Endurskipulagingu Icelandair að ljúka, engar afskriftir 26. mars 2010 08:07
Icelandair Group hf. og stærstu lánveitendur félagsins, Íslandsbanki og Glitnir banki hf., hafa komist að samkomulagi um með hvaða hætti stefnt skuli að því að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair Group.Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að í endurskipulagningunni er meðal annars gert ráð fyrir aðkomu annarra lánveitenda auk leigusala flugvéla sem dótturfélög Icelandair Group nýta í rekstri sínum. Leita þarf eftir samþykki hlutahafafundar samstæðunnar fyrir ákveðnum þáttum endurskipulagningarinnar, auk endanlegs samþykkis lánveitenda. Engar skuldir samstæðunnar verða afskrifaðar.Daglegur rekstur samstæðunnar hefur gengið vel undanfarin misseri, en há fjármagnsgjöld og miklar skammtímaskuldir hafa haft neikvæð áhrif á stöðu félagsins. Stjórnendur Icelandair Group hafa undanfarna mánuði unnið náið með lánveitendum að fjárhagslegri endurskipulagningu til að treysta grunn félagsins. Icelandair Group hefur auk þess haft sér til ráðgjafar erlendan banka með sérþekkingu á sviði flugrekstrar.Ef endurskipulagningin gengur eftir er gert ráð fyrir að innlendir lánveitendur breyti skuldum að fjárhæð um 4,8 milljörðum króna í hlutafé. Auk þess verða skuldir að fjárhæð 7,7 milljarðar króna ásamt jafnvirði eigna færðar í sérstakt eignarhaldsfélag sem verður í eigu innlendra lánveitenda. Eftir í Icelandair Group verða þær eignir sem stjórn samstæðunnar hefur skilgreint sem kjarnastarfsemi: Icelandair, Flugfélag Íslands, Iceland Travel (Vita), Icelandair Cargo, Icelandair Hotels, Icelandair Ground Services,Loftleiðir-Icelandic og Fjárvakur auk lettneska leiguflugfélagsins SmartLynx, sem stefnt er að fari út úr samstæðunni á árinu.Að lokum er gert ráð fyrir að fjárfestum og almenningi verði gefinn kostur á að leggja félaginu til nýtt hlutafé í hlutafjárútboðum á árinu sem fara munu fram í tveimur hlutum. Fyrri hluti verður lokað útboð meðal afmarkaðs hóps fagfjárfesta. Í framhaldi af því er stefnt að almennu hlutafjárútboði en það er vilji Icelandair Group, Íslandsbanka og Glitnis að tryggja aðkomu breiðs hóps fjárfesta, jafnt fagfjárfesta og almennra fjárfesta. Icelandair Group hefur falið fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka að hafa umsjón með hlutafjárútboðunum.Samkvæmt bráðabirgðarekstrarreikningi nam heildarvelta félagsins á árinu 2009 80,3 milljörðum króna af áframhaldandi starfsemi. Þar af nam velta kjarnastarfsemi 75,2 milljörðum króna. Hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) nam 8,1 milljarði króna og af kjarnastarfsemi 7,3 milljörðum króna. Með fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins verður áætluð velta ársins 2010 78,2 milljarðar króna af kjarnastarfsemi og áætluð EBITDA 7,6 milljarðar króna.„Með fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair Group mun lausa- og eiginfjárstaða styrkjast til muna og gera samstæðunni kleift að takast betur á við árstíðarbundnar sveiflur í rekstri og styðja við innri vöxt," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair í tilkynningunni.„Með því að selja þær eignir sem ekki tilheyra kjarnastarfsemi hefur félagið einfaldað viðskiptalíkan sitt og með endurskipulögðum efnahagsreikningi er félagið í aðstöðu til að skila góðri rekstrarafkomu og standa við skuldbindingar sínar. Icelandair Group er að hverfa frá því að vera fjárfestingarfélag í að vera rekstrarfélag í alhliða ferða- og flugþjónustu."
Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira