Kaupþing hættir við málshöfðun gegn Vestmannaeyjabæ 20. september 2012 09:08
Slitastjórn Kaupþings hefur ákveðið að fella niður málshöfðun þá er höfðuð var á hendur Vestmannaeyjabæ til riftunar greiðslu Kaupþings hf. til Vestmannaeyjabæjar frá 8. september 2008, upp á rétt rúman milljarð kr. Í tilkynningu segir að um leið er fallið frá kröfu um að Vestmannaeyjabær greiði Kaupþingi hf. þessa sömu fjárhæð til baka. Málið mun því ekki koma til þingfestingar síðar í dag eins og stefnt var að. Vestmannaeyjabær fagnar þessum fullnaðarsigri í málinu. Eins og komið hefur fram snerist málið um að þann 8. september greiddi Kaupþing hf. Vestmannaeyjabæ til baka peningamarkaðsinnlán. Þar var um að ræða fjármuni í eigu Vestmannaeyjabæjar sem voru í peningamarkaðsinnláni hjá Kaupþing, um það var ekki deilt. Í stefnu Kaupþings kom hinsvegar fram að viðkomandi fjárhæð hafi verið greidd fyrr en eðlilegt var í skilningi laga um gjaldþrotaskipti. „Vestmannaeyjabær hefur ekki upplýsingar um hvað það er sem nú hefur orðið til þess að slitastjórn Kaupþings fellur frá kröfu upp á rúmlega þúsund milljónir á hendur bæjarfélaginu. Öllum hefði mátt ljóst vera sterk staða Vestmannaeyjabæjar," segir í tilkynningunni. „Réttmætur eigandi fjár hlýtur ætíð að hafa fullan rétt á að ráðstafa fé sínu, og þá sérstaklega þegar hann óttast að annars kunni illa að fara. Því miður bendir margt til þess að ótti Vestmannaeyjabæjar um að slitastjórnin væri hreinlega að fiska í gruggugum pollum hafi verið á rökum reistur. Eftir sem áður er ljóst að sveitarfélagið hefur orðið fyrir beinum kostnaði af málinu. Það sem er alvarlegra er að vegna stefnunnar hefur Vestmannaeyjabær orðið að fresta öðrum fjármálagerningum svo sem samningum við Fasteign hf. um endurkaup á eignum og fl. Slíkir samningar eru háðir sveiflu gjaldmiðla og fyrir liggur að frá því að Vestmannaeyjabæ var birt stefna hefur krónan veikst. Kjörtími til samninga kann því að vera hjá liðinn og skaðinn því umtalsverður. Vestmannaeyjabær mun því kanna grundvöll fyrir skaðabótum vegna stefnu Kaupþings sem augljóslega byggði aldrei á málefnalegum forsendum."
Mest lesið Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Viðskipti innlent Messenger-forritið heyrir sögunni til Viðskipti erlent Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Viðskipti innlent Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Viðskipti innlent Hægt að spara háar fjárhæðir í jólainnkaupum Neytendur Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Viðskipti innlent Verðlag lægst í Prís á átta algengum jólavörum Neytendur Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Viðskipti innlent Persónuleg áætlanagerð fyrir 2026 aldrei verið jafn auðveld og nú Atvinnulíf Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Sjá meira