Endurskoðun peningastefnu stendur fyrir dyrum 25. mars 2010 17:00 „
Það stendur einnig til að endurskoða peningastefnuna. Fyrir því er fyrst sú praktíska ástæða að það þarf að móta þá peningastefnu sem tekur við af efnahagsáætluninni með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum því að hún hentar ekki þegar gjaldeyrishöftum hefur verið aflétt og Ísland er aftur orðið í fullum fjármálalegum tengslum við umheiminn."Þetta kom fram í ræðu Más Guðmundssonar seðlabankastjóri í ræðu hans á ársfundi Seðlabanka Íslands sem haldinn var í dag.Már segir að það þurfi líka að draga lærdóm af framkvæmd peningastefnunnar á ofþenslutímanum og í aðdraganda fjármálakreppunnar. Verðbólgumarkmið og flotgengi ollu ekki bankahruninu enda væru þá mun fleiri bankakerfi hrunin um allan heim en raunin varð.„En peningastefnan var hluti af þeirri atburðarás sem hér varð og margvíslegir erfiðleikar komu fram við framkvæmd hennar í þeim aðstæðum sem hún bjó við. Það mun gefast tækifæri til að fjalla um það nánar síðar en vandamálið var að mínu viti ekki verðbólgumarkmiðið sem slíkt enda sýna rannsóknir að lönd í verðbólguvanda eru líklegri til að lenda í bankakreppum heldur en hin og fara líka verr út úr þeim," segir Már Guðmundsson.„Vandinn var fremur að samspil mismunandi hluta efnahagsstefnunnar var ekki sem skyldi auk þess sem ljósara hefur orðið að framkvæmd frjáls flotgengis er flókin og erfið í mjög litlum opnum hagkerfum sem eru tengd umheiminum sterkum fjármálalegum böndum. Þá verður að endurmeta hugmyndir sem byggjast á skörpum skilum á milli peningastefnu og fjármálastöðugleikastefnu og taka verður meira mið af þeirri sérstöku áhættu sem fylgir litlum og óstöðugum gjaldmiðli."Már segir að allt verði skoðað með opnum hug og muni bankinn kryfja til mergjar tvo möguleika: Annars vegar þátttöku í Myntbandalagi Evrópu. Hins vegar þá peningastefnu sem kemur til greina ef Ísland stendur utan Evrópusambandsins og Myntbandalagsins. Sú stefna gæti líka nýst í aðdraganda aðildar ef af verður. Stefnt er að áfangaskýrslu snemma sumars og ítarlegri skýrslu snemma árs 2011.
Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira