Fleiri fréttir

Getur borgað sig að kaupa varahluti í útlöndum

Það getur borgað sig að fljúga til útlanda og kaupa varahlut í bílinn í stað þess að versla hjá bílaumboði. Þetta segir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Hann segir verðlagningu umboðanna nálgast okur.

Íbúðalánasjóður afskrifar 33 milljarða á fjórða ársfjórðungi

Afskriftarþörf Íbúðalánasjóðs á fjórða ársfjórðungi síðasta árs reyndist mun meiri en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Sjóðurinn þarf að afskrifa 33,4 milljarða króna á tímabilinu og munar þar mest um aðild sjóðsins að samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði. Afskriftir vegna þess samkomulags nema 21,8 milljörðum króna. Á fyrstu níu mánuðum ársins námu afskriftir aðeins 3,2 milljörðum.

Telur að gengi krónunnar muni styrkjast

"Erfitt er að sjá fyrir sér að gengið veikist verulega á næstunni miðað við óbreyttar forsendur og frekar að það styrkist vegna innflæðis, ekki síst ef til koma verulegar framkvæmdir innanlands."

FME gagnrýnir Sameinaða lífeyrissjóðinn, krefst úrbóta

Fjármálaeftirlitið (FME) gagnrýnir rekstur Sameinaða lífeyrissjóðsins og gerir fjölmargar athugasemdir við það hvernig málum er háttað hjá sjóðnum. Forráðamenn Sameinaða lífeyrissjóðsins hafa frest fram til aprílloka að koma lagi á hlutina hjá sér.

Kauphöllin reiknar út nýja skuldabréfavísitölu

Kauphöllin hóf í dag útreikning á 10 ára óverðtryggðri skuldabréfavísitölu (OMXI10YNI). Útreikningur óverðtryggðrar vísitölu með svo langan líftíma varð nýlega mögulegur í kjölfar fyrstu útgáfu Lánamála ríkisins á 20 ára óverðtryggðum ríkisbréfaflokki.

Mesti afgangur af þjónustuviðskiptum frá 1994

Alger viðsnúningur hefur orðið í þjónustujöfnuði við útlönd frá hruni, og hafa þjónustuviðskipti við útlönd að jafnaði skilað verulegum afgangi undanfarin misseri eftir verulegan halla þensluárin á undan. Á fjórða ársfjórðungi síðasta árs var um að ræða mesta afgang af þjónustuviðskiptum í krónum talið á þessum árstíma frá árinu 1994.

Landsvirkjun kannar sæstreng til Skotlands

Landsvirkjun er nú að kanna hagkvæmni Þess að leggja tæplega 1.200 km langan sæstreng til Skotlands. Strengurinn á að geta flutt allt að 18 tetravöttum á ári.

Töluvert dró úr hagnaði SS á milli ára

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands (SS) í fyrra var 186 milljónir kr. Árið áður var hagnaðurinn 412 milljónir kr. hagnaður. Eigið fé er 1.547 milljónir kr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 28%.

Þjónustujöfnuðurinn jákvæður um 44 milljarða í fyrra

Samkvæmt bráðabirgðatölum er útflutningur á þjónustu 308,2 milljarðar á árinu 2010 en innflutningur á þjónustu 264,2 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd á árinu 2010 var því jákvæður um 44,0 milljarða.

Icelandair sleppur við 130 milljón stjórnvaldssekt

Héraðsdómur hefur staðfest þá niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála að Icelandair hafi verið í markaðsráðandi stöðu og misnotað hana með kynningu á svokölluðum Netsmellum á árinu 2004. Hinsvegar hefur dómurinn fellt úr gildi stjórnvaldssekt upp á 130 milljónir kr. sem Icelandair hafði verið gert að greiða.

Byggðastofnun tapaði 2,6 milljörðum í fyrra

Byggðastofnun skilaði tapi upp á rúma 2,6 milljarða kr. í fyrra. Eigið fé stofnunarinnar neikvætt um rétt tæpan hálfan milljarð kr. Eiginfjárhlutfallið er komið niður í -2,4% en skal að lágmarki vera 8% af eiginfjárgrunni samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.

Íbúðakaup taka kipp að nýju í borginni

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 76. Þar af voru 56 samningar um eignir í fjölbýli, 15 samningar um sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Skuldin gæti hækkað um 665 milljarða

Mögulegur vaxtakostnaður vegna Icesave gæti orðið rúmir 713 milljarðar, tapist málið fyrir dómstólum árið 2014. Þessar niðurstöður miða við að Íslendingum verði gert að greiða sömu vexti og Portúgal greiðir af sínum neyðarlánum. Fái Íslendingar sömu vexti og Írar, endar málið í 513 milljörðum. Sé núverandi samningur látinn gilda, eftir að þrotabú gamla Landsbankans hefur verið gert upp, endar skuldin í 48 milljörðum króna. Þar er miðað við þá 20 milljarða sem nú þegar eru til staðar.

Jarðhitaréttindi seld í Kaliforníu

Orkuveita Reykjavíkur (OR) undirritaði fyrir helgi viljayfirlýsingu um sölu dótturfyrirtækis síns, REI, á jarðhitaréttindum í Kaliforníufylki í Bandaríkjunum. Kaupandinn er Nevada Geothermal Power og er söluverð alls 4,15 milljónir dala, eða tæpur hálfur milljarður króna.

Forstjórinn sem vildi ekki verða prófessor

Því er ekki að neita að hún er skrýtin tilfinningin sem bærist manni í brjósti. Ég var búinn að starfa mjög náið með Þórði í langan tíma og mat hann mjög mikils,“ segir Páll Harðarson, sem á dögunum tók við forstjórastarfi í Kauphöllinni eftir fráfall Þórðar Friðjónssonar sem hafði gegnt starfinu í níu ár.

Kaupþing yfirtók risavaxið lán Ólafs ári fyrir hrun

Kaupþing yfirtók risavaxið lán Ólafs Ólafssonar hjá amerískum banka ári fyrir hrun, en án þess hefðu hlutabréf Kaupþings lækkað mikið í verði. Á svipuðum tíma var bankinn að gera gjaldeyrissamning við Ólaf, sem nú krefst 115 milljarða króna frá þrotabúi Kaupþings vegna gjaldeyrissamningsins.

Færri gjaldþrot í ár en í fyrra

Færri gjaldþrot voru í janúar á þessu ári en á sama tíma í fyrra að því er fram kemur í tilkynningu frá Hagstofunni.

Minni umsvif en á síðasta ári

Alls var 97 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði þinglýst á landinu í janúarmánuði. þar af voru 45 á höfuðborgarsvæðinu og 52 utan þess.

Fyrsti Laundromat staðurinn á Íslandi

Það styttist í að Íslendingar geti þvegið þvott yfir rjúkandi kaffibolla því fyrsti Laundromat staðurinn opnar í Reykjavík innan skamms.

Gengur til liðs við Cintamani

"Þetta er ráðgjafastarf því auðvitað hefur mikil hönnunarvinna átt sér stað í þessu fyrirtæki enda verið starfandi lengi,“ segir Steinunn Sigurðardóttir, einn fremsti fatahönnuður landsins.

Litlu munaði á lægstu boðum í viðgerð Steingrímsstöðvar

Fyrirtækið Verkvík-Sandtak ehf. í Hafnarfirði átti lægsta boð í viðgerðir á Steingrímsstöð, en tilboð voru opnuð í gær hjá Landsvirkjun. Verkvík-Sandtak bauð 168,5 milljónir króna, eða 88,6% af 190 milljóna króna kostnaðaráætlun. Verkefnið felst í viðgerð á árlokum Steingrímsstöðvar og steyptum mannvirkjum.

Segja orkustefnu fyrir Ísland byggða á veikum grunni

Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins hafa skilað til iðnaðarráðuneytisins umsögn um drög að orkustefnu fyrir Ísland. Í tilkynningu frá samtökunum segir að þau séu sammála um að drögunum sé verulega áfátt.

Áætlun um gjaldeyrishöft kynnt á næstu dögum

Seðlabankinn vinnur nú að áætlun um afnám hafta í samráði við efnahags- og viðskiptaráðuneytið og er ætlunin að kynna hana fyrir ríkisstjórninni fyrir mánaðamót. Verði hún samþykkt af ríkisstjórninni mun hún að líkindum verða birt opinberlega í kjölfarið.

Besta ár í sögu Atlantic Petroleum var í fyrra

Árið í fyrra var hið besta í sögu færeyska olíufélagsins Atlantic Petroleum frá stofnun þess 1998. Hagnaður félagsins nam 163 milljónum danskra kr. fyrir skatta eða um 3,5 milljörðum kr. Til samanburðar nam tapið af starfseminni 60 milljónum danskra kr. í fyrra.

Byr skrifar undir jafnréttissáttmála

Á dögunum skrifaði Jón Finnbogason, forstjóri Byrs undir jafnréttissáttmála UNIFEM og UN Global Compact. Með undirskriftinni skuldbindur Byr sig til að vinna að jafnréttismálum innan fyrirtækisins, sýna þar frumkvæði, samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni.

Breytingar í stjórn Bankasýslu ríkisins

Breytingar hafa orðið í stjórn Bankasýslu ríkisins. Fjármálaráðherra hefur skipað Steinunni Kristínu Þórðardóttur, rekstrarhagfræðing sem nýjan stjórnarmann og Jón Sigurðsson, lögmann, til vara.

Hagnaður Landsnets 3,5 milljarðar í fyrra

Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 3.563 milljónir kr. fyrir árið 2010 samanborið við hagnað að fjárhæð 1.471 milljón kr. á árinu 2009.

Gjaldþrotum fyrirtækja fækkaði milli ára í janúar

Í janúar s.l. voru 95 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 103 fyrirtæki í janúar 2010, sem jafngildir tæplega 8% fækkun milli ára. Eftir atvinnugreinum voru flest gjaldþrot í Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.

Eignir bankanna aukast og skuldir minnka

Heildareignir innlánsstofnana námu 2.787 milljarða kr. í lok janúar 2011 og hækkuðu um 2,8 milljarða kr. frá fyrra mánuði, þar af hækkuðu innlendar eignir um tæpa 1,6 milljarða kr. en erlendar eignir um tæpa 1,3 milljarða kr.

Enn ein bensín- og díselolíuhækkunin framundan

Enn ein bensín- og díselolíuhækkunin liggur í loftinu hér á landi vegna hækkana á heimsmarkaðsverði, en hlutur ríkisins í formi ýmissa gjalda er nú kominn upp í 112 krónur af hverjum bensínlítra.

Kalli í Pelsinum selur Kirkjuhvol

Karl J. Steingrímsson, oft kenndur við Pelsinn, hefur selt selt stórhýsið Kirkjuhvol við dómkirkjuna í Reykjavík, og áfast hús við Templarasund til fasteignafélagsins Þórsgarðs, sem er í eigu Bandaríkjamanns og tveggja íslenskra kvenna.

Töluvert dregur úr kaupum á atvinnuhúsnæði

45 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu var þinglýst í janúar síðastliðnum og 52 utan þess eða 97 samningum samtals. Þetta er töluvert færri samningar en í desember þegar þeir voru 129 talsins. Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands.

Fyrst tekið á aflandskrónum

Aðgerðir til að „flytja heim“ svokallaðar aflandskrónur gætu hafist mjög fljótlega, að sögn Más Guðmundssonar seðlabankastjóra. Hann upplýsti á fundi Félags kvenna í atvinnurekstri um aðildarviðræðurnar að Evrópusambandinu og valkosti í peningamálum í gær að verið væri að leggja lokahönd á áætlun um afnám gjaldeyrishafta.

Pálmi og Hannes búnir að skila yfirlýsingum

Pálmi Haraldsson og Hannes Smárason haf nú skilað yfirlýsingu til dómstóls í New York og því uppfyllt skilyrði sem voru sett þegar Glitnis-málinu var vísað frá. Reiði og gremja er í garð þeirra tveggja meðal annarra sem stefnt var í málinu vegna endurupptöku þess.

Segir Ólaf Ólafs ekki fá krónu út úr Kjalari

"[Ljóst er] að eigendur Kjalars munu aldrei fá krónu út úr félaginu," segir í yfirlýsingu frá Kjalari, félagi Ólafs Ólafssonar, en Kjalar hefur krafið þrotabú Kaupþings banka um 115 milljarða króna vegna gjaldeyrisskiptasamnings sem endurnýjaður var 6. október 2008 í miðju bankahruninu. Þetta fullyrðir Kjalar í yfirlýsingu, sem send er út af Einari Karli Haraldssyni almannatengli, þótt Ólafur Ólafsson sé stjórnarformaður Eglu, en Egla á fjárhagslegra hagsmuna að gæta í málinu.

TM: 765 milljónir í hagnað í fyrra

Tryggingamiðstöðin hefur skilað uppgjöri fyrir síðasta ár. Hagnaður af reglulegri starfsemi var 765 milljónir samanborið við 237 milljóna hagnað árið 2009. Heildartekjur voru 11,6 milljarðar en 12,8 milljarðar árið áður. Af öðrum uppgjörstölum má nefna að eigin iðgjöld jukust um átta prósent og voru um tíu milljarðar og eigin tjónakostnaður lækkaði um tólf prósent.

Setja á fót upplýsingaveitu um jarðhitamarkað

Íslandsbanki og DataMarket hafa í samvinnu þróað og hannað upplýsingaveitu um alþjóðlegan jarðhitamarkað. Upplýsingarnar birtast á jarðhitamælaborði á vefsíðu Íslandsbanka. Þar er hægt að fylgjast með jarðhitamarkaðnum víðsvegar um heiminn en þó er lögð sérstök áhersla á Bandaríkin og Ísland.

Sóknarfæri á sviði einkarekinnar heilbrigðisþjónustu

Sóknarfæri eru til þess að fjölga útboðum þegar samið er um heilbrigðisþjónustu á vegum hins opinbera, segir Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga. Í nýlegum sjúkratryggingalögum, sem sett voru í október 2008, var gert ráð fyrir að farið sé í útboð í ríkara mæli. Í lögunum er hvorutveggja heimilt þegar samið er um heilbrigðisþjónustu, að semja yfir borðið eða fara í útboð.

Sjá næstu 50 fréttir