Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Toyota og Honda að ná vopnum sínum í Bandaríkjunum Bílaframleiðendurnir Toyota og Honda eru að ná vopnum sínum á Bandaríkjamarkaði og er búist við því að nýjar sölutölur fyrir septembermánuð, sem birtar verða á þriðjudag, sýni það. Frá þessu greinir Wall Street Journal (WSJ) í dag. Greinendur búast við að sala á nýjum bifreiðum hafi verið 11 prósent betri í september á þessu ári heldur en í fyrra, sem þýðir að um 1,1 milljón bifreiða hafi selst, að því er fram kemur á vef WSJ. 30.9.2012 23:36
Félagarnir hjá Google yngstir á meðal þeirra 20 ríkustu Þeir einu sem eru á meðal tuttugu ríkustu einstaklinga Bandaríkjanna, samkvæmt lista Forbes, sem eru undir fertugu, eru félagarnir hjá Google, Sergey Brin og Larry Page. Þeir eru í 13. sæti á listanum en auður þeirra beggja, hvor um sig, er metinn á 20,3 milljarðar dala, eða sem nemur ríflega 2.500 milljörðum króna. 30.9.2012 10:28
Walmart-fjölskyldan ríkust í Bandaríkjunum Fjórir meðlimir Walton fjölskyldunnar, sem stofnaði smásölurisann Walmart í Bandaríkjunum, eru á meðal þeirra tíu sem Forbes telur ríkasta fólk Bandaríkjanna. Samanlagður auður þeirra nemur meira en 100 milljörðum dala, eða sem nemur 12.500 milljörðum króna. Það jafngildir tæplega áttfaldri árlegri landsframleiðslu Íslands. 30.9.2012 08:30
iPhone 5 úr gulli og demöntum Breskt fyrirtæki ætlar að selja hundrað stykki af sérstakri útgáfu af iPhone fimm símanum sem Apple gaf út á dögunum. Munurinn á þessum símum og þeim upprunalega er að hann er úr gulli og demöntum. 29.9.2012 14:34
Spænskir bankar þurfa 9.500 milljarða króna Spænskir bankar þurfa 59,3 milljarða evra, eða sem nemur ríflega 9.500 milljörðum króna, til þess að lifa af erfiðleika á fjármálamörkuðum í Evrópu, þar ekki síst á Spáni. Frá þessu er greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC í dag, og er vitnað til sjálfstæðrar úttektar sérfræðinga. 29.9.2012 13:30
Keppt í ávöxtun á markaði "Markmiðið er að stuðla að bættu fjármálalæsi og auknum skilningi á ávöxtunarmöguleikum,“ segir Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX-kauphallarinnar á Íslandi, um Ávöxtunarleikinn sem hefst formlega á mánudaginn. 29.9.2012 07:00
Gengi bréfa Haga aldrei verið hærra Gengi bréfa Haga hækkaði um 1,32 prósent í dag og er gengi bréfa félagsins nú 19,25, sem er hæsta gengi bréfa félagsins frá því það var skráð á markað. 28.9.2012 20:16
Segir sölu á harðfiski dragast saman Eigandi E. G. harðfisks á Flateyri segir að sala á harðfiski um land allt sé minni en hún hefur verið undanfarin ár. Þetta kemur fram á 28.9.2012 15:57
Fyrsta sölusýning á verkum Erros í 20 ár Fyrsta sölusýning á verkum Errós á Íslandi frá 1982 fer fram núna um helgina. Sýnd verða nokkur vel valin verk úr fórum hans, en sýningin er í Gallerí Nútímalist að Skipholti 15. Skammt er síðan nýjar grafíkmyndir listamannsins voru sýndar á sýningu sem haldin var í tilefni af 80 ára afmæli hans fyrir skömmu. Sýningin stendur til 13 október. 28.9.2012 14:05
Gunnhildur Arna ráðin upplýsingafulltrúi Símans Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir er nýr upplýsingafulltrúi Símans. Hún hefur undanfarið starfað sem blaðamaður á Fréttatímanum. Hún er fyrrum ritstjóri og fréttastjóri dagblaðsins 24 stunda, kvöldfréttastjóri á Morgunblaðinu og blaðamaður og vaktstjóri á Fréttablaðinu. "Ég hlakka líka til að takast á við nýjan starfsvettvang hjá fyrirtæki sem hefur fylgt þjóðinni í meira en öld. Fyrirtæki sem þarf samt alltaf að vera á tánum því fátt breytist hraðar en fjarskiptamarkaðurinn,“ segir Gunnhildur. 28.9.2012 15:05
Harpa fær MICE verðlaunin Harpa hefur unnið til hinna árlegu MICE ( Meetings, Incentives, Conferences, Exhibitions) verðlauna sem besta ráðstefnuhús í norður-Evrópu samkvæmt tilkynningu frá Hörpu. 28.9.2012 14:16
Hagkaup sektað um hálfa milljón Neytendastofa hefur ákveðið að sekta Hagkaup um 500 þúsund krónur fyrir að hafa ekki tilgreint prósentuafslátt á Tax Free dögum Hagkaups 10. - 14. maí síðastliðinn. Hengdir voru upp stórir auglýsingaborðar í gluggum verslunarinnar í Skeifunni og Smáralind í tilefni daganna og Neytendastofa segir að upplýsingar um prósentuafsláttinn hefðu átt að fylgja. 28.9.2012 13:33
Segja viðskiptaþvinganir brot á EES samningnum Fulltrúi Íslands lagði í dag og gær fram yfirlýsingu í sameiginlegu EES nefndinni og fastanefnd EFTA í Brussel, vegna nýlegrar samþykktar ráðherraráðs Evrópusambandsins og Evrópuþingsins um heimildir til samþykktar viðskiptaaðgerða gagnvart þriðju ríkjum vegna meintra ósjálfbærra veiða úr sameiginlegum fiskistofnum. Þar bendir Ísland á að viðskiptaaðgerðir, aðrar en löndunarbann á fiskiskip vegna tegunda sem deilt er um, séu brot á EES-samningnum. 28.9.2012 11:14
AGS: Útlitið er gott en hættur framundan á Íslandi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) segir að útlitið sé gott í efnahagsmálum Íslands en hættur séu framundan. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sjóðnum í tengslum við aðra úttekt hans á stöðu landsins eftir að áætlun AGS og Íslands um endurreisn landsins lauk. 28.9.2012 10:45
Kaupþing stóð rangt að innköllun krafna Kaupþingi var óheimilt að fella niður fimmtán milljóna evra kröfu Irish Anglo bank á hendur Kaupþingi, samkvæmt tilskipun EES. Þetta er niðurstaða EFTA dómstólsins sem ga álit sitt á málinu í dag. Málið snýst um það að Kaupþing lýsti eftir kröfum í nokkrum dagblöðum á Evrópska efnahagssvæðinu, í Stjórnartíðindum ESB og á vefsíðu sinni. Þar eru kröfuhafar beðnir um að lýsa kröfum innan sex mánaða. 28.9.2012 10:29
Tæplega þrettán milljarða afgangur af vöruskiptum Um 12,5 milljarða afgangur var af vöruskiptum í ágúst, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Vörur voru fluttar út fyrir 51,5 milljarð en inn fyrir 39 milljarða. Í ágúst í fyrra var 8,8 milljarða afgangur af vöruskiptunum. 28.9.2012 09:07
Gjaldþrotum fyrirtækja heldur áfram að fækka Alls voru 46 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í ágústmánuði, flest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Fyrstu 8 mánuði ársins var fjöldi gjaldþrota 661, en það er rúmlega 30% fækkun frá sama tíma í fyrra þegar 950 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta. 28.9.2012 09:04
Seðlabankinn skoði kjör slitastjórnar Seðlabankinn skoðar nú hvort hann geti gert athugasemdir við kjör slitastjórnar Glitnis. Kröfuhafar ákveða kjörin og bankinn er einn þeirra. Fjármálaráðherra ræddi við seðlabankastjóra í gær um málið, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum. 28.9.2012 08:45
Milljarðastríð um Bakkavör Lýður og Ágúst Guðmundssynir, stofnendur Bakkavarar, hafa varið um sex milljörðum króna í kaup á hlutum í Bakkavör af íslenskum aðilum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 28.9.2012 08:15
Mestu árásir tölvuþrjóta í sögunni á stórbanka í Bandaríkjunum Nokkrir stórbankar í Bandaríkjunum hafa orðið fyrir umfangsmestu árásum tölvuþrjóta í sögunni. Vegna árásanna hafa heimasíður þessarar banka meir og minna lamast frá því í síðustu viku. 28.9.2012 07:03
Hæstiréttur sýknaði Marel af kröfum Glitnis Hæstiréttur Íslands sýknaði í gær Marel af kröfum Glitnis en málið snérist um ágreining um uppgjörsaðferð tiltekinna afleiðusamninga árið 2006. 28.9.2012 06:37
Töluverð lækkun á vísitölu framleiðsluverðs Vísitala framleiðsluverðs í ágúst 2012 var 203,6 stig og lækkaði um 2,7% frá júlí 2012. 28.9.2012 09:07
Ólafur Ísleifs: Allt á huldu um verðmyndun á gjaldeyrismarkaði Verðbólga er aftur farin að þokast upp á við eftir að hafa lækkað hratt á sumarmánuðum. Verð á fatnaði hækkaði mikið milli mánaða, en verðbólgan mælist nú fjögur komma þrjú prósent. Ólafur Ísleifsson lektor í hagfræði segir ómögulegt að spá um gengi krónunnar. 27.9.2012 19:30
Landsbankinn kynnir nýjar stefnuáherslur Landsbankinn kynnti í dag nýjar stefnuáherslur til ársins 2015 en þær byggja á stefnu bankans sem kynnt var haustið 2010 undir heitinu Landsbankinn þinn. Í tilkynningu frá bankanum segir að eftir breytingarnar fækkar sviðum bankans sem verða sjö í stað níu áður. 27.9.2012 18:30
Gengi Regins hækkaði um ríflega tvö prósent í dag Gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins hækkaði um 2,09 prósent í viðskiptum dagsins, og stendur gengi bréfa félagsins nú í 9,77. Velta með bréf félagsins nam tæplega 49 milljónum króna. 27.9.2012 18:15
Lánið var í erlendum myntum Hæstiréttur staðfesti í dag niðurstöðu héraðsdóms um að lán sem Hótel Stykkishólmur tók hjá Arion banka væri í raun lán í erlendum myntum en ekki gengistryggt lán í íslenskum krónum. Því var ekki um ólögmóta gengistryggingu að ræða og var lánið löglegt í alla staði. 27.9.2012 17:02
"Galið að láta veiðigjaldið bitna á sjómönnum" Framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands segir að það komi ekki til greina að sjómenn taki á sig hluta veiðigjaldsins. Sjómenn og útgerðarmenn eiga nú í kjaradeilu og útgerðin fer fram á að sjómenn taki á sig launaskerðingu vegna veiðigjaldanna sem voru samþykkt á Alþingi í vor. 27.9.2012 15:43
Sjálfsstýrðir bílar í Kaliforníu Yfirvöld í Kaliforníu munu á næstu dögum hefja prófanir með sjálfsstýrða bíla á helstu umferðaræðum sínum. 27.9.2012 14:17
Enn engir samningar um Hörpuhótelið Enginn samningur um fyrirhugaða hótelbyggingu við Hörpu liggur fyrir. Óvissa ríkir um hvort fjárfestir frá Abu Dhabi geti staðið að verkefninu eins og áætlanir gerðu ráð fyrir. Þetta kemur fram í frétt Viðskiptablaðsins í dag. 27.9.2012 13:47
Ótrúlegar sölutölur Apple - 10 þúsund ipad tölvur selst hér á landi Mikil sala hefur verið á vörum Apple hér á landi það sem af er ári líkt og víðast hvar annars staðar erlendis. Umboðsaðili Apple á Ísland reiknar með því að selja fimmtán þúsund i pad spjaldtölvur á þessu ári. 27.9.2012 12:15
Komu með tvo milljarða gegnum fjárfestingaleiðina Bakkavararbræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir nýttu sér fjárfestingaleið Seðlabankans, sem gefur fjárfestum kost á að kaupa krónur með um 20% afslætti, tvisvar í sumar. 27.9.2012 11:02
Arthur´s dagurinn - Málum bæinn svartan! Arthur´s dagurinn verða haldinn hátíðlegur á krám landsins. 27.9.2012 10:46
Borgin ætlar að kaupa Umferðarmiðstöðina fyrir 450 milljónir Reykjavíkurborg hyggst kaupa Umferðarmiðstöðina og lóðina sem fylgir henni fyrir 445 milljónir króna. Seljendur eru Mynni ehf og Landsbanki Íslands. Kauptilboðið var rætt á fundi borgarráðs í morgun, en staðfestingu kauptilboðsins var frestað að beiðni fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í borgarráði. 27.9.2012 10:41
Norsk-íslenska síldin er á bakaleiðinni Mjög rólegt hefur verið yfir veiðum íslenskra skipa síðustu sólarhringa á norsk-íslenskri síld. Svo virðist sem síldin sé á leiðinni austur úr lögsögunni á hrygningar-stöðvarnar við Noreg eftir að hafa verið í ætisleit á Íslandsmiðum. Fréttir hafa borist af síldveiði norðan við Færeyjar og þar eru íslensk vinnsluskip nú að veiðum, segir á vef HB Granda. 27.9.2012 10:00
Skattborgarar greiða hálfa milljón fyrir hvern íbúa Álftaness Skattgreiðendur munu bera 1.214 milljóna króna kostnað af sameiningu Garðabæjar og Álftaness í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Kostnaðurinn fer í fjárhagslega endurskipulagningu Álftaness en stór hluti framlaganna er háður því að sameiningin fari fram. 27.9.2012 09:48
Verðbólgan mælist 4,3% Ársverðbólgan mælist 4,3% í þessum mánuði og hækkar úr 4,1% í ágúst. Hækkunin er í takt við spár sérfræðinga. 27.9.2012 09:05
Milljarðaaukning í veltu með atvinnuhúsnæði milli ára Mikil velta var með atvinnuhúsnæði í ágúst sl. Þannig nam velta með atvinnuhúsnæði á landinu öllu rúmum 11 milljörðum kr. í ágúst en veltan var 4 milljarðar kr. í ágúst í fyrra. 27.9.2012 07:01
Nubo leitar hófanna um byggingu skemmtigarðs í Óðinsvéum Borgaryfirvöld í Óðinsvéum í Danmörku eru bjartsýn á að kínverski fjárfestirinn Huang Nubo muni byggja H.C. Andersen skemmtigarð í borginni en viðræður um slíkt hafa farið fram milli borgarstjórans Anker Boye og Nubo. 27.9.2012 06:50
Flestir Danir að breytast í Jóakim Aðalönd Bankainnistæður almennings í Danmörku hafa aldrei vaxið hraðar en í ár. Svo virðist sem hver Dani sé að breyta sér í Jóakim Aðalsönd. 27.9.2012 06:27
Hrannar Már nýr nefndarformaður Hrannar Már Hafberg, lögfræðingur og starfandi héraðsdómari, hefur verið skipaður formaður rannsóknarnefndar Alþingis um sparisjóðakerfið eftir að Sigríður Ingvadóttir baðst lausnar í kjölfar ágreinings við hina tvo nefndarmennina. 27.9.2012 07:00
Reginn tryggir endurfjármögnun Egilshallar Reginn hefur lokið fyrsta áfanga í endurfjármögnun félagsins. Félagið hefur tryggt endurfjármögnun Egilshallar að fjárhæð 5,5 milljörðum króna. 27.9.2012 06:34
Keyptu fimmtung á 375 milljónir króna Meirihlutaeigendur í Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni hf. keyptu í júní síðastliðnum 20 prósenta hlut í fyrirtækinu af Arion banka. Þeir eru OA eignarhaldsfélag, í eigu Andra Þórs Guðmundssonar forstjóra og Októs Einarssonar stjórnarformanns, fjárfestingasjóður í stýringu Auðar Capital og F-13 ehf., félag í eigu fjögurra framkvæmdastjóra Ölgerðarinnar. Eftir viðskiptin á Auður fagfjárfestasjóður 45 prósenta eignarhlut. OA ehf. 38 prósenta og F-13 ehf., 17 prósenta. 27.9.2012 06:00
Áætla 6,2 milljarða hagnað árið 2013 Orkuveita Reykjavíkur (OR) mun tapa 2,2 milljörðum króna í ár samkvæmt útkomuspá en hagnast um 6,2 milljarða króna á næsta ári. Þetta kemur fram í fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 og fimm ára áætlun Orkuveitunnar fyrir árin 2014-2018 sem samþykkt var af stjórn hennar á miðvikudag. 27.9.2012 05:00
Spá hagvaxtarskeiði á árunum 2012-2014 Hagvöxtur mun verða 3,2 prósent í ár, 3,4 prósent á næsta ári og 3,2 prósent árið 2014. Þessi aukning mun verða til þess að slaki í hagkerfinu hverfur. Hagvöxturinn verður ekki einungis drifinn áfram af aukinni einkaneyslu heldur skipta aukin verðmæti sjávarútvegs, aukinn ferðamannastraumur og fjárfesting í orkuframkvæmdum líka miklu máli í vextinum. Þetta eru helstu niðurstöður þjóðhagsspár Greiningar Íslandsbanka sem kynnt var á fjármálaþingi bankans í gær. Spáin nær til loka árs 2014. 27.9.2012 05:00
Fyrsti fundur um afnám gjaldeyrishafta Vinnuhópur íslenskra stjórnvalda og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) með þátttöku Seðlabanka Evrópu og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um afnám gjaldeyrishafta fundaði í fyrsta sinn fyrir helgi. 27.9.2012 04:00