Hörð barátta Rappararnir Kanye West og 50 Cent munu heyja harða baráttu um efsta sæti plötulistanna þegar þeir gefa út næstu plötur sína sama daginn, þann 11. september. Tónlist 22. júlí 2007 01:45
Cruise tekur upp í Þýskalandi Tökur eru hafnar í Þýskalandi á nýjustu kvikmynd Tom Cruise, Valkyrie, þrátt fyrir að framleiðendunum hafi verið meinaður aðgangur að fyrirhuguðum tökustað í Berlín. Bíó og sjónvarp 21. júlí 2007 05:45
Lagi Magna stolið frá Rás 2 „Fólk er orðið frekar tæknivætt þegar það er farið að gera svona hluti. Ég botna ekkert í þessu,“ segir Magni Ásgeirsson, en nýjasta lag hans, If I Promised You The World, er komið í dreifingu á netinu án hans samþykkis. Tónlist 21. júlí 2007 04:45
Hark að vera ljóðskáld á Íslandi Þórdís Björnsdóttir hefur gefið út þriðju ljóðabók sína. Fyrsta skáldsaga hennar er svo væntanleg fyrir jólin. „Í bókinni er margt ósagt. Það er ýjað að mörgu og í ljóðunum er ákveðinn undirliggjandi óhugnaður. Nafn bókarinnar kemur úr þessum þætti hennar, þessari dulúð,“ segir Þórdís Björnsdóttir. Menning 21. júlí 2007 03:30
Stórtónleikar í Borgarneskirkju Á morgun, sunnudag kl. 20.00, verða haldnir miklir tónleikar í Borgarneskirkju. Þau Þóra Einarsdóttir sópransöngkona, Björn Jónsson tenór og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanóleikari leiða þar saman hesta sína, en öll eru þau búsett og starfa erlendis. Á efnisskrá tónleikanna eru sönglög, dúettar og píanóverk eftir Grieg, Schumann og R. Strauss. Tónlist 21. júlí 2007 01:00
Helmingur miða á Kim Larsen seldur Ríflega helmingur miða á tónleika Kims Larsens og Kjukken er seldur, en miðasala hófst í vikunni. Aðeins eru örfáir miðar eftir í sæti. Kim og félagar eru um þessar mundir á Danmerkurtúr sem lýkur í Odense þann 25. ágúst. Síðari helmingur tónleikaferðalagsins hefst síðan í Noregi þann 1. nóvember og endar Vodafonehöllinni í Reykjavík þann 24. nóvember nk. Tónlist 19. júlí 2007 13:15
Hvítar ruslvögguvísur Þungarokkshljómsveitin Perfect Disorder heldur útgáfutónleika á Gauknum, annað kvöld klukkan 20. White Trash Lullabies er fyrsta plata hljómsveitarinnar en hún var stofnuð árið 2003. Upphaflega hét hún Panic Disorder og spilaði pönk. Tónlist 19. júlí 2007 13:08
Írak í nýju ljósi á RIFF Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík (RIFF) hyggst sýna fjórar nýjar heimildarmyndir sem varpa mismunandi ljósi á ástandið í Miðausturlöndum. Kastljósinu verður hins vegar fyrst og fremst beint að innrás bandamanna í Írak. Bíó og sjónvarp 18. júlí 2007 05:45
Útirokk fyrir ungt fólk á Ingólfstorgi Stórir útitónleikar verða haldnir á Ingólfstorgi á morgun, fimmtudag milli 17 og 19. Fram koma Jeff Who?, Jan Mayen, Æla, Kimono, Skátar og Beikon og munu þau væntanlega rokka grimmt í veðurblíðunni. Útvarpsmaðurinn góðkunni Ólafur Páll Gunnarsson verður kynnir og plötusnúður. Tónlist 18. júlí 2007 05:00
Steed Lord í glanstímariti í New York Hljómsveitin Steed Lord er í opnuviðtali í nýjasta tölublaði tímaritsins Missbehave í New York. Reyndar koma fleiri Íslendingar við sögu í blaðinu því þar er einnig að finna umfjöllun um Björk Guðmundsdóttur og „tískuleyndarmál“ hennar. Tónlist 18. júlí 2007 03:45
Ferðast um landið Tónlistarmennirnir KK og Maggi Eiríks verða á faraldsfæti um landið á næstunni til að kynna nýjustu plötu sína Langferðalög. Tónleikaferðin hefst á Borg í Grímsnesi á fimmtudag og byrja tónleikarnir kl. 20.30. Tónlist 18. júlí 2007 02:30
Valgeir orðaður við Mercury-verðlaunin Valgeir Sigurðsson tónlistarmaður og upptökustjóri stýrði upptökum á plötunni We Can Create með tónlistarmanninum Maps en hún hefur verið tilnefnd til hinna virtu Mercury-tónlistarverðlauna. Tónlist 18. júlí 2007 02:00
Emilía hætt í Nylon Emilía Björg Óskarsdóttir hefur ákveðið að segja skilið við Nylon-flokkinn eftir þriggja ára samstarf. Brotthvarf Emilíu var ákveðið fyrir nokkru en var haldið leyndu af tillitsemi við fyrirætlað brúðkaup hennar nú um helgina. Tónlist 18. júlí 2007 02:00
Gleðirokkið á undanhaldi Hljómsveitin Lada Sport hefur gefið út sína fyrstu breiðskífu, Time and Time Again, á vegum Geimsteins. Platan inniheldur ellefu lög og hefur annað smáskífulagið, The World Is A Place For Kids Going Far, fengið góðar viðtökur. Tónlist 18. júlí 2007 01:45
Spila blöndu af því besta Hljómsveitin Dúndurfréttir heldur nokkurs konar „best of“ kvöld á Gauki á Stöng í kvöld. Sveitin ætlar að spila lög með fjórum uppáhaldshljómsveitum sínum, Pink Floyd, Led Zeppelin, Deep Purple og Uriah Heep. Verður meiri áhersla lögð á Pink Floyd en venjulega. Tónlist 18. júlí 2007 00:00
Bonsom í tónleikaferð Djasskvartettinn Bonsom er á leiðinni í stutta tónleikaferð sem hefst í Krákunni á Grundarfirði í kvöld. Annað kvöld spilar kvartettinn í Deiglunni á Akureyri og á föstudags- og laugardagskvöld spilar hann á Mývatni. Tónlist 18. júlí 2007 00:00
Hversu algengt er að höfundar drepi aðalpersónurnar í frægum bókum eða bókaröðum? Aðdáendur galdrastráksins Harry Potter bíða nú milli vonar og ótta eftir síðustu bókinni um hetju sína. Margir velta því fyrir sér hvort hann muni láta lífið í bókinni. Menning 17. júlí 2007 16:02
Ný X-Files kvikmynd væntanleg Ný X-Files kvikmynd sem mun byggja á X-Files sjónvarpsþáttunum vinsælu er væntanleg. David Duchovny, annar aðalleikari þáttanna, hefur greint frá því að hann muni fá handrit að myndinni afhent í næstu viku. Duchovny og mótleikkonan Gillian Anderson munu bæði leika í myndinni og fara með hlutverk einkaspæjaranna Mulders og Scully. Bíó og sjónvarp 16. júlí 2007 14:00
Galdrafár um alla Reykjavík Sjöunda og síðasta bókin um galdrastrákinn, Harry Potter and the Deathly Hallows, kemur í verslanir á föstudaginn og mikill spenningur er kominn í aðdáendur bókanna. Menning 15. júlí 2007 09:30
Miðasala á tónleika Kim Larsen hefst á þriðjudaginn Miðasala á tónleika Kim Larsen í Vodafonehöllinni þann 24. nóvember nk. hefst þriðjudaginn 16. júlí klukkan 10. Miðasala fer fram á midi.is og í verslunum Skífunnar og BT um allt land. Miðaverð er 5.900 kr. í sæti og 4.900 kr. í stæði. Tónlist 13. júlí 2007 10:12
Ameríka bíður eftir Nylon Afþreyingarrisinn Disney í Bandaríkjunum er áhugasamur um Nylon-flokkinn. Á teikniborðinu er sjónvarpsþáttur um íslenska stelpnabandið. „Þetta er náttúrlega ótrúlega spennandi,“ segir Alma Guðmundsdóttir, söngkona úr Nylon, en stúlknaflokkurinn, ásamt útgáfufyrirtækinu Believer, heldur til Bandaríkjanna á næstunni þar sem afþreyingarrisinn Walt Disney hefur óskað eftir fundahöldum við þau. Tónlist 13. júlí 2007 10:00
Djasshátíð í fjallafaðmi Árlega djasshátíðin Jazz undir fjöllum fer fram í fjórða skiptið á Skógum á morgun. Sigurður Flosason, listrænn stjórnandi hátíðarinnar frá upphafi, segir hana hafa fengið afar góðar viðtökur á liðnum árum. Tónlist 13. júlí 2007 09:00
Götulistakeppni í reykporti Kaffihúsið Prikið stendur fyrir götulistakeppni um þessar mundir, en vinningshafi í keppninni fær að skreyta flennistórt svæði í portinu á bak við húsnæðið. Menning 13. júlí 2007 08:30
Einar Ágúst í stúdíói í Danmörku Einar Ágúst Víðisson er staddur í Lundgaard-stúdíóinu á Jótlandi þessa vikuna þar sem hann er við upptökur á fyrstu sólóplötunni sinni ásamt hljóðfæraleikurunum úr X-factor. Tónlist 13. júlí 2007 08:30
Kira Kira í 12 tónum Tónlistarkonan Kira Kira heldur tónleika í 12 tónum í dag en hún er nýkomin úr löngu tónleikaferðalagi. Túrinn hófst í Helsinki þar sem Kira Kira tók upp plötuna Our Map to the Monster Olympics í hljóðveri Samuli Kosminen á eynni Suomenlinna. Tónlist 13. júlí 2007 06:30
Klassískar perlur á Gljúfrasteini Á sunnudag verða haldnir sjöundu tónleikarnir í stofutónleikaröð Gljúfrasteins – húsi skáldsins í Mosfellsbæ. Þar verða haldnir tónleikar hvern sunnudag kl. 16 allt til loka ágústmánaðar. Tónlist 13. júlí 2007 06:00
Til höfuðs siðmenningunni Breska hljómsveitin Throbbing Gristle var brautryðjandi í „industrial“-tónlistinni sem kom fram á seinni hluta áttunda áratugarins. Hún sendi nýlega frá sér sína fyrstu plötu með nýju efni í 25 ár. Trausti Júlíusson rifjaði upp feril þessarar áhrifaríku sveitar. Tónlist 13. júlí 2007 05:00
Magnús Pálsson minnist Þórarins Nefjólfssonar í i8 Í gær opnaði Magnús Pálsson athyglisverða sýningu í Galleríinu i8 á Klapparstíg 33. Sýningin mun standa til 18. ágúst næstkomandi og ber yfirskriftina Minning Þórarins Nefjólfssonar. „Frá unga aldri hefur setið í mér sagan af Þórarni og viðskiptum hans við Noregskonung,“ segir Magnús. Menning 13. júlí 2007 04:00
Síðasta Föstudagsfiðrildið í dag Síðasta Föstudagsfiðrildi sumarsins fer fram í dag. Skapandi sumarhópar hafa verið duglegir að skemmta gangandi vegfarendum miðbæjarins í sumar og hafa fengið mjög góðar undirtektir. Í dag er því um að gera að kíkja niður í bæ og athuga hvað unga fólkið hefur upp á að bjóða. Menning 13. júlí 2007 03:00