Viðskipti innlent

Aflaverðmæti eykst um næstum fjórðung milli ára

BBI skrifar
Mynd/Stefán Karlsson
Aflaverðmæti íslenskra skipa á fyrstu fimm mánuðum ársins jókst um 23,4% miðað við sama tíma í fyrra. Í ár var verðmætið 70,7 milljarðar en 57,3 milljarðar í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.

Þessa aukningu má að miklu leyti skýra af því að aflinn hefur aukist. Munar þar mestu um töluverða aukningu í loðnuveiðum milli ára. Samkvæmt aflatölum Fiskistofu, sem miðast við tímabilið milli 1. september í fyrra til loka maí í ár, jókst heildaraflinn um 37,5% milli ára. Eins og gefur að skilja leiðir slík aukning til þess að heildar aflaverðmætið eykst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×