Viðskipti innlent

Norsk-íslenska síldin er á bakaleiðinni

faxi RE Nokkuð þarf að hafa fyrir síldveiðum en lítill meðafli er af makríl.
mynd/hb grandi
faxi RE Nokkuð þarf að hafa fyrir síldveiðum en lítill meðafli er af makríl. mynd/hb grandi mynd/hb grandi
Mjög rólegt hefur verið yfir veiðum íslenskra skipa síðustu sólarhringa á norsk-íslenskri síld. Svo virðist sem síldin sé á leiðinni austur úr lögsögunni á hrygningar-stöðvarnar við Noreg eftir að hafa verið í ætisleit á Íslandsmiðum. Fréttir hafa borist af síldveiði norðan við Færeyjar og þar eru íslensk vinnsluskip nú að veiðum, segir á vef HB Granda.

Skip fyrirtækisins, Faxi RE, kom í gær til hafnar á Vopnafirði með 330 til 350 tonn af síld og að sögn Hjalta Einarssonar, sem var skipstjóri í veiðiferðinni, þurfti töluvert að hafa fyrir þeim afla. Aflann fengu þeir í Héraðsflóadýpi í þremur hollum.

„Síldin er greinilega á austurleið en það ætti þó enn að vera hægt að fá sæmilegasta afla innan landhelginnar," sagði Hjalti en samkvæmt upplýsingum hans veiðist nú sáralítið af makríl með síldinni.

Lítið er eftir af síldar- og makrílkvóta HB Granda þetta árið. Að sögn Ingimundar Ingimundarsonar, rekstrarstjóra uppsjávarveiðiskipa félagsins, er síldaraflinn nú kominn í um 14.000 tonn og eftirstöðvar kvótans eru um 2.000 tonn. Makrílaflinn er tæplega 16.000 tonn og aðeins eru óveidd um 600 tonn af makríl.- shá





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×