FA stendur við sitt þrátt fyrir breytingar á stjórn fiskveiða 25. mars 2010 14:19
Félag atvinnurekenda (FA) stendur við sína kjarasamninga en krefst aðgerða af hálfu stjórnvalda. Félag atvinnurekenda stendur við gerða kjarasamninga þrátt fyrir breytingar á stjórn fiskveiða.Þetta kemur fram í tilkynningu frá FA. Þar segir að ríkisvaldið þurfi hins vegar að vinna hraðar í opinberum framkvæmdum. Aðalframkvæmdatími ársins er að renna upp og of fá verkefni hafa verið undirbúin.Skapa þarf litlum og meðalstórum fyrirtækjum umhverfi til þess að vaxa og laða til sín fólk, það gerist ekki við núverandi vaxtastig.Skattheimta á verslunar og þjónustufyrirtæki er komin út fyrir þolmörk og takmarkar verulega getu fyrirtækja til að bæta við sig fólki. Auka þarf hagkvæmni og ráðdeild í ríkisrekstri.Í ljósi umræðna um stöðugleikasáttmála milli ríkisvaldsins og ýmissa aðila á vinnumarkaði, telur FA rétt að afstaða félagsins komi fram með skýrum hætti. Félagið telur mikilvægt að stöðugleiki ríki á vinnumarkaði og stendur því við sína kjarasamninga. Það er hins vegar mikilvægt að fjárfestingarverkefni, stór og smá, verði að veruleika. Til þess þarf ríkisstjórnin að skapa hvetjandi umgjörð.„Félag atvinnurekenda telur að stöðugleiki á vinnumarkaði sé grundvallarforsenda nú um stundir. Það þarf að fækka óvissuþáttum í efnahagslífinu ekki fjölga þeim. Stjórnvöld þurfa að hvetja þjóðina til góðra verka með markvissum aðgerðum í stað þess að skattleggja fyrirtæki og einstaklinga í kyrrstöðu," segir Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri FA.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Sjá meira