
Gagnrýnir orð fjármálaráðherra um hagsýnar húsmæður: „Finnst ykkur þetta í lagi?“
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingkona Vinstri grænna, gagnrýndi í dag orðræðu Benedikts Jóhannessonar fjármálaráðherra.
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingkona Vinstri grænna, gagnrýndi í dag orðræðu Benedikts Jóhannessonar fjármálaráðherra.
Þingmenn fimm flokka á Alþingi hafa lagt fram frumvarp á þingi um að lengja fæðingarorlof foreldra sem þurfa um langan veg að fara á fæðingardeild til að eiga barn. Þingheimur kannski að vakna, segir bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, spurði Bjarna Benediktsson, forsætisráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, um skýringar á því hvers vegna tvær skýrslur sem unnar voru í tíð hans í fjármálaráðaneytinu hefðu ekki birst "fyrr en seint og um síðir,“ eins og Katrín orðaði það í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag.
Flutningsmenn nýs áfengisfrumvarps eru bjartsýnir á að málið nái í gegn. Stærsti munurinn á því og fyrri frumvörpum snýr að auglýsingum og aðgreiningu.
Heimilt verður að selja áfengi í verslunum frá og með næstu áramótum verði frumvarp þingmanna fjögurra flokka að lögum.
BSRB og ASÍ furða sig á því að Alþingi grípi ekki inn í úrskurð kjararáðs sem hækkaði þingfararkaup um tugi prósenta í október síðastliðnum.
Flokkurinn mælist nú með nærri því 23 prósent fylgi sem er um þremur prósentustigum meira en fyrir mánuði síðan.
Átta þingmenn Vinstri grænna og Pírata hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela dómsmálaráðherra að setja reglugerð um framkvæmd laga um þjóðskrá og almannaskráningu.
Þingmenn tókust á um umræðu í um stjórnmálaástandið í Bandaríkjunum.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja forsætisráðherra hafa svindlað og beitt blekkingum með því að birta ekki tvær skýrslur fyrir kosningar þótt þær hafi verið tilbúnar.
Theodóra S. Þorsteinsdóttir, þingkona Bjartrar framtíðar, segist ætla að draga sig úr nefndarstörfum í Kópavogsbæ og jafnframt segja sig úr stjórn Isavia.
Kosið hefur verið til formennsku í öllum fastanefndum Alþingis eftir fundi morgunsins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að áhugaverðir tímar séu framundan í stjórnmálum landsins.
Alþingi kom saman í gær eftir jólafrí og myndun nýrrar ríkisstjórnar. Forystumenn Viðreisnar og Bjartrar framtíðar eru sakaðir um að selja loforð sín ódýrt.
Það má segja að þegar Sigmundur Davíð, fyrrverandi forsætisráðherra og fyrrverandi formaður Framsóknar, steig í pontu hafi hann farið mikinn í yfirlýsingum sínum um nýju ríkisstjórnina og gaf hann ekkert eftir.
Logi ræddi meðal annars um að það vantaði tillögur um hvernig bæta mætti menntamál sem og húsnæðismál en einnig kom fram gagnrýni á skattastefnu núverandi ríkisstjórnar sem þingmanni finnst svipa mikið til þeirrar stefnu sem var við lýði hjá stjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins. Þar hafi verið að verki hægri sinnuð skatta- og veflerðapólitík.
Óttarr Proppé, heilbrigðsráðherra og formaður Bjartrar framtíð varð tíðrætt um mikilvægi þess að vönduð vinnubrögð verði ástunduð á Alþingi á kjörtímabilinu.
„Góðæri er einmitt rétti tíminn til þess að hugsa hlutina upp á nýtt og ráðast í nauðsynlegar umbætur,“ sagði Benedikt Jóhannesson.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar, sagði á Alþingi í kvöld að stjórnmálamenn hefðu val um hvernig bregðast skyldi við vaxandi gjá milli ólíkra hópa í samfélögum vestan hafs og austan.
Bjarni Benediktsson flutti fyrstu stefnuræðu sína sem forsætisráðherra í kvöld.
Klukkan 19:30 í kvöld mælir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, fyrir stefnu ríkisstjórnar sinnar. Eftir ræðuna fara fram umræður um hana.
Samstarfsráðherra ber ábyrgð á norrænu ríkisstjórnarsamstarfi innan Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir hönd forsætisráðherra.
Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var nú rétt í þessu kosin forseti Alþingis.
Þingfundur hefst klukkan 13:30.
Ekki náðist samkomulag á milli stjórnar og stjórnarandstöðu um skipan þingnefnda.
Umræður um stefnuræðu forsætisráðherra hefjast á Alþingi klukkan 19:30 í kvöld.
Fyrstu dómsmálin sem rekja má til ákvarðana nokkurra innflutningsfyrirtækja um að stefna ríkinu, og krefast endurgreiðslu útboðsgjalds sem innheimt hefur verið vegna úthlutunar tollkvóta fyrir búvörur, voru þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Er þar um að ræða mál höfðuð af Innnes og Sælkeradreifingu en samanlagt nema kröfur fyrirtækjanna hundruðum milljóna króna.
Alþingi kemur saman í fyrsta sinn í dag síðan ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar tók við völdum.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að það hafi verið klaufaskapur hjá Bjarna Benediktssyni að birta ekki skýrslu um eignir Íslendinga á aflandssvæðum fyrir kosningar.
Hefst klukkan 12:20.