Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kröfur upp á tæpa 22 milljarða í þrotabú þriggja félaga tengdum Primera Skiptum á þremur félögum tengdum flugfélaginu Primera Air lauk þann 22. júlí síðastliðinn. Samtals voru kröfur upp á rúma 22 milljarða í félögin Primera Air ehf., PTG hf. og PI ehf. 2.8.2022 14:50
Deila Íslands og Iceland Foods brýtur blað Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hefur fyrirskipað að haldinn verði munnlegur málflutningur í deilu íslenskra yfirvalda og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland. Deilan brýtur blað í sögu hinnar fjölskipuðu áfrýjunarnefndar þar sem þetta verður í fyrsta sinn sem nefndin hlýðir á munnlegan málflutning í áfrýjunarmáli. 2.8.2022 14:05
Pálmi Guðmundsson hættur hjá Símanum Pálmi Guðmundsson, dagskrárstjóri Símans, er hættur hjá fyrirtækinu eftir sjö ára starf. Hann sagði upp að eigin ósk á fimmtudag og hefur ekki gefið frekari skýringar á uppsögninni. 2.8.2022 13:29
Stækka Glerártorg og bæta við mathöll Áform eru uppi um stækkun Glerártorgs sem mun þá innihalda 500 fermetra mathöll. Stefnt er að endurskipulagningu verslunarmiðstöðvarinnar og fjölgun bílastæða. 31.7.2022 15:27
Samdráttur vegna erlendra færsluhirða Mælanleg erlend kortavelta hefur dregist saman ef litið er til annarra ferðaþjónustufyrirtækja en bílaleiga, hótela og veitingastaða. Þetta sýna tölur Rannsóknarseturs verslunarinnar en kortavelta hefur verið ein helsta leiðin til þess að leggja mat á gengi ferðaþjónustunnar. 29.7.2022 20:23
Kalla inn Red Super Spicy núðlur Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Shin Red Super Spicy Noodles frá vörumerkinu NONGSHIM. Varnarefnið Ipprodione greindist yfir leyfilegum mörkum í vörunni. 29.7.2022 15:31
Súrir Selfyssingar slúttuðu sólbaðsstofu Húseiganda á Selfossi var óheimilt að reka sólbaðsstofu í fjölbýlishúsi. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði beðni eigandans um að fella úr gildi ákvörðun byggingafulltrúa Árborgar sem veitti ekki leyfi fyrir starfseminni. 29.7.2022 10:51
Íslandsbanki hagnaðist um 5,9 milljarða króna Íslandsbanki hefur birt uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2022. Í því kemur fram að bankinn hafi hagnast um 5,9 milljarða króna á fjórðungnum. Arðsemi eigin fjár bankans var yfir fjárhagslegum markmiðum bankans og spám greinenda. Hagnaður á fyrri helmingi ársins er 11,1 milljarður króna. 28.7.2022 16:16
Innkalla Albani Mosaic IPA vegna sprengjuhættu ÁTVR og Disa ehf. hafa sent út innköllunarboð fyrir bjórinn Albani Mosaic IPA, með 5,7% vínanda, í 330 ml áldós. Hætta er á að dósin geti bólgnað út og sprungið. Innköllunin miðast einungis við birgðir vörunnar sem merktar eru best fyrir dagsetningunni 11/05/2023 sem sjá má á botni dósarinnar. 28.7.2022 14:42
Simmi selur Bryggjuna og einbeitir sér að Minigarðinum Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson hefur selt veitingastaðinn Bryggjuna. Hann segist hafa ákveðið að minnka við sig og einbeita sér að rekstri skemmti- og veitingastaðarins Minigarðsins. 28.7.2022 13:23
Framlegð Marels óviðunandi að mati forstjóra Tekjur Marels á öðrum ársfjórðungi námu 397.3 milljónum króna en hagnaður var aðeins 25 milljónir evra eða 6,3 prósent af tekjum. Forstjórinn segir framlegðina óviðunandi. 28.7.2022 10:56
Domus Medica-húsið selt Domus Medica-húsið hefur verið selt til fyrirtækisins Medicus ehf.. Fyrirtækið á Heilsugæsluna á Höfða og vonast stjórnarmaður eftir því að hægt verði að byggja upp heilbrigðisþjónustu í húsinu. 28.7.2022 06:41
Hagnaður Arion banka jókst í 9,7 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi Arion banki hagnaðist um 9.712 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2022 samanborið við 7.816 milljónir á sama tímabili í fyrra. Heildareignir námu 1.383 milljörðum króna í lok júní, samanborið við 1.314 milljarða í árslok 2021. Sala á greiðslumiðlunarfyrirtækinu Valitor til Rapyd skilaði bankanum 5,6 milljarða króna söluhagnaði. 27.7.2022 17:15
Krefjast stjórnarkjörs í Sýn Gavia Invest ehf. hefur farið fram á að boðað verði hluthafafundar í Sýn hf., en félagið fer nú með atkvæðisrétt fyrir hlutafé í Sýn sem nemur 16,06 prósent. Þess er krafist að umboð núverandi stjórnar verði fellt niður og ný stjórn kjörin. 26.7.2022 13:01
Örn Arnar nýr sparisjóðsstjóri Suður-Þingeyinga Örn Arnar Óskarsson hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga. Örn þekkir vel til á starfssvæðinu en hann ólst upp á Kópaskeri. 25.7.2022 15:03
Fiskur fluttur út fyrir 29 milljarða í júní Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam rúmum 29 milljörðum króna í júnímánuði. Það er um 8 prósenta aukning í krónum talið frá sama mánuði í fyrra en tæp 12 prósent í erlendri mynt vegna hækkunar á gengi krónunnar. 25.7.2022 10:53
Heiðar hættir sem forstjóri Sýnar Heiðar Guðjónsson hefur sagt upp sem forstjóri Sýnar og mun uppsögnin taka gildi fyrir lok þessa mánaðar. Heiðar gekk um helgina frá sölu á öllum 12,72 prósenta hlut sínum í fyrirtækinu. Þetta kemur fram í tilkynningum til Kauphallar. 25.7.2022 09:34
Tap Spaðans nam 51 milljón króna Spaðinn tapaði alls 51 milljón króna árið 2021, samanborið við tveggja milljóna króna tap árið áður. 23.7.2022 13:49
Samherji fjárfestir í landeldi fyrir 60 milljarða Samherji ætlar sér að fjárfesta fyrir allt að 60 milljarða króna í fiskeldi á komandi árum og í bígerð er um 40 þúsund tonna landeldi í nágrenni Reykjanesvirkjunar. Forstjórinn segir fjárfestinguna mestu áhættu í sögu félagsins. 23.7.2022 10:07
Ardian borgar fimm milljörðum minna fyrir Mílu Síminn og Ardian náðu í dag samkomulagi um breytingar á kaupsamningi Ardian á Mílu ehf.. Meðal breytinanna sem samþykktar voru er að Ardian borgi 73 milljarða króna í staðinn fyrir 78 milljarða líkt og var fyrst samið um. 22.7.2022 21:14
Spá því að verðbólga aukist áfram og stýrivextir verði hækkaðir Verðbólgan mældist tæplega tíu prósent í júlí og var langt umfram spár viðskiptabankanna. Forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans segir að gera megi ráð fyrir frekari stýrivaxtahækkunum frá Seðlabankanum í ljósi stöðunnar. Hagfræðiprófessor segir að það taki tíma fyrir aðgerðir stjórnvalda til að bíta, með tilheyrandi aðhaldi og óvissu. 22.7.2022 15:39
Samherji hf. hagnaðist um 17,8 milljarða Hagnaður Samherja hf. nam 17,8 milljörðum króna árið 2021 samanborið við 7,8 milljarða árið áður. Eigið fé félagsins var 94,3 milljarðar króna í árslok 2021 og námu heildareignir 128 milljörðum króna. 22.7.2022 12:27
Ardian ósammála Samkeppniseftirlitinu í öllum efnisþáttum Fjárfestingarsjóðurinn Ardian lýsir sig ósammála öllum efnisþáttum í frummati Samkeppniseftirlitsins á kaupum sjóðsins á Mílu frá Símanum. Í frummatinu segir að það sé hætta á að keppinautum í innviðastarfsemi fækki og að viðskiptavinir Símans geti orðið af verðlækkunum. 22.7.2022 12:27
Hlutabréf fara á flug eftir jákvætt uppgjör Icelandair Gengi hlutabréfa í Icelandair hafa hækkað um 5,59 prósent það sem af er degi. Flugfélagið skilaði rúmlega hálfum milljarði króna í hagnað á öðrum ársfjórðungi. 22.7.2022 10:49
Verðbólgan nálgast tveggja stafa tölu Verðbólga mældist 9,9 prósent í júlí og hækkaði um 1,17 prósentustig milli mánaða. Verðbólga hefur ekki verið hærri frá því í september árið 2009. 22.7.2022 09:45
Magnús Kr. Ingason tekur við sem forstjóri Festi Stjórn Festi hefur ráðið Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Festi, sem forstjóra félagsins frá næstu mánaðarmótum, þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. 22.7.2022 09:12
Eik kaupir Lambhaga á 4,2 milljarða króna Fasteignafélagið Eik er í þann mund að ganga frá kaupum á garðyrkjustöðvunum Lambhaga í Úlfarsárdal og Lundi í Mosfellsdal. Kaupverðið er áætlað 4,2 milljarðar króna. 22.7.2022 07:46
„Alveg hræðilegur“ leiðréttingarbúnaður Apple Sjálfvirkur leiðréttingarbúnaður Apple fyrir íslensku er hörmulegur og með ólíkindum að einhver hafi fengið borgað fyrir að hanna hann, að mati hugbúnaðarhönnuðar. Fyrirtækið virðist ekki nota neinar tölfræðiupplýsingar sem til eru um íslenskan texta, þrátt fyrir vitneskju um þær. 21.7.2022 21:00
Hálfur milljarður í hagnað á öðrum ársfjórðungi Icelandair skilar um hálfum milljarði í hagnað á öðrum ársfjórðungi 2022. Lausafjárstaða félagsins hefur aldrei verið sterkari og nam 61,6 milljörðum króna í lok júní. 21.7.2022 16:26
Miami lokað og nýs eiganda leitað Skemmtistaðurinn Miami á Hverfisgötu hefur verið lokaður frá byrjun júlí og nú er nýs eiganda leitað til þess að taka við rekstri skemmtistaðarins. 21.7.2022 15:21
Hagnaður Landsbankans lækkar um fjóra milljarða milli ára Hagnaður Landsbankans á öðrum ársfjórðungi 2022 nam 2,3 milljörðum króna samanborið við 6,5 milljarða króna á sama ársfjórðungi árið 2021. Arðsemi eigin fjár Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2022 4,1 prósent og er því langt undir 10 prósenta markmiði bankans. Ástæðu fyrir dvínandi arðsemi segir bankinn vera lækkun á gangvirði hlutabréfaeignar bankans. 21.7.2022 13:35
Akademias festir kaup á Tækninámi Fræðslufyrirtækið Akademias hefur fest kaup á Tækninámi, sem sérhæfir sig í fjarnámi í tækninám. 21.7.2022 12:01
„Þá erum við í vondum málum, íslenskt samfélag“ Þingmaður segir það mun skaðlegra fyrir orðspor Íslands ef slegið yrði af kröfum um eftirlit með samkeppni, heldur en ef kaup fransks fjárfestingasjóðs á Mílu ná ekki fram að ganga. Samkeppniseftirlitið verði að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu. 21.7.2022 12:00
Ytri aðstæður haft áhrif á afkomu Össurar Össur hagnaðist um fjórtán milljónir bandaríkjadala eða 1,9 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2022 eða átta prósent af veltu. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður nítján milljónir dala og lækkar því um 26 prósent milli ára. 21.7.2022 07:36
Opin allan sólarhringinn og enginn á vaktinni Fyrsta alsjálfvirka hverfisverslun landsins var opnuð í Garðabæ í morgun. Verslunin verður opin allan sólarhringinn, alla daga ársins. Framkvæmdastjóri segir opnunina marka upprisu gömlu hverfisverslananna. 20.7.2022 19:16
Segir marga svekkta sem reyna við fasteignamarkaðinn Formaður Félags fasteignasala segir marga sitja eftir með sárt ennið sem gera tilboð í fasteignir eins og staðan er á markaðnum í dag. Þrátt fyrir yfirboð nái þeir ekki að festa kaup á húsnæði, samkeppnin sé of hörð. 20.7.2022 14:09
Markaðurinn róaðist minna en búist var við Íbúðaverð hækkaði um 2,2 prósent milli maí og júní. Það er minni hækkun en undanfarna mánuði en þó meiri en hagfræðideild Landsbankans hafði reiknað með. 20.7.2022 11:05
Óskar ráðinn framkvæmdastjóri Smyril line Óskar Sveinn Friðriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo á Íslandi og tekur við starfinu af Lindu Gunnlaugsdóttir. 20.7.2022 09:13
Hagnaður Kviku banka tæplega tveimur milljörðum króna undir áætlun Hagnaður Kviku banka hf. á öðrum ársfjórðungi er áætlaður 450 til 500 milljónir króna samkvæmt drögum að uppgjöri fyrir fjórðunginn. Áætluð afkoma fyrir fjórðunginn var 2,15 til 2,4 milljarðar króna og vantar því mikið upp á, eða 1,8 milljarð króna. 20.7.2022 06:46
Arion banki varar við fölskum smáskilaboðum Smáskilaboð sem látin eru líta út eins og þau séu frá Arion banka hafa verið send á fjölmarga landsmenn upp á síðkastið. Arion banki segir þau vera fölsk og varar við því að ýta á hlekkinn sem fylgir skilaboðunum. 19.7.2022 16:09
Bjartsýnn á farsæla niðurstöðu í Mílusölunni Kaup franska fyrirtækisins Ardian á Mílu frá Símanum eru í uppnámi þar sem skilyrði Samkeppniseftirlitsins fyrir kaupunum þykja of íþyngjandi. Forstjóri Símans segir mestu máli skipta hvaða áhrif salan á Mílu mun hafa á neytendur. Hann er bjartsýnn á að farsæl lausn finnist í málið. 19.7.2022 06:32
Laxeldið á Austfjörðum á fullu í uppbyggingu eftir sjúkdómsáfall Laxeldið á Austfjörðum er að ná vopnum sínum á ný eftir alvarlegan veirusjúkdóm sem stöðvar alla landvinnslu á Djúpavogi. Byrjað er að setja út fisk að nýju í eldiskvíar og búið að kaupa tvo öfluga fóðurpramma. 18.7.2022 22:44
Hlutabréfaverð Símans lækkað mikið eftir tíðindi gærdagsins Gengi hlutabréfa Símans lækkaði um 8,3 prósent í dag eftir að tilkynnt var um það í gær að Ardian France SA væri ekki tilbúið til að ganga frá kaupum á Mílu. 18.7.2022 20:46
Framkvæmdir við nýjan hringveg þvert yfir Hornafjörð hefjast með haustinu Vegagerðin og Ístak hafa skrifað undir 6,3 milljarða króna verksamning um gerð nýs vegar þvert yfir Hornafjörð, sem styttir hringveginn um tólf kílómetra. Samningurinn markar tímamót því hann er sá fyrsti á grundvelli laga um samvinnuverkefni, en í því felst einkafjármögnun og að vegfarendur greiði vegtoll. 18.7.2022 18:51
Telur söluna á Mílu jákvæða fyrir samkeppni á fjarskiptamarkaði Kaup franska fyrirtækisins Ardian á Mílu eru í uppnámi, en félagið er ekki reiðubúið að ljúka viðskiptum sínum við Símann, eiganda Mílu, vegna skilyrða Samkeppniseftirlitsins. Forstjóri Símans segir helstu áhyggjur eftirlitsins snúa að viðskiptasambandi Símans og Mílu eftir söluna. 18.7.2022 13:36