Frumtak festir kaup á Aðgerðargreiningu ehf. 21. apríl 2009 14:21
Frumtak hefur lokið annarri fjárfestingu sinni og fest kaup á hlut í AGR - Aðgerðargreiningu ehf. AGR var stofnað árið 1998 í framhaldi af rannsóknarverkefnum við verkfræðideild Háskóla Íslands. Í nánu samstarfi við Rannís og Háskólann í Reykjavík hefur fyrirtækið undanfarin ár þróað aðferðir og hugbúnað fyrir alþjóðlegan markað. Í tilkynningu segir að helsta afurð fyrirtækisins er AGR Inventory Optimiser sem innleitt hefur verið hjá yfir 50 fyrirtækjum í 11 löndum. Grunnþróun AGR hefur alfarið farið fram hérlendis í samstarfi við fyrirtæki í vörudreifingu, framleiðslu og verslun. Kerfið framkvæmir söluspár fyrir hverja vöru og velur sjálfvirkt þá fræðilegu spáaðferð sem hentar best fyrir hverja vöru. Helstu markaðssvæði AGR er í Evrópu með áherslu á Norðurlöndin, Bretland og Holland. Fyrirtækið rekur tvær skrifstofur undir merkjum AGR í Bretlandi og Danmörku en vinnur einnig náið með mörgum þekktum endursöluaðilum á meginlandinu s.s Microsoft og K3. „AGR er vænlegur fjárfestingakostur fyrir Frumtak" segir dr. Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks. „AGR hefur náð miklum árangri í sölu birgðastýringalausna sinna. Við væntum mikils af fyrirtækinu og erum sérstaklega áhugasamir að sjá fyrirtækið nýta sérþekkingu sína í sölu á bigðastýringalausnum á erlendum mörkuðum. Þarna eru mikil tækifæri sem hægt er að nýta með því fjármagni sem fyrirtækið fær". „Eftir að hafa unnið undanfarin ár með mörgum af helstu innflutningsfyrirtækjum landsins hefur AGR byggt upp yfirgripsmikla þekkingu á sviði birgðastýringar," segir Haukur Hannesson, framkvæmdastjóri AGR. „Við höfum einnig sannreynt að mikil þörf er fyrir slík kerfi erlendis þar sem fyrirtæki eru að glíma við nákvæmlega sömu vandamál og íslensk fyrirtæki. Það er því meiri eftirspurn eftir kerfinu í núverandi efnahagsástandi þar sem mikil pressa er á stjórnendum fyrirtækja að minnka bundið fé í birgðum. Það er ljóst að samstarf AGR og Frumtaks mun gera AGR kleift að auka áherslu á markaðssetningu og sölu á lausnum sínum." Frumtak er samlagssjóður í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sex af stærstu lífeyrissjóðum landsins og þriggja banka.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira