Tveir stórir lífeyrissjóðir hafna Eimskipi LVP og JHH skrifar 25. október 2012 12:09 Haukur Hafsteinsson er framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Mynd/ Arnþór.
Tveir stórir lífeyrissjóðir ætla ekki að taka þátt í hlutabréfaútboði Eimskips. Stjórnir þeirra eru ósáttar við kaupréttarsamninga sem gerðir voru við stjórnendur fyrirtækisins. Formaður Verkalýðsfélags Akranes hefur krafist þess að Festa lífeyrissjóður geri það sama. Ef ekki þá íhugi félagsmenn að flytja sig í annan lífeyrissjóð. Hlutafjárútboði í Eimskipi lýkur klukkan tvö í dag en boðinn er út fimmtungs hlutur í félaginu. Í fréttum RÚV í gær var sagt frá því að Lífeyrissjóðurinn Gildi ætli ekki að vera með í útboðinu. Ástæðan er kaupréttarsamningar sem lykilstjórnendur fyrirtækisins. Þá hefur stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins ákveðið að taka heldur ekki þátt í útboðinu. Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins, segir ástæðurnar einkum tvær. Annars vegar sé verðið of hátt að mati lífeyrissjóðsins. „Hins vegar er það að starfskjarastefnan og samningar um kauprétti fyrir æðstu stjórnendur eru af þeirri stærðargráðu að við höfum ekki áhuga á að taka þátt," segir Haukur. Aðspurður segist Haukur ekki telja að kaupréttarsamningar séu með öllu óréttlætanlegir. „Við erum fyrst og fremst að taka afstöðu til þess í þessu tiltekna tilviki að kaupréttarsamningarnir eru komnir út fyrir þau mörk sem geta talist eðlileg," segir hann.
Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira