Hamfarir síðasta árs voru Seðlabankanum erfiðar Óli Kristján Ármannsson skrifar 22. apríl 2009 06:00 Hér ræða málin Edda Rós Karlsdóttir hagfræðingur sem nú starfar á skrifstofu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, Franek Rozwadowski, sendifulltrúi AGS með aðsetur hér, Svein Harald Øygard seðlabankastjóri og Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings. Mynd/Valli
Hamfarir alþjóðlegu fjármálakreppunnar, gjaldeyriskreppa Íslands og fall fjármálakerfisins endurspeglast í reikningum Seðlabankans fyrir síðasta ár sem lagðir voru fram á ársfundi bankans fyrir helgi. Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabankans, hóf enda erindi sitt á ársfundinum á því að benda á að síðasta ár hefði verið Seðlabanka Íslands þungt í skauti eins og öðrum stofnunum, fyrirtækjum og einstaklingum. Góðmennt var að venju á ársfundi Seðlabankans og saman komin á honum mörg helstu fyrirmenni íslensks viðskipta- og stjórnmálalífs. Þeir sem mætt hafa síðustu ár gátu þó merkt að heldur var rýmra um mannskapinn en oft áður, og fleiri sæti laus þegar formaður bankaráðsins, seðlabankastjórinn og forsætisráðherra fluttu ræður sínar. Eigið fé Seðlabankans rýrnaði um einn tíunda, fór úr 91 milljarði króna í árslok 2007 í 82 milljarða í lok síðasta árs. Samkvæmt rekstrarreikningi tapaði Seðlabankinn 8,6 milljörðum króna, samanborið við 1,2 milljarða árið áður. „Aukið tap verður þrátt fyrir að hreinar vaxtatekjur bankans hafi aukist, en þær námu um tuttugu milljörðum króna á árinu 2008 samanborið við sex milljarða árið á undan. Skýringin liggur fyrst og fremst í því að stöðustærðir sem vextir reiknast af hafa hækkað talsvert að meðaltali milli ára. Þannig námu heildareignir í árslok 2007 tæplega 500 milljörðum króna en voru ári síðar orðnar um 1.200 milljarðar," bendir Lára á. Sömuleiðis hafði gengisþróun krónunnar mikil áhrif. Árið 2007 styrktist krónan og bankinn varð fyrir gengistapi upp á tæpa sex milljarða króna. Gengislækkun krónunnar í fyrra gat hins vegar af sér gengishagnað upp á um 44 milljarða króna. „Enda voru gengisbundnar eignir bankans nokkru hærri en gengisbundnar skuldir eins og jafnan er. Breytingin á milli ára nam því um fimmtíu milljörðum króna," segir Lára og bendir á að mest af þessum gengishagnaði hafði komið fram við hrun viðskiptabankanna í byrjun október. Þá liggur fyrir að staða Seðlabankans hefði ekki verið féleg án aðstoðar ríkisins því bankinn varð sjálfur fyrir miklu tapi við fall bankakerfisins. „Í sumum tilfellum var lánað gagnvart veðum sem reyndust ótrygg þegar íslensk fjármálafyrirtæki féllu í valinn hvert á fætur öðru. Nauðsynlegt reyndist að afskrifa útlán og nam gjaldfærslan 75 milljörðum króna, en slíkur gjaldaliður hefur verið fátíður í bókum bankans," bendir formaður bankaráðsins á. „Samkomulag varð um að ríkissjóður keypti tiltekin veðlán og daglán gagnvart smærri fjármálastofnunum þar sem undirliggjandi veð voru í skuldabréfum útgefnum af viðskiptabönkunum þremur. Að auki keypti ríkissjóður nokkur veðlán með traustum veðum. Samtals nam bókfært verð þessara eigna, sem ríkissjóður keypti, 345 milljörðum króna en kaupverðið var 270 milljarðar og var greitt með verðtryggðu skuldabréfi. Mismunurinn, 75 milljarðar króna, var gjaldfærður í bókum bankans," segir hún og bendir á að ríkið verði sennilega að afskrifa þessar keyptu eignir að hluta. Af heildarfjárhæðinni eru trygg veð einungis talin nema 51 milljarði króna. Viðskiptin hafi verið ákveðin með það að markmiði að eiginfjárstaða Seðlabankans stæði að mestu óbreytt frá ársbyrjun til ársloka 2008. Í ársskýrslu Seðlabankans kemur fram að vegna erfiðleika fjármálafyrirtækja síðustu misseri hafi mikil stígandi verið í lausafjárfyrirgreiðslu til fjármálafyrirtækja. „Í lok árs 2007 var staða í veðlánum 302 milljarðar króna og hafði þá aldrei verið hærri," segir þar, en veðlánin náðu hámarki rétt fyrir hrun bankakerfisins í októberbyrjun, en þá hafði Seðlabankinn lánað fjármálafyrirtækjum 520 milljarða króna. 58 prósent undirliggjandi veða voru skuldabréf útgefin af Glitni, Kaupþingi og Landsbankanum. Í lok ársins voru útistandandi veðlán Seðlabankans hins vegar komin niður í 292 milljarða króna, eftir færsluna sem um er getið hér að ofan þegar ríkissjóður tók um áramót yfir kröfur Seðlabankans á þau fjármálafyrirtæki sem notað höfðu óvarin bréf bankanna til að afla lausafjár í Seðlabankanum.
Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira