Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Árni Sæberg skrifar 21. september 2026 15:01 Kristinn Örn Agnarsson, nýr forstjóri Teya á Íslandi. Teya Kristinn Örn Agnarsson hefur tekið við af Brian Jeffrey Gross sem forstjóri Teya á Íslandi.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Kristinn komi til Teya með víðtæka alþjóðlega stjórnunarreynslu úr fjármála- og upplýsingatækni, en síðastliðin ár hafi hann stýrt starfsemi Everydata Group á ellefu mörkuðum í Karabíska hafinu. Greint var frá því á dögunum að Infocapital, sem er að langstærstum hluta í eigu Reynis Grétarssonar, hefði selt Creditinfo Group allt hlutafé í Everydata Group á um 2,9 milljarða króna. Liður í uppbyggingu félagsins Í tilkynningu segir að ráðning Kristins sé liður í áframhaldandi uppbyggingu Teya á Íslandi, þar sem fyrirtækið þjónusti fyrirtæki af öllum stærðum með greiðslulausnir og tengda þjónustu. Kristinn hafi starfað á alþjóðlegum mörkuðum um árabil. Hann hafi hafið störf hjá Creditinfo Group árið 2010 og komið meðal annars að fyrirtækjaþróun og alþjóðlegri uppbyggingu samstæðunnar, þar sem hann hafi komið að innkomu fyrirtækisins á fleiri en fimmtán nýja markaði. Síðar hafi hann tekið við sem fjármálastjóri Creditinfo Group og borið ábyrgð á fjármálastarfsemi samstæðunnar. Árið 2020 hafi hann tekið við sem forstjóri Everydata Group og hafi síðan stýrt starfsemi fyrirtækisins og lánshæfismatsfyrirtækja þess í ellefu löndum í Karabíska hafinu. „Það er mjög spennandi að taka við Teya á Íslandi á þessum tímapunkti. Fyrirtækið býr yfir sterku teymi, mikilli þekkingu á íslenskum markaði og um leið þeirri tækni og reynslu sem fylgir alþjóðlegu fyrirtæki. Ég hlakka til að vinna með teyminu og viðskiptavinum okkar að áframhaldandi þróun Teya og skoða hvernig við getum nýtt þessa styrkleika enn betur til að einfalda rekstur íslenskra fyrirtækja og styðja við vöxt þeirra,“ er haft eftir Kristni. Njarðvíkingur sem fór í Yale Þá segir að Kristinn komi úr Njarðvík, sé með BSc-gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hafi lokið Advanced Management Program (AMP) við Yale School of Management. Haft er eftir Ali Mazanderani, stjórnarformaður Teya á íslandi, að reynsla Kristins falli vel að þeim styrkleikum sem þegar séu til staðar innan íslenska teymisins. „Við erum með öflugt og reynslumikið teymi á Íslandi sem hefur byggt upp mikla þekkingu á greiðslumiðlun og þörfum íslenskra fyrirtækja. Kristinn kemur inn með aðra og verðmæta reynslu, meðal annars af fjármálum, rekstri og uppbyggingu fyrirtækja á fjölmörgum mörkuðum. Sú blanda styrkir teymið enn frekar og við hlökkum mikið til samstarfsins og næstu skrefa hjá Teya á Ísland.“ Loks segir að stjórn og starfsfólk Teya vilji koma á framfæri einlægum þökkum til Brians Jeffrey Gross, sem hafi leitt fyrirtækið farsællega undanfarin þrjú ár en hverfi nú til annarra verkefna.
Greiðslumiðlun Vistaskipti Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira