Fleiri fréttir Níu af ellefu prófmálum eru óþörf Níu af þeim ellefu prófmálum sem höfða átti útaf óvissu um endurútreikning gengistryggðra lána eru óþörf að mati hæstarréttarlögmanns. Hann segir óvissu einungis ríkja um mjög takmarkaðann hluta lánasafna bankanna og það eigi ekki að tefja fyrir endurútreikningi almennt. 27.10.2012 19:08 Telja bjóðendum mismunað - Fréttaskýring Af hverju er ólga vegna hlutafjárútboðs í Eimskips? 27.10.2012 07:30 Niðursveiflunni lokið í Bretlandi Nýjar hagtölur benda til þess að breska hagkerfið sé farið að vaxa á ný eftir níu mánaða niðursveiflu. Hagvöxtur er talinn hafa verið ríflega 1% á þriðja ársfjórðungi, en aukinn þrótt efnahagslífsins má að stórum hluta rekja til Ólympíuleikanna í London. 27.10.2012 02:00 Vilja að FME rannsaki hlutafjárútboð Eimskips Lífeyrissjóðurinn Festa hefur óskað eftir því að Fjármálaeftirlitið rannsaki hlutafjárútboð Eimskips sem lauk í gær. Samkvæmt frétt RÚV um málið telja forsvarsmenn lífeyrissjóðsins að fjárfestar hafi ekki allir setið við sama borð. 26.10.2012 18:23 Tveir menn lönduðu afla fyrir 17 milljónir Petra SI sem hefur róið frá Raufarhöfn að undanförnu lönduðu 55 tonnum í einungis 8 róðrum núna í október. Áætlað aflaverðmæti er um 17 milljónir króna, samvæmt vefnum Aflafréttir. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema af þeirri ástæðu að einungis tveir menn eru á bátnum, þeir Haraldur Hermansson skipstjóri og Sigurður Gunnarsson háseti. 26.10.2012 14:13 Endurnærandi námskeið Úrval Útsýn býður spennandi vikunámskeið í samstarfi við leikkonuna Eddu Björgvinsdóttur og íþróttafræðinginn Bjargeyju Aðalsteinsdóttur 23. febrúar næstkomandi. Sams konar námskeið hafa verið á boðstólum undanfarin ár og síðast komust færri að en vildu. Um er að ræða endurnærandi lífsstílsnámskeið. 26.10.2012 11:03 Lítil velta með atvinnuhúsnæði í september Mjög lítil velta var með atvinnuhúsnæði í september sl. miðað við hvernig veltan hefur verið undanfarna mánuði. 26.10.2012 10:52 Hagnaður Haga nam 1,5 milljörðum Hagnaður Haga eftir skatta nam rúmum 1,5 milljarði króna á öðrum ársfjórðungi rekstrarárs félagsins eða 4,4% af veltu. 26.10.2012 10:45 Faldir sjóðir Wen Jiabao koma upp á yfirborðið Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, er orðinn vellaugður og eru sjóðir upp á hundruðir milljóna dala geymdir í félögum sem eru skráð á fjölskyldumeðli hans, þar á meðal níræða móður hans, sem skráð er fyrir eignarhlutum í fjármálafyrirtækjum sem eru 120 milljóna dala virði, eða sem nemur 15 milljörðum króna. 26.10.2012 09:48 Windows sett í nýjan búning Microsoft setur í dag á markað nýja útgáfu af Windows, útbreiddasta tölvustýrikerfi heims. Nýja útgáfan nefnist Windows 8 og felur hún í sér mestu breytingar sem gerðar hafa verið á Windows-stýrikerfinu í 17 ár. 26.10.2012 09:00 SA segir að störfum gæti fjölgað á næsta ári Ný könnun Samtaka atvinnulífsins meðal aðildarfyrirtækja SA gefur til kynna að störfum á almennum vinnumarkaði gæti fjölgað á næsta ári. 26.10.2012 08:26 Liborvaxtahneykslið vindur upp á sig Breska liborvaxtahneykslið heldur áfram að vinda upp á sig. Financial Times greinir frá því í dag að þeir sem rannsaka hneykslið hafi stefnt forráðamönnum níu stórra alþjóðlegra banka í málinu til viðbótar þeim sjö stórbönkum sem þegar eru til rannsóknar. 26.10.2012 08:05 Íslandsbanki endurreiknar 6.000 gengislán og samninga Íslandsbanki hefur hafið endurútreikning á lánum einstaklinga og fyrirtækja sem bankinn telur að falli undir dóma Hæstaréttar frá 15. febrúar og 18. október sl. Um er að ræða ólögmæt gengistryggð lán sem lántakar hafa greitt af í samræmi við gildandi skilmála á hverjum tíma. 26.10.2012 07:44 Veruleg eftirspurn í útboði Eimskips Veruleg umframeftirspurn var í hinu lokaða hlutafjárútboði Eimskips í gærdag, en samtals bárust tilboð fyrir yfir 12 milljarða króna frá fjárfestum. Tilboðum var tekið fyrir rúmlega 8,3 milljarða króna á verðinu 208 kr. á hlut. 26.10.2012 07:23 Spilling, skattsvik og glæpir kosta Kínverja tugi þúsunda milljarða á ári Kínverska ríkið verður árlega af tekjum sem nema tugum þúsunda milljarða króna vegna þess hve mikið fé er flutt ólöglega út úr landinu. 26.10.2012 06:44 Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar áfram Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að lækka og hefur nú ekki verið lægra í þrjá mánuði. Tunnan af Brentolíunni er komin niður í rúma 107 dollara og tunnan af bandarísku léttolíunni er komin niður í rúma 85 dollara. 26.10.2012 06:41 Deilt um gamalt frosið íslenskt lambakjöt í Noregi Deilur eru risnar í bænum Loen við Nordfjord í Noregi þar sem kjötvinnsla bæjarins hefur keypt ársgamalt frosið lamabakjöt frá Íslandi til að bregðast við skorti á slíku kjöti í héraðinu. 26.10.2012 06:34 Kaupréttir Eimskips voru of háir 26.10.2012 00:01
Sjá næstu 50 fréttir
Níu af ellefu prófmálum eru óþörf Níu af þeim ellefu prófmálum sem höfða átti útaf óvissu um endurútreikning gengistryggðra lána eru óþörf að mati hæstarréttarlögmanns. Hann segir óvissu einungis ríkja um mjög takmarkaðann hluta lánasafna bankanna og það eigi ekki að tefja fyrir endurútreikningi almennt. 27.10.2012 19:08
Telja bjóðendum mismunað - Fréttaskýring Af hverju er ólga vegna hlutafjárútboðs í Eimskips? 27.10.2012 07:30
Niðursveiflunni lokið í Bretlandi Nýjar hagtölur benda til þess að breska hagkerfið sé farið að vaxa á ný eftir níu mánaða niðursveiflu. Hagvöxtur er talinn hafa verið ríflega 1% á þriðja ársfjórðungi, en aukinn þrótt efnahagslífsins má að stórum hluta rekja til Ólympíuleikanna í London. 27.10.2012 02:00
Vilja að FME rannsaki hlutafjárútboð Eimskips Lífeyrissjóðurinn Festa hefur óskað eftir því að Fjármálaeftirlitið rannsaki hlutafjárútboð Eimskips sem lauk í gær. Samkvæmt frétt RÚV um málið telja forsvarsmenn lífeyrissjóðsins að fjárfestar hafi ekki allir setið við sama borð. 26.10.2012 18:23
Tveir menn lönduðu afla fyrir 17 milljónir Petra SI sem hefur róið frá Raufarhöfn að undanförnu lönduðu 55 tonnum í einungis 8 róðrum núna í október. Áætlað aflaverðmæti er um 17 milljónir króna, samvæmt vefnum Aflafréttir. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema af þeirri ástæðu að einungis tveir menn eru á bátnum, þeir Haraldur Hermansson skipstjóri og Sigurður Gunnarsson háseti. 26.10.2012 14:13
Endurnærandi námskeið Úrval Útsýn býður spennandi vikunámskeið í samstarfi við leikkonuna Eddu Björgvinsdóttur og íþróttafræðinginn Bjargeyju Aðalsteinsdóttur 23. febrúar næstkomandi. Sams konar námskeið hafa verið á boðstólum undanfarin ár og síðast komust færri að en vildu. Um er að ræða endurnærandi lífsstílsnámskeið. 26.10.2012 11:03
Lítil velta með atvinnuhúsnæði í september Mjög lítil velta var með atvinnuhúsnæði í september sl. miðað við hvernig veltan hefur verið undanfarna mánuði. 26.10.2012 10:52
Hagnaður Haga nam 1,5 milljörðum Hagnaður Haga eftir skatta nam rúmum 1,5 milljarði króna á öðrum ársfjórðungi rekstrarárs félagsins eða 4,4% af veltu. 26.10.2012 10:45
Faldir sjóðir Wen Jiabao koma upp á yfirborðið Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, er orðinn vellaugður og eru sjóðir upp á hundruðir milljóna dala geymdir í félögum sem eru skráð á fjölskyldumeðli hans, þar á meðal níræða móður hans, sem skráð er fyrir eignarhlutum í fjármálafyrirtækjum sem eru 120 milljóna dala virði, eða sem nemur 15 milljörðum króna. 26.10.2012 09:48
Windows sett í nýjan búning Microsoft setur í dag á markað nýja útgáfu af Windows, útbreiddasta tölvustýrikerfi heims. Nýja útgáfan nefnist Windows 8 og felur hún í sér mestu breytingar sem gerðar hafa verið á Windows-stýrikerfinu í 17 ár. 26.10.2012 09:00
SA segir að störfum gæti fjölgað á næsta ári Ný könnun Samtaka atvinnulífsins meðal aðildarfyrirtækja SA gefur til kynna að störfum á almennum vinnumarkaði gæti fjölgað á næsta ári. 26.10.2012 08:26
Liborvaxtahneykslið vindur upp á sig Breska liborvaxtahneykslið heldur áfram að vinda upp á sig. Financial Times greinir frá því í dag að þeir sem rannsaka hneykslið hafi stefnt forráðamönnum níu stórra alþjóðlegra banka í málinu til viðbótar þeim sjö stórbönkum sem þegar eru til rannsóknar. 26.10.2012 08:05
Íslandsbanki endurreiknar 6.000 gengislán og samninga Íslandsbanki hefur hafið endurútreikning á lánum einstaklinga og fyrirtækja sem bankinn telur að falli undir dóma Hæstaréttar frá 15. febrúar og 18. október sl. Um er að ræða ólögmæt gengistryggð lán sem lántakar hafa greitt af í samræmi við gildandi skilmála á hverjum tíma. 26.10.2012 07:44
Veruleg eftirspurn í útboði Eimskips Veruleg umframeftirspurn var í hinu lokaða hlutafjárútboði Eimskips í gærdag, en samtals bárust tilboð fyrir yfir 12 milljarða króna frá fjárfestum. Tilboðum var tekið fyrir rúmlega 8,3 milljarða króna á verðinu 208 kr. á hlut. 26.10.2012 07:23
Spilling, skattsvik og glæpir kosta Kínverja tugi þúsunda milljarða á ári Kínverska ríkið verður árlega af tekjum sem nema tugum þúsunda milljarða króna vegna þess hve mikið fé er flutt ólöglega út úr landinu. 26.10.2012 06:44
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar áfram Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að lækka og hefur nú ekki verið lægra í þrjá mánuði. Tunnan af Brentolíunni er komin niður í rúma 107 dollara og tunnan af bandarísku léttolíunni er komin niður í rúma 85 dollara. 26.10.2012 06:41
Deilt um gamalt frosið íslenskt lambakjöt í Noregi Deilur eru risnar í bænum Loen við Nordfjord í Noregi þar sem kjötvinnsla bæjarins hefur keypt ársgamalt frosið lamabakjöt frá Íslandi til að bregðast við skorti á slíku kjöti í héraðinu. 26.10.2012 06:34
Segjast falla frá kaupréttarsamningi til að stuðla að vexti Forstjóri Eimskips, Gylfi Sigfússon, tilkynnti á heimasíðu Eimskips í kvöld að fyrirtækið hefði fallið frá umdeildum kaupréttarsamningum stjórnenda fyrirtæksins. Lífeyrissjóðir settu sig harkalega upp á móti kaupréttarsamningunum. 25.10.2012 20:32
Fallið frá kaupréttarsamningum stjórnenda hjá Eimskip Stórum hluthöfum í Eimskipi hefur verið tilkynnt að fallið verði frá kaupréttarsamningum sem gerðir voru við helstu stjórnendur fyrirtækisins. Tveir af stærstu lífeyrissjóðum landsins tóku ekki þátt í hlutabréfaútboði félagsins meðal annars vegna samninganna. 25.10.2012 18:39
Sterkir í hillukerfum í yfir tuttugu ár Fyrirtækið Ísold ehf. var stofnað árið 1992 og er starfrækt í dag í rúmgóðum húsakynnum að Nethyl 3-3a, í Reykjavík. Þá býður fyrirtækið upp á sérsmíði. 25.10.2012 16:50
Bjóða eitt mesta úrvalið af hillum og skápum Fyrirtækin RÍ verslun og Rými Ofnasmiðjan voru sameinuð á árinu. Saman bjóða þessi fyrirtæki úrval af geymslulausnum og hillum fyrir iðnaðinn. 25.10.2012 16:50
Ræða um að draga kaupréttina til baka Rætt er um það innan stjórnar Eimskips að falla frá kaupréttarsamningum sem voru gerðir við helstu stjórnendur fyrirtækisins, samkvæmt heimildum Vísis. Stjórn fyrirtækisins, að undanskildum stjórnarformanninum, hefur fundað um útboðið frá því að því lauk klukkan tvö í dag. 25.10.2012 16:42
Windows 8 lendir á morgun Nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 8, fer í almenna dreifingu á morgun. Stýrikerfið er ein róttækasta breyting sem Microsoft hefur gert á notendaviðmóti Windows. 25.10.2012 15:06
Launin verði að vera í samræmi við veruleika Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna ætlar að beita áhrifum sínum innan stjórnar Eimskips til að hófs verði gætt varðandi kjör stjórnenda félagsins. Þetta segir í yfirlýsingu frá stjórninni vegna hlutafjárútboðs sem lauk í dag. 25.10.2012 15:05
IBM til móts við auknar kröfur bankaumhverfisins Tæknirisinn IBM hefur kynnt til sögunnar nýja stórtölvu, zEC12, en fyrirtækið eyddi sem nemur einum milljarði Bandaríkjadala og starfrækti 18 rannsóknarstofur við þróun tölvunnar. 25.10.2012 14:23
Glæsihýsi boðið á 176 milljónir króna Það virðist vera kominn góður kippur í fasteignasölu á höfuðborgarsvæðinu. Í það minnsta býður fasteignasalan Landmark til sölu 450 fermetra hús á Lindabraut á Seltjarnarnesi fyrir 176 milljónir króna. Það er um fjórfalt fasteignamat hússins, en það er 43,7 milljónir. 25.10.2012 14:21
Tveir stórir lífeyrissjóðir hafna Eimskipi Tveir stórir lífeyrissjóðir ætla ekki að taka þátt í hlutabréfaútboði Eimskips. Stjórnir þeirra eru ósáttar við kaupréttarsamninga sem gerðir voru við stjórnendur fyrirtækisins. Formaður Verkalýðsfélags Akranes hefur krafist þess að Festa lífeyrissjóður geri það sama. Ef ekki þá íhugi félagsmenn að flytja sig í annan lífeyrissjóð. 25.10.2012 12:09
Matthías Imsland hættur hjá WOW Matthías Imsland, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Wow air, hefur látið af störfum hjá félaginu, að því er fram kemur í á Viðskiptablaðinu. Matthías var einn helsti driffjöðurinn að stofnun Wow air en hann var áður forstjóri Iceland Express. Skúli Mogensen, eigandi WOW, keypti fyrr í vikunni allan rekstur Iceland Express og sagði þá viðbúið að eitthvað starfsfólk myndi missa vinnuna. 25.10.2012 10:59
Smáforrit kynda undir kaupgleði Viðskiptavinir virðast kaupa meira ef vörur eru pantaðar á vefsíðu eða gegnum smáforrit verslunar heldur en ef kaupin eiga sér stað í gegnum síma. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu sem byggir á upplýsingum frá Capacent. 25.10.2012 10:23
Kaupóðir Kínverjar á lúxusmarkaðinum í Kaupmannahöfn Úra- og skartgripaverslanir í Kaupmannahöfn eru að upplifa eitt besta árið í sögunni. 25.10.2012 10:05
Verðbólgan minnkar niður í 4,2% Ársverðbólgan minnkaði í október niður í 4,2% en hún mældist 4,3% í síðasta mánuði. Þetta er þvert á spár sérfræðinga sem gert höfðu ráð fyrir óbreyttri verðbólgu eða að hún hækkaði í 4,4 til 4,5%. 25.10.2012 09:15
Hagnaður Marel minnkar milli ára Hagnaður Marel eftir skatta á þriðja ársfjórðungi ársins nam tæplega 1,4 milljörðum kr. Þetta er nokkuð minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra þegar hann nam rúmlega 1,7 milljörðum kr. 25.10.2012 07:20
Besti dagur Facebook á markaðinum vestan hafs Forráðamenn og eigendur hlutabréfa í Facebook gátu andað léttar seint í gærkvöldi þegar markaðir lokuðu á Wall Street. 25.10.2012 07:04
Skulda Isavia tugi milljóna króna Isavia kyrrsetti í gærmorgun vél sem Iceland Express var með á leigu vegna ógreiddra lendingagjalda. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins skuldar Iceland Express Isavia, sem á og rekur Keflavíkurflugvöll, um hálfa milljón dollara, eða rúmlega 60 milljónir króna. 25.10.2012 06:00
Rúmur helmingur í iðnað og stóriðju Rúmur helmingur þeirrar fjárfestingar sem ratað hefur inn í landið á grundvelli fjárfestingaleiðar Seðlabanka Íslands hefur farið í fjárfestingar í iðnaði, hátækniiðnaði, stóriðju og matvælaiðnaði. Þetta kemur fram í gögnum frá Seðlabankanum. 25.10.2012 05:00
Eimskip ekki á neinu útsöluverði Skiptar skoðanir eru á meðal greiningaraðila um hvort hlutabréf í Eimskip séu góður fjárfestingakostur. Lokuðu hlutafjárútboði, þar sem 20 prósenta hlutur í félaginu verður seldur til valinna fjárfesta, lýkur klukkan 14 í dag. Þetta kemur fram í greiningum Arion banka og IFS ráðgjafar. 25.10.2012 04:30
Fjögur ár frá hruni - allar greinarnar á einum stað Allur greinaflokkur Fréttablaðsins, í tilefni af því að fjögur ár voru í byrjun október frá því að fjármálakerfi Íslands hrundi og gengi krónunnar féll hratt, er nú aðgengilegur í heild sinni hér á Vísi. 24.10.2012 23:35
Í þrælavinnu við að sauma föt fyrir H&M Ný skýrsla sýnir að verkafólk sem vinnur við að sauma föt fyrir H&M þrælar fyrir 40-60 krónur á tímann. Frá þessu er greint í sjónvarpsþætti sem verður sendur út á sjónvarpsstöðinni TV 4 í Svíþjóð. 24.10.2012 21:46
Bankamaður í tveggja ára fangelsi Rajat Gupta, fyrrverandi stjórnarmaður í Goldman Sachs bankanum, var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi. Hann hafði fyrr á árinu verið fundinn sekur um innherjasvik fyrir að hafa lekið gögnum frá stjórninni til Raj Rajaratnam, fyrrverandi sjóðsstjóra í vogunarsjóð. Rajaratnam sætir nú ellefu ára fangelsi fyrir innherjasvik. Auk fangelsisrefsingarinnar þarf Gupta að greiða fimm milljónir bandaríkjadala, ríflega 600 milljónir króna, í sekt. Þegar refsingin yfir Gupta var ákveðin í dag sagði hann að hann harmaði þau áhrif sem málið hefði haft á fjölskyldu sína. 24.10.2012 21:09
LSR vissu ekki að þeir væru að selja Bakkvarabræðrum hlutabréf Framkvæmdastjóri LSR segist ekki hafa vitað að hann væri að selja Bakkavarabræðrum hlutabréf sjóðsins í Bakkavör þegar tilboð barst frá þriðja aðila. Á sama tíma og Lýður Guðmundsson sætir ákæru sérstaks saksóknara eru hann og bróðir hans smám saman að ná yfirráðum yfir Bakkavör að nýju. 24.10.2012 19:07
Iceland Express skuldar Isavia verulega upphæð Iceland Express skuldar Isavia verulegar upphæðir vegna lendingagjalda, segir Friðþór Eydal upplýsingafulltrúi í samtali við Vísi. Hann segist ekki vera með nákvæma tölu á reiðum höndum, en samkvæmt heimildum Vísis er þar um að ræða tugi milljóna króna. 24.10.2012 15:02
Þrír nýir kaflar opnaðir í aðildarviðræðunum við ESB Þriðji fundur vegna aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið fór fram í dag í Brussel. Á fundinum voru þrír nýir kaflar opnaðir, fjármálaþjónusta, tölfræði og tollamál. 24.10.2012 14:32
Grikkir semja um lán Grikkland hefur náð samkomulagi við erlenda lánadrottna sína í Evrópu um frest til að mæta niðurskurðarmarkmiðum sínum. Niðurskurður í ríkisútgjöldum Grikkja er forsenda þess að þeir fái seinna neyðarlán sitt frá Evrópusambandinu og Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. 24.10.2012 14:02
Sá besti hefur ávaxtað eignir sínar um 8,78 prósent Sá sem bestum árangri hefur náð í Ávöxtunarleiknum, frá að hann hófst 1. október sl., hefur náð að ávaxta spilapeninga sína um 8,86 prósent. Það verður að teljast góð ávöxtun á einungis rúmlega þremur vikum, ekki síst þar sem reglur leiksins segja til um að dreifing eigna verði að góð, þ.e. í hlutabréfum, skuldabréfum, gjaldeyri og sjóðum. 24.10.2012 13:20