Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Straumur með 95% hlutafjár í eQ Straumur-Burðarás hefur eignast ríflega 95% hlutafjár í finnska bankanum eQ samkvæmt niðurstöðum yfirtökutilboðs. Að auki hyggst Straumur-Burðarás eignast alla útgefna og eftirstandandi hluti í eQ. 4.7.2007 17:23
Íslendingar sigursælir í virtri gervigreindarkeppni Íslenskur hugbúnaður frá Háskólanum í Reykjavík lenti í efsta sæti í undankeppni virtrar gervigreindarkeppni í Stanford háskóla í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. 40 forrit frá ýmsum rannsóknarháskólum víðsvegar að úr heiminum voru send í keppninni. Þetta er í fyrsta skipti sem Háskólinn í Reykjavík tekur þátt. 4.7.2007 15:50
Enn tekur Úrvalsvísitalan stökkið Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,59 prósent í Kauphöllinni í dag. Vísitalan endaði í 8.541 stigi í dag og hefur aldrei verið hærri. Gengi bréfa í Alfesca, eða um 3,96 prósent. Mesta lækkunin varð hins vegar á gengi bréfa í Föroya Banka, sem fór niður um 1,69 prósent. 4.7.2007 15:48
Uppfært mat á Singer & Friedlander Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur uppfært lánshæfiseinkunnir Singer & Friedlander, banka Kaupþings í Bretlandi. Stuðningseinkunn bankans hækkar um eitt sæti í 2. Þá fær bankinn langtímaeinkunnina A en skammtímaeinkunnina F1. 4.7.2007 14:58
Regluvarsla NordVest ófullnægjandi Fjármálaeftirlitið (FME) hefur komist að þeirri niðurstöðu í kjölfar úttektar, að umgjörð um regluvörslu NordVest Verðbréfa hf. hafi verið ófullnægjandi og hefur farið fram á úrbætur er skyldi vera lokið innan nánar tiltekinna fresta. 4.7.2007 14:07
Afkoma ríkissjóðs umfram áætlanir Greiðsluafkoma ríkissjóðs á fyrstu fimm mánuðum ársins var hagstæðari en áætlanir gerðu ráð fyrir í fjárlögum. Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 34,1 milljarð króna sem er 5,9 milljörðum meira en á sama tíma í fyrra. 4.7.2007 10:15
Dregur úr halla á vöruskiptum Vöruskipti voru neikvæð um 9,6 milljarða krónur í síðasta mánuði, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Þetta er nokkur umskipti frá sama tíma á síðasta ári en þá voru vöruskiptin neikvæð um 15,4 milljarða krónur. 4.7.2007 09:16
Er viðskiptahallinn að grafa undan krónunni? Gríðarlegur halli hefur verið á viðskiptum við útlönd undanfarin ár. Fyrst og fremst vegna innflutnings á fjárfestingarvörum og neysluvörum en einnig vegna halla á þáttatekjum, þ.e. launum, vaxtagreiðslum og eignatekjum á milli landa. 4.7.2007 06:45
Geysir tilkynnir um olíufund Straumborg á meirihluta í tveimur félögum sem saman eiga um fimmtung í olíuleitarverkefni í Norðursjó. Verið er að mæla magn nýfundinnar olíu. 4.7.2007 06:15
Ísland í fjórða sæti Verðbólga mældist 2,2 prósent á ársgrundvelli að meðaltali innan svæðis OECD-ríkjanna á fyrstu sex mánuðum árs. 4.7.2007 06:15
Íslandsvinir mæta í Kauphöllina Á 175 ára afmæli Eik Banka er við hæfi að þessi stærsti banki Færeyja fari í tvíhliða skráningu í Kauphöll Íslands og Kauphöllina í Kaupmannahöfn 11. júlí næst komandi. 4.7.2007 06:00
Tuttugu ár frá skattlausa árinu Í ár eru tuttugu ár liðin frá skattlausa árinu svokallaða þegar eftirágreiðsla skatta var felld niður og staðgreiðslukerfið tekið upp. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson fór aftur í tímann og sneri aftur með svipmynd af þessu síðasta uppsveifluári. 4.7.2007 06:00
Sex milljarðar Róbert Wessman, forstjóri Actavis, ber ekki skarðan hlut frá borði við sölu á hlut sínum í Actavis til Novators. Verðmæti hlutar Róberts var 12,3 milljarðar og við lauslegan útreikning á kaupum hans á bréfum í félaginu frá upphafi má áætla að hreinn hagnaður hans, að undanskildum fjármagnskostnaði, sé rétt rúmir sex milljarðar. 4.7.2007 06:00
FME breytir ekki tilboði Eyjamanna Fjármálaeftirlitið hefur hafnað beiðni frá hluthafa í Vinnslustöðinni um breytingu á tilboðsverði eignarhaldsfélagsins Eyjamanna í Vinnslustöðina. Samkvæmt 8. mgr. 40. gr laga um verðbréfaviðskipti hefur Fjármálaeftirlitið heimild til að breyta tilboðsverði ef sérstakar kringumstæður eru fyrir hendi. 4.7.2007 05:30
Vaxtalækkun gæti orðið skarpari Niðurskurður í aflaheimildum og fyrirséðar breytingar á hámarkslánum Íbúðalánasjóðs stuðla að hjöðnun í hagkerfinu og gætu boðað hraðari lækkun stýrivaxta Seðlabankans. 4.7.2007 05:00
Hlutabréf í Eik þykja dýr Hlutabréf í Eik Banka, sem verður skrásettur í Kauphöllina í næstu viku, eru í dýrari kantinum segja sérfræðingar hjá Föroya Banka, hinum stóra færeyska bankanum. Þeir benda þó á að bankinn sé spennandi valkostur sem hafi gefið eigendum sínum góðan ávöxt. 4.7.2007 04:45
Nýjar upplýsingar hjá Seðlabankanum Á vef sínum hefur Seðlabanki Íslands nú gert aðgengilegar margvíslegar upplýsingar, meðal annars um nýtt þjóðhagslíkan. 4.7.2007 04:30
Tjáir sig ekki um aðalfund Hornfirska útgerðarfélagið Skinney-Þinganes er hið ellefta kvótahæsta á landinu með um 3,07 prósent allra aflaheimilda. Aðalfundur félagsins var í síðustu viku. 4.7.2007 04:30
Frábæri frændinn ég Kæri frændi Mig langar bara til að þakka þér fyrir hvað þú hefur verið hugulsamur við okkur að láta fjölskylduna fylgjast með tækifærum sem opnast á markaðnum. Við erum öll alsæl með færeyska bankann sem þú lést okkur kaupa. Við vorum svolítið hikandi að fara með yfirdráttinn svona hátt til að kaupa þessi bréf, en þú getur ímyndað þér hvað við erum ánægð þegar upp er staðið. 4.7.2007 04:00
Marel nálgast fimmtungshlut Marel hefur enn aukið hlut sinn í hollenska iðnfyrirtækinu Stork samkvæmt heimildum Markaðarins og nálgast nú 20 prósenta eign í gegn um félagið LME sem einnig er í eigu Landsbankans og Eyris. 4.7.2007 03:45
Ónýtt gróðatækifæri Vikuritið Vísbending hefur venjulega að geyma ýmislegt forvitnilegt og ígrundað. Í nýjasta heftinu fjallar bróðir ritstjórans, hagfræðingurinn Sigurður Jóhannesson um skýrslu um launamun karla og kvenna. 4.7.2007 03:00
Vilja aldurinn úr sjötugu í 67 ár SVÞ fagna breytingum stjórnvalda þar sem tekið hefur verið fyrir skerðingu á atvinnutekjum vegna aldurs. 4.7.2007 03:00
Samvinnutryggingar veita Bifröst styrk Í síðustu viku veitti Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, viðtöku styrk til skólans að upphæð 20 milljónir króna. Styrkurinn kemur frá Eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga. 4.7.2007 02:45
Auglýsingar drepa áhuga Vísbending er laus við auglýsingar, en það sama verður ekki sagt um systurina Frjálsa Verslun. Margt hefur verið ljómandi vel gert í því blaði, en í aftari hluta blaðsins hafa auglýsingasalarnir tekið öll völd. Í ágætu blaði um konur í viðskiptalífinu er margt forvitnilegt að finna. 4.7.2007 02:30
