Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hagnaður SPRON 2,7 ma. fyrstu 9 mánuði ársins Hagnaður SPRON fyrstu níu mánuði ársins nam rúmum 2.717 milljónum króna fyrir skatta en hann var 2.578 milljónir á sama tímabili í fyrra. Hagnaður eftir skatta var 2.248 milljónir kr. og arðsemi eigin fjár var 51,5 prósent. 2.11.2005 17:43
Krónan hækkaði um 1,18% Krónan hækkaði um 1,18 prósent í miklum viðskiptum í gær og hefur þannig unnið upp lækkunina sem varð í síðustu viku. Vísitala krónunnar er nú 101,2 og hefur krónan aðeins einu sinni áður mælst sterkari. 2.11.2005 07:54
Icelandic Group kaupir stærsta framleiðslufyrirtækið Icelandic Group hefur keypt eitt stærsta framleiðslufyrirtæki Þýskalands á sviði frystra sjávarafurða, Pickenpack-Hussman&Hahn Seafood. 1.11.2005 16:12
Actavis setur þunglyndislyf á markað Actavis hefur sett þunglyndislyfið Sertraline á markað í 14 löndum Evrópu eftir að einkaréttur á framleiðslu lyfsins rann út þar. Í tilkynningu frá Actavis kemur fram að lyfið sé framleitt í verksmiðjum hér á landi og á Möltu og sé í töflu- og hylkjaformi. Um sé að ræða mestu markaðssetningu Actavis á þessu ári. 1.11.2005 15:48
Hagnast um 800 milljónir Sjö stjórnendur hjá KB banka hagnast um nærri því 769 milljónir króna ákveði þeir að selja hluti sem þeir fengu samkvæmt kaupréttarsamningi árið 2000. Markaðsvirði hlutanna er samkvæmt gengi KB banka í gær um 929 milljónir króna en þeir voru keyptir á genginu 102,5 en gengi bréfa í KB banka var 596 krónur á hvern hlut í gær. 1.11.2005 07:00
66 milljarða hagnaður Hagnaður viðskiptabankanna þriggja á fyrstu níu mánuðum ársins nam 66 milljörðum króna.Bankarnir hafa því hagnast um 240 milljónir á hverjum degi tímabilsins. KB banki og Landsbankinn birtu uppgjör sín í gær. KB banki hefur hagnast mest, um 34,5 milljarða frá áramótum til loka september, sem er aðeins meira en hagnaður allra bankanna fyrir sama tímabil í fyrra. Heildareignir bankanna eru nú 4.700 milljarðar króna, um fimmföld landsframleiðsla þjóðarinnar. Þær hafa aukist um 3.600 milljarða frá ársbyrjun. Eigið fé bankanna er tæpir 350 milljarðar króna, sem er ríflega fjárlög íslenska ríkisins. 29.10.2005 06:00
34,5 milljarða hagnaður KB banka á árinu KB banki skilaði 9,7 milljarða króna hagnaði eftir skatta á þriðja ársfjórðungi. Hagnaðurinn á fyrstu níu mánuðum ársins nemur því 34,47 milljörðum króna. 28.10.2005 20:03
Hagnaður Landsbankans 700 milljónum minni en í fyrra Hagnaður Landsbanka Íslands eftir skatta nam fimm milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi. Á sama tímabili í fyrra var hagnaðurinn 700 milljónum meiri, eða 5,7 milljarðar. 28.10.2005 18:24
Hlutabréf í Flögu snarhækka Hlutabréf í Medcare Flögu hafa hækkað um rúm tíu prósent síðan markaðir opnuðu í morgun. Bréfin hafa þá hækkað um nær fjórtán prósent í þessari viku. 28.10.2005 15:32
Hagnaður Vinnslustöðvarinnar 480 milljónir Hagnaður Vinnslustöðvarinnar nemur 480 milljónum króna, samkvæmt níu mánaða uppgjöri, og lækkaði um rúm níu prósent frá sama tímabili í fyrra en þá var hagnaðurinn um 530 milljónir króna. 27.10.2005 12:54
Fimm bjóða sig fram í stjórn FL Group Fimm menn hafa boðið sig fram til stjórnarsetu í FL Group. Fimmmenningarnir eru Skarphéðinn Berg Steinarsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Magnús Ármann, Smári S. Sigurðsson og Þorsteinn M. Jónsson. Til varamennsku gefa kost á sér þeir Kristinn Bjarnason og Þórður Bogason. 27.10.2005 09:15
Nýtt skipurit hjá Samskipum Nýtt skipurit hefur tekið gildi hjá Samskipum á Íslandi og hafa um leið tveir nýir framkvæmdastjórar verið ráðnir til starfa. Rekstur Samskipa byggist nú á fimm sviðum í stað þriggja áður. 27.10.2005 08:45
