Viðskipti innlent

Breytingar í stjórn Bankasýslu ríkisins

Breytingar hafa orðið í stjórn Bankasýslu ríkisins. Fjármálaráðherra hefur skipað Steinunni Kristínu Þórðardóttur, rekstrarhagfræðing sem nýjan stjórnarmann og Jón Sigurðsson, lögmann, til vara.

Þetta kemur fram á vefsíðu stjórnarráðsins. Þar segir að fráfarandi stjórnarmaður er Sigurður B. Stefánsson sem hefur sinnt stjórnarstörfum frá því í september 2009 eða síðan stjórn Bankasýslunnar var fyrst skipuð. Eftir að viðræður hófust um kaup Landsbankans á sjóðastýringafyrirtækinu Rose Invest í nóvember, þar sem Sigurður er annar stofnanda og sjóðsstjóri, hefur hann ekki sinnt stjórnarstörfum fyrir Bankasýsluna.

Guðrún Johnsen, varamaður, sagði sig úr stjórn Bankasýslunnar þegar hún tók sæti í stjórn Arion banka á síðasta ári. Sigurði og Guðrúnu eru þökkuð vel unnin störf í þágu Bankasýslu ríkisins, að því er segir á vefsíðunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×