Viðskipti innlent

Skulda Isavia tugi milljóna króna

Búið spil Iceland Express mun skipta um nafn, leita samninga við birgja sína og samstarfsaðila um uppgjör krafna og ljúka í kjölfarið starfsemi.
fréttablaðið/pjetur
Búið spil Iceland Express mun skipta um nafn, leita samninga við birgja sína og samstarfsaðila um uppgjör krafna og ljúka í kjölfarið starfsemi. fréttablaðið/pjetur
Isavia kyrrsetti í gærmorgun vél sem Iceland Express var með á leigu vegna ógreiddra lendingagjalda. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins skuldar Iceland Express Isavia, sem á og rekur Keflavíkurflugvöll, um hálfa milljón dollara, eða rúmlega 60 milljónir króna.

Wow air keypti í gær hluta af starfsemi Iceland Express. Kröfur birgja og annarra samstarfsaðila voru hins vegar skildar eftir í Iceland Express. Til stóð að breyta nafni félagsins í gær eða í dag til að aðskilja það frá vörumerkinu sem selt var til Wow air.

Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi félagsins sem í gær hét enn Iceland Express, segist ekki geta sagt til um það á þessari stundu hvort skuldin við Isavia verði gerð upp. Hann segist ekki vera með yfirsýn yfir hversu mikið félagið skuldi birgjum og samstarfsaðilum. „Það eru sjálfsagt skuldir hér og þar líkt og gengur og gerist í öllum rekstri. En það eru ekki einhverjir halar. Félagið mun taka þann tíma sem þarf til að ganga frá þessum málum. Um þetta gilda ákveðin lög og reglur. Menn afgreiða það ekkert á nokkrum dögum."

Það kaupverð sem Wow air greiddi fyrir ákveðna þætti úr rekstri Iceland Express fæst ekki uppgefið. Aðspurður um hvort það fé fari til gamla Iceland Express eða til eigenda þess og helsta kröfuhafa, Pálma Haraldssonar, segist Heimir Már ekki þekkja þann samning. „Sá samningur er trúnaðarmál milli Pálma og Skúla. Ég get ekki svarað því hvort og þá hversu miklir fjármunir skiptu um hendur. Þeir tveir eru einir um að vita það." - þsj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×