Viðskipti innlent

Verðbréfafyrirtækið Virðing flutt í Kópavoginn

Verðbréfafyrirtækið Virðing hf. hefur flutt starfsemi sína úr Borgartúni 30 í nýtt og rúmgott húsnæði að Digranesvegi 1 í Kópavogi.

Í tilkynningu segir að fyrirtækið er staðsett á annarri hæð hússins á Kópavogshálsinum, sem hefur verið sniðið sérstaklega að starfsemi og þörfum Virðingar.

Að sögn Friðjóns Rúnars Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Virðingar, hefur starfsemi fyrirtækisins vaxið hratt á undanförnum árum og var fyrirtækið fyrir löngu búið að sprengja húsnæðið við Borgartún utan af sér. „Það var mjög gott að vera í Borgartúni, og að ýmsu leyti er eftirsjá að því að hverfa þaðan. Hinsvegar er Kópavogshálsinn einnig afar góð staðsetning með tilliti til þarfa okkar og þar erum við líka mjög miðsvæðis,“ segir Friðjón.

Á næstu dögum verður ný heimasíða Virðingar tekin í notkun á slóðinni virding.is, þar sem aðgengilegar verða ítarlegar upplýsingar um þjónustu og starfsemi fyrirtækisins. Þar verður einnig að finna yfirlitskort til að auðvelda viðskiptavinum að rata rétta leið á Kópavogsháls, en húsnæðið verður á næstunni merkt Virðingu að utan. Þess má geta að öll símanúmer, faxnúmer og tölvupóstföng fyrirtækisins verða óbreytt.

Virðing hf. var stofnað árið 1999 af tveimur lífeyrissjóðum. Félagið starfar samkvæmt heimild og undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins. Meðal eiganda félagsins eru lífeyrissjóðir, stéttarfélög, hagsmunasamtök og einstaklingar. Félagið hefur frá upphafi rekið öfluga eignastýringu með góðum árangri og hafa margir af okkar viðskiptavinum verið með okkur frá stofnun félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×