Telur Helga Magnús vanhæfan til þess að fara með málið 2. október 2012 13:33 Gunnar Andersen.
Gunnar Andersen, fyrrverandi forstjóri FME, krefst þess að ákæru ríkissaksóknara á hendur honum verði vísað frá, þar sem Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, hafi verið meðal þeirra sem sóttu um stöðu forstjóra FME sem auglýst var laus til umsóknar 11. febrúar 2009. Gunnar var einnig meðal umsækjanda, sem voru nítján talsins, en hann var að loknu hæfismati ráðinn forstjóri FME. Guðjón Ólafur Jónsson hrl., lögmaður Gunnars, sagði í munnlegum málflutningi í Héraðsdómi Reykjavíkur, sem nú stendur yfir, að Gunnar hefði haft betur í persónulegri samkeppni um stöðu forstjóra FME, við Helga Magnús, og því sé hann vanhæfur til þess að reka málið fyrir dómstólum. Guðjón Ólafur sagði enn fremur, við upphafi ræðu sinnar, að ákæran væri „óttalegur bastarður" þar sem hún væri óskýr og illa framsett. Gunnar og fyrrverandi starfsmaður Landsbankans eru ákærðir fyrir að hafa staðið að því að leka gögnum úr fjármálakerfinu, um fjárhag Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þingmanns, til DV. Er Gunnar talinn hafa brotið gegn lögum um þagnarskyldu auk þess að hafa brotið gegn lögum um opinbera starfsmenn. Þeir neituðu báðir sök við þingfestingu málsins. Munnlegi málflutningurinn sem nú stendur yfir, snýr eingöngu að frávísunarkröfu Gunnars, sem hann stendur einn að. Lögmaður fyrrverandi starfsmann Landsbankans tók undir kröfuna, þegar Guðjón Ólafur gerði grein fyrir henni.
Mál Helga Magnúsar Gunnarssonar Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira