Fleiri fréttir Tap á rekstri safna Milljóna tap varð á rekstri Héraðsskjalasafns Austurlands og Minjasafns Austurlands á síðasta ári. Þetta kemur frá fréttavefnum Austurglugginn. Héraðsskjalasafnið tapaði rúmum fimm milljónum króna en í fundargerð stjórnar segir að hallareksturinn sé meðal annars tilkominn vegna launhækkana. Hallarekstur Minjasafnins nam þemur og hálfri milljón króna. 15.7.2012 12:51 Telur fjármál sveitarfélaga þokast í rétta átt Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir telur fjármál sveitarfélaganna vera að þokast í rétta átt þó erfið mál hafi komið upp hjá sumum þeirra. Eftirlitsnefnd vill endurskoða fjármál um þriðjungs þeirra. 15.7.2012 12:43 Íslandsbanki afskrifar skuldir Árvakurs í annað sinn á þremur árum Skuldir Árvakurs, útgefanda Morgunblaðsins, hjá Íslandsbanka voru lækkaðar um 944 milljónir króna í fyrra. Þá fór fyrirtækið í lok síðasta árs í annað sinn í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu hjá bankanum eftir hrunið. 14.7.2012 19:26 Kannski rétt að takmarka veiðar á ýsu Ef dregið hefði verið meira úr ýsuveiðum síðastliðin ár hefði verið hægt að nýta sterka stofna betur. Þetta segir forstjóri Hafrannsóknarstofnunar sem vill skoða hvort rétt sé að takmarka veiðar á ákveðnum svæðum til að vernda stofninn. 14.7.2012 19:36 Fjölmörg sveitarfélög með slæma skuldastöðu Fjármál hátt í þrjátíu sveitarfélaga þarfnast skoðunar annað hvort vegna slæmrar skuldastöðu eða rekstrarhalla. Öll hafa þau fengið sent bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaganna vegna þessa. 14.7.2012 18:34 Kaupin eru gleðitíðindi fyrir Eimskip Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, segist fagna kaupum Lífeyrissjóðs verzlunarmanna á hlut í fyrirtækinu. Unnið er að skráningu félagsins í Kauphöllina en miðað við kaup lífeyrissjóðsins er verðmæti félagsins 36 milljarðar króna. Bandaríkjamenn sem keyptu hlutabréf í Eimskip eftir hrun hafa hagnast vel á fjárfestingu sinni. 14.7.2012 12:34 Alvarlegt ástand á ýsustofninum Ástand ýsustofnsins er alvarlegt að mati formanns Landssambands íslenskra útvegsmanna. Hann telur að það geta haft veruleg áhrif á útgerðirnar að minnka þurfi ýsukvótann og valdið erfiðleikum í stýringu á veiðunum. 14.7.2012 12:27 Leigumarkaður á Vestfjörðum glæðist Þinglýstum leigusamningum á Vestfjörðum fjölgar milli ára. Samkvæmt mánaðarlegri samantekt Þjóðskrár Íslands var sjö leigusamningum þinglýst í fjórðungnum í júní. Það er þremur fleiri en á sama tíma í fyrra og nemur hækkunin því sjötíuogfimm prósentum. 14.7.2012 10:36 Skattrannsóknarstjóri rannsakar sjómenn Um tuttugu íslenskir sjómenn sem eiga lögheimili utan landsteinanna eru nú til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins. Einstaklingarnir starfa allir fyrir sömu fyrirtækjasamstæðu. Þetta kemur fram í viðtali við Bryndísi Kristjánsdóttur, skattrannsóknarstjóra, í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins, en ekki kemur fram um hvaða fyrirtæki er að ræða. Þónokkur íslensk útvegsfyrirtæki eru með starfsemi erlendis, þeirra umsvifamest er Samherji. Sjómennirnir sem um ræðir starfa ekki á Íslandi en til rannsóknar er hvort þeim beri engu að síður að greiða tekjuskatt hér, en slíkt á við um þá sem eru samtals 183 daga hér á landi á hverju 12 mánaða tímabili. 14.7.2012 10:10 Gylfi: Nauðsynlegt að halda áfram Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, fagnar atvinnuleysistölunum sem Vinnumálastofnun birti í dag. Atvinnuleysið mælist um 4,8% og hefur ekki verið lægra í þrjú og hálft ár. "Það ber bara að fagna því en engu að síður þarf að halda áfram,“ segir Gylfi. Gylfi segir mikilvægt að fjárfesting aukist og unnið sé að fjölgun starfa. Miðað við mælingar Hagstofunnar sé ekki hægt að fullyrða með vissu að störfum sé að fjölga. 13.7.2012 22:18 Selja 7% hlut hvor Stjórnendur Eimskips staðfestu í kvöld frétt Stöðvar 2 og Vísis að stærstu hluthafar félagsins, gamli Landsbankinn og Yucaipa, hyggjast selja 14% hlut í félaginu. Kaupverðið er 5,7 milljarðar króna. Hvor aðili um sig selur 14 milljónir bréfa en kaupandinn er Lífeyrissjóður verslunarmanna. 13.7.2012 21:08 Lífeyrissjóður verzlunarmanna kaupir stóran hlut í Eimskip Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur gengið frá kaupum á 14 prósenta hlut í Eimskip af slitastjórn Landsbankans og bandaríska fyrirtækinu Yucaipa á rúmlega 5 milljarða króna. Kaupin gætu styrkt Eimskip fyrir skráningu í Kauphöll Íslands í haust. 13.7.2012 19:10 Prentrisi kaupir Plastprent Framtakssjóður Íslands og Kvos ehf. hafa skrifað undir samning um kaup Kvosar á Plastprenti ehf., sem er að fullu í eigu Framtakssjóðsins. Samningurinn er gerður með fyrirvörum, meðal annars um samþykki Samkeppniseftirlitsins og tekur ekki gildi fyrr en að lokinni umfjöllun þess. 13.7.2012 13:17 Atvinnuleysið komið undir 5% Skráð atvinnuleysi í síðasta mánuði var 4,8% en að meðaltali voru 8.704 atvinnulausir þann mánuðinn og fækkaði atvinnulausum um 1.122 að meðaltali frá maí eða um 0,8 prósentustig. 13.7.2012 12:57 Segja Heiðar Má fara með rangt mál Tveir hagfræðingar á rannsókna- og spádeild Seðlabankans segja að Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur og fjárfestir fari með rangt mál þegar hann fullyrði að kaupmáttur hér sé á pari við það sem hann var árið 1993. Þeir segja Heiðar tvíreikna gengisáhrifin inn í útreikninga sína. 13.7.2012 12:15 Margrét Guðmundsdóttir kjörin formaður stjórnar N1 Margrét Guðmundsdóttir var í gær kjörin formaður stjórnar N1 í kjölfar stjórnarkjörs á hluthafafundi félagsins. Margrét hefur setið í stjórn N1 í eitt ár. 13.7.2012 10:17 Hættir störfum hjá Austurbrú eftir um þriggja mánaða starf Þorkel J. Pálsson, framkvæmdastjóri Austurbrúar ses., hefur gert samkomulag við stjórn stofnunarinnar um starfslok. Þorkell tók til starfa í byrjun apríl sl. og hefur hann unnið að stofnun Austurbrúar og þeim breytingum sem fylgja sameiningu þeirra stoðstofnana sem nú mynda Austurbrú ses. 13.7.2012 09:42 Innheimtuleyfi þarf fyrir vörslusviptingar Þeim aðilum sem stunda vörslusviptingar í tengslum við frum- og milliinnheimtu er nú skylt að sækja um innheimtuleyfi til Fjármálaeftirlitsins. 13.7.2012 07:08 Lífskjör Íslendinga ekki verri í 20 ár Hagfræðinginn Heiðar Má Guðjónsson og peningastefnunefnd Seðlabankans greinir mjög á um hver lífskjör Íslendinga eru, Heiðar segir laun landsmanna hafa hrunið og lífskjör ekki verið verri í 20 ár. 12.7.2012 20:00 Vilja að Fjármálaeftirlitið rannsaki starfsemi Lýsingar Félag atvinnurekenda hefur farið fram á það við Fjármálaeftirlitið að það rannsaki starfshætti fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í dag. Félaginu hafa borist fjölmargar kvartanir vegna fjármögnunarleigusamninga. Félagið segir ljóst að Fjármálaeftirlitið hafi ekki gefið út að rannsókn sé hafin né heldur að hún standi til. Eftirlitið hafi þó gefið út að málið sé til skoðunar. Félag atvinnurekenda telur brýnt að háttsemi eftirlitsskyldra fjármálafyrirtækja sé rannsökuð og tryggt sé að starfshættir þeirra séu í samræmi við ákvæði laga. 12.7.2012 17:00 Skóverslun jókst um 17% Velta skóverslunar jókst um 16,8% í júní á föstu verðlagi og um 19,5% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð fyrir ári. Verð á skóm hækkaði um 2,3% frá júní í fyrra, eftir því sem fram kemur í nýjum tölum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Fataverslun jókst um 0,7% í júní miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 5,2% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum minnkaði velta fataverslunar í júní um 3,3% frá sama mánuði í fyrra. Verð á fötum hækkaði um 4,5% frá sama mánuði fyrir ári. 12.7.2012 16:40 Eggert spenntur fyrir N1 Eggert Benedikt Guðmundsson, fráfarandi forstjóri HB Granda, er spenntur fyrir starfinu sem hann tekur við sem forstjóri N1 í sumarlok. N1 höfðu sambandi við Eggert og buðu honum starfið sem hann og þáði og segir þar með skilið við HB Granda. 12.7.2012 16:38 Segir lífskjör fólks verri en Seðlabankinn vill viðurkenna Laun á Íslandi eru svipuð því sem þau voru fyrir um tveimur áratugum. Þetta fullyrðir hagfræðingur sem segir sérstakt að Seðlabankinn haldi því fram að kjör fólks séu svipuð og þau voru árið 2006. 12.7.2012 12:11 Árvakur tapaði 205 milljónum Heildartap síðasta árs af rekstri Árvakurs nam 205 milljónum króna, en nam 330 milljónum króna árið á undan. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 40,4 milljónir, en hann var neikvæður um 97,4 milljónir á árinu 2010. Heildartekjur síðasta árs voru um þrír milljarðar króna og jukust um 360 milljónir, eða 13,6% frá árinu á undan. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu vegna ársuppgjörsins. 12.7.2012 09:41 Lægra raforkuverð seinkar áformum Landsvirkjunar 12.7.2012 00:01 Byggingar í fyrirrúmi Í Fréttablaðinu 2. júlí sl. talar Páll Hjaltason, formaður skiplagsráðs Reykjavíkur, fyrir vinningstillögu í samkeppni sem haldin var um skipulag Ingólfstorgs og nærliggjandi lóða. Tillagan er af sama toga og eldri tillögur frá árinu 2009, en hún er þeirra verst því hún gengur lengst þessara tillagna í auknum byggingum og skerðingu almannarýma á þessu einstaka svæði. 12.7.2012 11:00 Verð á flugmiða til Kaupmannahafnar hefur lækkað Sá sem bókaði Kaupmannahafnarreisu ágústmánaðar í vor hefði getað sparað sér 5000 krónur með því að kaupa farið í dag. Lundúnarfarinn myndi líka borga minna í dag en hann gerði í vor, eftir því sem fram kemur á vefnum Túristi.is. 12.7.2012 09:05 Tekjur ríkisins aukast umfram áætlanir Tekjur ríkisins hafa aukist á fyrstu fimm mánuðum ársins umfram áætlanir. Þretta kemur fram í greiðsluuppgjör ríkissjóðs sem liggur nú fyrir. 12.7.2012 09:04 Verðmunur á gagnamagni um sæstrengi Mikill munur er á því verði sem íslensk fjarskiptafyrirtæki og fyrirtæki í viðskiptum við gagnaver hér á landi greiða fyrir aðgang að sæstrengjum Farice. 12.7.2012 08:00 Skuldatryggingarálag Íslands helst stöðugt Skuldatryggingarálag Íslands hélst stöðugt á öðrum ársfjórðungi ársins á meðan það hækkaði hjá flestum Evrópuríkjum ef Norðurlöndin eru undanskilin. 12.7.2012 06:39 Iceland Express segir sig úr Samtökum ferðaþjónustunnar Iceland Express sagði sig í dag úr Samtökum ferðaþjónustunnar og verkefninu Ísland allt árið í mótmælaskyni. Félagið sakar aðalkeppinautinn, Icelandair, um óeðlileg ítök og áhrif á verkefnið. 11.7.2012 19:00 Fimm manna hópur kaupir Keahótelin Fimm manna hópur hefur keypt allt hlutafé í móðurfélagi Keahótela, sem reka fimm hótel á Norðurlandi og í Reykjavík. um er að ræða Hótel Kea á Akureyri og Hótel Borg í Reykjavík og enn fremur Hótel Norðurland á Akureyri, Hótel Gíg við Mývatn og Hótel Björk í Reykjavík. 11.7.2012 16:22 Hermann fær fyrsta almennilega sumarfríið í 18 ár Hermann Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri N1, vissi ekki að til stæði að segja honum upp. Hann fékk uppsagnabréf í morgun. "Það leið ekkert yfir mig," segir hann. "Þetta er bara eitthvað sem allir forstjórar þurfa að búa við. Það eru nýlega búnar að eiga sér stað eignabreytingar í félaginu og þá er þetta alltaf hlutur sem getur fylgt í kjölfarið." 11.7.2012 13:11 Eggert hættir sem forstjóri HB Granda Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda hf., hefur ákveðið að láta af störfum hjá HB Granda hf. 11.7.2012 11:19 Ríkisábyrgð á peningamarkaðssjóðum í samræmi við reglur EFTA Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun þáverandi stjórnar Landsbankans, Glitnis og Kaupþings um kaup á verðbréfum af peningamarkaðssjóðum hafi ekki farið í bága við EES samninginn. Í tilkynningu frá ESA kemur fram að stofnunin líti svo á að ráðstafanirnar hafi verið nauðsynlegar til að endurbyggja traust á fjármálageiranum. Úrræðin hafi verið nauðsynleg og í samræmi við meðalhóf að því marki að vernda fjárfesta fyrir enn stærra tapi á sparifé sínu. 11.7.2012 13:46 Forstjóraskipti hjá N1 Hermann Guðmundsson hættir sem forstjóri N1 og við starfinu tekur Eggert Benedikt Guðmundsson fyrrverandi forstjóri útgerðarfyrirtækisins HB Granda. Þetta staðfestir Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarmaður N1. 11.7.2012 12:45 Hámarkslánsfjárhæð Íbúðalánasjóðs of lág Ástæðan fyrir því að markaðshlutdeild Íbúðalánasjóðs hefur minnkað um nær helming á einu ári er ekki sú að sjóðurinn býður ekki upp á óverðtryggð lán. Þetta segir Hallur Magnússon, fyrrverandi sviðsstjóri þróunardeildar sjóðsins. "Meginástæðan er að hámarkslánsfjárhæð hjá Íbúðalánasjóði er 20 milljónir," segir Hallur. Fjárhæðin hefur ekki hækkað frá því í júní 2008. 11.7.2012 11:09 Guðbjartur: Við þolum þetta "Við þolum ekki mikið meira," segir Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Í fréttum í morgun kom fram að niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hér á landi var sá næst mesti í öllum OECD ríkjunum. 11.7.2012 10:17 Jón Sigurðsson kominn til GAMMA Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri FL Group, hóf nýlega störf hjá ráðgjafafyrirtækinu GAMMA, samkvæmt frétt Morgunblaðsins í dag. Á vefsíðu GAMMA kemur fram að Jón hóf störf hjá Stoðum, sem áður hét FL Group, árið 2005. Hann byrjaði starfsferil sinn þar sem framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs en síðar varð hann aðstoðarforstjóri og svo forstjóri. Síðustu tvö árin hefur Jón svo rekið eigið ráðgjafafyrirtæki. Á undanförnum árum hefur Jón setið í stjórnum margra fyrirtækja, þar á meðal Tryggingamiðstöðinni, Icelandair Group, Glitni og Refresco. 11.7.2012 09:41 OECD: Ísland og Írland skáru mest niður í heilbrigðismálum Írland og Ísland voru þau lönd innan OECD þar sem útgjöld til heilbrigðismála drógust mest saman árið 2010 eftir töluverðan árlegan vöxt frá aldamótum og fram til 2009. 11.7.2012 06:20 Óverðtryggð lán valda óvinsældum Íbúðalánasjóðs Ástæðan fyrir því að Íbúðalánasjóður hefur lánað um 45% færri lán í ár miðað við sama tíma í fyrra liggur aðallega í því að bankinn hefur ekki boðið upp á óverðtryggð lán. 10.7.2012 16:45 Íbúðalánasjóður lánar minna Íbúðalánasjóður hefur lánað mun minna til fasteignakaupa það sem af er ári en á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir 20% meiri veltu á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu. 10.7.2012 12:53 Guðmundur í Nesi með 450 milljóna farm eftir eina veiðiferð Frystitogarinn Guðmundur í Nesi, sem er í eigu Brims, kom til hafnar seint í gærkvöldi með verðmætasta farm sem íslenskt fiskiskip hefur fengið í einni samfelldri veiðiferð til þessa. 10.7.2012 06:27 Leigusamningum fækkar milli ára Þinglýstum leigusamningum um íbúðarhúsnæði á landinu öllu fækkaði um rúm 4% í júní miðað við sama mánuð í fyrra. 10.7.2012 10:49 Vodafone senn skráð á markað Vodafone á Íslandi hefur samið við fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka um að vinna að undirbúningi skráningar Vodafone í Kauphöllina. Þá mun Íslandsbanki annast sölu á bréfum Framtakssjóðs Íslands í Vodafone en sjóðurinn er aðaleigandi fyrirtækisins í dag. 10.7.2012 07:15 Sjá næstu 50 fréttir
