Benedikt: Ætla að sleppa því að hrósa Ragga „Við vissum að ef við myndum sýna sama töffaraskap í fjórða leikhluta myndum við taka þetta en ef við værum eitthvað litlir í okkur myndi þetta vera erfitt," segir Benedikt Guðmundsson. Körfubolti 12. desember 2013 21:33
Njarðvík lá í Hólminum | Úrslit kvöldsins Snæfell og Þór unnu góða sigra í 10. umferð Domino's-deildar karla í körfuknattleik í kvöld. Körfubolti 12. desember 2013 20:42
Engir erkifjendur í NBA-deildinni í dag Það er oft talað um erkifjendur í íþróttum og áhorfendur bíða alltaf spenntir eftir því að sjá erkifjendur mætast. LeBron James segir að ekkert slíkt sé í gangi í NBA-deildinni í dag. Körfubolti 12. desember 2013 14:15
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Þór 78-88 | Ragnar með stórleik í Röstinni Þórsarar unnu sanngjarnan tíu stiga sigur á Grindavík í tíundu umferð Dominos deild karla í Röstinni í kvöld. Þórsarar leiddu stærstan hluta leiksins og unnu að lokum sannfærandi sigur. Körfubolti 12. desember 2013 07:40
Doc snéri aftur í Garðinn og vann Doc Rivers snéri aftur á sinn gamla heimavöll, TD Garden, með sitt nýja lið, LA Clippers, í nótt. Honum var vel fagnað og hann þakkaði svo fyrir sig með því að vinna leikinn. Körfubolti 12. desember 2013 07:21
Tölvum stolið af leikmanni Þórs Nemanja Sovic, leikmaður Þórs Þorlákshafnar í Domino's-deild karla í körfubolta, lenti í leiðinlegri lífsreynslu á dögunum. Körfubolti 11. desember 2013 23:30
Endurráðinn 24 tímum síðar | "Búið að hreinsa loftið“ Pálmi Þór sævarsson hefur verið endurráðinn þjálfari karlaliðs Skallagríms 24 klukkustundum eftir að honum var sagt upp störfum. Körfubolti 11. desember 2013 22:43
Helena og Jón Arnór best í körfu árið 2013 Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir hafa verið valin körfuknattleiksmaður og körfuknattleikskona ársins 2013 af KKÍ. Körfubolti 11. desember 2013 17:11
Leikmaður Skallagríms um brottrekstur Pálma: Óskiljanleg ákvörðun Pálmi Þór Sævarsson var í gær rekinn sem þjálfari Skallagríms í Dominos-deild karla í körfubolta en liðið er í 10. sæti deildarinnar með tvo sigra og sjö töp. Körfubolti 11. desember 2013 16:01
Indiana lagði meistarana Það var stórleikur í NBA-deildinni í nótt þegar Indiana Pacers tók á móti Miami Heat. Indiana sýndi styrk sinn í leiknum með því að vinna sex stiga sigur á meisturunum. Körfubolti 11. desember 2013 07:52
Pálmi hættur með Skallagrím Pálmi Þór Sævarsson, þjálfari karlaliðs Skallagríms í körfuknattleik undanfarin 3 og hálft ár, hefur að ósk stjórnar körfuknattleiksdeildarinnar látið af störfum. Körfubolti 10. desember 2013 23:19
Jón Arnór og félagar töpuðu í Róm CAI Zaragoza tapaði 83-81 í Evrópubikarnum í körfubolta í kvöld. Spænska liðið situr í 3. sæti í D-riðli fyrir lokaumferðina. Körfubolti 10. desember 2013 22:22
Durant pirraður: Skrifið um þetta! Kevin Durant lét blaðamenn heyra það í miðjum leik sinna manna í Oklahoma City Thunder gegn Indiana Pacers í fyrrinótt. Körfubolti 10. desember 2013 15:45
Hardy flutt á sjúkrahús eftir svæsna krampa Lele Hardy, leikmaður Hauka í Domino's-deild kvenna, var flutt á sjúkrahús eftir leik liðsins gegn Snæfelli í Stykkishólmi í fyrrakvöld. Körfubolti 10. desember 2013 14:54
Íhuga breytingar á fyrirkomulagi NBA-deildarinnar Forráðamenn NBA-deildarinnar munu á næstunni skoða hvort núverandi fyrirkomulag deildarinnar sé orðið úrelt. Til greina kemur að gera róttækar breytingar. Körfubolti 10. desember 2013 09:45
Griffin og Paul í stuði hjá Clippers LA Clippers vann sinn fjórða sigur í röð gegn Philadelphia í nótt. Það hefur ekki gerst síðan árið 1974. Körfubolti 10. desember 2013 07:16
Birgir Örn: Þeirra stíll að tuða Birgir Örn Birgisson, þjálfari KFÍ, segir að sínir menn hafi látið framferði leikmanna Stjörnunnar fara í skapið á sér í leik liðanna í Domino's-deild karla í kvöld. Körfubolti 9. desember 2013 22:05
Teitur: Einn af mínum stærstu sigrum "Þetta var eins gott og við þorðum að vona. Þetta var skref upp á við fyrir Stjörnuna að allir þessir kjúklingar fengu að spila svona margar mínútur í kvöld,“ sagði Teitur Örlygsson, kampakátur þjálfari Stjörnunnar, eftir sigur hans manna á KFÍ í kvöld. Körfubolti 9. desember 2013 22:05
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KFÍ 92-77 | Junior kláraði Ísfirðinga Stjarnan vann öflugan sigur á KFÍ í Ásgarði í kvöld þrátt fyrir að mæta til leiks með þunnskipað og vængbrotið lið. Bandaríkjamaðurinn Matthew "Junior" Hairston fór á kostum og skoraði 38 stig. Körfubolti 9. desember 2013 12:01
Kobe ryðgaður og Lakers tapaði Kobe Bryant snéri aftur út á körfuboltavöllinn í nótt. Það var engin draumaendurkoma því LA Lakers tapaði á heimavelli gegn Toronto. Körfubolti 9. desember 2013 07:28
Ingibjörg gaf fjórtán stoðsendingar - úrslitin í kvennakörfunni Grindavík endaði fimm leikja taphrinu sína í Dominos-deild kvenna í körfubolta með því að vinna tólf stiga sigur á botnliði Njarðvíkur í Ljónagryfjunni í kvöld, 73-61. Körfubolti 8. desember 2013 20:49
Snæfell stöðvaði sigurgöngu Haukakvenna Snæfell varð fyrsta liðið til að vinna Haukakonur síðan 30. október þegar Snæfell vann þrettán stiga sigur á Haukum, 88-75, í 13. umferð Dominos-deildar kvenna í körfubolta í Stykkishólmi í kvöld. Körfubolti 8. desember 2013 18:41
Flautukarfa Ellis batt enda á sigurgöngu Trail Blazers |Pacers vann uppgjör efstu liðanna Monta Ellis tryggði Dallas Mavericks tveggja stiga sigur á Portland Trail Blazers 108-106 NBA körfuboltanum í Bandaríkjunum í nótt. Á sama tíma vann Indiana Pacers sjaldgæfan sigur á San Antonio Spurs í Texas 111-100. Körfubolti 8. desember 2013 11:00
Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Keflavík 77-67 KR rúllaði yfir Íslandsmeistara Keflavíkur og topplið Dominos deildar kvenna í körfubolta 77-67 á heimavelli sínum í kvöld. Leikurinn var aðeins jafn í fyrsta leikhluta en að honum loknum voru yfirburðir KR miklir. Körfubolti 8. desember 2013 00:01
Gaui missti af því þegar fyrsti heimasigurinn kom í hús Fjölnir Baldursson hefur tekið saman flott myndband frá leik KFÍ og Snæfells í Domnios-deild karla í körfubolta sem fram fór í Jakanum í gærkvöldi en Ísfirðingar unnu þar sinn fyrsta heimasigur í deildinni í vetur. Körfubolti 7. desember 2013 22:00
Haukur með flottan leik í öruggum sigri Haukur Helgi Pálsson skoraði þrettán stig og var næststigahæstur í sínu liði þegar CB Breogán vann öruggan 19 stiga sigur á Club Melilla Baloncesto, 82-63. Körfubolti 7. desember 2013 20:21
Hamarskonur hefndu fyrir bikartapið Hamarskonur styrktu stöðu sína í 4. sæti Dominos-deildar kvenna í körfubolta eftir átta stiga sigur á Val, 72-64, en bæði lið voru með tíu stig fyrir leikinn. Körfubolti 7. desember 2013 19:32
Tap hjá Helenu og félögum í Mið-Evrópu deildinni Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í Aluinvent DVTK Miskolc urðu að sætta sig við fimm stiga tap á móti SBK Samorin, 76-81, í uppgjöri tveggja ungverska liða í Mið-Evrópu deildinni í körfubolta. Körfubolti 7. desember 2013 18:55
Jón Arnór hvíldur í sigri CAI Zaragoza Jón Arnór Stefánsson var ekki með CAI Zaragoza þegar liðið vann níu stiga sigur á Baloncesto Fuenlabrada, 77-68, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Körfubolti 7. desember 2013 17:50
Axel hitnaði ekki fyrr en alltof seint Værlöse tapaði sínum fimmta leik í röð í dag þegar varð að sætta sig við 29 stiga tap á útivelli á móti Randers Cimbria, 93-122. Körfubolti 7. desember 2013 15:56