Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Beðið er sprotafregna „Áhættufjárfestingar eru mun þróaðri í Bandaríkjunum en í Evrópu. Evrópskir fjárfestar eru varfærnari en kollegar þeirra vestan hafs og fréttir af góðu gengi sprotafyrirtækja þar eru sömuleiðis mun fleiri en í Evrópu. Síðasta stóra jákvæða fréttin af sprotafyrirtæki í Evrópu var af kaupum eBay á Skype. En það var fyrir fjórum árum!“ segir Kimberly Romaine, aðalritstjóri breska fréttablaðsins Unquote. „Alltaf þegar jákvæðar fréttir berast úr ranni sprotafyrirtækja tekur fjárfestingamarkaðurinn við sér,“ segir hún. 8.4.2009 02:30
Á hverju er nú von? Þegar Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, lokaði Nasdaq-markaðnum minntist hann á gott gengi íslensks efnahagslífs, sem hann sagðist vilja að héldi áfram á sömu braut. Hann sagðist vona að nú sæi fram á betri tíma þegar ný löggjöf um aðgerðir gegn fjármálakreppunni færi í gegn á Bandaríkjaþingi til hagsbóta fyrir fyrirtæki í Bandaríkjunum og um allan heim. 8.4.2009 00:01
Hverjum bjallan glymur Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra og Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, lokuðu fyrir viðskipti á Nasdaq-hlutabréfamarkaðnum í Bandaríkjunum við hátíðlega athöfn í gærkvöldi. 8.4.2009 00:01
Edda Rós til AGS „Mér þótti þetta starf mjög spennandi og sótti um. Hætti hjá bankanum fyrir hádegi á föstudag [í síðustu viku] og byrjaði á skrifstofu fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) eftir hádegið,“ segir Edda Rós Karlsdóttir, áður hagfræðingur hjá Landsbankanum. 8.4.2009 00:01
Viðskiptaráðherra lokar fjármálamarkaði Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, dótturfyrirtæki Icelandair Group lokaði NASDAQ markaðnum ásamt Gylfa Magnússyni, viðskiptaráðherra, við hátíðlega athöfn í kvöld að NASDAQ MarketSite, Times Square í New York. 7.4.2009 22:02
Gylfi í New York: Íslenskt viðskiptalíf vel starfhæft Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, ávarpaði í dag fund Íslensk-ameríska verslunarráðsins sem fram fór í Scandinavia House í New York. Í ræðu sinni rakti Gylfi aðdraganda bankahrunsins á Íslandi, gerði grein fyrir þeim aðgerðum sem íslensk stjórnvöld hafa gripið til í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS), og fór yfir stöðu og langtímahorfur í íslensku efnahagslífi. 7.4.2009 16:12
Ákvörðun um stýrivexti kynnt á morgun Kynningarfundur verður haldinn í Seðlabanka Íslands á morgun fyrir blaða- og fréttamenn og sérfræðinga ýmissa stofnana í tilefni af ákvörðun peningastefnunefndar um stýrivexti Seðlabanka Íslands. 7.4.2009 14:41
Fullyrðingar í auglýsingum Vodafone bannaðar Neytendastofu barst erindi frá Símanum í október 2008 þar sem kvartað var yfir auglýsingum Vodafone á áskriftarleiðinni Vodafone Gull. Taldi Síminn auglýsingarnar brjóta gegn ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, þar sem í þær vanti mikilvægar upplýsingar og fram komi fyllyrðingar sem ekki séu réttar. Auglýsingarnar séu því bæði villandi gagnvar neytendum og ósanngjarnar í garð keppinauta. 7.4.2009 14:23
