Viðskipti innlent

Sótt um lóð undir olíubirgðastöð á Reyðarfirði

Verkfræðistofan Mannvit hefur sótt um lóð fyrir 244.000 rúmmetra olíubirgðastöð á Reyðarfirði, fyrir hönd Atlantic Tank Storage og var fjallað um umsóknina í umhverfisnefnd Fjarðarbyggðar í dag.

Í tilkynningu segir að birgðastöðin er hönnuð fyrir geymslu á almennum olíuvörum þ.m.t. bensíni, gasolíu og jarðolíu og er gert ráð fyrir að í stöðinni verði um 13 geymar. Áætlaður byggingartími er 15-18 mánuðir og er gert ráð fyrir 120 til 150 ársverkum við byggingu stöðvarinnar. Þegar byggingunni er lokið munu þrír til fimm starfsmenn annast reksturinn.

Stöðin verður rekin sem tollvörugeymsla og birgðastöð fyrir olíuvörur sem eru á leið á markaði í Ameríku og Evrópu og hún getur einnig nýst í tengslum við fyrirhugaða olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Gert er ráð fyrir að stöðin geti bæði tekið á móti jarðolíum og unnum olíuvörum eins og bensíni.

Reyðarfjörður hefur marga kosti fyrir þjónustu sem þessa. Þar er höfn fyrir stór olíuskip með 14,3 m djúpristu. Ennfremur hefur Reyðarfjörður öfluga dráttarbátaþjónustu, gott slökkvilið og almenna tækniþjónustu. Síðast en ekki síst er Reyðarfjörður vel staðsettur með tilliti til olíumarkaða í Bandaríkjunum og Evrópu enda liggur Reyðarfjörður vel við skipaleiðum til stórra olíuhafna í Rotterdam, Mongstad og Murmansk.

Hugmyndin að þessu verkefninu kviknaði fyrir tveimur árum og hefur Mannvit unnið markvisst að undirbúningi þess frá því í september 2008. Mannvit kynnti verkefnið fyrir Atlantik Tank Storage í janúar síðast liðnum og hafa fyrirtækin skrifað undir samstarfsamning um verkefnið.

Verkfræðistofan Mannvit er stærsta ráðgjafafyrirtæki landsins á sviði verkfræði og tækni með starfsstöðvar á níu stöðum utan höfuðborgarinnar. Þá er fyrirtækið með fjölmörg verkefni erlendis meðal annars í gegnum dótturfyrirtæki í Ungverjalandi.

Atlantic Tank Storage er íslenskt fyrirtæki sem var stofnað árið 2006. Fyrirtækið leigir og rekur þrjár olíubirgðastöðvar á Íslandi , tvær í Hvalfirði, eina í Helguvík auk einnar birgðastöðvar í Noregi. Fyrirtækið er í meirihlutaeigu stærsta olíugeymslufyrirtækis Svíþjóðar, Scandinavian Tank Storage, en það á og rekur birgðastöðvar á Norðurlöndunum og þjónar þar mörgum af stærstu olíufyrirtækjum Evrópu. Hjá fyrirtækjunum tveimur starfa um 30 manns.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×