Vilja að FME rannsaki hlutafjárútboð Eimskips 26. október 2012 18:23
Lífeyrissjóðurinn Festa hefur óskað eftir því að Fjármálaeftirlitið rannsaki hlutafjárútboð Eimskips sem lauk í gær. Samkvæmt frétt RÚV um málið telja forsvarsmenn lífeyrissjóðsins að fjárfestar hafi ekki allir setið við sama borð. Gylfi Jónasson, framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Festu segir í samtali við RÚV að svo virðist sem menn hafi ekki allir setið við sama borð. „Við höfum spurnir af því að í aðdraganda útboðsins í gærmorgun hafi verið hringt í einstaka fjárfesta og þeim gefinn kostur á að gera tilboð með fyrirvara um það að kaupréttarsamningar æðstu stjórnenda yrðu felldir niður. Við höfum óskað eftir því að Fjármálaeftirlitið rannsaki framkvæmd útboðsins og ef satt reynist þá standa menn ekki jafnfætis í tilboðsgerð og væri það ömurleg byrjun á endurvakningu íslensks hlutabréfamarkaðar," segir Gylfi í samtali við RÚV. Stjórn Eimskips sendi tilkynningu á fjölmiðla síðdegis þar sem stjórnin vill koma eftirfarandi staðreyndum á framfæri: Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. harmar villandi umræður um kaupréttaráætlun félagsins og í ljósi þess vill stjórn félagsins koma eftirfarandi staðreyndum á framfæri: 1. Kaupréttaráætlun Eimskips var samþykkt á Aðalfundi 2010 án athugasemda. Á Aðalfund 2010 voru mættir fulltrúar hluthafa félagsins, m.a. nokkurra íslenskra lífeyrissjóða. Á hlutahafa- og aðalfundum félagsins eftir það hafa ekki verið lagðar fram neinar athugasemdir við kaupréttaráætlun félagsins hvorki af fulltrúum lífeyrissjóða né öðrum hluthöfum. Slíkt hefði verið heppilegri vettvangur til að koma á framfæri athugasemdum við kaupréttaráætlun félagsins fremur en kvöldfréttatími Ríkissjónvarpsins kvöldið fyrir lokadag útboðs. 2. Kaupréttaráætlunin var að fullu í samræmi við ákvæði laga um hlutafélög nr. 2/1995 og í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á Aðalfundi þess árið 2010. 3. Forstjóri og framkvæmdastjórar Eimskips féllu einhliða frá kaupréttum sem þeir höfðu áunnið sér eftir móttöku tilboða í gær, fimmtudaginn 25. október. Þeir tilkynntu stjórn munnlega um ákvörðun sína kl. 18 í gærkvöldi og í kjölfarið var send út fréttatilkynning frá félaginu. 4. Kaupréttum var fyrst úthlutað í upphafi árs 2010 en til að geta nýtt kaupréttina að fullu þurftu stjórnendur að starfa hjá félaginu til ársins 2015. Því er óhætt að segja að þeir hafi ekki komið til á einni nóttu líkt og haldið hefur verið fram. Þar sem að gert var ráð fyrir að stjórnendur væru að vinna sér inn þessa kauprétti yfir 5 ára tímabil var horft til þess að tengja saman hagsmuni þeirra og félagsins til langs tíma. 5. Þegar kaupréttum var úthlutað var það alltaf gert m.v. virði félagsins á hverjum tíma án nokkurs afsláttar. Stjórnendur Eimskips höfðu áunnið sér 1,9% hlut í félaginu og miðað við útboðsgengið 208 krónur á hlut var ávinningur þess hlutar um 135 milljónir króna eftir greiðslu kaupverðs til félagsins og skatta. Sá ávinningur byggir á þeirri aukningu á virði félagsins sem orðið hefur síðastliðin 3 ár. Kaupréttirnir skiptust á sex stjórnendur. Fjárfestar sýndu félaginu mikinn áhuga í lokuðu útboði sem lauk í gær fimmtudaginn 25. október. Stjórn félagsins vonar að almenningur muni sýna félaginu jafn mikinn áhuga í fyrirhuguðu almennu útboði.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira