Viðskipti innlent

FÍB spyr flokkana um aðgerðir vegna bílalána í erlendri mynt

Í bréfi sem Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, hefur sent öllum stjórnmálaflokkunum og -hreyfingum er m.a. spurt um hvort mótaðar hafi verið hugmyndir um viðbrögð við greiðsluerfiðleikum fólks vegna bílalána í erlendri mynt, til hvaða aðgerða sé fyrirhugað að grípa til og hvenær, til að leysa vanda þeirra sem eiga í erfiðleikum með það að standa í skilum með afborganir af þessum lánum.

Í tilkynningu segir að undanfarið hafi fjöldi fólks sem komið er í greiðsluvanda með bílalán sín, leitað til FÍB. Fjölmargar fjölskyldur endurnýjuðu bíla sína á undangengnum þensluárunum, og oftar en ekki með lánsfé sem þá var auðfengið hjá bönkum og fjármögnunarfyrirtækjum. Erlend myntkörfulán voru algengust og gjarnan tryggð með sérstöku veði í heimilum lántakenda og ábyrgðarmanna.

Í kjölfar gengishruns íslensku krónunnar hefur höfuðstóll þessara lána hækkað gríðarlega með samsvarandi áhrifum á afborganir.

Bankarnir og fjármögnunarfyrirtækin hafa flest boðið upp á tímabundna greiðslufrystingu fyrir þá sem eru með lán sín í skilum. Það kann að reynast skammgóður vermir. Aðrir sem ekki njóta slíkrar frystingar þurfa hins vegar að róa þungan róður.

Í mörgum tilfellum eru bifreiðalán að leggja fjárhag fjölskyldna að velli. Á sama tíma er nánast einvörðungu rætt um lausnir á vanda tengdum húsnæðislánunum. Rétt er að halda því til haga að því fer fjarri að FÍB sé að draga úr þeim vanda.

Hins vegar telur félagið brýnt að lausnir verði einnig fundnar á vanda þeirra sem í góðri trú tóku lán í erlendri mynt til kaupa á fjölskyldubifreið. Þessir einstaklingar eru nú í bráðri hættu á að missa heimili sín vegna hækkandi bílalána.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×