

Handbolti
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.

Álaborg meistari þriðja árið í röð
Álaborg er danskur meistari í handbolta eftir fimm marka sigur á Bjerringbro/Silkeborg. Lokatölur 32-27 og þriðji meistaratitill Álaborgar í röð staðreynd.

Ómar Ingi skoraði níu á meðan Viggó og Oddur unnu mikilvæga sigra í fallbaráttunni
Íslendingarnir í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta áttu allir góðan dag er lið þeirra unnu sína leiki í dag.

Viktor Gísli og félagar nældu í bronsið
Danska handknattleiksliðið GOG nældi sér í dag í bronsið í dönsku úrvalsdeildinni. Liðið vann fjögurra marka sigur á Holstebro í rimmunni um bronsið, lokatölur 33-29.

Gefið ellefu stoðsendingar í síðustu tveimur leikjum þótt hann spili ekki sókn
Einari Þorsteini Ólafssyni er fleira til lista lagt en að spila vörn. Hann hefur nefnilega gefið samtals ellefu stoðsendingar í síðustu tveimur leikjum Vals þrátt fyrir að spila ekki í einni einustu uppstilltri sókn.

Tólfhundruð mega sjá meistara krýnda á Ásvöllum
Mikil spenna ríkir fyrir seinni leik Hauka og Vals í úrslitunum um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta eftir þriggja marka sigur Vals á Hlíðarenda í gærkvöld, 32-29.

Litáískt landsliðspar á Selfoss
Litáíska handboltaparið Karolis Stropus og Roberta Ivanauskaité hefur samið við handknattleiksdeild Selfoss til næstu þriggja ára.

Einstaklingsmistök hjá okkur voru allt of dýr
Björgvin Páll Gústafsson markvörður Hauka var svekktur með tap í fyrsta leik gegn Val í úrslitaeinvíginu. Leikurinn endaði 32-29.

Valur er með dýrara lið heldur en Haukar
Valur tók frumkvæðið í fyrri viðureign gegn Haukum í úrslita einvíginu. Leikurinn endaði með þriggja marka sigri Vals 32-29. Aron Kristjánsson þjálfari Hauka var allt annað en sáttur með dómgæsluna í leiknum en gaf þó lítið fyrir það eftir leik.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 32-29 | Valsmenn standa vel að vígi
Valur vann þriggja marka sigur á Haukum, 32-29, í fyrri leik liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í kvöld. Seinni leikur liðanna fer fram á Ásvöllum á föstudaginn og þá ræðst hvort þeirra verður Íslandsmeistari.

Í fyrsta sinn í sögunni töpuðu bæði liðin síðasta leik sínum fyrir úrslitaeinvígið
Aldrei áður hafa liðin tvö í úrslitaeinvígi handboltans komið inn í lokaúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn með tap á bakinu en það er einmitt raunin nú.

Tveir af silfurdrengjunum okkar keppast um að verða Íslandsmeistarar í fyrsta sinn
Lokaúrslit Olís deildar karla hefjast í kvöld þegar fyrri leikur Hauka og Vals fer fram að Hlíðarenda. Bæði félög hafa margoft orðið Íslandsmeistarar en innan beggja liða eru tveir reynslumiklir menn sem eru enn að bíða eftir fyrsta Íslandsmeistaratitlinum sínum á ferlinum.

„Hann er bara pabbi minn, ég lít ekki á hann sem einhverja stjörnu“
Einar Þorsteinn Ólafsson var hetja Valsmanna í seinni leiknum gegn Eyjamönnum í undanúrslitum Olís-deildar karla á föstudaginn. Hann stal boltanum í lokasókn ÍBV og sá til þess að Valur fór áfram í úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn.

Gæti orðið markakóngur þrátt fyrir að missa af úrslitaeinvíginu
Eyjamaðurinn Hákon Daði Styrmisson hefur skorað sitt síðasta mark í úrslitakeppni Olís deildar karla í handbolta en hann gæti engu að síður orðið markakóngur keppninnar.

Aron Pálmars búinn að vinna þrjátíu stóra titla á ferlinum
Íslenski handboltamaðurinn Aron Pálmarsson vann í gær Meistaradeildina með spænska liðinu Barcelona og bætti þar með við enn einum titlinum á ótrúlega sigursælum ferli sínum.

Fullkominn endir á fullkomnu tímabili er Barcelona varð Evrópumeistari
Barcelona fullkomnaði ótrúlegt tímabil með 13 marka sigri á Álaborg í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í dag, lokatölur 36-23. Barcelona vann alla 60 leikina sem það spilaði á leiktíðinni. Afrek sem verður eflaust seint toppað.

Rhein-Neckar Löwen með stórsigur og Bjarki Már skoraði sjö í sigri Lemgo
Fjórum leikjum var að ljúka í þýska handboltanum og voru Íslendingar í eldlínunni í tveimur þeirra.

Paris Saint-Germain tók bronsið
Paris Saint-Germain og HBC Nantes áttust við í bronsleik Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag. Stjörnuprýtt lið PSG gaf eftir í seinni hálfleik, en sprengdu leikinn upp á réttum tíma og unnu að lokum 31-28.

Stórsigur Magdeburg í Íslendingaslag
Göppingen tók á móti Magdeburg í Íslendingaslag í þýska handboltanum í dag. Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg sem vann sannfærandi 29-21 sigur.

ÍBV fær landsliðskonu frá Serbíu
Serbneska landsliðskonan Marija Jovanovic hefur gengið frá samkomulagi við handknattleiksdeild ÍBV og skrifað undir tveggja ára samning við félagið.

Aron spilaði ekki er Barcelona tryggði sér sæti í úrslitum
Barcelona vann Nantes 31-26 í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag. Aron Pálmarsson lék ekki með liðinu.

Álaborg í úrslit eftir sigur gegn frönsku risunum
Álaborg vann í dag frækinn tveggja marka sigur gegn PSG í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta. Lokatölur 35-33 og Álaborg mætir annað hvort Nantes eða Barcelona í úrslitaleiknum á morgun. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Álaborgar.

Hákon Daði: Stutt í gleðina og stutt í sorgina
Hákon Daði Styrmisson lék sinn síðasta leik fyrir ÍBV í bili þegar liðið vann Val í kvöld, 27-29. Hann, eins og aðrir Eyjamenn, var samt sár og svekktur í leikslok.

Snorri Steinn: Man ekki hvernig mér leið, örugglega ekki vel
„Ég man það ekki, örugglega ekki vel,“ svaraði Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, aðspurður hvernig honum hefði liðið í lokasókn ÍBV. Eyjamenn voru tveimur mörkum yfir fyrir hana og hefðu farið í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn ef þeir hefðu skorað úr henni.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - ÍBV 27-29 | Valsmenn héldu út og komust í úrslit
Valur er kominn í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla þrátt fyrir tap gegn ÍBV, 27-29, á heimavelli í kvöld. Valsmenn unnu fyrri leikinn í Eyjum, 25-28, og einvígið samanlagt, 55-54. Valur mætir Haukum í úrslitaeinvíginu sem hefst í næstu viku.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Stjarnan 29-32 | Haukar í úrslit en Stjörnumenn bitu frá sér
Haukar voru með fimm marka forystu eftir fyrri leikinn gegn Stjörnunni í undanúrslitum Olís-deildarinnar og kláruðu einvígið í kvöld en Stjörnumenn bitu frá sér.

„Sófa þjálfarar sjá ekki að það eru aðrir leikmenn sem búa til færin fyrir mig"
Stjarnan unnu Haukana 29-32. Þau úrslit dugðu hinsvegar ekki til og fóru Haukarnir áfram í úrslitaeinvígið eftir að hafa unnið leikinn í Garðabænum með fimm mörkum.Tandri Már Konráðsson leikmaður Stjörnunnar var svekktur með niðurstöðuna en þó stoltur af sínu liði.

Eyjamenn hafa ekki tapað á Hlíðarenda í fjögur ár en þurfa 3-4 marka sigur
Valur og ÍBV spila í kvöld seinni leik sinn í undanúrslitum Olís deildar karla í handbolta. Valsmenn hafa þriggja marka forskot síðan úr fyrri leiknum í Vestmannaeyjum.

Krían mun taka þátt í efstu deild á næstu leiktíð
Hið stórskemmtilega lið Kríu gerði sér lítið fyrir og vann sér inn sæti í Olís-deild karla í handbolta fyrir skömmu. Ekki var öruggt að félagið myndi þiggja sætið en það hefur nú verið staðfest.

Bjarki Már markahæstur á meðan Oddur og félagar misstu sigur niður í jafntefli
Bjarki Már Elísson var markahæstur í sigri Lemgo á Bergischer í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Oddur Gretarsson og félagar hans í Balingen-Weilstetten gerðu á sama tíma jafntefli við Coburg 2000.

Alexander á toppnum eftir sigur í Íslendingaslag
Flensburg-Handewitt vann tveggja marka sigur á Stuttgart, 32-30, er liðin mættust í Íslendingaslag í þýska handboltanum.