Gylfi í New York: Íslenskt viðskiptalíf vel starfhæft 7. apríl 2009 16:12 Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra
Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, ávarpaði í dag fund Íslensk-ameríska verslunarráðsins sem fram fór í Scandinavia House í New York. Í ræðu sinni rakti Gylfi aðdraganda bankahrunsins á Íslandi, gerði grein fyrir þeim aðgerðum sem íslensk stjórnvöld hafa gripið til í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS), og fór yfir stöðu og langtímahorfur í íslensku efnahagslífi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu. Þar segir ennfremur að Gylfi hafi undirstrikað að íslenskt viðskiptalíf væri starfhæft þrátt fyrir það mikla efnahagsáfall sem riðið hefði yfir, og þó að næstu tvö árin yrðu erfið þá væru langtímahorfur á Íslandi tiltölulega jákvæðar. Hann sagði íslensk fyrirtæki vera reiðubúin til þess að eiga áframhaldandi gott viðskiptasamstarf við Bandaríkin. „Í gær 6. apríl átti viðskiptaráðherra fundi í Washington D.C. í bandaríska utanríkisráðuneytinu, viðskiptaráðuneytinu og á skrifstofu viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna. Auk þess hitti hann fulltrúa bandaríska fjármálaráðuneytisins og AGS. Tilgangur fundanna með bandarískum stjórnvöldum var að gera grein fyrir framvindu efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS, og gera grein fyrir langtímahorfum í íslensku efnahagslífi. Í ferð sinni til Bandaríkjanna veitti viðskiptaráðherra bandarískum fjölmiðlum viðtöl um efnahagsástandið og langtímahorfur á Íslandi, m.a. Fox News, Bloomberg og CNBC."
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira