Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Haukar og dúfur í peningastefnunefnd „Erlendis er það vinsæl íþrótt að ráða í grundvallarafstöðu einstakra meðlima peningastefnunefnda hinna ýmsu seðlabanka til vaxtastefnu viðkomandi banka. Eru sumir þeirra stimplaðir vaxtahaukar sem ávallt leggist á sveif með meira aðhaldi peningamálastefnu en kollegar þeirra, en aðrir þykja vera vaxtadúfur og þannig hallir undir minna peningalegt aðhald en gengur og gerist í nefndunum. Dæmi um þetta má t.d. finna í peningastefnunefnd Englandsbanka.“ 26.3.2010 12:27
Jeratún skilaði 38 milljóna tapi í fyrra Jeratún skilaði tapi á árinu 2009 upp á 38 milljónir kr. og í lok þess var eigið fé neikvætt um sem nam 61,5 milljónum kr. samkvæmt ársreikningi. Ástæða fyrir þessu tapi má rekja til mikils fjármagnskostnaðar og of lágrar húsaleigu. Stjórnin mun leggja það til við hluthafafund félagsins að hlutafé verði aukið um 25 milljónir kr. 26.3.2010 11:58
Útboð Strætó: Gengið til samninga við lægstbjóðendur Verðtilboð í akstur strætisvagna fyrir Strætó bs. voru opnuð 10. mars síðastliðinn Alls bárust tilboð frá sjö aðilum og ákvað stjórn Strætó bs. á fundi sínum viku seinna að ganga til samninga við fyrirtækin Hagvagna og Kynnisferðir. Útboðið er til fjögurra ára og hefst akstur í lok ágúst 2010. 26.3.2010 09:39
Hagnaður Seðlabankans 500 milljónir í fyrra Samkvæmt rekstrarreikningi nam hagnaður Seðlabanka Íslands í fyrra 500 milljónum króna. Á árinu 2008 varð hins vegar tæplega 184 milljarða króna tap á rekstri bankans fyrir endurheimtur frá ríkissjóði sem endurreistu eigið fé bankans. Þær endurheimtur námu 175 milljörðum króna og að teknu tilliti til þeirra varð endanlegt tap bankans 8,6 milljarðar króna. 26.3.2010 08:19
Endurskipulagingu Icelandair að ljúka, engar afskriftir Icelandair Group hf. og stærstu lánveitendur félagsins, Íslandsbanki og Glitnir banki hf., hafa komist að samkomulagi um með hvaða hætti stefnt skuli að því að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair Group. 26.3.2010 08:07
Flókið og erfitt að láta krónuna fljóta Endurskoða þarf lög um Seðlabankann í tengslum við endurskoðun á peningastefnunni, að mati Más Guðmundssonar seðlabankastjóra. „En að mínu viti þarf að skoða ýmislegt í þeim lögum hvort sem er,“ sagði hann á ársfundi Seðlabankans sem haldinn var í gær. „Ég tel mjög brýnt að reynt verði að stuðla að eins mikilli þverpólitískri sátt um þá endurskoðun og kostur er.“ 26.3.2010 06:00
Félag stofnað um Hverahlíðavirkjun Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur segir fjármálafyrirtæki tilbúin að koma að fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar með svokallaðri verkefnafjármögnun. 26.3.2010 05:30
FME gerir athugasemd við afskráningu Bakkavarar Fjármálaeftirlitið gerir athugasemd við fyrirhugaða afskráningu Bakkavarar Group hf. á hlutabréfum félagsins úr Kauphöllinni og 25.3.2010 17:15
Endurskoðun peningastefnu stendur fyrir dyrum „Það stendur einnig til að endurskoða peningastefnuna. Fyrir því er fyrst sú praktíska ástæða að það þarf að móta þá peningastefnu sem tekur við af efnahagsáætluninni með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum því að hún hentar ekki þegar gjaldeyrishöftum hefur verið aflétt og Ísland er aftur orðið í fullum fjármálalegum tengslum við umheiminn." 25.3.2010 17:00
Seðlabankinn kaupir skuldabréf fyrir 20 milljarða Már Guðmundsson seðlabankastjóri skýrði frá því í dag í fyrsta skipti að Seðlabanki Íslands hefur á undanförnum mánuðum keypt á eftirmarkaði skuldabréf úr þeim flokkum sem koma til gjalddaga veturinn 2011 og 2012. Nema þessi kaup að nafnvirði 116 milljónum evra, eða um 20 milljarða kr. og hafa verið gerð á mjög góðum kjörum. 25.3.2010 17:00
