Fleiri fréttir

Vaxtagreiðsluþakið er valkvæð þjónusta

Íslandsbanki hafnar alfarið athugasemdum Hagsmunasamtaka heimilanna um að markaðssetning á vaxtagreiðsluþakinu gefi ranga mynd af þjónustunni. Þjónustunni er aðeins ætlað að veita viðskiptavinum skjól fyrir sveiflum í greiðslubyrði við hækkun vaxta.

Telja "vaxtagreiðsluþakið“ ólöglegt

Hagsmunasamtök heimilanna hafa óskað eftir rannsókn á því hvort auglýsingar Íslandsbanka um "vaxtagreiðsluþak óverðtryggðra húsnæðislána" samræmist lögum um neytendalán og fjárfestavernd.

Ferðamannaiðnaður á Spáni í blóma

Ferðamannaiðnaðurinn blómstrar á Spáni en aldrei hafa jafn margir ferðamenn sótt landið heim og í síðasta mánuði. Mesta aukningin er meðal þýskra ferðamanna. Ferðamannaheimsóknum fjölgar um 4,4% milli ára en alls komu 7,7 milljónir ferðamanna til Spánar í júlí. Ferðamannaiðnaðurinn er ein mikilvægasta atvinnugreinin í landinu, en 10% af vergri landsframleiðslu kemur frá greininni.

Egyptaland fer fram á lán frá AGS

Mohamed Mursi, forseti Egyptalands, hefur beðið Alþjóða gjaldeyrissjóðinn um aðstoð. Forstjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins greindi frá þessu að loknum fundi með forsetanum í Kaíró í dag.

Meiri hagvöxtur og lægri verðbólga

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Þá spáir bankinn meiri hagvexti og lægri verðbólgu í nýjum peningamálum sem komu út í dag.

Útlit fyrir aukna fjárfestingu í íbúðarhúsnæði

Seðlabanki Íslans reiknar með því að fjárfesting í íbúðarhúsnæði aukist um 16-19% á ári næstu tvö ár. Þetta kemur fram í Peningamálum bankans sem komu út í dag. Þegar er hafin vinna við nokkrar umfangsmiklar byggingaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu.

Lakara verð á útflutningsvörum Íslands

Seðlabankinn býst við að verð á helstu útflutningsafurðum Íslendinga verði lakara en útlit var fyrir í maí. Þetta kemur fram í Peningamálum bankans.

Stýrivextir óbreyttir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Ástæðan fyrir þeirri ákvörðun er meðal annars sú að horfur eru á meiri hagvexti í ár enn Seðlbankinn spáði í maí, en horfur fyrir árin 2013 og 2014 eru á heildina litið svipaðar. Batinn á vinnumarkaði hefur einnig reynst meiri en spáð var. Vextir Seðlabanka Íslands verða því áfram 6,75% af daglánum, 5,75% af lánum gegn veði í sjö daga og 4,75% af innlánum.

Finnar í sóknarhug

Þrátt fyrir erfiðleika í Evrópu hafa Finnar náð að halda lánshæfismati sínu í góðu, en ríkissjóður landsins hefur enn AAA-lánshæfiseinkunn frá stærstu lánshæfismatsfyrirtækjum landsins. Það er þó ekki þar með sagt að allt gangi vel, eða sé auðvelt.

Vilja fá lengri frest til að greiða skuldir

Antonis Samaras, forsætisráðherra Grikklands, segir nauðsynlegt að gríska ríkið fái lengri tíma til að vinna sig út úr efnahagsþrengingum. Lánadrottnar eigi að gefa þeim lengri frest til að greiða skuldir sínar. Í dag mun forsætisráðherran funda með Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar og forseta Efnahags- og myndbandalags Evrópu, þar sem rætt verður um skuldavanda landsins. Grikkjum ber að skera niður ríkisútgjöld um 11,5 milljarða evra á næstu tveimur árum, að því er fram kemur á vef BBC.

Styrkjandi leiklistarnámskeið

Inga Bjarnason hefur starfað sem leikstjóri undanfarin þrjátíu ár. Fyrir nokkrum árum fór hún í Listaháskóla Íslands og nam þar kennslufræði.

Perlur íslenskrar dægurtónlistar í eigu Straums

Margar af vinsælustu perlunum í íslenskri dægurtónlist í Hugverkasjóði Íslands eru nú í eigu gamla Straums fjárfestingarbanka. Fyrir hrunið gáfu margir vinsælir tónlistarmenn út skuldabréf gegn því að afborganir af skuldabréfunum yrðu greiddar með STEF-gjöldunum þeirra.

Kanna aðgerðir til að eyða óvissu um gengislánin

Stjórnvöld kanna nú hvort frekari aðgerða sé þörf til að hraða meðferð mála fyrir dómstólum sem tengjast gengislánum og þeirri óvissu sem ríkir um þau. Alls eru ellefu gengislánamál nú til meðferðar og bíða þau niðurstöðu dómstóla.

Virðisaukaskattur ógnar hótelrekstri í Danmörku

Samtök ferðaþjónustunnar benda á heimasíðu sinni á að kreppa sé í dönskum hótelrekstri vegna hás virðisaukaskatts. Ábendingin er innlegg í umræðu um fyrirhugaða hækkun íslenskra stjórnvalda á virðisaukaskattlagningu á gistinætur úr 7% í 25,5%.

Rekstrarkostnaður Seðlabankans jókst um 400 milljónir

Rekstrarkostnaður Seðlabanka Íslands nam í fyrra 2314 milljónum króna og hækkaði um rúmar 400 milljónir frá árinu á undan þegar hann nam 1910 milljónum. Þetta kemur fram í svari Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, við fyrirspurn Guðlaugs Þ. Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.

Eldgosin kostuðu ríkissjóð 1,5 milljarð aukalega

Ríkissjóður hefur eytt tæpum einum og hálfum milljarði í fjárveitingar vegna eldgosanna í Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli vorið 2010 og í Grímsvötnum vorið 2011. Þá er ekki meðtalinn kostnaður stofnana sem fjármagnaður hefur verið af reglubundnum árlegum fjárheimildum þeirra. Þrátt fyrir það hefur ekki reynst unnt að bæta tjón allra í öllum tilvikum, ekki frekar en í kjölfar annarra náttúruhamfara á síðustu áratugum.

Tekjur Best Buy falla saman - keppinautar á netinu að vaxa

Gengi hlutabréfa í raftækjaverslunarrisanum Best Buy féll um 9 prósent í dag eftir að uppgjör félagsins fyrir annan fjórðung þessa árs var birt, en það sýndi tekjuminnkun frá fyrra ári um 12 milljónir dala, eða sem nemur um 1,4 milljörðum króna.

Fréttaskýring: Blóðugur bardagi Facebook við fjárfesta

Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því samfélagsmiðillinn Facebook var skráður á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum, 18. maí sl. Gengi bréfa félagsins er tæplega 20 dalir á hlut en við skráningu var félagið verðmetið á 38 dali á hlut, eða næstum tvöfalt meira en verðlagning þess á markaði nú segir til um. Miðað við skráningargengið var félagið verðmetið á 104 milljarða dala, eða sem nemur liðlega 12.500 milljörðum króna. Nú er þessi verðmiði tæplega helmingi lægri eða sem nemur 6.500 milljörðum króna.

Ráðherra leggur fram frumvarp um smálán að nýju

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, ætlar að leggja fram að nýju, í haust, frumvarp vegna starfsemi smálánafyrirtækja. Frumvarpið var lagt fram fyrir þinghlé í vor en ekki náðist að afgreiða það vegna tímaskorts. Efni frumvarpsins felur ekki í sér bann við smálánum, heldur er verið að setja starfsemi smálánafyrirtækja þrengri skorður.

Aflaverðmæti eykst um næstum fjórðung milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa á fyrstu fimm mánuðum ársins jókst um 23,4% miðað við sama tíma í fyrra. Í ár var verðmætið 70,7 milljarðar en 57,3 milljarðar í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.

Birtir til í byggingariðnaði

Byggingarkostnaður hækkar töluvert minna á síðustu tólf mánuðum en hann hefur gert síðustu misseri. Í lok síðasta árs var hækkunin 11,4% en nú er hún aðeins 3,9%.

Soros kaupir tæplega tvö prósent hlut í Man. Utd.

Hinn 82 ára gamli áhættufjárfestir, George Soros, hefur nú veðjað á Manchester United í fjárfestingum sínum, en hann hefur keypt tæplega 2 prósent hlut í félaginu fyrir ríflega 40 milljónir dala, eða sem nemur tæplega fimm milljörðum króna, að því er greint er frá í fréttum breska ríkisútvarpsins BBC.

Arion banki gefur út snjallsímaforrit

Arion banki hefur sett í loftið nýtt snjallsímaforrit sem gerir viðskiptavinum bankans kleift að fylgjast með fjármálum sínum í símanum með einum smelli og án innskráningar. Appið er viðbót við farsímavefinn sem hefur verið í boði síðan í nóvember 2011 og gerir notendum kleift að vera ávallt tengdir við bankann sinn.

Ævintýralegur uppgangur Apple

Hugbúnaðar- og fjarskiptarisinn Apple varð í gær verðmætasta fyrirtæki sögunnar, þegar markaðsvirði þess, miðað við gengi hlutabréfa félagsins, fór í 622 milljarða dala, eða sem nemur tæplega 78 þúsund milljörðum króna.

"Smálán eru af hinu illa"

"Smálán eru af hinu illa. Öll viðskipta eiga að ganga út á það að báðir aðilar hagnist á þeim. En í viðskiptum sem þessum þá stendur annar aðili höllum fæti.“ Þetta segir Breki Karlsson, hagfræðingur og forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi.

Fjármálaráðuneytið vísar ásökunum Víglundar á bug

Fjármálaráðuneytið hafnar því að hafa ekki brugðist við málaleitan Víglundar Þorsteinssonar, fyrrverandi forstjóra BM Vallár. Á blaðamannafundi í dag sagði Víglundur að ráðuneytið hefði neitað að veita upplýsingar um endurmat á lánasöfnum sem færð voru úr Kaupþing hf. yfir í Ariobanka.

Hvetur leiðtoga til að tryggja forgang fyrir innistæðueigendur

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, hvetur leiðtoga Evrusvæðisins og Bretlands til að fylgja fordæmi íslenskra yfirvalda og tryggja forgang fyrir innistæðueigendur. Þetta muni draga úr áhrifum mögulegs fjármálahruns.

Vísa á skiptastjóra Kaupþings í Lúx í Lindsor-máli

Þær skýringar hafa verið gefnar að lánaskjöl vegna 171 milljónar evra millifærslu frá Kaupþingi til félagsins Lindsor Holdings í miðju bankahruni hafi verið undirrituð marga mánuði eftir á að kröfu skiptastjóra Kaupþings í Lúxemborg.

Apple verðmætasta fyrirtæki sögunnar

Apple varð í dag verðmætasta fyrirtæki sögunnar. Methækkun varð á hlutabréfaverði fyrirtækisins í dag. Við það varð markaðsvirði fyrirtækisins 622 milljarðar dala. Fyrra met hafði Microsoft fyrirtækið átt en þann 30 desember 1999 var markaðsvirði þess tæplega 619 milljarðar dala. Í þessum tölum er ekki búið að leiðrétta fyrir verðbólgu en á núvirði var verðmæti Microsoft 850 milljarðar dala.

BBA ætlar að selja Stansted flugvöll

Rekstrarfélagið BBA, sem rekur flugvelli víðs vegar um Bretland, hefur ákveðið að selja Stansted flugvöll í útjaðri London. Félagið hefur átt í deilum við samkeppnisyfirvöld í Bretlandi frá árinu 2009, en þau fóru fram á að BBA seldi Stansted til þess að örva samkeppni á flugvallareksturssviði, en félagið hefur rekið sjö flugvelli í Bretlandi þar sem um 60 prósent af flugfarþegum fer um að hverju ári. Á meðal þeirra eru Heathrow flugvöllur og Gatwick, auk Stansted flugvallar.

Vísa ásökunum HH á bug

Samtök fjármálafyrirtækja vísa á bug ásökunum Hagsmunasamtaka heimilanna um að aðkoma samtakanna að samstarfi lánveitenda og fulltrúa lántakenda um úrvinnslu gengistryggðra lána hafi brotið gegn skilyrðum Samkeppniseftirlitsins. Samtökin segjast hafa fylgt skilyrðum Samkeppniseftirlitsins fyrir samstarfinu að öllu leyti og þar af leiðandi sé enginn fótur fyrir þeim ásökunum sem koma fram í kvörtun Hagsmunasamtakanna.

Gunnar Smári: Mikil barátta við „peningaöfl“ í lyfjaiðnaði

Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, segir vímuefnasjúklinga sem leita sér hjálpar vegna mikillar neyslu kannabisefna, oft vera „afar illa á sig komna". Þá séu þeir oft næstum „óvirkir samfélagsþegnar" , þ.e. einangraðir og staðnaðir, eftir langavarandi neyslu og langan tíma taki fyrir þá að ná bata, en í ársskýrslu lögreglunnar, sem kom út í síðasta mánuði, kemur fram að lögreglan finni sterklega fyrir linnulausum áróðri um skaðleysi kannabisefna.

Vilja rannsókn á samráði fjármálafyrirtækja

Hagsmunasamtök heimilanna fara fram á rannsókn Samkeppniseftirlitsins á aðkomu Samtaka fjármálafyrirtækja að samráði sem fjármálafyrirtæki fengu að hafa um viðbrögð við hæstaréttardómi frá 15. febrúar.

Samruni Vinnslustöðvarinnar og Ufsabergs stendur

Héraðsdómur Suðurlands hafnaði fyrir helgi kröfum sem Guðmundur Kristjánsson útgerðarmaður, og fulltrúar Stillu útgerðar og KG fiskverkunar, sem mynda minnihluta í hluthafahópi Vinnslustöðvarinnar gerðu um að ákvörðun hluthafafundar fyrirtækisins um samruna Ufsabergs-útgerðar ehf. við Vinnslustöðina yrði ógilt.

Bílasala bágborin á landsbyggðinni

Mun minni sala er á bílum úti á landi en á höfuðborgarsvæðinu. Þetta segir bílasalinn Bergmann Ólafsson í samtali við fréttamiðilinn Bæjarins Besta á Ísafirði. Hann segir notaða bíla seljast best.

Rússar í „yfirgír“

Sjóðsstjórinn John Connor, segir í viðtali við Bloomberg fréttaveituna að olíuiðnaðurinn í Rússlandi hafi mikil áhrif á efnahag landsins, mun meiri en fyrir nokkrum árum síðan.

Segir lög brotin við yfirtöku á BM Vallá

Víglundur Þorsteinsson, fyrrverandi stjórnarformaður B.M. Vallár, sakar ráðherra, einstaka starfsmenn nýju bankanna og skilanefndanna, um að hafa brotið ýmis ákvæði íslenskra laga sem refsingar eru lagðar við í kjölfar efnahagshrunsins og þegar Arion tók yfir B.M. Vallá. Víglundur hefur boðað til blaðamannafundar í dag þar sem hann og Sigurður G. Guðjónsson munu ræða þessi mál og benda á gögn máli sínu til stuðnings, að því er fram kemur í tilkynningu frá Víglundi.

Víglundur: Arion gerði lista yfir fyrirtæki til að hafa ávinning af

Ljóst er að skuldunautum Arion banka var mismunað í uppgjöri við bankann eftir efnahagshrunið, segir Víglundur Þorsteinsson, fyrrverandi forstjóri BM Vallár. Hann segir að stjórnvöld hafi ekki farið eftir reglum neyðarlaganna, sem ríkisstjórn Geirs H. Haarde. Líklegt sé að ráðherrar í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar, einstakir starfsmenn nýju bankanna og skilanefnda hafi gerst brotlegir við ýmis ákvæði íslenskra laga.

Áfengissýki kostar samfélagið 80 milljarða árlega

Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, segir vímuefnasýki kosta íslenskt samfélag að minnsta kosti áttatíu milljarða á ári, og enn skorti viðurkenningu hjá stjórnvöldum á þörfum sjúklinga, sem ekki geti allir fengið sama meðferðarúrræðið.

Vill að tryggt verði að endurkröfur skuldara fyrnist ekki

Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis segir að tryggja verði að endurkröfur skuldara á hendur bönkunum fyrnist ekki vegna óvissu sem hefur dregist á langinn í gengismálum. Þá verða bankarnir hvattir til að veita skuldurum aukið svigrúm.

Sérstakur fær lykilgögn frá Lúxemborg vegna FL Group máls

Sérstakur saksóknari fékk loksins í vor afgreidda réttarbeiðni í Lúxemborg til að geta rekið slóð umdeildrar þriggja milljarða króna millifærslu frá FL Group inn á reikning Kaupþings í Lúxemborg. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og síðar sérstakur saksóknari hafa nú í rúm þrjú ár verið að rannsaka málið, án niðurstöðu.

Sjá næstu 50 fréttir