Körfubolti

Helena og Jón Arnór best í körfu árið 2013

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Samsett
Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir hafa verið valin körfuknattleiksmaður og körfuknattleikskona ársins 2013 af KKÍ.

Þetta er í tíunda sinn sem Jón Arnór er valinn en Helena hefur nú alls níu sinnum verð valin og það níu sinnum í röð. Helena er 25 ára gömul og Jón Arnór 31 árs.

Körfuknattleikskona og maður ársins 2013 voru valin af stjórn, starfsmönnum, afreksnefnd og landsliðþjálfurum (yngri landsliða og A-landsliða) KKÍ.

Körfuknattleikskona ársins 2013:

1. sæti  Helena Sverrisdóttir

2. sæti  Pálína Gunnlaugsdóttir

3. sæti  Bryndís Guðmundsdóttir

Aðrar sem fengu atkvæði eru í stafrófsröð: Hildur Björg Kjartansdóttir, Hildur Sigurðardóttir, Kristrún Sigurjónsdóttir, Petrúnella Skúladóttir og Sara Rún Hinriksdóttir.

Körfuknattleiksmaður ársins 2013:

1. sæti  Jón Arnór Stefánsson

2. sæti  Hlynur Bæringsson

3. sæti  Hörður Axel Vilhjálmsson

Aðrir sem fengu atkvæði eru í stafrófsröð: Elvar Már Friðriksson, Haukur Helgi Pálsson, Jakob Örn Sigurðarson, Justin Shouse, Logi Gunnarsson og Ragnar Nathanaelsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×