Gengi bréfa Bakkavarar hækkaði um 3,33 prósent Gengi hlutabréfa Bakkavarar hækkaði um 3,33 prósent í Kauphöllinni í dag. Þá hækkaði gengi bréfa Marel um 1,28 prósent og stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,27 prósent. 25.3.2010 16:33
Gamma lækkaði um 0,2% Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,2% í dag í 10,2 milljarða viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,2% í 6 milljarða viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði lítillega í 4,2 milljarða viðskiptum. 25.3.2010 16:07
Bílaleigan Alp sett í opið söluferli Bevís ehf. hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á 100% hlut í Alp ehf., sem rekur eina af stærstu bílaleigum Íslands undir vörumerkjum Avis og Budget. 25.3.2010 15:42
Björgvin Guðmundsson nýr ritstjóri Viðskiptablaðsins Björgvin Guðmundsson hefur verið ráðinn ritstjóri Viðskiptablaðsins. Hann tekur við stjórn blaðsins í dag af Sigurði Má Jónssyni. Björgvin hefur verið aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins frá því í október í fyrra. Þar áður var hann fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, fréttastjóri á Fréttablaðinu og ritstjóri Markaðarins, vikublaðs Fréttablaðsins um viðskipti. 25.3.2010 15:39
Hérðasdómur staðfestir nauðasamning Bakkavarar Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í dag nauðasamning Bakkavarar Group hf. sem samþykktur var með 90% atkvæða (98% af fjárhæð krafna) á fundi með kröfuhöfum þann 4. mars 2010 eins og fram kom í tilkynningu félagsins þann sama dag. 25.3.2010 14:56
FA stendur við sitt þrátt fyrir breytingar á stjórn fiskveiða Félag atvinnurekenda (FA) stendur við sína kjarasamninga en krefst aðgerða af hálfu stjórnvalda. Félag atvinnurekenda stendur við gerða kjarasamninga þrátt fyrir breytingar á stjórn fiskveiða. 25.3.2010 14:19
Nýsköpunarsjóður fjárfesti fyrir milljarð í fyrra Rekstur Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins gekk vel á árinu 2009 og skilaði sjóðurinn 13 milljóna króna hagnaði og handbært fé frá rekstri nam 252 milljónum króna. 25.3.2010 14:06
Fjármálaráðuneytið snurpar Talsmann neytenda "Talsmaður neytenda hefur á heimasíðu sinni birt allsérstæða túlkun á skattalögum hvað varðar afskriftir eða niðurfærslu skulda." 25.3.2010 12:24
Hernaðarfyrirtækið ECA bauð allt of lága leigu Hernaðarfyrirtækið ECA Programs bauð allt of lága leigu fyrir aðstöðu á Keflavíkurflugvelli. Ekki stendur til að niðurgreiða starfsemi félagsins þar af hálfu almennra flugfarþega. Þetta sagði Kristján Möller, samgönguráðherra í svari við fyrirspurn á Alþingi í morgun. 25.3.2010 12:07
SI óskar þess að frumvarp Ögmundar dagi uppi Ögmundur Jónasson leggur í fimmta sinn fram tillögu um að skerða samkeppnisstöðu innlendra bjórframleiðenda gagnvart erlendum. "Vonandi fer fyrir frumvarpi Ögmundar á sama veg og í hin skiptin fjögur, segir Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI) í tilkynningu frá samtökunum. 25.3.2010 11:50
Meðallaun voru 334 þúsund á mánuði í fyrra Regluleg laun á almennum vinnumarkaði voru 334 þúsund krónur að meðaltali á mánuði árið 2009. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. 25.3.2010 09:03
Kaupþing styður kaup 3i á 20% hlut í Refresco Kaupþing banki, sem einn af hluthöfum Refresco, hefur stutt ferlið sem leitt hefur til þess að fjárfestingarfélagið 3i hefur keypt 20% hlut í Refresco. Þetta lýsi trausti á stjórn Refresco, stefnu fyrirtækisins og meirihlutaeigendum þess, sem eru íslenskir fjárfestar, en þeir eru auk Kaupþings, Vífilfell og Stoðir sem hafa leitt hópinn. 25.3.2010 08:50
Alþjóðlegt fjárfestingarfélag kaupir 20% í Refresco Eigendur Refresco, eins stærsta drykkjarvöruframleiðanda Evrópu, og alþjóðlega fjárfestingafélagið 3i hafa gert samkomulag um að 3i kaupi nýtt hlutafé í Refresco, sem nemur 20% af heildarhlutafé Refresco. 25.3.2010 08:42
NI hf. leiðréttir ársreikning sinn vegna vantaldra ábyrgða NI hf. hefur leiðrétt ársreikning sinn fyrir síðasta ár þar sem 3,3 milljarða kr. skekkja hefur komið í ljós, þ.e. vantaldar ábyrgðir vegna tengdra aðila. 25.3.2010 08:14
Breytingin á Bakkavör til skoðunar hjá FME Fjármálaeftirlitið hefur gert athugasemdir við fyrirhugaða breytingu á eignarhaldi Bakkavarar og afskráningu félagsins úr Kauphöll, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 25.3.2010 06:30
Einn af lyklum að ríkisframlagi Byr sparisjóður hefur sett þrettán prósenta hlut sinn í MP banka í söluferli. Það er Arion banki sem sér um söluna. Sparisjóðurinn er annar stærsti einstaki eigandi MP banka á eftir Margeiri Péturssyni stjórnarformanni og tengdum aðilum. 25.3.2010 06:00
Saga Nordic Partners öll Skilanefnd Landsbankans leysti á þriðjudag til sín allar eignir fjárfestingarfélagsins Nordic Partners í Lettlandi og er við það að taka eignir yfir í Danmörku og einkaþotuleigu í Bretlandi. Tilkynnt var um yfirtökuna í gær. Nýtt félag hefur verið reist á rústunum. Fjárfestar frá Lettlandi keyptu 51 prósent í nýju félagi af skilanefnd, sem á afganginn. 25.3.2010 05:00
Gengi hlutabréfa Century Aluminum hækkaði um 4,61 prósent Gengi hlutabréfa Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, hækkaði um 4,61 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta hækkun dagsins. Á sama tíma hækkaði gengi hlutabréfa Eik banka í Færeyjum um 1,78 prósent og stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 1,08 prósent. 24.3.2010 16:57
Veltan 14,3 milljarðar á skuldabréfamarkaði Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,3% í dag í 14,3 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,6% í 6 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,3% í 8,4 milljarða kr. viðskiptum. 24.3.2010 15:52
Bílaleigum afhentir 250 nýir Hyundai bílar Hyundai er fyrst bílaumboða þetta vorið að afhenda nýja bíla til bílaleiga en þær hafa nú fest kaup á u.þ.b. 250 nýjum Hyundai bílum af gerðunum i30 og i20 sem verða afhentir á næstu vikum. 24.3.2010 15:31
Færeyjabanki hagnast um tæpa 9 milljarða Færeyjabanki hefur hagnast um 380 milljónir danskra kr. eða tæpa 9 milljarða kr. á skráningu fiskeldisfélagsins Bakkafrost í kauphöllinni í Osló. 24.3.2010 15:08
Arnór: Hrapaleg mistök að slíta samstarfinu við AGS Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri segir að það væru hrapaleg mistök að slíta samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS). Það myndi kosta lægra gengi en ella og ekki yrði ráðlegt að leysa gjaldeyrishöftin á sama tíma. 24.3.2010 14:08
LÍÚ segir þörf á 100 milljarða afskriftum í sjávarútvegi Afskrifa þarf allt að tuttugu prósent af skuldum sjávarútvegsfyrirtækja eða um hundrað milljarða króna til að þau geti starfað eðlilega og ráðið við sínar skuldbindingar. Þetta segir Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri Landssambands Íslenskra útvegsmanna (LÍÚ). 24.3.2010 13:09
Hotel D´Angleterre í hendur skilanefndar Landsbankans Skilanefnd Landsbankans (LBI) hefur leyst til sín allar eignir Nordic Partners. Stjórnendateymi í Lettlandi undir forystu Daumants Vitols eignast 51% hlutafjár í NP Limited. Aðrar eignir sem LBI leysir til sín frá Nordis Partners eru 5 Dornier þotur og þrjú hótel í Kaupmannahöfn, þar á meðal Hotel D´Angleterre. 24.3.2010 12:55
