Nemandi í Árskóla smitaður af Covid Nemandi í níunda bekk í Árskóla á Sauðárkróki er smitaður af kórónuveirunni. Þetta staðfestir Óskar G. Björnsson, skólastjóri Árskóla í samtali við fréttastofu. Innlent 9. maí 2021 13:13
Fari hjól atvinnulífsins ekki að taka hratt við sér gæti þurft að ráðast í opinberar fjárfestingar Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir að þúsund ráðningarsamningar hafi orðið til og um fjögur þúsund séu í ferli vegna verkefnisins Hefjum störf. Fari hjól atvinnulífsins ekki að taka hratt við sér gæti þurft að ráðast í opinberar fjárfestingar. Innlent 9. maí 2021 13:01
Geta búist við fleiri smitum fyrir norðan Staðfest er nú að sex manns séu smitaðir af kórónuveirunni á Sauðárkróki og í Skagafirði og segir sveitarstjórinn þar að búast megi við því að fleiri greinist smitaðir á næstu dögum. Þá er viðbúið að fólki í sóttkví fjölgi talsvert mikið í dag. Innlent 9. maí 2021 11:40
Gleðskapur á götum úti þegar takmörkunum var aflétt Múgur og margmenni þyrptist út á götur spænskra borgara eftir að sex mánaða löngu neyðarástandi vegna kórónuveirufaraldursins var aflétt þar á miðnætti. Veitingastaðir mega nú vera opnir lengur, ferðatakmörkunum á milli héraða hefur verið aflétt og slakað hefur verið á samkomutakmörkunum. Erlent 9. maí 2021 09:45
Skagfirðingar bíða niðurstaðna til að ákveða næstu skref Ólíklegt er að niðurstöður úr sýnatökum hátt í 200 Skagfirðinga frá því í dag liggi fyrir fyrr en á morgun. Sveitarstjórinn segir að viðbrögðin við mögulegu hópsmiti ráðist af þeim niðurstöðum og að fólki í samfélaginu sé brugðið. Innlent 8. maí 2021 22:43
Gætu gripið til þess að loka skólum Hátt í 200 Skagfirðingar voru skimaðir fyrir kórónuveirunni í dag eftir að fjórir greindust með veiruna á svæðinu. Lögregla biðlar til fólks að halda sig til hlés en óvíst er með skólahald í næstu viku. Innlent 8. maí 2021 18:39
Íslendingar gefa Indverjum öndunarvélar Í ljósi alvarlegrar stöðu kórónuveirufaraldursins á Indlandi hafa þarlend stjórnvöld þegið boð íslenskra stjórnvalda um að senda 17 öndunarvélar til Indlands, segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Innlent 8. maí 2021 15:01
Afgreiðsluhraðinn tvöfaldaður til að takast á við metfjölda komufarþega Metfjöldi er í komu farþegaflugvéla til landsins, frá því að faraldurinn hófst, í dag og á morgun. Lögreglan á Keflavíkurflugvelli breytti verklagi fyrir helgi til að takast á við fjölda komufarþega og var afgreiðsluhraðinn tvöfaldaður. Innlent 8. maí 2021 12:44
ESB gerir risasamning við Pfizer um kaup á bóluefni Evrópusambandið gæti fengið allt að 1,8 milljarða skammta af bóluefni gegn kórónuveirunni næstu þrjú árin samkvæmt nýjum risasamningi sem það hefur gert við Pfizer og BioNTech. Ísland tekur þátt í bóluefnasamstarfi Evrópusambandsins og nýtur því góðs af samningnum. Erlent 8. maí 2021 11:51
Tugir í sóttkví í Skagafirði eftir að fjórir greindust smitaðir Sýnatökur og smitrakning eru nú í fullum gangi og tugir manna eru farnir í sóttkví eftir að staðfest var að fjórir væru smitaðir af kórónuveirunni á Sauðárkróki og Skagafirði í gær. Sveitarstjóri Skagafjarðar segir of snemmt að tala um hópsmit en að líkur sé á að sýkingin nú sé meiri að umfangi en sveitarfélagið hafi lent í til þessa í faraldrinum. Innlent 8. maí 2021 11:08
Fjórir greindust innanlands, einn utan sóttkvíar Fjórir greindust með Covid-19 innanlands í gær, samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum. Einn þeirra var utan sóttkvíar, en hann greindist í Skagafirði. Innlent 8. maí 2021 10:58
Ísland komið á græna listann hjá Bretlandi Ísland er loks komið á græna listann hjá Bretlandi, það er að Bretar mega ferðast til Íslands sér til skemmtunar. Mánuðum saman hafa Bretar ekki mátt ferðast til ýmissa ríkja sér til skemmtunar en það bann virðist vera að enda komið. Erlent 7. maí 2021 22:03
Methelgi í komu ferðamanna og hraðpróf til skoðunar Búist er við methelgi í komu farþegaflugvéla um helgina og gætu ferðamenn þurft að bíða klukkustundunum saman á meðan landamæraverðir fara yfir vottorð þeirra allra. Heilbrigðisráðherra segir svokölluð hraðpróf vera til skoðunar til að flýta fyrir ferlinu. Innlent 7. maí 2021 21:02
Skiptar skoðanir á afnámi einkaleyfa á bóluefnum Leiðtogar Evrópuríkja eru ósammála um ágæti þess að afnema einkaleyfi á framleiðslu bóluefna gegn kórónuveirunni. Málið er nú til umræðu innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Erlent 7. maí 2021 20:00
WHO samþykkir bóluefni Sinopharm Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, hefur veitt Covid-bóluefni kínverska lyfjaframleiðandans Sinopharm neyðarleyfi. Það er fyrsta bóluefnið sem ekki er framleitt á vesturlöndum sem fær samþykki stofnunarinnar. Erlent 7. maí 2021 18:14
