Húsleit hjá Ölgerðinni Bjarki Sigurðsson skrifar 9. október 2026 10:23 Ölgerðin er meðal dótturfélaga Beru. Vísir/Vilhelm Samkeppniseftirlitið hefur hafið húsleit hjá Beru hf., móðurfélagi Ölgerðarinnar, vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar á samkeppnislögum. Embætti héraðssaksóknara aðstoðaði við húsleitina. Þetta kemur fram í tilkynningu Beru til Kauphallar. Eftirlitið grunar Beru um brot á 11. grein samkeppnislaga sem leggur bann við hvers konar misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu. „Húsleitin er framkvæmd með heimild Héraðsdóms Reykjavíkur og er liður í rannsókn sem á þessu stigi tekur til tímabilsins frá og með árinu 2020 til dagsins í dag. Félagið mun veita upplýsingar um framgang málsins eftir því sem tilefni verður til,“ segir í tilkynningunni. Allt gekk sinn vanagang í framleiðslunni þegar fréttamaður og tökumaður mættu á ellefta tímanum í morgun.Vísir/Sigurjón Samkeppniseftirlitið framkvæmdi nýlega rannsókn á mörkuðum sem Ölgerðin starfar á. Þar kom fram að eftirlitið teldi sterkar vísbendingar um að Ölgerðin væri í markaðsráðandi stöðu í sölu á léttvíni og sterku áfengi til veitingastaða og annarra stórnotenda. Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að tilgangur húsleitarinnar hafi verið að afla og tryggja varðveislu gagna sem kunna að hafa þýðingu fyrir rannsókn málsins. Rannsókn þeirra miðar að því að ganga úr skugga um hvort Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu á viðkomandi mörkuðum og hvort fyrirtækið hafi virt bann samkeppnislaga við mistokun á markaðsráðandi stöðu. Áréttað er í tilkynningunni að framkvæmd húsleitar felur ekki í sér niðurstöðu um að brot gegn samkeppnislögum hafi átt sér stað. Innherji fjallaði ítarlega um málið og kom fram að Ölgerðin væri tvisvar til þrisvar sinnum stærra en helstu keppinautar á markaði. Sömuleiðis að við rannsókn á kaupum Ölgerðarinnar á Gæðabakstri og Kjarnavörum hefðu margir keppinautar lýst áhyggjum af því að aukin vörubreidd gæti gert félaginu kleift að styrkja enn frekar stöðu sína með því að tvinna saman sölu matvæla og drykkjarvara. Andri Guðmundsson, stjórnarformaður Beru, sagði í stuttu samtali við Vísi í morgun að hann væri að afla sér frekari upplýsinga og gæti ekki veitt viðtal að svo stöddu. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru forsvarsmenn Ölgerðarinnar og Beru á fundi með almannatengli og ólíklegt er að þeir veiti viðtal fyrir hádegi. Þá hefur Vísir reynt að ná sambandi við forstjóra Samkeppniseftirlitsins og sérfræðing þess í kynningar- og miðlunarmálum, án árangurs. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segir í samtali við Vísi að embættið hafi aðstoðað Samkeppniseftirlitið við húsleitina. Hann geti ekki tjáð sig frekar um málið sem sé á forræði Samkeppniseftirlitsins. Tilkynning Samkeppniseftirlitsins í heild sinni: Í kauphallartilkynningu Beru hf. í dag er greint frá því að Samkeppniseftirlitið hafi framkvæmt húsleit vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf. gegn 11. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, sem bannar misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Af þessu tilefni vill Samkeppniseftirlitið taka eftirfarandi fram: Samkeppniseftirlitið hefur hafið rannsókn á háttsemi Beru hf., dótturfélagsins Ölgerð Egils Skallagrímssonar og öðrum tengdum félögum (nefnt hér í einu lagi Ölgerðin) á drykkjarvörumarkaði. Miðar rannsóknin að því að ganga úr skugga um hvort Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu á viðkomandi mörkuðum og jafnframt hvort fyrirtækið hafi virt bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Í þágu rannsóknarinnar taldi Samkeppniseftirltið nauðsynlegt að framkvæma húsleit í húsakynnum Ölgerðarinnar.Fer húsleitin fram á grundvelli úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur og í samræmi við heimildir Samkeppniseftirlitsins samkvæmt 20. gr. samkeppnislaga. Tilgangur húsleitarinnar er að afla og tryggja varðveislu gagna sem kunna að hafa þýðingu fyrir rannsókn málsins. Samkeppniseftirlitið áréttar að framkvæmd húsleitar felur ekki í sér niðurstöðu um að brot gegn samkeppnislögum hafi átt sér stað. Ekki verða veittar frekari upplýsingar um rannsóknina að svo stöddu. Ölgerðin (Bera) Samkeppnismál Kauphöllin Tengdar fréttir Sterkar vísbendingar um yfirburðastöðu Ölgerðarinnar í vínsölu til stórnotenda Samkeppniseftirlitið telur „sterkar vísbendingar“ um að Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu í sölu á léttvíni og sterku áfengi til veitingastaða og annarra stórnotenda, en félagið er á þeim mörkuðum um tvisvar til þrisvar sinnum stærra en næstu keppinautar. Við rannsókn á kaupum Ölgerðarinnar á Gæðabakstri og Kjarnavörum lýstu margir keppinautar áhyggjum af því að aukin vörubreidd gæti gert félaginu kleift að styrkja enn frekar stöðu sína með því að tvinna saman sölu matvæla og drykkjarvara. 2. október 2026 10:34 Mest lesið „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Sjá meira
Þetta kemur fram í tilkynningu Beru til Kauphallar. Eftirlitið grunar Beru um brot á 11. grein samkeppnislaga sem leggur bann við hvers konar misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu. „Húsleitin er framkvæmd með heimild Héraðsdóms Reykjavíkur og er liður í rannsókn sem á þessu stigi tekur til tímabilsins frá og með árinu 2020 til dagsins í dag. Félagið mun veita upplýsingar um framgang málsins eftir því sem tilefni verður til,“ segir í tilkynningunni. Allt gekk sinn vanagang í framleiðslunni þegar fréttamaður og tökumaður mættu á ellefta tímanum í morgun.Vísir/Sigurjón Samkeppniseftirlitið framkvæmdi nýlega rannsókn á mörkuðum sem Ölgerðin starfar á. Þar kom fram að eftirlitið teldi sterkar vísbendingar um að Ölgerðin væri í markaðsráðandi stöðu í sölu á léttvíni og sterku áfengi til veitingastaða og annarra stórnotenda. Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að tilgangur húsleitarinnar hafi verið að afla og tryggja varðveislu gagna sem kunna að hafa þýðingu fyrir rannsókn málsins. Rannsókn þeirra miðar að því að ganga úr skugga um hvort Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu á viðkomandi mörkuðum og hvort fyrirtækið hafi virt bann samkeppnislaga við mistokun á markaðsráðandi stöðu. Áréttað er í tilkynningunni að framkvæmd húsleitar felur ekki í sér niðurstöðu um að brot gegn samkeppnislögum hafi átt sér stað. Innherji fjallaði ítarlega um málið og kom fram að Ölgerðin væri tvisvar til þrisvar sinnum stærra en helstu keppinautar á markaði. Sömuleiðis að við rannsókn á kaupum Ölgerðarinnar á Gæðabakstri og Kjarnavörum hefðu margir keppinautar lýst áhyggjum af því að aukin vörubreidd gæti gert félaginu kleift að styrkja enn frekar stöðu sína með því að tvinna saman sölu matvæla og drykkjarvara. Andri Guðmundsson, stjórnarformaður Beru, sagði í stuttu samtali við Vísi í morgun að hann væri að afla sér frekari upplýsinga og gæti ekki veitt viðtal að svo stöddu. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru forsvarsmenn Ölgerðarinnar og Beru á fundi með almannatengli og ólíklegt er að þeir veiti viðtal fyrir hádegi. Þá hefur Vísir reynt að ná sambandi við forstjóra Samkeppniseftirlitsins og sérfræðing þess í kynningar- og miðlunarmálum, án árangurs. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segir í samtali við Vísi að embættið hafi aðstoðað Samkeppniseftirlitið við húsleitina. Hann geti ekki tjáð sig frekar um málið sem sé á forræði Samkeppniseftirlitsins. Tilkynning Samkeppniseftirlitsins í heild sinni: Í kauphallartilkynningu Beru hf. í dag er greint frá því að Samkeppniseftirlitið hafi framkvæmt húsleit vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf. gegn 11. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, sem bannar misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Af þessu tilefni vill Samkeppniseftirlitið taka eftirfarandi fram: Samkeppniseftirlitið hefur hafið rannsókn á háttsemi Beru hf., dótturfélagsins Ölgerð Egils Skallagrímssonar og öðrum tengdum félögum (nefnt hér í einu lagi Ölgerðin) á drykkjarvörumarkaði. Miðar rannsóknin að því að ganga úr skugga um hvort Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu á viðkomandi mörkuðum og jafnframt hvort fyrirtækið hafi virt bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Í þágu rannsóknarinnar taldi Samkeppniseftirltið nauðsynlegt að framkvæma húsleit í húsakynnum Ölgerðarinnar.Fer húsleitin fram á grundvelli úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur og í samræmi við heimildir Samkeppniseftirlitsins samkvæmt 20. gr. samkeppnislaga. Tilgangur húsleitarinnar er að afla og tryggja varðveislu gagna sem kunna að hafa þýðingu fyrir rannsókn málsins. Samkeppniseftirlitið áréttar að framkvæmd húsleitar felur ekki í sér niðurstöðu um að brot gegn samkeppnislögum hafi átt sér stað. Ekki verða veittar frekari upplýsingar um rannsóknina að svo stöddu.
Tilkynning Samkeppniseftirlitsins í heild sinni: Í kauphallartilkynningu Beru hf. í dag er greint frá því að Samkeppniseftirlitið hafi framkvæmt húsleit vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf. gegn 11. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, sem bannar misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Af þessu tilefni vill Samkeppniseftirlitið taka eftirfarandi fram: Samkeppniseftirlitið hefur hafið rannsókn á háttsemi Beru hf., dótturfélagsins Ölgerð Egils Skallagrímssonar og öðrum tengdum félögum (nefnt hér í einu lagi Ölgerðin) á drykkjarvörumarkaði. Miðar rannsóknin að því að ganga úr skugga um hvort Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu á viðkomandi mörkuðum og jafnframt hvort fyrirtækið hafi virt bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Í þágu rannsóknarinnar taldi Samkeppniseftirltið nauðsynlegt að framkvæma húsleit í húsakynnum Ölgerðarinnar.Fer húsleitin fram á grundvelli úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur og í samræmi við heimildir Samkeppniseftirlitsins samkvæmt 20. gr. samkeppnislaga. Tilgangur húsleitarinnar er að afla og tryggja varðveislu gagna sem kunna að hafa þýðingu fyrir rannsókn málsins. Samkeppniseftirlitið áréttar að framkvæmd húsleitar felur ekki í sér niðurstöðu um að brot gegn samkeppnislögum hafi átt sér stað. Ekki verða veittar frekari upplýsingar um rannsóknina að svo stöddu.
Ölgerðin (Bera) Samkeppnismál Kauphöllin Tengdar fréttir Sterkar vísbendingar um yfirburðastöðu Ölgerðarinnar í vínsölu til stórnotenda Samkeppniseftirlitið telur „sterkar vísbendingar“ um að Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu í sölu á léttvíni og sterku áfengi til veitingastaða og annarra stórnotenda, en félagið er á þeim mörkuðum um tvisvar til þrisvar sinnum stærra en næstu keppinautar. Við rannsókn á kaupum Ölgerðarinnar á Gæðabakstri og Kjarnavörum lýstu margir keppinautar áhyggjum af því að aukin vörubreidd gæti gert félaginu kleift að styrkja enn frekar stöðu sína með því að tvinna saman sölu matvæla og drykkjarvara. 2. október 2026 10:34 Mest lesið „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Sjá meira
Sterkar vísbendingar um yfirburðastöðu Ölgerðarinnar í vínsölu til stórnotenda Samkeppniseftirlitið telur „sterkar vísbendingar“ um að Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu í sölu á léttvíni og sterku áfengi til veitingastaða og annarra stórnotenda, en félagið er á þeim mörkuðum um tvisvar til þrisvar sinnum stærra en næstu keppinautar. Við rannsókn á kaupum Ölgerðarinnar á Gæðabakstri og Kjarnavörum lýstu margir keppinautar áhyggjum af því að aukin vörubreidd gæti gert félaginu kleift að styrkja enn frekar stöðu sína með því að tvinna saman sölu matvæla og drykkjarvara. 2. október 2026 10:34