Gengi krónunnar veikist, vísitalan í 230 stig Gengi krónunnar hefur veikst nokkuð það sem af er degi eða um 0,66%. Gengisvísitalan er nú aftur komin í 230 stig eftir að hafa verið undir því gildi að undanförnu. 24.3.2010 12:23
Greining: Verðbólgan hefur náð hámarki Greining Íslandsbanka telur að verðbólgan hafi nú náð hámarki og að draga fari úr verðbólgu að nýju í næsta mánuði. Spáir greiningin nú 0,9% hækkun vísitölunnar á öðrum ársfjórðungi ársins, og á seinni helmingi ársins telur greiningin að hækkun vísitölunnar muni nema aðeins 1,1% gangi spáin eftir. 24.3.2010 11:52
Auður Capital tapaði 88 milljónum í fyrra Tap Auðar Capital nam 88 milljónum króna í fyrra. Fjárhagsstaða félagsins er mjög traust, fyrirtækið er skuldlaust og eigið fé nemur rúmum 1,1 milljarði króna. 24.3.2010 11:17
Íslandsbanki frestar vaxtahækkunum á húsnæðislán Íslandsbanki hefur tekið ákvörðun um að fresta vaxtaendurskoðun verðtryggðra og erlendra húsnæðislána bankans sem eru á vaxtaendurskoðun á þessu ári, til ársins 2013 Er þetta gert til að koma til móts við þá viðskiptavini bankans sem eru með húsnæðislán og hafa þurft að takast á við hækkandi greiðslubyrði í kjölfarið á veikingu íslensku krónunnar og aukinni verðbólgu. 24.3.2010 10:24
Markaðurinn gerir ráð fyrir 35% endurheimtum hjá Straumi Verð á skuldabréfum í Straumi er nú komið í 35% af nafnverði þeirra að því er kemur fram á vefsíðunni Keldan. Samkvæmt þessu gerir markaðurinn ráð fyrir að þetta hlutfall muni endurheimtast upp í kröfur þrotabúsins. 24.3.2010 09:24
Verðbólgan í takt við spár sérfræðinga Ársverðbólgan er nokkuð í takt við spár sérfræðinga sem gerðu ráð fyrir að verðbólgan myndi mælast á bilinu 8,5 til 8,9%. 24.3.2010 09:08
Verðbólgan 8,5 prósent Verðbólgan mælist nú 8,5 prósent. Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars er 362,9 stig og hækkaði hún um 0,55% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 346,0 stig og hækkaði hún um 1,05% frá febrúar. Þetta kemur fram í frétt frá Haqstofunni. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs því hækkað um 8,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 12,0%. Verðbólgan var 7,3% við síðustu mælingu í febrúar. 24.3.2010 09:00
Hagnaður N1 nam 277 milljónum í fyrra Hagnaður N1 hf. árið 2009 er 277,4 milljónir kr. eftir skatta. Veltufé frá rekstri nam 1,8 milljarður kr. en var 1,2 milljarður kr. árið áður. Eigið fé félagsins er rúmlega 6,6 milljarðar kr. í árslok 2009. 24.3.2010 08:39
Fimmta hver króna ríkissjóðs fer í vaxtagreiðslur Í fyrra voru heildarvaxtagjöld ríkissjóðs 90 milljarðar kr eða 19,5% af tekjum ríkissjóðs og samkvæmt fjárlögum 2010 verða vaxtagjöld í ár 94,3 milljarða kr eða rúm 20% af heildartekjum. Fimmta hver króna sem greidd er í ríkissjóð fer því í vaxtagreiðslur af skuldum ríkissins. 24.3.2010 08:10
Dráttarvextir lækkaðir í 16% Dráttarvextir lækka frá og með 1. apríl næstkomandi um hálfa prósentu og verða 16%. 24.3.2010 08:03
Styrkja vernd minnihluta Ríkisstjórn samþykkti á fundi sínum í dag að vísa tveimur frumvörpum Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, til þingflokka stjórnarflokkanna og Alþingis. Þau eru frumvarp um breytingar á lögum um hlutafélög og einkahlutafélög sem fjallar um vernd minnihluta hluthafa og frumvarp til laga um rannsókn á fjárhagsstöðu skuldugra heimila, sem leggur til að ráðherra verði heimilt að að hleypa af stokkunum víðtækri rannsókn á fjárhagsstöðu heimila og áhrifum úrræða í skuldamálum. 23.3.2010 17:38