Sævar Karl og frú dæmd til að greiða tæpar 8 milljónir Sævar Karl Ólason fyrrverandi kaupmaður og eiginkona hans voru í dag dæmd til þess að greiða Vigfúsi Guðbrandssyni & Co. ehf tæpar 7.600.000 krónur. Sævar og eiginkona hans seldu þeim síðarnefnda allt hlutafé í félagi sínu í júlí 2007. Kaupverðið er trúnaðarmál en til frádráttar því komu langtímaskuldir fasteignar upp á rúmar 88.000.000 krónar auk skuldar á einkareikningi upp á tæpar 1.900.000 krónur. Fjárhæðin sem Sævar og frú þurfa að greiða eru úttektir þeirra á árinu 2006. Einnig voru þau dæmd til þess að greiða málskostnað upp á 450.000 krónur. 7.4.2009 13:04
Heildarviðskipti með hlutabréf í mars námu 4,4 milljörðum Heildarviðskipti með hlutabréf í mars námu 4,4 milljörðum sem jafngildir 199 milljóna veltu á dag. Markaðsvirði skráðra fyrirtækja var 157 milljarðar í lok mars. Úrvalsvísitala Aðalmarkaðar (OMXI6) stóð 673,44 stigum í lok síðasta mánaðar og heildarvísitala Aðalmarkaðar (OMXIPI) stóð í 386,80. Þetta kemur fram í marsyfirliti NASDAQ OMX Iceland. 7.4.2009 12:55
Raungengið ekki verið lægra í þrjá áratugi Raungengi krónunnar er nú talsvert lægra en verið hefur síðustu þrjá áratugi. Lætur nærri að hlutfallslegt verð á neysluvörum og þjónustu hér á landi miðað við önnur lönd hafi verið 30% lægra á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en raunin var að meðaltali undanfarin 30 ár og staðan er svipuð þegar launakostnaður á Íslandi er borinn saman við viðskiptalönd okkar, að því er fram kemur í morgunkorni Íslandsbanka. 7.4.2009 12:54
Helmingur stærstu fyrirtækja landsins ráða í ný störf Rúmlega helmingur stærstu fyrirtækja landsins ætlar að ráða í ný störf á þessu ári. Þetta kemur fram í könnun Atvinnuþjónustu Háskólans í Reykjavík. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að nokkur hreyfing sé vinnumarkaði um þessar mundir og um 400 störf í boði. 7.4.2009 12:24
Gylfi lokar NASDAQ markaðnum Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, og Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, munu loka NASDAQ markaðnum við hátíðlega athöfn í dag að NASDAQ MarketSite sem er á Times Square í hjarta í New York. Athöfnin hefst klukkan 15:45 að bandarískum tíma eða klukkan 19:45 að íslenskum tíma. 7.4.2009 09:35
Yfirtökutilboð Ágúst og Lýðs lækkað Fjármálaeftirlitið hefur lækkað lágmarksverð í yfirtökutilboði félagsins BBR ehf, sem er í eigu bræðranna Lýðs og Ágústs Guðmundssona, í Exista. Félagið var skylt til þess að taka yfir Exista ehf en þá var verðið 4,62 á hlut. Nú er það 0,02 á hlut. 6.4.2009 17:40
Rólegt í Kauphöllinni Lítið var um viðskipti í Kauphöll Íslands í dag. Einungis voru gerð viðskipti með fimm af þeim sautján félögum sem eftir eru í Kauphöllinni. 6.4.2009 16:29
Hudson í HR og á fundi Framsóknar Michael Hudson, rannsóknarprófessor í hagfræði við Háskólann í Missouri, heldur fyrirlestur við Háskólann í Reykjavík í hádeginu á morgun. Í tilkynningu frá Háskólanum kemur fram að í fyrirlestrinum lýsi dr. Hudson í stuttu máli skoðun sinni á erlendri skuldastöðu Íslands, aðdraganda og valkostum við úrlausn hennar, þ.m.t. aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að málinu. 6.4.2009 16:10
Engir fjármunir færðir frá Spron yfir í Nýja Kaupþing Í ljósi umræðu í fjölmiðlum í dag vill Nýja Kaupþing árétta að í kjölfar þess að Fjármálaeftirlitið tók yfir rekstur SPRON fóru stjórnvöld þess á leit við Nýja Kaupþing að allar innstæður fyrrum viðskiptavina SPRON og nb.is færðust yfir til bankans. Í tilkynningu frá Nýja Kaupþing segir að meginmarkmið stjórnvalda með þessu hafi verið að tryggja aðgengi fyrrum viðskiptavina SPRON að innstæðum sínum enda eru allar innstæður tryggðar samkvæmt yfirlýsingu ríkistjórnarinnar. 6.4.2009 15:49
Landsbankinn boðar til blaðamannafundar Landsbankinn hefur boðað til blaðamannafundar klukkan hálffimm dag í höfuðstöðvum bankans í Austurstræti. Á fundinum verður Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Landsbankans, með stutta kynningu. Í tilkynningu frá bankanum kemur ekki fram hvert tilefni fundarsins er. 6.4.2009 15:01
Síðasti áfanginn í greiðslustöðvun Stoða - heimilað að leita samninga Héraðsdómur Reykjavíkur veitti í dag Stoðum heimild til að leita nauðasamninga við kröfuhafa sína. Upplýsingafulltrúi fyrirtækisins segir að um sé að ræða seinasta áfangann í greiðslustöðvunarferli Stoða. 6.4.2009 14:49
Reynt að leysa jöklabréfavandann Ýmsar hugmyndir hafa verið settar fram um hvernig leysa eigi jöklabréfavandann. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur sett sig upp á móti þeim hugmyndum. 6.4.2009 12:47
Kaupin á Spron í uppnámi vegna Nýja Kaupþings Samkomulagið um kaup MP banka á útibúaneti Spron fyrir 800 milljónir króna er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og Fjármálaeftirlitsins. 6.4.2009 12:34
Greining Íslandsbanka spáir vaxtalækkun upp á 1 prósentustig Greining Íslandsbanka spáir því í morgunkorni sínu að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákveði að lækka stýrivexti á miðvikudag um eitt prósentustig. Um er að ræða aukavaxtaákvörðunardag en vegna óvissu um horfur í hagkerfinu og samspil vaxta og gengis taldi nefndin á síðasta fundi sínum rétt að fjölga vaxtaákvörðunarfundum sínum. „Verður vaxtaákvörðun því í fyrstu viku hvers mánaðar frá apríl til júlí og í annarri viku ágústmánaðar," segir í morgunkorninu. 6.4.2009 12:00
Engar viðræður við AGS um upptöku evru Stjórnvöld hafa ekki átt í viðræðum við fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um einhliða upptöku evru í stað íslensku krónunnar. Þetta kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, á Alþingi í dag þegar að Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hann út í trúnaðarskýrslu sem breska dagblaðið Financial Times komst yfir. 6.4.2009 10:59
Gengi Marel Food Systems lækkar mest í byrjun dags Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur lækkað um 1,3 prósent frá því viðskipti hófust á hlutabréfamarkaði hér í morgun. Gengi bréfa í fyrirtækinu stendur í 41,3 krónum á hlut og hefur ekki verið lægra síðan í aprílok 2004. 6.4.2009 10:19
Fleiri fjárfesta í sprotafyrirtækjum Stór fyrirtækjakaup heyra sögunni til í bili og hafa fjárfestingasjóðir í Evrópu beint sjónum sínum í auknum mæli að fjárfestingum í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Þetta segir Kimberly Romaine, ristjóri breska tímaritsins Unquote. 4.4.2009 08:30
Mikið atvinnuleysi í Bandaríkjunum Atvinnuleysi mældist 8,5 prósent í Bandaríkjunum í síðasta mánuði, samkvæmt tölum bandarísku vinnumálastofnunarinnar, sem birtar voru í gær. Þetta er í samræmi við spár. 4.4.2009 06:30
Jákvæð vöruskipti Vöruskipti voru jákvæð um 8,3 milljarða króna í mars, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Verðmæti vöruútflutnings nam 34,9 milljörðum króna á óbreyttu gengi í mánuðinum en verðmæti innflutnings 26,6 milljörðum króna á sama tíma. 4.4.2009 04:30
Eik tapaði 31,6 milljónum Eik fasteignafélag tapaði 31,6 milljónum króna á síðasta ári samanborið við 1,7 milljarða króna hagnað í hittiðfyrra. Í uppgjöri félagsins kemur fram að reksturinn hafi gengið mjög vel þrátt fyrir mjög erfið skilyrði. 4.4.2009 04:00
Opnun útibúa SPRON frestast MP Banki mun ekki geta opnað á ný þrjú útibú SPRON á mánudag eftir helgi eins og stefnt var að þegar gengið var frá samkomulagi við skilanefnd SPRON um kaup MP Banka á Netbankanum og útibúaneti SPRON. Ekki er hægt að tilgreina nýja opnunar dagsetningu á þessari stundu. 3.4.2009 21:01
Sparisjóðurinn í Keflavík tapaði 19 milljörðum Sparisjóðurinn í Keflavík tapaði 19 milljörðum króna fyrir skatta í fyrra. Afkoma sjóðsins var neikvæð um 17.042 milljónir króna að teknu tilliti til tekjuskatts. Eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins er 7,06%. Afkoma Sparisjóðsins fyrir skatta var neikvæð um 19.064 milljónir króna. Fram kemur í tilkynningu á vef Kauphallarinnar að tap Sparisjóðsins má fyrst og fremst rekja til eignarýrnunar vegna efnahagshrunsins og varúðarniðurfærslu á útistandandi kröfum. 3.4.2009 20:05
Nýi Kaupþingsbankinn sakaður um sóðaleg vinnubrögð Mikil óánægja er meðal kröfuhafa Pennans eftir að fyrirtækið var sett í gjaldþrotameðferð í gær að kröfu Nýja Kaupþings. Bankinn keypti rekstur fyrirtækisins og stofnaði í kringum hann nýja kennitölu. Kröfuhafar saka bankann um kennitöluflakk og sóðaleg vinnubrögð. 3.4.2009 18:42
Úrræðum beitt gegn fyrirtækjum sem skila ekki ársreikningum Ársreikningaskrá undirbýr kæru til skattrannsóknarstjóra vegna málefna BM Vallár og annarra félaga sem ekki hafa skilað ársreikningum til opinberrar birtingar svo árum skipti. Á sama tíma er BM Vallá að hefja mál gegn ársreikningaskrá. 3.4.2009 18:54
Almenni lífeyrissjóðurinn hefur sjálfstæðan rekstur Almenni lífeyrissjóðurinn mun hefja sjálfstæðan rekstur þann 1. maí 2009 en sjóðurinn var áður með rekstrarsamning við Íslandsbanka hf. Almenni lífeyrissjóðurinn er fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins, að fram kemur í tilkynningu. 3.4.2009 17:36
Kaupþing yfirtekur Sparisjóð Mýrasýslu Sparisjóður Mýrasýslu hefur samið við stærstu lánadrottna sína og gert samning við Nýja Kaupþing um að bankinn kaupi allar eignir sparisjóðsins. Í tilkynningu segir að þetta hafi verið gert til þess að tryggja áframhaldandi þjónustu við viðskiptavini sjóðsins og með hagsmuni samfélagsins í huga. 3.4.2009 17:15
Innlán Straums færð til Íslandsbanka Íslandsbanki hf. hefur yfirtekið skuldbindingar Straums vegna innlána í höfuðstöðvum bankans á Íslandi. 3.4.2009 16:47
Rannsóknarnefndin: 100 stærstu viðskiptavinir með helming lánanna Útlán Glitnis, Kaupþings og Landsbankans til 100 stærstu lántakenda þeirra námu um helmingi af heildarútlánum bankanna þriggja. Þetta kemur fram í minnisblaði frá Rannsóknarnefnd Alþingis sem ætlað er að kanna bankahrunið. Nefndin stóð fyrir blaðamannafundi í dag þar sem þar sem Páll Hreinsson formaður og Tryggvi Gunnarsson kynntu framgang og stöðu rannsóknar nefndarinnar. 3.4.2009 16:42
Century Aluminium upp um 41% í dag Century Aluminium tók mikið stökk í kauphöllinni í dag og hækkaði um 41%. Annars var markaðurinn á neikvæðu nótunum, úrvalsvísitalan lækkaði um 0,6% og stendur í 215 stigum. 3.4.2009 16:37
Almenni lífeyrissjóðurinn hefur sjálfstæðan rekstur Almenni lífeyrissjóðurinn mun hefja sjálfstæðan rekstur þann 1. maí 2009 en sjóðurinn var áður með rekstrarsamning við Íslandsbanka hf. 3.4.2009 15:38
Rekstur Eik gekk vel í fyrra þrátt fyrir erfið skilyrði Rekstur Eik fasteignafélags gekk mjög vel á síðasta ári þrátt fyrir mjög erfið skilyrði og mikil umbrot í íslensku fjármálaumhverfi. Tap af rekstrinum nam rúmlega 36 milljónum kr. 3.4.2009 15:05
Stoðir óska eftir heimild til nauðasamninga Stoðir hafa óskað eftir heimild Héraðsdóms Reykjavíkur til að leita nauðasamninga við kröfuhafa sína. 3.4.2009 13:58
Sjö tilkynningar um hópuppsagnir bárust í mars Í mars bárust Vinnumálastofnun 7 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem sagt var upp samtals 357 einstaklingum. 3.4.2009 13:25
Afleiðingar gjaldeyrishafta verða lökustu lífskjör í Evrópu Lífskjör á Íslandi færast 60 ár aftur í tímann og verða með þeim lökustu í Evrópu ef ekki verður losað um gjaldeyrishöft og stýrivextir lækkaðir. Þetta kom fram í máli Margeirs Péturssonar, stjórnarformanns MP banka, í þættinum Markaðurinn með Birni Inga Hrafnssyni í gærkvöldi. 3.4.2009 12:31
Viðskiptaráðherra vill breyta lögum om bankaleynd Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir að fjölmiðlar eigi að geta upplýst almenning um mikilvæg atriði eins og óeðlilegar lánveitingar bankamanna. Hann beitir sér fyrir breytingum á lögum um bankaleynd. Ásakanir Fjármálaeftirlitsins um að blaðamenn brjóti bankaleynd séu innlegg í málið. 3.4.2009 12:20
Skyldar Senu til að selja Skífuna ótengdum aðila Samkeppniseftirlitið leggur þá skyldu á Senu að Skífan verði seld til ótengds aðila. Á meðan söluferli Skífunnar stendur yfir og þar til Skífan verður seld hafa samrunaaðilar fallist á að hlíta tilteknum skilyrðum sem er ætlað að koma í veg fyrir þau samkeppnislega skaðlegu áhrif sem af samrunanum stafar á meðan Skífan er enn í eigu Senu. 3.4.2009 11:56
FME: Ekki tilkynnt sérstaklega að forstjórinn væri regluvörður Fjármálaeftirlitinu barst ekki sérstök tilkynning um að Höskuldur Ásgeirsson, þáverandi forstjóri Nýsis, hefði verið ráðinn regluvörður félagsins. Stofnunin rannsakar málið. Þetta kemur fram í athugasemd frá FME vegna fréttar á Vísi í gær. Þar var greint frá því að forstjóri Nýsis hefði einnig verið regluvörður félagsins. 3.4.2009 11:49