Viðskipti innlent

Rúmur helmingur í iðnað og stóriðju

Evrur Þegar fjárfestar koma með evrur til landsins í gegnum fjárfestingaleiðina þá fá þeir rúmlega 20 prósenta afslátt af þeim krónum sem keyptar eru fyrir evrurnar.
Evrur Þegar fjárfestar koma með evrur til landsins í gegnum fjárfestingaleiðina þá fá þeir rúmlega 20 prósenta afslátt af þeim krónum sem keyptar eru fyrir evrurnar.
Rúmur helmingur þeirrar fjárfestingar sem ratað hefur inn í landið á grundvelli fjárfestingaleiðar Seðlabanka Íslands hefur farið í fjárfestingar í iðnaði, hátækniiðnaði, stóriðju og matvælaiðnaði. Þetta kemur fram í gögnum frá Seðlabankanum.

Alls hafa fjárfestar komið með 295 milljónir evra, um 59 milljarða króna, inn í landið í gegnum leiðina. Fjárfestingarnar nema 3,6 prósentum af vergri landsframleiðslu ársins 2011. Um 56 prósent upphæðarinnar hafa farið í að kaupa hlutabréf, 30 prósent í skuldabréf, 13 prósent í fasteignir og um eitt prósent í kaup í verðbréfasjóðum. Þegar fjárfestingum er skipt niður á geira kemur í ljós að 18 prósent hennar hafa ratað í iðnað, 14 prósent í hátækniiðnað, tíu prósent í stóriðju og tíu prósent í matvælaiðnað. Samtals hefur um 31 milljarður króna ratað í þessa fjóra geira.

Fjárfestingaleiðin, sem á að flýta fyrir afnámi gjaldeyrishafta, virkar þannig að ef fjárfestar skuldbinda sig til að koma með helming þeirrar upphæðar í evrum sem þeir vilja flytja inn landið og skipta henni á því gengi sem er boði hjá viðskiptabönkum hverju sinni, og eru tilbúnir til að binda fjárfestinguna hérlendis í fimm ár, fá þeir afslátt af hinum helmingi fjárfestingarinnar.

Fyrsta útboðið samkvæmt fjárfestingaleiðinni fór fram um miðjan febrúar síðastliðinn en þau hafa alls verið sex talsins. Alls hefur 231 tilboði fjárfesta verið tekið í gegnum þessa leið. Samtals hafa þeir aðilar sem hafa komið með fé inn í landið með þessum hætti fengið rúmlega tuttugu prósenta afslátt af þeim eignum sem þeir hafa keypt fyrir féð.

Ef sá afsláttur sem fjárfestingaleiðin felur í sér væri ekki til staðar hefðu þeir fjárfestar sem hafa komið inn í gegnum leiðina fengið um 46,2 milljarða króna, samkvæmt útreikningum Markaðarins. Það er um þrettán milljörðum króna minna en þeir hafa í raun fengið.- þsj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×