Lágir skattar hvetja til atvinnuþátttöku „Það voru vangaveltur um það hvað ætti að gera við þetta ár sem yrði á milli þess sem eftirágreiðslukerfið var fellt niður og staðgreiðsla tekin upp. Til tals kom að leggja á eftirágreidda skatta og leyfa einhverja mynd af skuldajöfnun. En einfaldasta og skjótvirkasta leiðin var að gefa út yfirlýsingu þess efnis að láta almanaksárið verða skattlaust,“ segir Víglundur Þorsteinsson, formaður Félags iðnrekenda árið 1986 og fulltrúi vinnuveitenda á þeim tíma. 4.7.2007 02:30
Sameining handsöluð um áramótin NASDAQ og OMX ganga í eina sæng um áramótin. Ólíklegt er að Kauphöll Íslands eignist fulltrúa í nýrri yfirstjórn. Forstjóri Kauphallarinnar væntir stórra erlendra fjárfestingabanka inn á íslenskan hlutabréfamarkað. 4.7.2007 01:45
Athyglisverð tilraun „Þetta var athyglisverð tilraun við raunverulegar aðstæður sem gefast sjaldan,“ segir Björn Rúnar Guðmundsson, forstöðumaður greiningadeildar Landsbankans. Björn skrifaði grein um skattlausa árið í félagi við Gylfa Zöega, prófessor við Háskóla Íslands, og Marco Bianchi. 4.7.2007 01:00
Samherji stofnar félag um sölustarfsemi sína Samherji hf. hefur stofnað nýtt dótturfélag um sölustarfsemi sína. Félagið heitir Ice Fresh Seafood. Með stofnun þess er verið að skerpa á áherslum í sölumálum og auka þjónustu bæði við birgja sem og viðskiptavini. 3.7.2007 17:32
Hámarkslánhlutfall lækkar í 80% Félagsmálaráðherra samþykkti í dag að lækka hámarkslánshlutfall Íbúðalánasjóðs úr 90% í 80%. Þessar breytingar taka gildi frá og með morgundeginum. Þá var jafnframt ákveðið að halda hámarkslánum óbreyttum í 18 milljónum króna. 3.7.2007 17:18
Úrvalsvísitalan í methæðum Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,08 prósent við lokun viðskipta í Kauphöllinni í dag og endaði vísitalan í 8.408. Hún hefur aldrei verið hærri. Mesta hækkun var á bréfum í Föroya Banka en mest varð lækkun á bréfum færeyska olíuleitarfélagsins Atlantic Petroleum. 3.7.2007 16:29
Rarik stígur fyrsta skrefið í útrás sinni Ríkisorkurisinn Rarik hefur keypt hlut í norska orkufyrirtækinu Blåfells Energi af Landsbanka Íslands. Eðlilegt að spurningar vakni um fjárfestingar ríkisfyrirtækja segir forstjórinn. 3.7.2007 06:00
iPhone í sölu í Bandaríkjunum iPhone-síminn frá Apple er kominn á markað í Bandaríkjunum. Eftirvæntingin eftir símanum hefur verið gríðarleg, en hann er blanda af iPod-spilara, farsíma og lófatölvu með stórum snertiskjá. 3.7.2007 00:01
Róbert og Sindri selja í Actavis Róbert Wessman, forstjóri Actavis, og Sindri Sindrason, stjórnarformaður, hafa báðir tilkynnt að þeir ætli að selja alla hluti þeim tengdum í félaginu til Novators, sem hefur gert yfirtökutilboð í Actavis. Samkvæmt tilboðinu ætti Róbert að fá 12,3 milljarða fyrir bréf sín en Sindri um tvo milljarða króna. 2.7.2007 10:39
Algengir erfðaþættir gáttarifs uppgötvaðir Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsaðila telja sig hafa uppgötvað algenga erfðaþætti sem auka áhættu á gáttatifi. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem birtist í hinu virta vísindatímariti Nature. 1.7.2007 18:08
Marel eykur við hlut sinn í Stork Marel hefur aukið við hlut sinn í hollensku samstæðunni Stork og situr nú á tæpum sautján prósentum. Fyrir átti Marel, sem hefur sóst eftir því að kaupa matvælavinnsluvélahluta Stork, tæp ellefu prósent. 1.7.2007 01:30