Ekki lengur bólusett eftir aldri Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að bólusetning gegn Covid-19 verði hér eftir framkvæmd með tilviljunarkenndum hætti innan hvers forgangshóps í stað þess að einstaklingar séu boðaðir eftir aldri. Þýðir þetta að yngra fólk sem tilheyrir ekki forgangshópi geti átt von á því að vera boðað fyrr í bólusetningu en áður. Innlent 7. maí 2021 17:14
Ríkisstjórnin skoðar að kaupa Sputnik V fyrir 100 þúsund manns Íslenskum stjórnvöldum stendur til boða að fá skammta af rússneska bóluefninu Sputnik V fyrir 200 þúsund manns. Ríkisstjórnin skoðar nú þann möguleika að kaupa skammta fyrir 100 þúsund einstaklinga. Innlent 7. maí 2021 14:48
Boðið að fá seinni skammtinn af AstraZeneca fyrr Ákveðið hefur verið að bjóða starfsfólki Landspítala að stytta tímann milli fyrri og seinni bólusetningar með bóluefni AstraZeneca úr tólf vikum í átta. Innlent 7. maí 2021 12:29
Einstaklingum undir 40 ára boðið annað bóluefni en frá AstraZeneca Breska lyfjaeftirlitsstofnunin hefur ákveðið að héðan í frá verði einstaklingum undir fertugu boðið annað bóluefni en það frá AstraZeneca vegna sjaldgæfra en alvarlegra blóðtappa sem hafa verið tilkynntir í kjölfar bólusetninga. Erlent 7. maí 2021 12:23
Fimmtíu mega koma saman á mánudaginn Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að fimmtíu manns megi koma saman hér á landi frá og með mánudeginum. Fleiri mega mæta í sund og líkamsrækt auk þess sem 150 mega sitja í sætum á viðburðum og 200 mæta í verslanir. Innlent 7. maí 2021 11:55
Fáar tilkynningar um aukaverkanir vegna bóluefnis Janssen þrátt fyrir mikil veikindi Þrátt fyrir töluverð veikindi meðal þeirra sem fengu bóluefnið frá Janssen hafa aðeins sjö tilkynningar um aukaverkanir borist Lyfjastofnun. Engar þeirra hafa reynst alvarlegar. Innlent 7. maí 2021 11:23
Fimm greindust innanlands og einn utan sóttkvíar Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórir þeirra sem greindust voru í sóttkví en einn ekki. Innlent 7. maí 2021 11:00
Mikil fjölgun smitaðra þrátt fyrir methlutfall bólusettra Yfirvöld í eyríkinu og ferðamannaparadísinni Seychelleseyjum í Indlandshafi hafa komið aftur á ströngum takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins eftir að smituðum fjölgaði meir en nokkru sinni áður í vikunni. Þetta gerðist þrátt fyrir að hvergi sé hærra hlutfall íbúa bólusett fyrir veirunni í heiminum. Erlent 7. maí 2021 10:52
Ísland áfram gult og staðan enn verst á Kýpur Ísland er áfram flokkað sem gult ríki á uppfærðu korti Sóttvarnastofnunar Evrópu sem segir til um stöðuna á hverju ríki vegna kórónuveirufaraldursins. Uppfært kort var birt í gær. Erlent 7. maí 2021 08:20
Japanir sitja uppi með tugmilljónir bóluefnaskammta Útlit er fyrir að innan tíðar muni Japan sitja uppi með tugmilljónir ónotaðra bóluefnaskammta, þar sem verulegir hnökrar eru á framkvæmd bólusetninga í landinu. Erlent 7. maí 2021 08:03
Borgin að baki heimsfaraldurs Nóbelsverðlaunahafinn Paul Krugman er einn af fjölmörgum pistlahöfundum sem hefur gert framtíð borga að efnistökum í pistlaskrifum að undanförnu en víða má lesa dómsdagsspár um borgarsamfélög í ljósi heimsfaraldursins og tækniframfara sem gera fólki kleift að sinna störfum sínum óháð staðsetningu. Skoðun 7. maí 2021 07:30
Bjóðast til að hýsa úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á Villa Park Aston Villa hefur boðið Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, að spila úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á heimavelli sínum, Villa Park. Fótbolti 6. maí 2021 23:01
Aukaverkanir Janssen vekja litla lukku hjá bólusettum Mikill fjöldi fólks í kennarastétt fékk langþráða bólusetningu í gær þegar bólusetningar hófust eftir stafrófsröð innan stéttarinnar. Bóluefni Janssen var á boðstólnum, en aukaverkanir hafa þó sett strik í reikninginn varðandi starfsemi sumra skóla. Fleiri hafa greint frá slíkum aukaverkunum á samfélagsmiðlum. Innlent 6. maí 2021 20:54
Aðeins um 60 prósent mæting í bólusetningu í dag Um sextíu prósent mætingarhlutfall var í bólusetningu í Laugardalshöll í dag, að sögn Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hún segir að almennt mæti um áttatíu prósent fólks en hefur ekki skýringar á minni mætingu í dag. Innlent 6. maí 2021 19:31
Fleiri vilja afnema einkaleyfi Hreyfing er komin í viðræður um að afnema einkaleyfi á framleiðslu bóluefna við kórónuveirunni eftir að Bandaríkjamenn lýstu yfir stuðningi við tillöguna í gærkvöldi. Erlent 6. maí 2021 18:13