Fleiri fréttir Býst við að kvótinn safnist á enn færri hendur Útgerðarfyrirtæki fengu sendan til sín fyrsta greiðsluseðilinn vegna sérstaks veiðileyfagjalds núna um mánaðamót. Hann á að greiðast fyrir 15. október. Sama hlutfall er lagt á alla og samkvæmt upplýsingum frá LÍÚ fá skuldsett félög sem ráða ekki við þennan auka skatt engan afslátt, eins og til stóð í upphafi. 4.10.2012 20:00 Lækkanir áberandi í Kauphöllinni Nokkur lækkun varð á gengi hlutabréfa í Kauphöll Ísland í dag. Þannig lækkaði gengi hlutabréfa Össurar um 1,5 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 197. Þá lækkaði gengi Haga um 1,29 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 19,15. Gengi bréfa Marels lækkaði um 0,74 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 135. Gengi bréfa Icelandair lækkaði um 0,56 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 7,11. 4.10.2012 16:59 Stóra Orkuveituskýrslan kynnt 10. október Niðurstöður úr úttekt á rekstri Orkuveitu Reykjavíkur verða kynntar á eigendafundi þann 10. október næstkomandi klukkan þrjú. Í framhaldi af því verður skýrslan kynnt fyrir borgar- og bæjarfulltrúum ásamt stjórn Orkuveitu Reykjavíkur þar sem úttektarnefndin gerir grein fyrir niðurstöðum sínum og skýrslan verður afhent Sama dag og kynningarfundurinn verður haldinn verður boðað til blaðamannafundar þar sem fjölmiðlum gefst kostur á að spyrja nefndarmenn og fulltrúa af eigendafundi út í niðurstöðurnar, eftir því sem fram kemur í yfirlýsingu frá Jóni Gnarr borgarstjóra. 4.10.2012 14:31 Stýrivextir óbreyttir á evrusvæðinu - Verðbólga yfir markmiði Stjórn Seðlabanka Evrópu ákvað að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 0,75 prósent, en tilkynnt var um þetta á vaxtaákvörðunarfundi bankans í dag. 4.10.2012 14:24 Gylfi: Óttast alvarlegar afleiðingar hárra vaxta Það verður með öllum ráðum að reyna að lækka vexti og koma þannig betri stoðum undir efnahagslíf landsins, segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Hann óttast að Seðlabankinn muni hækka vexti á næstunni, og að það muni hafa slæm áhrif fyrir hagkerfið. 4.10.2012 12:00 Milljarður notar Facebook mánaðarlega Milljarður notenda nota núna Facebook í hverjum mánuði samkvæmt stöðuuppfærslu forsprakka Facebook, Mark Zuckerberg, sem hann birti í morgun á síðu sinni. 4.10.2012 11:33 2.600 spilarar í Ávöxtunarleiknum - Össur vinsælasta fjárfestingin Samtals hafa 2.633 skráð sig til leiks í Ávöxtunarleiknum á fyrstu þremur dögum leiksins, en hann var formlega settur af stað, með bjölluhringingu í Nasdaq Kauphöll Íslands, á mánudaginn. Þeir sem hafa náð bestum árangri í leiknum hafa náð að ávaxta Keldukrónur sínar um 1,5 til 2,5 prósent, eða á bilinu 150 til 250 þúsund krónur. 4.10.2012 10:32 IMF: Endurreisn heimsmarkaðarins tekur áratug Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn áætlar að það muni taka áratug fyrir heimsmarkaðinn að ná sér eftir efnahagshrunið. Þetta sagði helsti hagfræðingur sjóðsins í samtali við ungverska fjölmiðla í gær. 4.10.2012 09:45 Hewlett Packard í frjálsu falli Hugbúnaðar- og töluvurisinn Hewlett Packard (HP) er í frjálsu falli þessa dagana, og féll gengi hlutabréfa félagsins um 13 prósent í gær. Það gerðist fljótlega eftir að Meg Whitman, forstjóri fyrirtækisins, lýsti því yfir að það myndi taka tíma að snúa rekstri fyrirtækisins við, ekki síst í ljósi þess að fyrirtækið hefði byggt upp tekjustofna sína í kringum sölu á fartölvum og prenturunum. Sala á þessum vörum hefur dregist mikið saman undanfarin misseri, ekki síst vegna innreiðar spjaldtölva á markað. 4.10.2012 09:09 Spelkan kemur í stað hnéaðgerðar Handboltakempan fyrrverandi, Jón Hjaltalín Magnússon, hefur notað "Unloader One"-hnéspelkuna frá Össuri undanfarin ár. Hann mælir eindregið með notkun hennar fyrir alla þá sem hafa verki í hnjám og tapað hafa brjóski í hnjáliðum. Hann hefur sjálfur sloppið við eða frestað hnjáaðgerð, sem hann annars hefði líklega þurft að fara í. 4.10.2012 10:05 Við vinnum í verkjum Gáski er öflug sjúkraþjálfunarstöð með útibú í Bolholti og í Mjódd. Þar starfa öflugir sjúkraþjálfarar sem hjálpa fólki að losna við ýmis vandamál og verki. 4.10.2012 10:05 Teygjur gera oft illt verra Hálsverkir fólks eru yfirleitt tilkomnir vegna of langra vöðva en ekki of stuttra. Það er því ekki gott að teygja á hálsinum því þá er verið að gera illt verra. Armstuðningur er mikilvægur svo vöðvar sígi ekki og lengist. 4.10.2012 10:05 Vinnufær og sef á nóttunni Hjörtur Arnar Óskarsson fór að finna fyrir óbærilegum verkjum í öxl, kom í ljós að það væri svokölluð kalkmyndun að myndast. Hann leytaði sér hjálpar hjá sjúkraþjálfara hjá Gáska. 4.10.2012 10:55 Er betri núna en í upphafi meðgöngu Sunna Jónína Sigurðardóttir leitaði sér hjálpar hjá sjúkraþjálfara hjá Gáska, það hefur hjálpað henni gríðarlega með verki sem hún fór að finna fyrir í mjóbaki. 4.10.2012 10:50 Manneskjan sett í öndvegi Sjúkraþjálfun Kópavogs er elsta sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfunarstöð landsins. Þar starfa tólf reyndir sjúkraþjálfarar sem vinna með skjólstæðingum sínum að bættri færni og vinnugetu og við að ná nýjum markmiðum til að geta notið lífsins betur. 4.10.2012 10:05 Öryggi og velferð er okkar fag Öryggismiðstöðin hefur á undanförnum árum fært út starfsemi sína með því að samnýta þekkingu á öryggis-, heilbrigðis- og velferðarmálum. Fyrirtækið býður upp á mjög fjölbreytta þjónustu og vöruúrval á velferðarsviði. 4.10.2012 10:05 Glæsilegur sýningarsalur og fagleg ráðgjöf sérfræðinga
Sjá næstu 50 fréttir
Býst við að kvótinn safnist á enn færri hendur Útgerðarfyrirtæki fengu sendan til sín fyrsta greiðsluseðilinn vegna sérstaks veiðileyfagjalds núna um mánaðamót. Hann á að greiðast fyrir 15. október. Sama hlutfall er lagt á alla og samkvæmt upplýsingum frá LÍÚ fá skuldsett félög sem ráða ekki við þennan auka skatt engan afslátt, eins og til stóð í upphafi. 4.10.2012 20:00
Lækkanir áberandi í Kauphöllinni Nokkur lækkun varð á gengi hlutabréfa í Kauphöll Ísland í dag. Þannig lækkaði gengi hlutabréfa Össurar um 1,5 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 197. Þá lækkaði gengi Haga um 1,29 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 19,15. Gengi bréfa Marels lækkaði um 0,74 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 135. Gengi bréfa Icelandair lækkaði um 0,56 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 7,11. 4.10.2012 16:59
Stóra Orkuveituskýrslan kynnt 10. október Niðurstöður úr úttekt á rekstri Orkuveitu Reykjavíkur verða kynntar á eigendafundi þann 10. október næstkomandi klukkan þrjú. Í framhaldi af því verður skýrslan kynnt fyrir borgar- og bæjarfulltrúum ásamt stjórn Orkuveitu Reykjavíkur þar sem úttektarnefndin gerir grein fyrir niðurstöðum sínum og skýrslan verður afhent Sama dag og kynningarfundurinn verður haldinn verður boðað til blaðamannafundar þar sem fjölmiðlum gefst kostur á að spyrja nefndarmenn og fulltrúa af eigendafundi út í niðurstöðurnar, eftir því sem fram kemur í yfirlýsingu frá Jóni Gnarr borgarstjóra. 4.10.2012 14:31
Stýrivextir óbreyttir á evrusvæðinu - Verðbólga yfir markmiði Stjórn Seðlabanka Evrópu ákvað að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 0,75 prósent, en tilkynnt var um þetta á vaxtaákvörðunarfundi bankans í dag. 4.10.2012 14:24
Gylfi: Óttast alvarlegar afleiðingar hárra vaxta Það verður með öllum ráðum að reyna að lækka vexti og koma þannig betri stoðum undir efnahagslíf landsins, segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Hann óttast að Seðlabankinn muni hækka vexti á næstunni, og að það muni hafa slæm áhrif fyrir hagkerfið. 4.10.2012 12:00
Milljarður notar Facebook mánaðarlega Milljarður notenda nota núna Facebook í hverjum mánuði samkvæmt stöðuuppfærslu forsprakka Facebook, Mark Zuckerberg, sem hann birti í morgun á síðu sinni. 4.10.2012 11:33
2.600 spilarar í Ávöxtunarleiknum - Össur vinsælasta fjárfestingin Samtals hafa 2.633 skráð sig til leiks í Ávöxtunarleiknum á fyrstu þremur dögum leiksins, en hann var formlega settur af stað, með bjölluhringingu í Nasdaq Kauphöll Íslands, á mánudaginn. Þeir sem hafa náð bestum árangri í leiknum hafa náð að ávaxta Keldukrónur sínar um 1,5 til 2,5 prósent, eða á bilinu 150 til 250 þúsund krónur. 4.10.2012 10:32
IMF: Endurreisn heimsmarkaðarins tekur áratug Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn áætlar að það muni taka áratug fyrir heimsmarkaðinn að ná sér eftir efnahagshrunið. Þetta sagði helsti hagfræðingur sjóðsins í samtali við ungverska fjölmiðla í gær. 4.10.2012 09:45
Hewlett Packard í frjálsu falli Hugbúnaðar- og töluvurisinn Hewlett Packard (HP) er í frjálsu falli þessa dagana, og féll gengi hlutabréfa félagsins um 13 prósent í gær. Það gerðist fljótlega eftir að Meg Whitman, forstjóri fyrirtækisins, lýsti því yfir að það myndi taka tíma að snúa rekstri fyrirtækisins við, ekki síst í ljósi þess að fyrirtækið hefði byggt upp tekjustofna sína í kringum sölu á fartölvum og prenturunum. Sala á þessum vörum hefur dregist mikið saman undanfarin misseri, ekki síst vegna innreiðar spjaldtölva á markað. 4.10.2012 09:09
Spelkan kemur í stað hnéaðgerðar Handboltakempan fyrrverandi, Jón Hjaltalín Magnússon, hefur notað "Unloader One"-hnéspelkuna frá Össuri undanfarin ár. Hann mælir eindregið með notkun hennar fyrir alla þá sem hafa verki í hnjám og tapað hafa brjóski í hnjáliðum. Hann hefur sjálfur sloppið við eða frestað hnjáaðgerð, sem hann annars hefði líklega þurft að fara í. 4.10.2012 10:05
Við vinnum í verkjum Gáski er öflug sjúkraþjálfunarstöð með útibú í Bolholti og í Mjódd. Þar starfa öflugir sjúkraþjálfarar sem hjálpa fólki að losna við ýmis vandamál og verki. 4.10.2012 10:05
Teygjur gera oft illt verra Hálsverkir fólks eru yfirleitt tilkomnir vegna of langra vöðva en ekki of stuttra. Það er því ekki gott að teygja á hálsinum því þá er verið að gera illt verra. Armstuðningur er mikilvægur svo vöðvar sígi ekki og lengist. 4.10.2012 10:05
Vinnufær og sef á nóttunni Hjörtur Arnar Óskarsson fór að finna fyrir óbærilegum verkjum í öxl, kom í ljós að það væri svokölluð kalkmyndun að myndast. Hann leytaði sér hjálpar hjá sjúkraþjálfara hjá Gáska. 4.10.2012 10:55
Er betri núna en í upphafi meðgöngu Sunna Jónína Sigurðardóttir leitaði sér hjálpar hjá sjúkraþjálfara hjá Gáska, það hefur hjálpað henni gríðarlega með verki sem hún fór að finna fyrir í mjóbaki. 4.10.2012 10:50
Manneskjan sett í öndvegi Sjúkraþjálfun Kópavogs er elsta sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfunarstöð landsins. Þar starfa tólf reyndir sjúkraþjálfarar sem vinna með skjólstæðingum sínum að bættri færni og vinnugetu og við að ná nýjum markmiðum til að geta notið lífsins betur. 4.10.2012 10:05
Öryggi og velferð er okkar fag Öryggismiðstöðin hefur á undanförnum árum fært út starfsemi sína með því að samnýta þekkingu á öryggis-, heilbrigðis- og velferðarmálum. Fyrirtækið býður upp á mjög fjölbreytta þjónustu og vöruúrval á velferðarsviði. 4.10.2012 10:05
Engin atvinnugrein á eins bágt og verslunin Verslunarmenn auglýsa eftir talsmönnum verslunarinnar á Alþingi, segir Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu. Hún segir að verslun eigi engan talsmann í sölum alþingis. "Það er engin atvinnugrein í landinu í dag sem á eins erfitt og verslunin og þetta er sú atvinnugrein sem stendur hvað verst," segir Margrét í samtali við Reykjavík síðdegis. 3.10.2012 21:08
Titringur hjá Reykjavíkurborg vegna skýrslu um OR Úttektarnefnd sem skipuð var til þess að þess að rannsaka starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur hefur lokið vinnu sinni, og verður skýrsla nefndarinnar formlega kynnt öllum eigendum fyrirtækisins á næstu dögum. Titringur er innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar vegna útkomu skýrslunnar. 3.10.2012 00:00
Hægagangur á mörkuðum - Marel hækkaði um 2,26 prósent Litlar sveiflur til hækkunar eða lækkunar voru á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum í dag. FTSE vísitalan breska hækkaði um 0,28 prósent, DAX vísitalan þýska um 0,22 prósent og Nasdaq vísitalan í Bandaríkjunum hækkaði um 0,49 prósent. Nikkei vísitalan í Japan lækkaði um 0,45 prósent og Asia Dow vísitalan um 0.24 prósent. 3.10.2012 22:56
Vill fá skýringar á háum vöxtum á lánum Norðurlandanna Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, hefur lagt fram fyrirspurn til ríkisstjórna Norðurlandanna um kjör á lánum landanna til okkar, sem veitt voru eftir hrunið. 3.10.2012 18:45
Nubo metinn á 125 milljarða - Ríkasti Kínverjinn í hart við Obama Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo, sem sýnt hefur áhuga á því að byggja upp ferðaþjónustu á Grímsstöðum á fjöllum, er í 129. sæti á lista Forbes yfir 400 ríkustu Kínverjana. Hrein eign hans er metin á ríflega einn milljarð dala, eða sem nemur 125 milljörðum króna. 3.10.2012 12:06
Kínverskt fyrirtæki í mál við Barack Obama Kínverska fyrirtækið Ralls Corp hefur ákveðið að höfða mál gegn Barack Obama forseta Bandaríkjanna þar sem hann kom í síðust viku í veg fyrir að fjárfesting fyrirtækisins í Bandaríkjunum yrði að veruleika. Fyrirtækið hugðist reisa vindmyllugarð í Oregon og selja raforku inn í Bandaríkjamarkað, en Obama stöðvaði áformin á grundvelli ákvæðis í lögum sem varða þjóðaröryggi. 3.10.2012 09:52
SÍ: Stýrivextir óbreyttir Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar segir að verðbólga hafi verið nokkru minni en spáð var í ágúst. Á móti kemur að gengi krónunnar er lægra en reiknað var með í spánni og töluverð óvissa er um gengisþróun á næstunni. 3.10.2012 09:11
Grikkir leggja Formúlu 1 braut Stjórnvöld í Grikklandi samþykktu í gær tillögu um leggja Formúlu 1 braut í norðurhluta landsins. Kostnaðurinn við verkefnið hleypur á um hundrað milljón evrum eða rúmlega sextán milljörðum íslenskra króna. 3.10.2012 08:30
Samsung stefnir Apple vegna iPhone 5 Samsung Electronics, sem framleiðir Samsung Galaxy símana, hefur ákveðið að höfða mál gegn Apple. Samsung sakar Apple um að hafa brotið gegn höfundarlögum með ýmsum lausnum sem eru í boði á nýja iPone 5 símanum, eftir því sem fram kemur í frétt Reuters. 2.10.2012 21:53
Bank Nordik hækkaði mest í kauphöllinni Gengi bréfa Bank Nordik hækkaði mest í Kauphöll Íslands í dag, eða um 3,79 prósent. Gengi bréfa félagsins er nú 68,5. 2.10.2012 18:32
Helgi Magnús "nálægt því að hlæja“ Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, hóf málflutning sinn fyrir dómi á því, að segja orðrétt; "Sækjandi biðst afsökunar á því ef hann var of "nálægt því að hlæja“ undir þessum málflutningi,“ vitnaði til þessi sem Guðjón Ólafur Jónsson hrl., lögmaður Gunnars Andersen, hafði sagt í ræðu sinni þar sem hann krafðist þess að Helgi Magnús mydi víkja sem sækjandi í málinu, vegna þess að hann hefði verið meðal þeirra sem sóttu um stöðu forstjóra FME þegar hún var auglýst til umsóknar 11. febrúar 2009. Krafan byggir á því að Helgi Magnús sé vanhæfur til þess að sækja málið, þar sem hann hefði orðið undir í "persónulegri samkeppni“ um embætti forstjóra FME. 2.10.2012 14:09
Telur Helga Magnús vanhæfan til þess að fara með málið Gunnar Andersen, fyrrverandi forstjóri FME, krefst þess að ákæru ríkissaksóknara á hendur honum verði vísað frá, þar sem Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, hafi verið meðal þeirra sem sóttu um stöðu forstjóra sem auglýst var laus til umsóknar 11. febrúar 2009. Gunnar var einnig meðal umsækjanda, sem voru nítján talsins, en hann var að loknu hæfismati ráðinn forstjóri FME. 2.10.2012 13:33
Munnlegur málflutningur í máli Gunnars Andersen Munnlegur málflutningur fer fram í máli ríkissaksóknara gegn Gunnari Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, og starfsmanni Landsbankans, en þeir eru ákærðir fyrir brot gegn bankaleynd, en málið varðar leka á gögnum til DV er vörðuðu fjárhag Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þingmanns. 2.10.2012 12:15
Lággjaldaflugfélagið Gol kaupir 60 Boeing vélar Brasilíska lággjaldaflugfélagið Gol hefur ákveðið að festa kaup á 60 Boeing flugvélum en samningurinn er metin á um sex milljarða dala, eða sem nemur um 750 milljörðum króna. Frá þessu er greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. 2.10.2012 11:42
Bandarísk stjórnvöld höfða mál gegn JP Morgan Embætti saksóknara í New York hefur ákveðið að höfða mál gegn bandaríska bankanum JP Morgan vegna meintra fjársvika Bear Stearns bankans á árunum 2006 og 2007, en JP Morgan keypti bankann eftir í mars 2008. 2.10.2012 09:33
Orkuveitan vill selja helmingshlut í Gagnaveitunni Eigendanefnd Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu um að selja tæplega helmings hlut í Gagnaveitu Reykjavíkur. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag. Lífeyrissjóðir eru meðal þeirra sem sýnt hafa áhuga á því að kaup hlut í Gagnaveitunni. 2.10.2012 08:47
Google stærri en Microsoft Tæknirisinn Google er verðmætara fyrirtæki en hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft. Breyting á gengi hlutabréfa fyrirtækjanna í kauphöllinni í New York í gær varð til þessa að verðmæti Google er nú um 250 milljarðar dollara. 2.10.2012 08:45
Europris lokar verslunum sínum Öllum starfsmönnum Europris Ísland hefur verið sagt upp störfum, en uppsagnarbréf barst til þeirra nú um mánaðamótin. Rekstri allra verslananna verður hætt að loknum rýmingarsölum sem hefjast í dag. 2.10.2012 08:00
Virði Arion banka innan við 15 prósent af eignum Kaupþings Það er til marks um hve eignasafn þrotabúss Kaupþings er stórt, að virði Arion banka er aðeins tæplega 15 prósent af eignum bússins, sé mið tekið af innra virði (price to book 1), þ.e. eigin fé fé Arion banka. 1.10.2012 23:53
Heildareignir Kaupþings ríflega 860 milljarðar Heildareignir þrotabús Kaupþings námu um 861,3 milljörðum króna í lok júní síðastliðins. Þar af var handbært fé um 373,3 milljarðar króna og lán til viðskiptavina námu 202 milljörðum króna. Þetta kemur fram í fjárhagsupplýsingum Kaupþing sem birtar voru í dag. Handbært fé var öllu meira í júní en það var í lok síðasta árs en þá var það um 333 milljarðar. Heildareignirnar eru hins vegar nokkuð minni en þær voru 875 milljarðar í lok síðasta árs. 1.10.2012 21:42
Fjórir bankamenn ákærðir fyrir innherjasvik Bresk yfirvöld hafa ákært fjóra breska bankamenn fyrir innherjasvik, að því er Wall Street Journal (WSJ) greindi frá í dag. Á meðal ákærðu er fyrrverandi framkvæmdastjóri Deutsche Bank, Martyn Dodgson, en málið er sagt vera umfangsmesta mál sinnar tegundar í Bretlandi. 1.10.2012 21:33
Greiddi upp ólöglegt lán en fær ekki leiðréttingu Byggingafélag sem greiddi upp ólögmætt lán frá SPRON haustið 2008, fær ekki leiðréttingu á kröfuna þrátt fyrir að Hæstiréttur hafi dæmt lánið ólögmætt gengistryggt lán. Ef lánið hefði verið tekið hjá einum af föllnu bönkunum þremur, hefði félagið getað fengið skuldaleiðréttingu og nýtt hana til skuldajöfnunar. 1.10.2012 18:45
Össur hækkaði um 2,28 prósent Gengi bréfa Össurar hækkaði um 2,28 prósent í dag, og er gengi bréfa félagsins nú 202. Bréf fasteignafélagsins Regins og Haga er nú í hæstu hæðum, miðað skráningargengi félagsins. Gengi bréfa Regins hækkaði um 1,64 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 9,93, en gengi bréfa Haga hækkaði um 0,52 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 19,35. Skráningargengi Regins var 8,25 en skráningargengi Haga 13,5. 1.10.2012 16:50
Aukinn slóðaskapur við ársreikningaskil Um 34% skráðra félaga hafa skilað inn ársreikningum samkvæmt lögum þar um. Þetta kemur fram í samantekt CreditInfo. Á sama tíma í fyrra höfðu um 41% fyrirtækja skilað inn ársreikningi. Samkvæmt lögunum ber skráðum hlutafélögum að skila inn ársreikningi til Ríkisskattstjóra eigi síðar en 8 mánuðum eftir lok reikningsárs en sérstakar og þrengri reglur gilda um félög sem eru skráð á opinberu verðbréfaþingi. Samkvæmt reglugerð skal almenningur síðan hafa aðgang að ársreikningunum. 1.10.2012 16:35
Fríverslunarsamningur við Hong Kong tekur gildi í dag Fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Hong Kong í Kína tekur gildi í dag. Samningur um vinnumál milli sömu aðila og landbúnaðarsamningur milli Íslands og Hong Kong. Sama dag taka gildi fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna og Svartfjallalands og landbúnaðarsamningur Íslands og Svartfjallalands. 1.10.2012 15:32
Yfir þúsund búnir að skrá sig í Ávöxtunarleikinn Þrátt fyrir Ávöxtunarleikurinn hafi formlega verið settur af stað klukkan 10:00 í morgun, þ.e. fyrir ríflega fimm klukkutímum, þá hafa meira en þúsund spilarar skráð sig til leiks og framkvæmt 5.762 viðskipti, eða á um fjögurra sekúndna fresti á meðan leikurinn hefur verið í loftinu. 1.10.2012 15:24
DataMarket heimsækir Hvíta húsið Upplýsingatæknifyrirtækið DataMarket mun kynna nýjustu afurð sína, DataMarket Energy, á sérstakri samkomu í Hvíta húsinu í Washington í dag. Það er vísinda- og tæknisvið Hvíta hússins sem stendur fyrir uppákomunni ásamt Orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna. Markmiðið er að kynna nýjungar á sviði orkunýtingar. 1.10.2012 13:24
Bók Arngríms lærða var seld á 330 þúsund Bók Arngríms Jónssonar lærða, SPECIMEN ISLANDIÆ HISTORICVUM, var slegin á 330 þúsund krónur áður en bókauppboði Gallerí Foldar og Bókarinnar lauk fyrir miðnætti í gær. Bókin var prentuð og gefin út í Amsterdam 1643 en síðar bundin inn af Unni Stefánsdóttur sem rak bókbandsstofu í Grjótaþorpinu. 1.10.2012 13:16