Kaupþing banki fær viðrvörun í Svíþjóð Kaupþing hefur fengið viðvörun frá fjármálaeftirlitinu í Svíþjóð. Fjármálaeftirlitið velti fyrir sér að svipta félagið leyfi til að starfrækja og versla með hlutabréfasjóði en ákvað að láta viðvörun nægja. 27.10.2005 08:30
Stofna hlutabréfamarkaða fyrir minni og meðalstór fyrirtæki Hlutabréfamarkaði fyrir minni og meðalstór fyrirtæki, iSEC, verður hleypt af stokkunum í Kauphöllinni fyrir áramót. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir í Morgunblaðinu í dag að iSEC-hlutabréfamarkaðurinn verði ekki háður jafn ströngum skilyrðum og aðalmarkaðurinn en veiti samt upplýsingar um rekstur félaganna með skipulögðum hætti. 27.10.2005 07:47
Gæti skipt um flugvöll ytra Flugfélagið Sterling gæti innan skamms hætt að fljúga til og frá Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. Í staðinn verði Malmö-flugvöllur notaður fyrir starfsemi flugfélagsins líkt og lággjaldaflugfélagið Ryanair gerir. Þessu lýsti Hannes Smárason, forstjóri FL Group, yfir í Kaupmannahöfn í fyrrakvöld. 27.10.2005 06:00
Fjárfestingarsjóður Kaupþings í Svíþjóð fær viðvörun Fjárfestingarsjóður Kaupþings í Svíþjóð, Kaupþing Fonder, hefur fengið viðvörun frá sænska fjármálaeftirlitinu, samkvæmt frétt í sænska dagblaðinu Dagens Nyheter í dag. Sjóðurinn er sakaður um að hafa dregið taum stórs hluthafa á kostnað annarra og að hafa lagt rangt mat á hluthafaeign. 26.10.2005 18:05
Öflun kaupir stærsta seljanda Apple á Norðurlöndum Öflun ehf., sem er með umboð fyrir Apple á Íslandi, hefur keypt 37,8 prósenta hlut í norska fyrirtækinu Office Line sem skráð er í kauphöllinni í Ósló. Office Line rekur sjö verslanir og þrettán söluskrifstofur í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi og er stærsti seljandi Apple-vara á Norðurlöndum, einkum til fyrirtækja og stofnana. 26.10.2005 14:00
FL Group eykur hlut sinn í easyJet FL Group hefur aukið hlut sinn í breska lágfargjaldaflugfélaginu easyJet úr 14 prósentum í 15. Þetta kom fram í tilkynningu sem easyJet sendi Kauphöllinni í Lundúnum í morgun. 26.10.2005 10:01
Ármann ráðinn forstjór Singer & Friedlander Ármann Þorvaldsson hefur verið ráðinn forstjóri Singer & Friedlander bankans í London. Ármann gegndi áður stöðu framkvæmdastjóra hjá Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka. 26.10.2005 09:15
Methagnaður hjá Íslandsbanka Íslandsbanki skilaði methagnaði á fyrstu níu mánuðum ársins 2005. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var um 4,8 milljarðar króna eftir skatta. Á þriðja ársfjórðingi í fyrra var hagnaðurin hins vegar tæpir 3,7 milljarðar króna. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 34% á fyrstu níu mánuðum ársins 2005 en var 61% á sama tíma í fyrra. 26.10.2005 08:00
Iceland Express á söluskrá Flugfélagið Iceland Express er komið á söluskrá og hefur fyrirtækjasviði Kaupþings banka verið falið að annast söluna. Skipt var um stjórn í félaginu í gær þar sem stjórnarmennnirnir og eigendurnir Pálmi Haraldsson og Jóhannes Kristinsson voru komnir í samkeppni við sjálfa sig eftir að þeir eignuðust talsverðan hlut í FL Group við að selja félaginu flugfélagið Sterling. 26.10.2005 07:30
Háfleygi Íslendingurinn Töluvert hefur verið fjallað um kaup FL Group á Sterling í dönskum fjölmiðlum. Berlingske Tidende birti heilsíðugrein um feril Hannesar Smárasonar. 26.10.2005 05:00
Sterlingmenn úr stjórninni Pálmi Haraldsson, Jóhannes Kristinsson og Almar Þór Hilmarsson sögðu sig í gær úr stjórn flugfélagsins Iceland Express. Í stjórn félagsins settust í þeirra stað lögmennirnir Einar Þór Sverrisson, Gunnar Jónsson og Hörður Felixson. Jafnframt var tekin ákvörðun um það að fela fyrirtækjasviði KB banka að selja fyrirtækið. 26.10.2005 04:15
4,3 milljóna hagnaður Nýherja á fjórðungnum Hagnaður Nýherja nam 4,3 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi. Það sem af er ári hefur félagið þá hagnast um 51,4 milljónir. Í uppgjöri félagsins kemur meðal annars fram að tekjur á fjórðungnum hafi verið 1366 milljónir króna sem er þriggja prósenta vöxtur frá sama tímabili í fyrra. 24.10.2005 17:43
Segir Berlingske Tidende á villigötum Eignarhaldsfélagið Fons ætlar að selja Iceland Express eftir að hafa selt FL Group Sterling, þar sem félögin verða í samkeppni. Danska blaðið Berlinske Tidende segir að Fons hafi hagnast um ellefu milljarða á því að kaupa og selja Sterling, en Pálmi Haraldsson , sem gerði kaupin, segir blaðið alvarlega á villigötum. 24.10.2005 12:30
Samstarf Icelandair og SAS ætti að geta haldið áfram Jörgen Lindegaard, forstjóri SAS, segir í viðtali við Ritzau-fréttastofuna að miðað við þann aðskilnað Sterling og Icelandair, sem boðaður er í tilkynningu um kaupin, ætti samstarf SAS og Icelandair að geta haldið áfram. 24.10.2005 07:48
Lögbrot ef rétt reynist Stjórn Lánasjóðs Landbúnaðarins hefur borist erindi þess efnis að KB banki búi yfir upplýsingum um stöðu og kjör lántakenda hjá sjóðnum og hafi notað þær upplýsingar til að bjóða bændum betri kjör viðskiptabankans. Hjálmar Árnason, formaður lánasjóðsins segir þetta fyrsta dæmi þess að starfsmenn banka misnoti þekkingu sína. 24.10.2005 07:00
Fara úr stjórn Iceland Express Fyrrverandi eigendur og stjórnendur Sterling munu segja sig úr stjórn Iceland Express samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þetta eru Almar Örn Hilmarsson, Pálmi Haraldsson og Jóhannes Kristinsson. Hluti kaupverðs Sterling verður greitt með hlutafé í FL Group og þar sem Iceland Express er í samkeppni í millilandaflugi munu þeir víkja af samkeppnisástæðum. 24.10.2005 05:15
Fons hagnast um milljarða króna FL Group og Fons eignarhaldsfélag undirrituðu samning í gær um sölu á Sterling til FL Group fyrir 15 milljarða króna. Tæplega fjórir milljarðar verða greiddir með hlutabréfum í FL Group sem ekki verða afhent fyrr en árið 2007, náist tiltekin rekstrarmarkmið Sterling. Kaupverðið getur hækkað eða lækkað eftir rekstrarárangri Sterling á næsta ári. 24.10.2005 03:30
Viðræður enn í gangi Viðræður um kaup FL Group á danska flugfélaginu Sterling standa enn. Samkvæmt heimildum fréttastofu, verður eigendum Fons, fjárfestingafélags í eigu Jóhannesar Kristinssonar og Pálma Haraldssonar, greitt með hlutabréfum í FL-Group. Kaupverðið er ekki gefið upp né við hvaða gengi á hlutabréfum í FL-Group verði miðað, náist samningar. Forstjóri SAS hefur sagt að verði félögin tvö sameinuð, muni SAS slíta öllu samstarfi við Icelandair. Verði félögin hins vegar áfram sjálfstæð, geti SAS hugsað sér enn frekara samstarf við Icelandair. 23.10.2005 17:51
FL Group að kaupa Sterling Viðræður um kaup FL Group á norræna lággjaldaflugfélaginu Sterling, sem er í eigu fjárfestingafélagsins Fons eru nú á lokastigi og er búist við að tilkynnt verði um kaupin seinna í dag. 22.10.2005 00:01
Fasteignaverð hækkar Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,9% í september frá mánuðinum áður. Þetta kemur fram hjá Fasteignamati ríkisins. Undanfarna þrjá mánuði hefur húsnæðisverðið hækkað um 3,7% og undanfarið hálft ár nemur hækkunin á höfuðborgarsvæðinu 12,6%. Íbúðaverð í sérbýli hefur hækkað talsvert meira en í fjölbýli. Undanfarna 12 mánuði hækkaði verð í sérbýli um rúm 46% en í fjölbýli um 34%. Greiningardeild KB banka spáir um 6% hækkun íbúðaverðs á næstu tólf mánuðum. Deildin spáir einnig að hækkun vísitölu neysluverðs í nóvember samsvari 4,5% ársverðbólgu. 22.10.2005 00:01
Hámark íbúðalána lækkað í 80% Landsbankinn hefur lækkað hámark íbúðalána úr 90% í 80% af markaðsvirði eigna. Bankinn segir ákvörðunina tekna í ljósi þess að aðstæður á fasteignamarkaði séu að breytast og ekki sé gert ráð fyrir að áframhald verði á þeim hröðu verðhækkunum sem átt hafa sér stað að undanförnu. 21.10.2005 00:01
Óttast lækkandi íbúðaverð Viðskiptabankarnir, sem hófu að lána allt að hundrað prósent til íbúðakaupa í fyrra, óttast nú að íbúðaverð kunni að fara lækkandi. Landsbankinn hefur ákveðið að lækka lánahlutfallið niður í áttatíu prósent til að verja veðhagsmuni sína. 21.10.2005 00:01
Kaupa þrjár Airbus-vélar Avion Aircraft Trading, dótturfyrirtæki Avion Group, hefur keypt þrjár Airbus-farþegavélar sem breytt verður í fraktvélar. Vélarnar fást afhentar fullkláraðar á næsta ári og byrjun árs 2007 en heildarkostnaður eftir breytingar er 4,3 milljarðar króna. 20.10.2005 00:01
Mesta hækkun frá áramótum Gengi hlutabréfa í Bakkavör Group hafa enn hækkað eftir síðustu kaup félagsins á bresku matvælafyrirtæki og hefur Bakkavör nú slegið Landsbankanum við hvað varðar mestu hækkun í Kauphöllinni frá áramótum. 20.10.2005 00:01
Húsnæðisverð lækkar 2007-2008 Ásgeir Jónsson, hagfræðingur hjá greiningardeild KB banka, spáir því að húsnæðisverð muni lækka í niðursveiflunni í hagkerfinu á árunum 2007 til 2008, en upp úr því séu horfur góðar. Þá megi reikna með að vextir af íbúðalánum hækki á næstunni úr 4,15 prósentum upp í 4,35 prósent. 19.10.2005 00:01
Ragnhildur sagði upp Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri FL Group, sem meðal annars á Flugleiðir eða Icelandair, sagði starfi sínu lausu í gærkvöldi að því er netmiðillinn Travel People greinir frá í morgun. Ástæðan er sögð óánægja hennar með fyrirhuguð kaup FL Group á danska flugfélaginu Sterling og þá sérstaklega að FL Group ætli að greiða allt of hátt verð fyrir það. 19.10.2005 00:01
P. Samúelsson líklega selt Fyrirtækið Páll Samúelsson, sem meðal annars selur Toyota-bifreiðar, verður að öllum líkindum selt á næstunni en ýmsir aðilar hafa sýnt fyrirtækinu áhuga að undanförnu. 19.10.2005 00:01
Hlutabréf í FL Group lækkuðu um 5% Hlutabréf í FL Group lækkuðu um rösk fimm prósent í morgun. Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri FL Group, sem meðal annars á Flugleiðir og Icelandair, sagði starfi sínu lausu í gærkvöldi, að því er netfréttaritið Travel People greinir frá í morgun. 19.10.2005 00:01
Vífilfell kaupir þriðjung í Mjólku Vífilfell, sem meðal annars framleiðir Coke, hefur keypt um þriðjungshlut í Mjólku ehf. sem fjölskyldan að Eyjum II í Kjós stofnaði fyrr á árinu til að framleiða osta fyrir innanalndsmarkað. Mjólka starfar utan greiðslukerfis landbúnaðarins og nýtur engra styrkja þaðan. 19.10.2005 00:01
Hannes í stað Ragnhildar Ragnhildur Geirsdóttir er hætt sem forstjóri FL Group í kjölfar viðamikilla skipulagsbreytinga. Hannes Smárason hefur tekið við félaginu og þar með er ein þekktasta konan í íslensku viðskiptalífi farin úr stjórnunarstöðu. 19.10.2005 00:01
FL Group breytt vegna fjárfestinga Með skipulagsbreytingum á FL Group er félaginu breytt í fjárfestingafélag og rekstrarfélögin - þar á meðal Icelandair - skilin frá móðurfélaginu. Tilgangurinn virðist vera að auðvelda fjárfestingar FL Group erlendis, meðal annars í lággjaldaflugfélaginu Sterling. 19.10.2005 00:01
Hannes verður forstjóri FL Group Ragnhildur Geirsdóttir er hætt sem forstjóri FL Group vegna „áherslubreytinga hjá félaginu" eins og það er orðað í tilkynningu frá stjórn félagsins. Hannes Smárason stjórnarformaður hefur verið ráðinn forstjóri í stað Ragnhildar. 19.10.2005 00:01
Gengi krónunnar gæti hríðfallið Útgáfa erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum heldur áfram og er þegar farin að valda vaxtalækkunum á vissum sviðum, sem stríða gegn verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. 18.10.2005 00:01