar um þrá þessa Sturlu Jóns eftir persónulegri formbyltingu, hann vill segja skilið við ljóðið en allt hans líf virðist líka litað af meiriháttar óþreyju - kannski er hann í óttalegri miðlífskrísu eða kannski er hann bara ofurvenjulegur nútímamaður. Menning 19. nóvember 2006 09:45
Tónað inn í aðventu á Melum Kirkjur landsins eru í vaxandi mæli teknar að vera skjól listafólki vikurnar fyrir aðventu og á aðventunni sjálfri, rétt eins og listasamfélagið vilji eyða svartasta myrkrinu fyrir skemmstan dag. Þannig verður átak í Neskirkju vestur á Melum og hefst í dag. Tónlistarhátíð Neskirkju „Tónað inn í aðventu“ er nú haldin í þriðja sinn. Tónlist 18. nóvember 2006 16:30
Sófakynslóð frumsýnd Heimildarmyndin Sófakynslóðin – heimildarmynd um aktívisma á Íslandi, verður frumsýnd í Háskólabíói í dag. Háskólanemarnir Áslaug Einarsdóttir og Garðar Stefánsson gerðu myndina og er ætlun þeirra að vekja áhuga ungmenna á því að hafa áhrif á samfélag sitt með ýmiss konar aðferðum. Myndin hefst klukkan 13.00 í sal 3 og er ókeypis inn. Myndin verður síðan sýnd í framhaldsskólum víða um land. Bíó og sjónvarp 18. nóvember 2006 16:00
Slær met í Bretlandi Nýjasta Bond-myndin, Casino Royale, náði inn meiri peningum á sínum fyrsta sýningardegi í Bretlandi en nokkur önnur Bond-mynd. Alls seldust 1,7 milljón miðar á myndina. Er það tvöfalt meira en keypt var á fyrsta sýningardegi Bond-myndarinnar Die Another Day, sem átti fyrra metið. Bíó og sjónvarp 18. nóvember 2006 15:00
Saltbreiður í sundlaugunum Kuldakastið sem riðið hefur yfir landið undanfarna daga hefur væntanlega aftrað einhverjum frá sundferðum. Þeir sem lagt hafa leið sína í Laugardalslaugina hafa hins vegar þurft að eiga við miklar, grófar saltbreiður á bökkunum, sem eiga að koma í veg fyrir hálkumyndun en eru varla til þess að gera sundferðina þægilegri. Lífið 18. nóvember 2006 15:00
Myndband frá Rice Myndband við lagið 9 Crimes, sem er fyrsta smáskífulag nýjustu plötu Damien Rice, 9, verður frumsýnt í Bretlandi hinn 25. nóvember. Lífið 18. nóvember 2006 14:30
Magni með útvarpsþátt fram að jólum Magni Ásgeirsson, sem gerði garðinn frægan í Rockstar:Supernova, heldur aftur á öldur ljósvakans á næstunni, en hann mun ásamt vini sínum Ómari Berg Torfasyni stýra útvarpsþætti á KissFM í desember. Lífið 18. nóvember 2006 14:00
Lokuð inni í skóla Leikkonan heimsfræga var föst inni í skóla eftir að læti brustust út á tökustað nýjustu myndar hennar á Indlandi. Lætin brustust út meðal foreldra þegar verið var að taka upp atriði í myndinni „A mighty heart“ í strætó við hliðina á skóla. Fannst foreldrum lífverðir Jolie vera að hóta börnunum og brutust því út ólæti á skólalóðinni meðal fjölda manna. Lífið 18. nóvember 2006 13:30
Íslensk náttúra í tísku Glöggir lesendur nýjasta tölublaðs tískuritsins Vogue hafa eflaust rekið augun í stóran tískuþátt þar sem íslensk náttúra er í aðalhlutverki. Lífið 18. nóvember 2006 12:00
Aðdáendur vilja endurgreiðslu Reiðir aðdáendur popparans Michael Jackson vilja fá miðana sem þeir borguðu inn á heims-tónlistarverðlaunin í London á dögunum endurgreidda. Tónlist 18. nóvember 2006 12:00
Hörinn í striganum Hildur Bjarnadóttir opnar í dag sýningu í Safninu í gamla Faco-húsinu við Laugaveg. Verkin sem hún sýnir eru öll unnin sérstaklega fyrir þessa sýningu Safnsins. Hildur hefur á undanförnum árum fengist við gerð verka sem sækja í eldri hannyrðir. Menning 18. nóvember 2006 11:45
Hulda í Grasrótinni Grasrótarsýningar Nýlistasafnsins eru undanfarin sex ár búnar að vera spennandi samantekt á því hvað er að gerast í yngsta hópi starfandi myndlistarmanna. Menning 18. nóvember 2006 11:30
Sykurmolarnir fylltu Höllina Fullt var út úr dyrum á tónleikum Sykurmolanna í Laugardalshöll í gærkvöldi. Hljómsveitin koma saman á nýjan leik til að minnast þess að tuttugu ár eru liðin frá því fyrsta smáskífa sveitarinnar, afmæli, kom út hinn 17. nóvember 1986. Innlent 18. nóvember 2006 11:16
Heitasta andlitið í dag Nafn fyrirsætunnar Jessicu Stam er á hvers manns vörum þessa dagana. Hún er vinsælasta andlitið í tískuheiminum í dag þrátt fyrir að vera aðeins tvítug á þessu ári. Stam hefur verið á forsíðum helstu tímarita heims og er meðal annars bæði andlit Marc Jacobs og MiuMiu auglýsingaherferðanna. Lífið 18. nóvember 2006 11:00
Gussi úti í kuldanum hjá Hemma „Mér var orðið dálítið kalt á þumalputta hægri handar en annars hafði ég það bara fínt,“ segir Gunnar Jónsson, yfirdyravörður á Kaffi Oliver, var hífður upp í 30 metra hæð fyrir framan NASA á Austurvelli á fimmtudagskvöld. Þar var hann látinn hanga í fimbulkulda og roki í eina klukkustund í sex stiga frosti og talsverðum vindi. Lífið 18. nóvember 2006 10:30
Gefa út DVD Rokksveitin Guns "N" Roses gefur hinn 5. febrúar á næsta ári út DVD-mynddiskinn Live in Chic-ago. Á disknum verða meðal annars lögin Mr. Brownstone, Live and Let Die, Patience, Civil War, Welcome to the Jungle og November Rain sem hljómsveitin flutti á tónleikum í Chicago. Tónlist 18. nóvember 2006 10:00
Á lag í bandarískum kántrí-raunveruleikaþætti Gísli Jóhannsson, betur þekktur sem Gis, hefur loksins látið gamlan draum rætast og komið sér fyrir í mekka kantrí-tónlistarinnar, Nashville. „Hérna er nú bara rok og rigning,“ segir Gísli þegar Fréttablaðið hafði samband við hann. Tónlist 18. nóvember 2006 09:30
Ampop siglir til tunglsins Hljómsveitin Ampop gefur út sína fjórðu plötu, Sail to the Moon, á þriðjudag. Platan fylgir eftir vinsældum My Delusions sem kom út seint á síðasta ári. Tónlist 18. nóvember 2006 09:00