Alþjóðlegt fjárfestingarfélag kaupir 20% í Refresco 25. mars 2010 08:42
Eigendur Refresco, eins stærsta drykkjarvöruframleiðanda Evrópu, og alþjóðlega fjárfestingafélagið 3i hafa gert samkomulag um að 3i kaupi nýtt hlutafé í Refresco, sem nemur 20% af heildarhlutafé Refresco. Verðmæti fjárfestingarinnar nemur 84 milljónum evra, um 14,5 milljörðum íslenskra króna, sem verður að fullu nýtt til að styðja við frekari vöxt Refresco. Núverandi hluthafar, hópur íslenskra fjárfesta undir forystu Stoða og stjórnendur Refresco, verða áfram meirihlutaeigendur og styðja innkomu 3i. Í tilkynningu segir að Refresco er nú stærsti framleiðandi Evrópu á sérmerktum drykkjarvörum, gosdrykkjum og ávaxtasöfum, með starfsemi í 19 verksmiðjum í 8 Evrópulöndum. Vaxtarstefna Refresco miðar að því að styrkja enn frekar leiðandi stöðu fyrirtækisins á Evrópumarkaði með yfirtökum samhliða innri vexti. Þetta er í annað sinn sem 3i fjárfestir í Refresco. 3i var stærsti eigandi Refresco á árunum frá 2003 til 2006, sem voru farsæl rekstrarár og hagnaðist 3i vel á fjárfestingu sinni við sölu í apríl 2006. Stoðir, Kaupþing og Vífilfell keyptu þá 80% hlutafjár Refresco og innleiddu ásamt stjórnendum sóknarstefnu um uppbyggingu Refresco með yfirtökum samhliða hagræðingu og innri vexti. Á síðastliðnum þremur árum hafa tekjur og arðsemi Refresco tvöfaldast. Heildarvelta Refresco á árinu 2009 nam um 1,2 milljörðum evra, yfir 200 milljörðum íslenskra króna. Eftir hlutafjáraukninguna sem kynnt var í dag eiga Stoðir, Kaupþing og Vífillfell samtals 62% hlut í Refresco. „Við erum afar ánægð með hlutafjáraukninguna og endurkomu 3i í hluthafahópinn. Refresco er ört vaxandi fyrirtæki með metnaðarfull framtíðaráform. Við munum áfram fylgja vaxtarstefnu okkar og treysta enn frekar leiðandi stöðu Refresco í Evrópu með markvissum yfirtökum og áframhaldandi innri vexti. Við vitum að 3i er áreiðanlegur og traustur samstarfsaðili sem mun styðja okkur í að ná markmiðum okkar, " segir Hans Roelofs, forstjóri Refresco. „Fjárfesting 3i í Refresco er frábært tækifæri til að styðja við bakið á leiðandi fyrirtæki á sínu sviði í Evrópu og nýta vaxtarmöguleika þess til fulls. Við höfum mikla þekkingu á starfsemi Refresco, höfum átt gott samstarf við afar hæfa stjórnendur félagsins, og og höfum mikla trú á framtíð Refresco. Íslensku hluthafarnir hafa unnið frábært starf síðastliðin ár hvað varðar fjárhagslegan stuðning, stefnumótun og rekstur Refresco. Markmið með minnihlutafjárfestingu 3i í Refresco er í fullu samræmi við markmið stjórnenda og hluthafa Refresco," segir Pieter de Jong, framkvæmdastjóri 3i, Benelux. „Við fögnum komu 3i inn í hluthafahóp Refresco, enda teljum við 3i afar sterkan og trúverðugan samstarfsaðila. Viðskiptin staðfesta sterka frammistöðu Refresco á undanförnum árum og gera félaginu kleift að sækja enn frekar fram. Stoðir, Kaupþing og Vifilfell verða áfram kjölfestufjárfestar í Refresco og með nýjum, öflugum samstarfsaðila er Refresco í ákjósanlegri stöðu til að halda áfram árangursríkri sóknarstefnu sinni á næstu árum, öllum hluthöfum til hagsbóta," segir Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stoða í tilkynningunni.
Mest lesið Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Sjá meira