Tap á rekstri safna Milljóna tap varð á rekstri Héraðsskjalasafns Austurlands og Minjasafns Austurlands á síðasta ári. Þetta kemur frá fréttavefnum Austurglugginn. Héraðsskjalasafnið tapaði rúmum fimm milljónum króna en í fundargerð stjórnar segir að hallareksturinn sé meðal annars tilkominn vegna launhækkana. Hallarekstur Minjasafnins nam þemur og hálfri milljón króna. 15.7.2012 12:51
Telur fjármál sveitarfélaga þokast í rétta átt Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir telur fjármál sveitarfélaganna vera að þokast í rétta átt þó erfið mál hafi komið upp hjá sumum þeirra. Eftirlitsnefnd vill endurskoða fjármál um þriðjungs þeirra. 15.7.2012 12:43
Íslandsbanki afskrifar skuldir Árvakurs í annað sinn á þremur árum Skuldir Árvakurs, útgefanda Morgunblaðsins, hjá Íslandsbanka voru lækkaðar um 944 milljónir króna í fyrra. Þá fór fyrirtækið í lok síðasta árs í annað sinn í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu hjá bankanum eftir hrunið. 14.7.2012 19:26
Kannski rétt að takmarka veiðar á ýsu Ef dregið hefði verið meira úr ýsuveiðum síðastliðin ár hefði verið hægt að nýta sterka stofna betur. Þetta segir forstjóri Hafrannsóknarstofnunar sem vill skoða hvort rétt sé að takmarka veiðar á ákveðnum svæðum til að vernda stofninn. 14.7.2012 19:36
Fjölmörg sveitarfélög með slæma skuldastöðu Fjármál hátt í þrjátíu sveitarfélaga þarfnast skoðunar annað hvort vegna slæmrar skuldastöðu eða rekstrarhalla. Öll hafa þau fengið sent bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaganna vegna þessa. 14.7.2012 18:34
Kaupin eru gleðitíðindi fyrir Eimskip Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, segist fagna kaupum Lífeyrissjóðs verzlunarmanna á hlut í fyrirtækinu. Unnið er að skráningu félagsins í Kauphöllina en miðað við kaup lífeyrissjóðsins er verðmæti félagsins 36 milljarðar króna. Bandaríkjamenn sem keyptu hlutabréf í Eimskip eftir hrun hafa hagnast vel á fjárfestingu sinni. 14.7.2012 12:34
Alvarlegt ástand á ýsustofninum Ástand ýsustofnsins er alvarlegt að mati formanns Landssambands íslenskra útvegsmanna. Hann telur að það geta haft veruleg áhrif á útgerðirnar að minnka þurfi ýsukvótann og valdið erfiðleikum í stýringu á veiðunum. 14.7.2012 12:27
Leigumarkaður á Vestfjörðum glæðist Þinglýstum leigusamningum á Vestfjörðum fjölgar milli ára. Samkvæmt mánaðarlegri samantekt Þjóðskrár Íslands var sjö leigusamningum þinglýst í fjórðungnum í júní. Það er þremur fleiri en á sama tíma í fyrra og nemur hækkunin því sjötíuogfimm prósentum. 14.7.2012 10:36
Skattrannsóknarstjóri rannsakar sjómenn Um tuttugu íslenskir sjómenn sem eiga lögheimili utan landsteinanna eru nú til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins. Einstaklingarnir starfa allir fyrir sömu fyrirtækjasamstæðu. Þetta kemur fram í viðtali við Bryndísi Kristjánsdóttur, skattrannsóknarstjóra, í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins, en ekki kemur fram um hvaða fyrirtæki er að ræða. Þónokkur íslensk útvegsfyrirtæki eru með starfsemi erlendis, þeirra umsvifamest er Samherji. Sjómennirnir sem um ræðir starfa ekki á Íslandi en til rannsóknar er hvort þeim beri engu að síður að greiða tekjuskatt hér, en slíkt á við um þá sem eru samtals 183 daga hér á landi á hverju 12 mánaða tímabili. 14.7.2012 10:10
Gylfi: Nauðsynlegt að halda áfram Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, fagnar atvinnuleysistölunum sem Vinnumálastofnun birti í dag. Atvinnuleysið mælist um 4,8% og hefur ekki verið lægra í þrjú og hálft ár. "Það ber bara að fagna því en engu að síður þarf að halda áfram,“ segir Gylfi. Gylfi segir mikilvægt að fjárfesting aukist og unnið sé að fjölgun starfa. Miðað við mælingar Hagstofunnar sé ekki hægt að fullyrða með vissu að störfum sé að fjölga. 13.7.2012 22:18
Selja 7% hlut hvor Stjórnendur Eimskips staðfestu í kvöld frétt Stöðvar 2 og Vísis að stærstu hluthafar félagsins, gamli Landsbankinn og Yucaipa, hyggjast selja 14% hlut í félaginu. Kaupverðið er 5,7 milljarðar króna. Hvor aðili um sig selur 14 milljónir bréfa en kaupandinn er Lífeyrissjóður verslunarmanna. 13.7.2012 21:08
Lífeyrissjóður verzlunarmanna kaupir stóran hlut í Eimskip Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur gengið frá kaupum á 14 prósenta hlut í Eimskip af slitastjórn Landsbankans og bandaríska fyrirtækinu Yucaipa á rúmlega 5 milljarða króna. Kaupin gætu styrkt Eimskip fyrir skráningu í Kauphöll Íslands í haust. 13.7.2012 19:10
Prentrisi kaupir Plastprent Framtakssjóður Íslands og Kvos ehf. hafa skrifað undir samning um kaup Kvosar á Plastprenti ehf., sem er að fullu í eigu Framtakssjóðsins. Samningurinn er gerður með fyrirvörum, meðal annars um samþykki Samkeppniseftirlitsins og tekur ekki gildi fyrr en að lokinni umfjöllun þess. 13.7.2012 13:17
Atvinnuleysið komið undir 5% Skráð atvinnuleysi í síðasta mánuði var 4,8% en að meðaltali voru 8.704 atvinnulausir þann mánuðinn og fækkaði atvinnulausum um 1.122 að meðaltali frá maí eða um 0,8 prósentustig. 13.7.2012 12:57
Segja Heiðar Má fara með rangt mál Tveir hagfræðingar á rannsókna- og spádeild Seðlabankans segja að Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur og fjárfestir fari með rangt mál þegar hann fullyrði að kaupmáttur hér sé á pari við það sem hann var árið 1993. Þeir segja Heiðar tvíreikna gengisáhrifin inn í útreikninga sína. 13.7.2012 12:15
Margrét Guðmundsdóttir kjörin formaður stjórnar N1 Margrét Guðmundsdóttir var í gær kjörin formaður stjórnar N1 í kjölfar stjórnarkjörs á hluthafafundi félagsins. Margrét hefur setið í stjórn N1 í eitt ár. 13.7.2012 10:17
Hættir störfum hjá Austurbrú eftir um þriggja mánaða starf Þorkel J. Pálsson, framkvæmdastjóri Austurbrúar ses., hefur gert samkomulag við stjórn stofnunarinnar um starfslok. Þorkell tók til starfa í byrjun apríl sl. og hefur hann unnið að stofnun Austurbrúar og þeim breytingum sem fylgja sameiningu þeirra stoðstofnana sem nú mynda Austurbrú ses. 13.7.2012 09:42
Innheimtuleyfi þarf fyrir vörslusviptingar Þeim aðilum sem stunda vörslusviptingar í tengslum við frum- og milliinnheimtu er nú skylt að sækja um innheimtuleyfi til Fjármálaeftirlitsins. 13.7.2012 07:08
Lífskjör Íslendinga ekki verri í 20 ár Hagfræðinginn Heiðar Má Guðjónsson og peningastefnunefnd Seðlabankans greinir mjög á um hver lífskjör Íslendinga eru, Heiðar segir laun landsmanna hafa hrunið og lífskjör ekki verið verri í 20 ár. 12.7.2012 20:00
Vilja að Fjármálaeftirlitið rannsaki starfsemi Lýsingar Félag atvinnurekenda hefur farið fram á það við Fjármálaeftirlitið að það rannsaki starfshætti fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í dag. Félaginu hafa borist fjölmargar kvartanir vegna fjármögnunarleigusamninga. Félagið segir ljóst að Fjármálaeftirlitið hafi ekki gefið út að rannsókn sé hafin né heldur að hún standi til. Eftirlitið hafi þó gefið út að málið sé til skoðunar. Félag atvinnurekenda telur brýnt að háttsemi eftirlitsskyldra fjármálafyrirtækja sé rannsökuð og tryggt sé að starfshættir þeirra séu í samræmi við ákvæði laga. 12.7.2012 17:00
Skóverslun jókst um 17% Velta skóverslunar jókst um 16,8% í júní á föstu verðlagi og um 19,5% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð fyrir ári. Verð á skóm hækkaði um 2,3% frá júní í fyrra, eftir því sem fram kemur í nýjum tölum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Fataverslun jókst um 0,7% í júní miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 5,2% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum minnkaði velta fataverslunar í júní um 3,3% frá sama mánuði í fyrra. Verð á fötum hækkaði um 4,5% frá sama mánuði fyrir ári. 12.7.2012 16:40
Eggert spenntur fyrir N1 Eggert Benedikt Guðmundsson, fráfarandi forstjóri HB Granda, er spenntur fyrir starfinu sem hann tekur við sem forstjóri N1 í sumarlok. N1 höfðu sambandi við Eggert og buðu honum starfið sem hann og þáði og segir þar með skilið við HB Granda. 12.7.2012 16:38
Segir lífskjör fólks verri en Seðlabankinn vill viðurkenna Laun á Íslandi eru svipuð því sem þau voru fyrir um tveimur áratugum. Þetta fullyrðir hagfræðingur sem segir sérstakt að Seðlabankinn haldi því fram að kjör fólks séu svipuð og þau voru árið 2006. 12.7.2012 12:11
Árvakur tapaði 205 milljónum Heildartap síðasta árs af rekstri Árvakurs nam 205 milljónum króna, en nam 330 milljónum króna árið á undan. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 40,4 milljónir, en hann var neikvæður um 97,4 milljónir á árinu 2010. Heildartekjur síðasta árs voru um þrír milljarðar króna og jukust um 360 milljónir, eða 13,6% frá árinu á undan. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu vegna ársuppgjörsins. 12.7.2012 09:41
Byggingar í fyrirrúmi Í Fréttablaðinu 2. júlí sl. talar Páll Hjaltason, formaður skiplagsráðs Reykjavíkur, fyrir vinningstillögu í samkeppni sem haldin var um skipulag Ingólfstorgs og nærliggjandi lóða. Tillagan er af sama toga og eldri tillögur frá árinu 2009, en hún er þeirra verst því hún gengur lengst þessara tillagna í auknum byggingum og skerðingu almannarýma á þessu einstaka svæði. 12.7.2012 11:00
Verð á flugmiða til Kaupmannahafnar hefur lækkað Sá sem bókaði Kaupmannahafnarreisu ágústmánaðar í vor hefði getað sparað sér 5000 krónur með því að kaupa farið í dag. Lundúnarfarinn myndi líka borga minna í dag en hann gerði í vor, eftir því sem fram kemur á vefnum Túristi.is. 12.7.2012 09:05
Tekjur ríkisins aukast umfram áætlanir Tekjur ríkisins hafa aukist á fyrstu fimm mánuðum ársins umfram áætlanir. Þretta kemur fram í greiðsluuppgjör ríkissjóðs sem liggur nú fyrir. 12.7.2012 09:04
Verðmunur á gagnamagni um sæstrengi Mikill munur er á því verði sem íslensk fjarskiptafyrirtæki og fyrirtæki í viðskiptum við gagnaver hér á landi greiða fyrir aðgang að sæstrengjum Farice. 12.7.2012 08:00
Skuldatryggingarálag Íslands helst stöðugt Skuldatryggingarálag Íslands hélst stöðugt á öðrum ársfjórðungi ársins á meðan það hækkaði hjá flestum Evrópuríkjum ef Norðurlöndin eru undanskilin. 12.7.2012 06:39
Iceland Express segir sig úr Samtökum ferðaþjónustunnar Iceland Express sagði sig í dag úr Samtökum ferðaþjónustunnar og verkefninu Ísland allt árið í mótmælaskyni. Félagið sakar aðalkeppinautinn, Icelandair, um óeðlileg ítök og áhrif á verkefnið. 11.7.2012 19:00
Fimm manna hópur kaupir Keahótelin Fimm manna hópur hefur keypt allt hlutafé í móðurfélagi Keahótela, sem reka fimm hótel á Norðurlandi og í Reykjavík. um er að ræða Hótel Kea á Akureyri og Hótel Borg í Reykjavík og enn fremur Hótel Norðurland á Akureyri, Hótel Gíg við Mývatn og Hótel Björk í Reykjavík. 11.7.2012 16:22
Hermann fær fyrsta almennilega sumarfríið í 18 ár Hermann Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri N1, vissi ekki að til stæði að segja honum upp. Hann fékk uppsagnabréf í morgun. "Það leið ekkert yfir mig," segir hann. "Þetta er bara eitthvað sem allir forstjórar þurfa að búa við. Það eru nýlega búnar að eiga sér stað eignabreytingar í félaginu og þá er þetta alltaf hlutur sem getur fylgt í kjölfarið." 11.7.2012 13:11
Eggert hættir sem forstjóri HB Granda Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda hf., hefur ákveðið að láta af störfum hjá HB Granda hf. 11.7.2012 11:19
Ríkisábyrgð á peningamarkaðssjóðum í samræmi við reglur EFTA Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun þáverandi stjórnar Landsbankans, Glitnis og Kaupþings um kaup á verðbréfum af peningamarkaðssjóðum hafi ekki farið í bága við EES samninginn. Í tilkynningu frá ESA kemur fram að stofnunin líti svo á að ráðstafanirnar hafi verið nauðsynlegar til að endurbyggja traust á fjármálageiranum. Úrræðin hafi verið nauðsynleg og í samræmi við meðalhóf að því marki að vernda fjárfesta fyrir enn stærra tapi á sparifé sínu. 11.7.2012 13:46
Forstjóraskipti hjá N1 Hermann Guðmundsson hættir sem forstjóri N1 og við starfinu tekur Eggert Benedikt Guðmundsson fyrrverandi forstjóri útgerðarfyrirtækisins HB Granda. Þetta staðfestir Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarmaður N1. 11.7.2012 12:45
Hámarkslánsfjárhæð Íbúðalánasjóðs of lág Ástæðan fyrir því að markaðshlutdeild Íbúðalánasjóðs hefur minnkað um nær helming á einu ári er ekki sú að sjóðurinn býður ekki upp á óverðtryggð lán. Þetta segir Hallur Magnússon, fyrrverandi sviðsstjóri þróunardeildar sjóðsins. "Meginástæðan er að hámarkslánsfjárhæð hjá Íbúðalánasjóði er 20 milljónir," segir Hallur. Fjárhæðin hefur ekki hækkað frá því í júní 2008. 11.7.2012 11:09
Guðbjartur: Við þolum þetta "Við þolum ekki mikið meira," segir Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Í fréttum í morgun kom fram að niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hér á landi var sá næst mesti í öllum OECD ríkjunum. 11.7.2012 10:17
Jón Sigurðsson kominn til GAMMA Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri FL Group, hóf nýlega störf hjá ráðgjafafyrirtækinu GAMMA, samkvæmt frétt Morgunblaðsins í dag. Á vefsíðu GAMMA kemur fram að Jón hóf störf hjá Stoðum, sem áður hét FL Group, árið 2005. Hann byrjaði starfsferil sinn þar sem framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs en síðar varð hann aðstoðarforstjóri og svo forstjóri. Síðustu tvö árin hefur Jón svo rekið eigið ráðgjafafyrirtæki. Á undanförnum árum hefur Jón setið í stjórnum margra fyrirtækja, þar á meðal Tryggingamiðstöðinni, Icelandair Group, Glitni og Refresco. 11.7.2012 09:41
OECD: Ísland og Írland skáru mest niður í heilbrigðismálum Írland og Ísland voru þau lönd innan OECD þar sem útgjöld til heilbrigðismála drógust mest saman árið 2010 eftir töluverðan árlegan vöxt frá aldamótum og fram til 2009. 11.7.2012 06:20
Óverðtryggð lán valda óvinsældum Íbúðalánasjóðs Ástæðan fyrir því að Íbúðalánasjóður hefur lánað um 45% færri lán í ár miðað við sama tíma í fyrra liggur aðallega í því að bankinn hefur ekki boðið upp á óverðtryggð lán. 10.7.2012 16:45
Íbúðalánasjóður lánar minna Íbúðalánasjóður hefur lánað mun minna til fasteignakaupa það sem af er ári en á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir 20% meiri veltu á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu. 10.7.2012 12:53
Guðmundur í Nesi með 450 milljóna farm eftir eina veiðiferð Frystitogarinn Guðmundur í Nesi, sem er í eigu Brims, kom til hafnar seint í gærkvöldi með verðmætasta farm sem íslenskt fiskiskip hefur fengið í einni samfelldri veiðiferð til þessa. 10.7.2012 06:27
Leigusamningum fækkar milli ára Þinglýstum leigusamningum um íbúðarhúsnæði á landinu öllu fækkaði um rúm 4% í júní miðað við sama mánuð í fyrra. 10.7.2012 10:49
Vodafone senn skráð á markað Vodafone á Íslandi hefur samið við fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka um að vinna að undirbúningi skráningar Vodafone í Kauphöllina. Þá mun Íslandsbanki annast sölu á bréfum Framtakssjóðs Íslands í Vodafone en sjóðurinn er aðaleigandi fyrirtækisins í dag. 10.7.2012 07:15
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur